Þjóðviljinn - 12.02.1988, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 12.02.1988, Blaðsíða 11
ERLENDAR FRÉTTIR PLO Tillögur Jassírs Arafats Leiðtogi Frelsissamtaka Palestínumanna rœddi á dögunum við blaða menn vesturþýska vikuritsins „Stern“ oggreindifrá hugmyndum sínum um r Inýútkomnu hefti vesturþýska vikuritsins „Stern“ er viðtal við Jassír Arafat, leiðtoga Frelsis- samtaka Palestínumanna, þar sem hann gerir grein fyrir hug- myndum sínum um frið og fram- tíðarskipan mála í Palestínu. Arafat segir fyrsta skrefið vera brottflutning alls setuliðs frá svæðunum er ísraelsmenn her- tóku í sex daga stríðinu árið 1967. Fulltrúar Sameinuðu þjóðanna myndu taka við stjórn þeirra til bráðabirgða og annast gæslu við landamærin að ísrael. Svo fljótt sem auðið væri yrði efnt til kosn- inga á Gaza og vesturbakka Jór- danár. Löglega kjörnir fulltrúar Palestínumanna myndu því næst taka þátt í ráðstefnu ríkisstjórna um frið í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs. I vikuritinu var greint frá því aö blaðamenn þess heföu komið að frið og framtíðarskipan máli við Arafat í höfuðstöðvum PLO í Túnis. í för með þeim hefði ísraelsmaðurinn Uri Avn- ery verið en hann ritstýrir frjáls- lyndu tímariti, Haolem Hazeh, í Tel Aviv. Blaðamennirnir hófu mál sitt með því að spyrja Arafat hvort hann hygðist ekki færa sér í nyt samúð alþýðu manna um gervalla heimsbyggðina með Palestínu- mönnum og leggja fram nýjar til- lögur PLO. „Við höfum æ ofaní æ lagt fram tillögur og gert tilboð en Israels- menn hafa alltaf hafnað öllu því sem við höfum stungið uppá. En ég ætla að gera ykkur grein fyrir efnisatriðum nýjustu tillagna okkar um pólitíska lausn átak- anna í Palestínu. ísraelsmönnum ber að yfirgefa herteknu svæðin og fela fulltrú- um Sameinuðu þjóðanna stjóm í Palestínu þeirra. Því næst færu frjálsar kosningar fram á vesturbakkan- um og Gazasvæðinu undir al- þjóðlegu eftirliti. PLO yrði vita- skuld heimiluð þátttaka í þeim. Því næst yrði efnt til alþjóðlegrar friðarráðstefnu þar sem allir full- trúar hefðu sama rétt.“ Arafat var spurður að því hvort hann vildi að sveitir á vegum Sameinuðu þjóðanna önnuðust landamæragæslu og gættu þess að ekki skærist í odda með íbúum palestínska ríkisins og fsraels. „Einmitt. Fulltrúar Sameinuðu þjóðanna myndu stjórna öllu og gæta öryggis á landamærum." Arafat ítrekaði að PLO væri eini fulltrúi palestínsku þjóðar- innar og myndi vitaskuld taka þátt í ráðstefnum um frið fyrir hennar hönd. Það væri jafn eðii- legt og að ríkisstjórnir Sýrlands, Jórdaníu og ísraels kæmu fram Jassír Arafat í hópi hermanna PLO. fyrir hönd þjóða sinna. „Ég myndi sitja við sama borð og óvinir mínir." Arafat vildi ekki staðfesta orð- róm um að hann væri reiðubúinn að viðurkenna Ísraelsríki og fall- ast á ráðstafanir til að tryggja ör- yggi þess ef palestínskt ríki yrði stofnað á þeim svæðum sem nú eru hersetin. En er hann var inntur eftir því hvort til greina kæmi að semja um slíka viður- kenningu svaraði hann að bragði: „Vitaskuld." Reuter/-ks. Sovétríkin Geðsjúklingar úr vörslu lögreglunnar Innanríkisráðuneytið munframvegis ekki stýra neinum geðsjúkrahúsum eystra Háttsettur starfsmaður sovéska heilbrigðisráðuneytisins greindi frá því á blaðamanna- fundi í Moskvu i gær að ákveðin geðsjúkrahús, er fram að þessu hefðu verið í umsjá lögreglunnar, myndu innan skamms lúta yfir- stjórn heilbrigðisráðuneytis. Sov- éskir andófsmenn hafa ætíð hald- ið því fram að pólitískir andstæð- ingar ráðamanna hafí verið vi- staðir á þessum stofnunum. Maður er nefndur Alexander Churkin. Hann er yfirmaður sovéskra geðheilbrigðismála. Hann sagði ákvörðun þessa hafa verið tekna á fundi æðsta ráðsins í janúarmánuði og væri hún hluti gagngerra umbóta í sovéskum geðheilbrigðismálum er hafist yrði handa við þann 1. mars næstkomandi. Þau geðsjúkrahús er hér um ræðir hýsa einkum fólk sem stað- ið hefur verið að „athæfi er ógnað getur samfélaginu" og þarf því á mjög traustu eftirliti að halda. Því hefur innanríkisráðuneytið séð um rekstur þeirra! Churkin .vísaði snarlega á bug öllum „dylgjum" andófsmanna og fullyrðingum að vestan um að' ráðamenn hefðu látið vista fjend- ur sína á þessum stofnunum og haft geðlækna í þjónustu sinni. Nýmælin væru fyrst og fremst „skynsamlegar kerfisbreyting- ar.“ Hann sagði: „Þar eð vistfólkið á þessum sjúkrahúsum er ekki talið ábyrgt gjörða sinna hefur það ekki verið dæmt fyrir nein afbrot. Því liggur það í augum uppi að það eru heilbrigðisyfir- völd sem eiga að annast um það. “ Churkin greindi frá því að nokkrum stofnananna yrði lokað en í öðrum yrðu hýstir sérstak- lega árásargjarnir sjúklingar. Hann viðurkenndi að áður fyrr hefðu „mistök" verið gerð á þess- um stofnunum en sagðist ekki þekkja nein dæmi þess að fulltrú- ar innanríkisráðuneytisins né starfsmenn KGB hefðu reynt að fá andófsmenn úrskurðaða geð- veika. Reuter/-ks. ,r*$ERÐKÖNNUN VERÐLAGSSTOFNUNAR Taflan hér fyrir neðan sýnir verð á nokkrum tegundum fiskvara í 32 fiskbúðum og stórum matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu þann 2. febrúar sl. Þrátt fyrir áskorun Verðlagsráðs til fisksala um að lækka verð á fiski um 8%, eins og gert var þegar sett var að nýju hámarksverð á ýsu, hafa matvöruverslanir og stórmarkaðir í litlu sinnt þeirri beiðni en fiskverð hefur lækkað nokkuð í flestum fiskbúðum. Stórar matvöruverslanir Verð janúar RAUÐSPRETTUFLÖK Verð febrúar Breytlng f % STÓRLÚÐAISNEIÐUM Verð Verð janúar febrúar Breyting í % Verð janúar ÝSUHAKK Verð febrúar Breyting f % Verð janúar REYKTÝSA Verð febrúar Breyting í % SALTFISKFLÖK, ÚTVÖTNUÐ Verð Verð janúar febrúar Breytlng 1 % Kaupstaður í Mjódd 303 303 0,0 461 461 0,0 315 299 - 5,1 406 374 - 7,9 356 356 0,0 Hagkaup Skeifunni 330 330 0,0 381 316 316 0,0 399 399 0,0 364 364 0,0 Mikligarður v/Holtaveg 330 330 0,0 455 455 - 0,4 317 317 0,0 401 401 0,0 364 364 0,0 Nýibær Eiðisgranda 337 317 - 5,9 459 459 0,0 314 314 0,0 405 325 250 -23,1 Stórmarkaðurinn, Skemmuvegi 458 310 310 0,0 404 404 0,0 350 350 0,0 Hólagarður Lóuhólum 2-6 356 356 0,0 490 490 0,0 359 359 0,0 430 430 0,0 393 393 0,0 J.L. Húsið Hringbraut 121 482 482 0,0 336 336 0,0 458 458 0,0 418 Fjarðarkaup Hólshrauni 1b 348 327 - 6,0 448 358 298 -16,8 298 372 273 -26,6 S.S. Glæsibæ 344 344 0,0 525 525 0,0 341 340 - 0,3 365 365 . 0,0 373 395 5,9 Víðir Seljabraut 54 344 310 - 9,9 448 298 248 -16,8 415 415 0,0 379 379 0,0 Kjötmiðstöðin Garðabæ 312 312 0,0 454 454 0,0 359 359 0,0 398 398 0,0 312 365 17,0 Fiskverslanir Fiskbúðin Reykjavikurvegi 395 365 - 7,6 310 300 - 3,2 350 360 2,9 305 300 - 1,6 Fisbúð Norðurbæjar Miðvangi 350 330 - 5,7 350 350 0,0 350 330 - 5,7 Fiskbúðin Hófgerði 30 380 380 0,0 320 300 - 6,3 380 280 Fiskbúðin Álfhólsvegi 32 390 380 - 2,6 320 320 0,0 290 FiskbúðinTunguvegi 260 260 0,0 380 380 0,0 320 310 - 3,1 350 350 0,0 320 320 0,0 Sæver Háaleitisbraut 58-60 327 300 - 8,3 418 400 - 4,3 308 305 - 1,0 330 330 0,0 330 330 0,0 Fiskbúðin Brekkulæk 1 280 350 330 - 5,7 350 350 0,0 Sæbjörg Nönnugötu 302 280 - 7,3 420 385 - 8,3 320 291 - 9,1 350 330 - 5,7 330 300 - 9,1 Sæbjörg Grandagarði 302 280 - 7,3 418 385 - 7,9 313 291 - 7,0 357 330 - 7,6 295 300 1,7 Fiskbúðin Grímsbæ 280 280 0,0 400 390 - 2,5 340 310 - 8,8 350 310 -11,4 330 310 - 6,1 Fiskbúðin Skaftahlíð 24 340 340 0,0 380 380 0,0 317 295 - 6,9 350 350 0,0 350 350 0,0 Hafrún Skipholti 70 380 350 - 7,9 450 440 - 2,2 330 330 0,0 380 350 - 7,9 330 330 0,0 Fiskbúðin Hafkaup, Sundlaugavegi 12 220 220 0,0 420 420 0,0 335 300 -10,4 370 350 - 5,4 310 310 0,0 Fiskbúðln Sæval Frakkastig 360 360 0,0 456 456 0,0 310 310 0,0 380 380 0,0 320 320 0,0 Fiskbúðin Arnarbakka 2 220 350 350 325 - 7,1 . 330 350 6,1 330 350 6,1 Fiskverslun Hafliða Grandagarði 285 280 - 1,8 390 390 0,0 320 320 0,0 340 330 - 2,9 320 320 0,0 Fiskbúð Hafliða, Hverfisgötu 285 280 - 1,8 390 390 0,0 310 300 - 3,2 330 330 0,0 325 320 - 1,5 Fiskbúðln Sörlaskjóli 42 420 386 - 8,1 330 300 - 9,1 356 327 - 8,1 335 300 -10,4 Fiskbúðin RánargötU 15 220 350 370 5,7 350 320 - 8,6 280 290 3,6 Fiskbúðin Hofsvallagötu 16 380 380 0,0 310 285 - 8,1 385 345 -10,4 345 Fiskbúðin Viðimel35 250 250 0,0 400 400 0,0 315 310 - 1,6 380 360 - 5,3 330 330 0,0 / Föstudagur 12. febrúar 1988 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.