Þjóðviljinn - 12.02.1988, Page 9
Msþingi.
Frá
Heilb rigð isþingi
ífyrri viku.
íslensk
heilbrigðis-
áœtlun til
umfjöllunar, en
samkvœmt henni
verður áhersla
lögð á
heilsuvernd
stjórnar Heilsugæslustöðvar
Kópavogs, sagðist sakna kafla
um stöðu einstaklingsins og fjöl-
skyldunnar í kerfinu. Einnig
vantaði hnitmiðaða úttekt á því
hvernig helst mætti styðja aldr-
aða til sjálfsbjargar.
Helgi Guðbergsson gerði
mengunarmál að umtalsefni.
Sagði hann að víða væri pottur
brotinn þar sem förgun eiturefna
væri annars vegar; við sitjum að-
gerðarlaus meðan þessum efnum
fjölgar mjög hratt. Með sama að-
gerðarleysi búum við til
illviðráðanlegt vandamál, sagði
hann.
Ólafur Hergill Oddsson sagði
að 3. algengasta dánarorsök á ís-
landi væri slys. Hann stakk upp á
því að umferðarslys og slys í
heimahúsum yrðu rannsökuð
eins og önnur „alvöruslys", og
sagðist telja að heilsugæsluum-
dæmi væru heppilegar einingar
fyrir slysavarnir.
Hér hafa fáir einir verið nefnd-
ir af þeim sem tóku til máls á
þinginu, og eru þessi dæmi raun-
ar öðru fremur tilfærð til að gefa
hugmynd um umræðurnar.
Guðmundur Bjarnason, heil-
brigðisráðherra, sagði er hann
sleit þinginu að þess væri skammt
að bíða að frumvarp um
heilbrigðisfræðslu og forvarnir
yrði lagt fram.
HS
12. febrúar 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9
WHO
Heilbrigði allm árið 2000
Half dan Mahler, framkvœmdastjóri stofnunarinnar, á Heilbrigðisþingi:
Breyttar áherslur þurfa að koma til
- íslensk heilbrigðisáætl-
un er byltingarkennt og
mjög metnaðarfullt plagg í
Ijósi þess að þið hafið þeg-
ar byggt upp gott
heilbrigðiskerfi; svo gott að
margur mun ætla að öllu
betur verði ekki gert, sagði
dr. Halfdan T. Mahler, fram-
kvæmdastjóri Alþjóða-
heilbrigðisstofnunarinnar
-WHO - er hann hitti blaða-
menn að máli á Heilbrigðis-
þingi á föstudaginn var. Dr.
Mahler var sérstakur gestur
þingsins.
Áætlunin er gerð með hliðsjón
af stefnumiði WHO: Heilbrigði
allra árið 2000. Stórauknar for-
varnir gegn sjúkdómum og slys-
um eru þar ofarlega á blaði, og
eins er lögð áhersla á að kynna og
efla heilbrigða lífshætti.
- Víðtæk samvinna allra sem
hlut eiga að máli, heilbrigðis-
stétta og -stofnana, ráðuneyta og
svo framvegis, verður að koma til
ef stefnumarkið Heilbrigði allra á
að verða meira en orðin tóm,
sagði dr. Mahler. Hann sagði
ljóst að stefnumið WHO þýddi
sitt hvað á íslandi og til dæmis á
Indlandi þar sem vandamálin
væru öll önnur, en fyrir bragðið
væri íslenska heilbrigðisáætlunin
þeim mun ánægjulegra framtak.
„Þið hafið byggt upp heilbrigðis-
kerfi sem er meðal þess besta sem
þekkist og myndu flestar þjóðir
hrósa happi ef þær stæðu í ykkar
sporum, en samt sem áður hafið
þið nú ákveðið að gera enn bet-
ur,“ sagði hann.
Að áliti framkvæmdastjórans
hafa íslendingar alla burði til að
koma heilsufarsmálum sínum í
Halfdan Mahler, framkvæmdastjóri WHO, á Heilbrigðisþingi í fyrri viku: Heilsusamlegra líferni, breyttan lífsstíl.
Mynd: E.ÓI.
betra horf en annars staðar þekk-
ist, ekki síst vegna þess hve vel
hefur tekist að dreifa þjónustu
heilbrigðiskerfisins um landið.
- í læknisfræðilegum skilningi
er heilbrigðiskerfi ykkar hrein-
asta fyrirtak, sagði dr. Mahler.
Hættan er sú, ef hættu skyldi
kalla að haldið verði áfram að
fullkomna í hið óendanlega svið
sem þegar eru í góðu lagi; fleiri
lækna, enn fullkomnari lækn-
ingatæki. Nú þarf að leggja
áherslu á að gera fólk meðvitað
um heilsu sína, fá það til að eta og
drekka í hófi, reykja ekki: í einu
orði sagt breyta um lífsstíl, og í
því sambandi eru forvarnir og
fræðsla lykilatriði, sagði hann.
Dr. Mahler hefur verið fram-
kvæmdastjóri WHO síðan á
miðju ári 1973, en lætur af störf-
um á næsta ári, enda orðinn
hálfsjötugur. Stefnumið samtak-
anna; Heilbrigði allra árið 2000
er fyrst og síðast frá honum kom-
ið, og hefur hann ferðast víða um
lönd í kynningar- og útbreiðslu-
skyni.
HS
Heilbrigðisáœtlunin:
Stefnumöriain fyrir framtíðina
Guðmundur Bjarnason, heilbrigðisráðherra: Áhersla á forvarnarstarfið
íslensk heiibrigðisáætl-
unsem rædd vará
Heilbrigðisþingi í síðustu
viku var lögð 1 ram á Alþingi
í fyrravor. Að sögn
heilbrigðisráðherra er í ráði
að endurskoða hana í Ijósi
þeirra sjónarmiða sem fram
komu á Heilbrigðisþinginu,
og leggja hana síðan fyrir
Alþingi fyrir vorið, og þá í
formi þingsályktunartil-
lögu.
Að sögn Guðmundar Bjarna-
sonar, heilbrigðisráðherra, var
áætlunin unnin af fulltrúum
heilbrigðisráðuneytisins og land-
læknisembættisins. Þær raddir
hafi heyrst að samsetning þessa
vinnuhóps hafi verið í þrengra
lagi, og því hafi verið ákveðið að
Heilbrigðisþing fjallaði um
heilbrigðisáætlunina og gefa þar
með fleiri aðilum kost á að koma
sjónarmiðum sínum á framfæri.
Rúmlega 200 fulltrúum heil-
brigðisstétta og -stofnana, fé-
lagasamtaka og stjórnmálaflokka
var boðið til þingsins.
Sjö starfshópar tóku saman
skýrslur um einstaka þætti
heilbrigðisáætlunarinnar fyrir
þinghaldið og sagði Guðmundur
Bjarnason, heilbrigðisráðherra,
að starfshóparnir væru eingöngu
skipaðir fólki utan ráðuneytis og
landlæknisembættis, og væri
þetta gert til að fá fram sem víð-
ust sjónarmið.
- Áætlunin tekur á nánast
öllum þáttum heilbrigðismála, en
áhersla er þó lögð á forvarnar-
starf, sagði Guðmundur. Við
höfum byggt upp gott heilbrigðis-
kerfi, en nú þarf að gera fólk bet-
ur meðvitað um heilsu sína. Þetta
þýðir þó ekki að dregið verði úr
uppbyggingu sérhæfðrar þjón-
ustu á borð við þá sem sjúkrahús
veita, sagði hann.
Með íslenskri heilbrigðisáætl-
un höfum við markað okkur
stefnu í þessum málaflokki. Ein-
stök atriði er að sjálfsögðu ekki
hægt að ákvarða fram í tímann og
við verðum að vera við því búin
að bregðast við nýjungum. Engu
að síður þurfum við að setja okk-
ur markmið, og með áætlun á
borð við þessa sem nú liggur fyrir
verður auðveldara fyrir stjórn-
völd að finna hlutum farveg. Þá
verður hægara að sækja á fjár-
veitingavaldið ef Alþingi hefur
mótað stefnuna, sagði Guð-
mundur.
Samkvæmt lögum um
heilbrigðisþjónustu skal halda
Heilbrigðisþing fjórða hvert ár,
en þetta er í annað sinn sem slíkt
þing er haldið.
HS
Guðmundur Bjamason, heilbrigðisráðherra: Leitast við að fá fram sjónarmið
sem flestra áður en íslensk heilbrigðisáætlun verður lögð fyrir Alþingi á ný í
endurskoðaðri gerð.