Þjóðviljinn - 30.01.1988, Blaðsíða 4
LEIÐARI
Löglegur þjófnaður
í Þjóðviljanum í gær var vakin athygli á því að
þrátt fyrir allar glansauglýsingarnar um hverja
fjárávöxtunina annarri herlegri er um þriðjungur
af heildarinnlánum í bankakerfinu á vaxta-
kjörum fyrir neðan verðbólgu. Samkvæmt upp-
lýsingum sem Ólafur Ragnar Grímsson hefur
aflað sér, - en ekki hefur verið haldið á lofti af
bankastjórum eða stjórnarherrum er um
þriðjungur heildarinnlána í bankakerfinu, 22,8
miljarðar króna, á neikvæðum vöxtum, og hefur
þessi innistæða rýrnað á síðasta ári um hér-
umbil þrjá miljarða vegna þess að vextir héldu
ekki í við verðbólguna. Ólafur kallar þetta lög-
legan þjófnað bankanna frá handhöfum þeirra
reikninga sem um ræðir, og þetta er ekkert
klink, - rúmlega hálfur matarskatturinn, til dæm-
is.
Á sama tíma eru útlánsvextirnir svo háir að
skuldarar eru að sligast undan þeim, bæði ein-
staklingar, til dæmis í húsakaupum, og fyrir-
tæki, - að ekki sé minnst á þjónustugjöldin öll
og hina ægilegu dráttarvexti.
Þeir reikningar sem rýrna á þennan fína lög-
lega máta eru annarsvegar almennar spari-
sjóðsbækur og hinsvegar hlaupareikningar og
venjulegir ávísanareikningar. Hverjir skyldu
eiga þessa reikninga í staðinn fyrir að leggja fé
sitt inná hin margauglýstu gullöryggisávöxtun-
arkaskóhólf? Það eru í fyrsta lagi hinir hrekk-
lausu, til dæmis margt aldrað fólk, og í öðru lagi
hinir peningalausu, - þeir sömu og helst þurfa
að fá fé hjá bönkunum.
Allt bendir því til þess að þeir sem bankar og
stjórnvöld féfletta löglega með vöxtum neðan
verðbólgu séu að meginhluta til þeir sömu og
bera byrðarnar af löglegum okurvöxtum útlán-
anna.
Þannig verða hinir ríku ríkari og hinir fátæku
fátækari.
Nú um áramótin hófst talsvert hnútukast um
vaxtamál og virðist hvatinn að nýjustu efa-
semdum um rétta vaxtastefnu helst hafa legið í
hagsmunum fyrirtækja sem búa við gífurlegan
fjármagnskostnað. Sem er út af fyrir sig eðlilegt
því að þessi útgjöld eru víða að verða að
hreinum drápsklyfjum og standa sérstaklega
fyrir þrifum þeim rekstri sem nýlega er hafinn og
byggist á hugviti, atorku og skipulagssnilli frem-
ur en grónum ættarauði eða pólitískum sam-
böndum.
Minna hefur hinsvegar verið hugað að hags-
munum skuldaranna, og opinberir hagspeking-
ar hafa ekki haldið á lofti þriggja miljarða króna
bankaráninu úr sparisjóðsbókunum og tékk-
heftunum.
Frjálshyggjuhagfræðingar hafa þvertekið
fyrir allar breytingar á vaxtastefnunni. í skóla-
bókunum var þeim sagt að vextirnir löguðu sig
að markaðnum og allt yrði í lagi fengju markaðs-
lögmálin að ráða. Breytingar af hálfu
stjórnvalda koma því ekki til greina, segir
yfirhagfræðingurinn sem Alþýðuflokkurinn valdi
til að verða viðskiptaráðherra.
Markaðurinn býr ekkert endilega í næsta húsi
við sjálft helvíti. Hann getur verið góður þjónn, -
en hann er afleitur húsbóndi.
í þessu Ijósi eru athyglisverðar þær leiðir sem
formaður Alþýðubandalagsins bendir á í viðtali
við Þjóðviljann í gær. Hann vill byrja á að ákveða
lágmarksvexti. Ávísana- og hlaupareikningar
haldi verðtryggingu og á almennum sparisjóðs-
bókum verði vextir sem tryggi raunverulega
ávöxtun. Hinsvegar sé ákveðinn vaxtamunur,
um 3-4% í stað þeirra 6-8% sem nú eru við lýði
hérlendis.
Á þennan hátt væri komið í veg fyrir hinn
„löglega þjófnað" og jafnframt byrjað að reisa
varnargarð gegn útlánaokrinu.
Ólafur bendir líka á að með þessum hætti
væri hægt að beita tiltölulega einföldum mark-
aðslögmálum til að stokka upp og einfalda
bankakerfið. Miljarðarnir sem fjármagnsfyrir-
tækin fá með tangarsókn sinni að þeim við-
skiptavinum sem helst eiga undir högg að
sækja hefur nefnilega ekki síst farið í að þenja út
sjálft fjármagnskerfið, halda við óeðlilega mörg-
um og íburðarmiklum fyrirtækjum til að versla
með peninga, meðan frjórri atvinnuvegir þurfa
að fara með löndum vegna stöðugs peninga-
hallæris.
Sem meðal annars er notað sem skálkaskjól í
þeim viðræðum um kjaramál sem nú standa
sem hæst. -m
Mynd Einar Ól.
LJOSOPIÐ
GUÓÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Rit8tjórar: Árni Bergmann, Mörður Árnason, Ottar Proppó.
Fréttastjórl: Lúðvík Geirsson.
Blaöamenn: Elísabet K. Jökulsdóttir, Guðmundur Rúnar Heiðarsson,
Hrafn Jökulsson, HjörleifurSveinbjömsson, Kristínólafsdóttir,
KristóferSvavarsson, Logi Bergmann Eiðsson (íþróttir). MagnúsH.
Gíslason, Ólafur Gíslason, Ragnar Karisson, Sigurður Á.
Friðþjófsson, Vilborg Davíðsdóttir.
Handrtta- og prófarkalestur: Elías Mar, Hildur Finnsdóttir.
Ljósmyndarar: Einar Ólason, Sigurður Mar Halldórsson.
Útlttstelknarar: Sævar Guðbjörnsson, Garðar Sigvaldason, Margrét
Magnúsdóttir.
Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson.
Skrifstofu8tjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Kristín Pótursdóttir.
Auglý8Ínga8tjórl:SigríðurHannaSigurbjömsdóttir.
Auglýsingar: Unnur Agústsdóttir, Olga Clausen, Guðmunda Krist-
insdóttir.
Símavarsla: Hanna Ólafsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Útbreiðslu- og afgrelðslustjóri: Hörður Oddfríðarson.
Útbreiðsla: G. MargrótÓskarsdóttir.
Afgreiðsla: Halla Pálsdóttir, Hrefna Magnúsdóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ÓlafurBjömsson.
Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, sími 681333.
Auglýslngar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310.
Umbrot og setnlng: Prentsmiðja Þjóðviljanshf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 55 kr.
Helgarblöð:65kr.
Askriftarverð á mánuði: 600 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINNlLaugardagur 30. janúar 1988