Þjóðviljinn - 30.01.1988, Blaðsíða 2
r'SPURNINGIN—
Fer skammdegiö
í skapið á þér?
Bjami Freyr Kristjánsson
blaðberi:
Mér er alveg sama hvaða árs-
tíð er. Jú ég er eitthvað léttari á
morgnana á sumrin. Að öðru leyti
finn ég engan mun á mér.
Ólafur Engilbertsson
teiknari og gagnrýnandi:
Skammdegið hefur engin áhrif
á skapið. Það er kannski vegna
þess að ég drekk lýsi á morgn-
ana.
Halla Arnar
verslunarmaður:
Já. En þegarjanúarferað halla
tekur brúnin að léttast að nýju. í
skammdeginu borða ég mikið
súkkulaði, sef mikið og er geð-
vond.
Jón Ormar:
Skammdegið fór í skapið á
mér, en nú er sól tekin að hækka
á lofti að nýju. Ég var fjári úrillur
þegar myrkrið var sem mest.
Njáll Þórðarson
frjótæknir:
Skammdegið hefur aldrei gert
mér gramt í geði. Ég er að eðlis-
fari léttur og það hjálpar trúlega.
SKAK
Grœnland
Vilja örari siglingar
Útflutningsráð: Skip á 2ja mánaðafresti er ekki nóg.
Heildarútflutningur héðan til Grœnlands í ár er talinn
verða um einn miljarður. Stjórnskipaðri nefndfalið að
kanna málið
Iljósi þeirrar miklu og öru þró-
unar sem orðið hefur í sam-
skiptum okkar og Grænlendinga
að undanförnu er brýnt að fjölga
skipaferðum á milli landanna frá
þvi sem nú er. Nú kemur skip frá
Grænlandsversluninni aðeins á
2ja mánaða fresti hingað, sem er
alls ekki nóg, sagði Jens Ingólfs-
son hjá Utflutningsráði í samtali
við Þjóðviljann.
Sem dæmi um þróunina í út-
flutningi okkar til Grænlands,
sagði Jens að 1983 hefðum við
aðeins flutt út vörur fyrir 3,1 milj-
ón króna, en 1987 nam vöruút-
flutningurinn þangað um 4-500
miljónir króna og því er spáð að í
ár verði hann nálægt einum milj-
arði.
í því skyni að fjölga skipaferð-
um á milli Grænlands og íslands
hefur verið stjórnskipuð nefnd
frá báðum aðilum til að kanna
hvað hægt sé að gera til að koma á
fleiri skipaferðum á milli land-
anna. Aðaluppskipunarhöfn
Grænlendinga er í Álaborg í
Danmörku, sem er ansi mikill
krókur með vörur sem eiga að
fara héðan til Grænlands, fyrir
utan aukinn kostnað. Siglingar til
Grænlands eru í höndum Grænl-
andsverslunarinnar sem hefur
einkaleyfi á þeim. En hún tók við
þeim úr hendi Konunglegu
dönsku verslunarinnar þegar
Grænlendingar fengu sína heima-
stjórn um árið.
Stóraukin viðskipti og önnur samskipti við grannann í vestri, Grænlendinga, kalla á fleiri skipaferðir á milli landanna að
mati Útflutningsráðs. Myndin er frá höfninni í Nuuk. Ljósm. áb.
Einar Hermannsson, hjá Sam-
bandi íslenskrar kaupskipaút-
gerðar, sem var skipaður af hálfu
samgönguráðuneytisins í nefnd-
ina, sagði við Þjóðviljann að
nefndin væri rétt að byrja að
starfa og væru Grænlendingar ný-
búnir að skipa sína menn í hana.
Einar sagði að of snemmt væri að
segja til um það hver árangurinn
yrði af starfi hennar, en fyrsta
skrefið væri auðvitað að ræðast
við og athuga þá möguleika sem
væru í stöðunni. Einar sagði það
engu að síður vera keppikefli
fyrir Grænlendinga að skipaferð-
um á milli landanna fjölgaði úr
því sem nú er í ljósi hinna miklu
og öru viðskipta sem verið hafa á
milli þeirra og okkar.
-grh
Fiskmarkaðurinn í Grindavík
Seljendur tvístíga
Gunnlaugur Dan Ólafsson: Peimfinnstskrítið að kaupa af sjálfum
sér. Selt úr20-30 bátum á degi hverjum
Grindavík við
Það hefur verið stígandi í söl-
unni á markaðnum hér í
Grindavík, en því er ekki að leyna
að margir fiskseljcndur eru tví-
stígandi í afstöðu sinni til hans.
Hérna eru svo til allir bæði með
útgerð og fiskvinnslu og finnst dá-
lítið skrítið að þurfa að kaupa
físk af sjálfum sér,“ sagði Gunn-
laugur Dan Ólafsson, starfsmað-
Verkalýðssaga
Gullna flugan í Sóknarsal
Félag áhugafólks um verkalýðssögu efnir tilfundar
um bók Þorleifs Friðrikssonar í dag
Sigurður Pétursson sagnfræðing-
ur.
Bók Þorleifs kom út fyrir síð-
ustu jól og vakti athygli og umtal,
en rauður þráður verksins er
samskipti Alþýðuflokksins hér
heima og stóru bræðraflokkanna
á Norðurlöndum, og eru fjár-
hagstengsl þar í brennidepli.
Félag áhugafólks um verkalýðs-
sögu efnir til fundar í Sóknar-
sainum í dag, laugardag, klukkan
tvö. Fjallað verður um bók Þor-
leifs Friðrikssonar, Gullnu
fluguna.
Frummælendur verða Árni
Gunnarsson alþingismaður og
ur markaðarins
Þjóðviljann.
Að sögn Gunnlaugs hafa þetta
20-30 bátar selt á markaðnum
daglega. Meðaltalsverð fyrir
þorsk hefur verið um 40 krónur
kflóið, meðaltalsverð fyrir kflóið
af ufsa hefur verið 22-23 krónur,
slægð ýsa hefur farið á 42-43
krónur kflóið að meðaltali, en ó-
slægð ýsa upp í 80 krónur kflóið-
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans eru útgerðarmenn, sem
jafnframt er fiskverkendur,
hræddir um að markaðurinn fái
ekki nógan fisk og við það fari
verðið á honum upp úr öllu valdi.
Þessvegna er þeim nauðsynlegt!
að sjá honum fyrir nægilegum
fiski, en þó ekki öllum, því þeim
finnst, sumum hverjum, betra að
ráðstafa honum að eigin vild án
þess að kaupa hann á markaði.
-grh
Háskólinn
Álfrún skipuð
prófessor
Fyrsta konan sem skipuð
er prófessor við
heimspekideild. Hænufet
í jafnréttisátt
Álfrún Gunnlaugsdóttir hefur
verið skipuð prófessor í almennri
bókmenntafræði við Háskólann
og er hún fyrsti prófessorinn í
þessari grein. Er þetta í fyrsta
sinn sem kona er skipuð í slíkt
embætti við heimspekideildina.
Margrét Guðnadóttir var um
langt skeið eini kvenprófessorinn
við skólann. Auk hennar og Álf-
rúnar hefur Guðný Guðbjörns-
dóttir gegnt embætti prófessors,
en hún var sett tímabundið í Un-
escoforföllum Andra ísakssonar.
Sú fjórða er Þórdís Kristmunds-
dóttir, læknadeild.
Enn hallast á jafnréttisdróg-
inni þrátt fyrir þessa gífurlegu
fjölgun í hópi kvenprófessora;
starfsbræðurnir eru um hundrað
talsins.
HS
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJiNN Laugardagur 30. janúar 1988