Þjóðviljinn - 30.01.1988, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 30.01.1988, Blaðsíða 9
opnasemfyrrsagðikl. 14:00 ídag og standa til 14. febrúar. Þær eru opnar virka daga frá kl. 16:00- 20:00 og kl. 14:00- 20:00 um helg- ar. LG sson mannsrödd. Það býr í henni svo ægileg þjáning að það á sér varla sinn líka. Svona staðir eru margir í verkum Beethovens. Og það er höfuðsynd að klúðra þeim. Dýpstu þjáningu mannshjartans má aldrei klúðra. Öllu öðru má klúðra. Fúgan sem lýkur þessu tónverki, sem er miklu dýpra og alvarlegra en það virðist við nótnalesturinn, var heldur ekki tiltakanlega glæsileg. Hún var óskýr og alls ekki nógu vel hugs- uð og útfærð. Eftir hlé flutti Gísli loks Hánd- eltilbrigðin eftir Brahms. Og loks náði hann sér dálítið á strik. Hann var að vísu ekki of öruggur með sig, en lék þó stundum glæsi- lega. Ég hef aldrei heyrt Gísla Magnússon leika einleik áður, þó merkilegt kunni að virðast. Mér er sagt að mörg ár séu liðin frá því hann hélt síðast einleikstónleika. Góðir menn, sem ég tek mark á, telja mér trú um að hann sé betri píanisti en þessir tónleikar gáfu til kynna. Og ég les í blöðunum afsakanir fyrir óförum hans með skírskotun til erfiðrar aðstöðu ís- lenskra tónlistarmanna. Þetta er eflaust allt satt og mikið rétt. En það er engin afsökun. Það er að vísu skiljanlegt frá mannlegu sjónarmiði. En út frá sjónarmiði listarinnar kemur það málinu blátt áfram ekki við. Ævikjör tónlistarmanns sem heldur kons- ert skiptir áheyrendur engu máli, heldur sú list sem hann hefur fram að færa á þeim stað og þeirri stundu. Þegar við lesum ljóð eða skáldsögur varðar okkur ekkert um andstreymi og erfiðleika skáldsins í lífsbaráttunni. En er þetta gott ljóð? Er þetta góð saga? Er þetta mikil list? Ef íslenskir tónlistarmenn standa sig ekki vegna aðstæðna í lífinu, ættu þeir að sætta sig við það og ekki halda neina tónleika. Þessar afsakanir eru óþolandi. Við erum allt of ánægð með sjálf okkur. Tónlistarmenn á íslandi eru hvergi nærri eins góðir og þeir sjálfir og fjölmiðlar keppast um að segja þjóðinni. Það er hinn miskunnarlausi sannleikur. Sigurður Þór Guðjónsson ÞANNIG ERU HLUNNINDI METIN í STAÐGREÐSLU Fœði, húsnœði, oika, falnaður, ferðalög. FERÐALÖG Dagpeningar tií greiðsiu á gistingu, fæði og fargjöidum eriendis eru staðgreiðsluskyidir fyrir ofan eftirfarandi viðmiðunarmörk: Noregurog Svíþjóð Annars staðar Almennirdagpeningar 165SDR 150SDR Dagpeningar vegna þjálfunar, náms eða eftiríitsstarfa 105SDR 95SDR Dagpeningar innanlands eru staðgreiðsluskyidir fyrir ofan eftirfarandi viðmiðunarmörk: Gisting og fœði íeinn sólarhríng 3.960kr. Gisting íeinn sólarhríng 1.890kr. Fœði hvem heilan dag, minnst 10 klst ferðalag 2.070kr. Fœði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag 1.035 kr. Sé gisting erlendis greidd samkv. reikningi þriðja aðila og ferðafé auk þess greitt fyrir kostnað að öðru leyti þá reiknast staðgreiðsla af greiðslu umfram 67 SDR á dag. Sama regla gildir hafi annar ferðakostnaður en gisting verið greiddur samkv. reikningi en ferðafé greitt fyrir gistingu. Staðgreiðsla reiknast þá af greiddum dagpeningum umfram 83 SDR á dag. Fái launamaður greidda dagpeninga fyrir 30 daga eða fleiri á sama ári skulu viðmiðunarmörkin lækka um 437 kr. fyrir hvern dag umfram 30. FÆÐi Fæði sem launamanni (og fjöiskyldu hans) er látið í té endurgjaldslaust er staðgreiðsluskylt og skal metið þannig til tekna: Fulltfœði fullorðins 437kr.ádag. Fullt fœði bams yngra en 12 ára 350kr.ádag. Fœðiaðhluta 175kr.ádag. Greiði launamaður lægri fjárhæð fyrir fæði hjá launagreiðanda en mat ríkisskattstjóra segir til um skal telja mismuninn til staðgreiðsluskyldratekna launamanns. Fæðispeninga í stað fulls fæðis eða að hluta ber að telja til tekna að fullu. _____________________________________FATNAÐUR_______________________________________ Fatnaður sem ekki telst til einkennisfatnaðar eða nauðsynlegs hiífðarfatnaðar skal talinn til tekna á kostnaðarverði og eru þœr tekjurstaðgreiðsluskyldar. Ávalltskal reikna staðgreiðslu afallrí greiðslu launagreiðanda til launamanns til kaupa á fatnaði. HÚSNÆÐIOG ORKA Endurgjaidsiaus afnot af íbúðarhúsnæði sem iaunagreiðandi lætur launamanni í té eru staðgreiðsluskyid og skuiu þannig metin til tekna: Fyrírársafnotreiknast2,7% affasteignamati húsnœðisins, þ.m.t. bílskúrs og lóðar. Sé endurgjaidgreittað hluta skal reikna mismuninn tiltekna upp að2,7% af gildandi fasteignarmati. Húsaleiguslyrk ber að reikna að fullu til tekna. Ef búseta í húsnæði er kvöð sem fylgir starfi launamanns er heimilt að lækka mat húsnæðishlunninda við álagningu á næsta ári eftir staðgreiðsluár. Orkukostnaður launamanns, greiddur af launagreiðanda, skal reiknast að fullu til tekna á kostnaðarverði. RSK RÍKISSKATTSTJÓRI

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.