Þjóðviljinn - 30.01.1988, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 30.01.1988, Blaðsíða 16
Aðalsími 681333 Kvöldsími 681348 Helgarsími 681663 Sparisjóðsvextir á téKKareiKninga með hávaxtaKjörum SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF. Verkaskiptingin Framsókn skiptir um skoðun Jón Kristjánsson: Vil að þeirþœttir sem varða íþróttasjóð, félagsheimilasjóð og byggðasöfnin verði skoðaðir betur. Alexander Stefánsson: Setjumfram kröfu um að iþróttasjóður verði ekki lagður niður Eg vil að frumvarpið um verka- skiptingu ríkis og sveitarfé- laga verði skoðað betur, einkum þeir þættir sem snerta íþrótta- sjóð, félagsheimilasjóð og byggðasöfnin, sagði Jón Krist- jánsson, sem á sæti í félagsmála- nefnd neðri deildar Alþingis, við Þjóðviljann í gær. Stuðningur Framsóknar- flokksins við fnimvarpið, sem til- heyrir fjárlagapakka Jóns Bald- vins Hannibalssonar, virðist fara mjög þverrandi. Áður hafði Guðni Ágústsson lýst yfir and- stöðu við frumvarpið. „Við munum setja fram kröfu um að íþróttasjóður verði ekki lagður niður þegar frumvarpið kemur aftur til félagsmálanefnd- Stærsti sparifjáreigendahópurinn er fólk yfir sextugu. Allt bendir til að stór hluti þess hóps hafi sparifé sitt á neikvæðum vöxtum. Mynd Sig. Sparifjáreigendur Aldraðir „spara“ mest Sextíu afhundraði sparifjár einstaklinga bundið á almennum innlánsreikningum í árslok 1985 67 hundraðshlutar sparifjár einstaklinga í helstu banka- stofnunum voru bundnir á al- mennum innlánsreikningum í árslok 1985. Að viðbættum sk. veltiinnlánum, - ávísana og hlaupareikningum, voru 78,8% innlána einstaklinga til bankak- erfisins bundin á þessum tveimur innlánsformum. Helmingur spar- ifjár eistaklinga sem bundið var á almennum innlánsreikningum var í eigu einstaklinga 60 ára og eldri. Eins og greint var frá í Þjóðviljanum í gær áætlar Seðla- bankinn að eigendur almennra sparireikninga hafi tapað, 1,3 miljarði króna í fyrra vegna nei- kvæðra vaxta, miðað við að þetta innlánsform væri með 2% raun- vöxtum. Að viðbættum innlánum á ávísana- og hlaupareikningum áætlar Seðlabankinn að sparifjár- eigendur hafi orðið af allt í allt 3 miljörðum vegna neikvæðra vaxta. Upplýsingar um skiptingu innlánsfjár í árslok 1985 er að finna í grein Yngva Arnar Krist- inssonar hjá hagdeild Seðlabank- ans, sem birtist í Fjármálatíðind- um í fyrra. Yngri upplýsingar liggja ekki fyrir um hlutfallslega skiptingu sparifjár einstaklinga milli ólíkra innlánsforma. - Við eigum ekki neinar slíkar upplýsingar, sagði Kristján Gunnarsson í Búnaðarbankan- um, þegar Þjóðviljinn leitaði eftir upplýsingum um hvaða aldurs- hópar hefðu sparifé sitt öðrum fremur inná almennum spari- reikningum. Samkvæmt þeim upplýsingum sem Pjóðviljinn aflaði sér í nokkrum bönkum í gær, eru al- mennir sparireikningar notaðir sem veltureikningar. - Yfirleitt stoppar fé ekki lengi við á slíkum reikningum. Almennt er inn- leggið fljótlega tekið út til dag- legrar neyslu, sagði gjaldkeri í banka á Reykjavíkursvæðinu. -rk ar,“ sagði Alexander Stefánsson, formaður nefndarinnar í neðri deild í samtali við Þjóðviljann. Þegar frumvarpið var til ann- arrar umræðu í neðri deild lagði Alexander til að því yrði vísað til nefndar aftur, sem er mjög óvanaleg málsmeðferð. Var fall- ist á það og var í framhaldi af því leitað umsagna fulltrúaráðs sveitarfélaga og landshlutasam- banda sveitarfélaga. Fulltrúa- ráðið ályktaði um síðustu helgi og var þar samþykktur stuðningur við frumvarpið óbreytt, eftir að formaður stjómar fulltrúaráðsins hafði hótað að segja af sér ef hans vilji næði ekki fram að ganga, en landshlutasamböndunum var gefinn frestur til 30. janúar að svara. Hafa svör ekki borist enn. „Meðal sveitarstjórnarmanna virðist ekki vera sú samstaða, sem þarf til að jafn mikilvægt frumvarp verði að lögum. Eg heyri ekki betur en að samþykkt fulltrúaráðsins hafi verið þvinguð fram og tel hana því ekki mark- tæka niðurstöðu um skoðun sveitarstjórna. Vinnubrögðin hafa verið þannig í þessu sam- bandi að full ástæða er til að staldra við og skoða málið betur, eða jafnvel fresta því til næsta hausts og leggja þá fram betur undirbúið frumvarp, sem sam- staða getur náðst um,“ sagði Jón. Alexander sagðist búast við því að reynt yrði til þrautar að ná samkomulagi innan ríkisstjórnar- innar um þetta en bjóst ekki við að frumvarpið kæmi á dagskrá strax eftir að þing kemur aftur saman í næstu viku. „Ég sé ekki ástæðu til þess að við flýtum okk- ur of hratt með þetta frumvarp." -Sáf Þessi fallegi sími með 11 númera minni, sem hannaður er afhinu rómaða fyrir- tæki Bang og Olufsen lækkar í verði um 43% vegna tollalækkana, úr 8.260 kr. íU-681 kr. Samsvarandi lækkun ereinnigá öðrum tegundum símtækja. T.d. lækkarModu- lophone handsími úr kr. 2.990 kr. i 1.666 kr. og Comét memo með 10 núm- era minniúr 5.978 kr. i3.236 kr. PÓSTUR OG SÍMI Símarnir eru seldir í söludeildum Pósts ogsíma íKringlunni, Kirkjustræti og á póst- ogsímstöðvum um allt land.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.