Þjóðviljinn - 08.03.1988, Qupperneq 5
VIÐHORF
Við lifum ekki á yfirlýsingum
Kjarasamningur VMSÍ og at-
vinnurekenda, sem nú hafa verið
undirritaðar og víðast bornir
undir atkvæði hafa valdið lítilli
hrifningu. Eftir langvarandi
þjóðarsátt er langlundargeð
verkafólks nú þrotið. Fólkið hef-
ur komið sínum skilaboðum til
forystumanna með því að fella
samningana, verkafólk er tilbúið
að berjast fyrir bættum kjörum.
Snót í Vestmannaeyjum hefur
þegar hafið baráttuna. Konurnar
á þeim bæ eru þegar komnar í
verkfall þegar þetta er skrifað.
Það er ekkert vafamál að úrslit
atkvæðagreiðslna félaganna er
mikið áfall fyrir forystu VMSÍ.
Forystumenn verkalýðsfélag-
anna virðast vera algjörlega úr
sambandi við hinn almenna fé-
lagsmann. Þrátt fyrir gífurlegar
hækkanir á ýmsum varningi og
þjónustu t.d. matarskattur, bíla-
tryggingar, bílaskattur og ýmis-
legt fleira urðu kauphækkanir til-
tölulega litlar. Upphafshækkun
samninganna 5,1% dekkar ekki
6% gengisfellingu hvað þá
kaupmáttarrýrnunina frá 1. októ-
ber.
Kröfugerðin
Kröfugerð VMSÍ tók stöðug-
um beytingum frá því sl. haust.
Ótrúlegt hringl með kröfugerð-
ina veikti að mínu mati stöðu
VMSÍ, auk þess sem þessi hringl-
andaháttur ruglaði launþega í
ríminu. Sum verkalýðsfélögin
samþykktu kröfuna um 42.000
kr. lágmarkslaun á félagsfund-
um. Athyglisvert er að þar voru
almennir launþegar komnir sam-
an, þeir töldu kröfuna um 42.000
kr. lágmarkslaun eðlilega meðan
endanleg kröfugerð VMSÍ varð
31.975 lágmarkslaun fyrir dag-
vinnu. Krafan um desember- og
orlofsuppbót hefðu síðan getað
hækkað þessa upphæð eitthvað.
Einnig var gerð krafa um að yfir-
vinnutaxti yrði einn með 80%
álagi á dagvinnu og starfsaldurs-
Jóhannes Sigursveinsson skrifar
„Verkafólk lifir ekki á yfirlýsingum
forystumanna VMSÍ. Konurnara í Snót
hafa nú þegargefið tóninn, þœr eru
komnar í verkfall, en þœr þurfa
á stuðningi að halda. Égskoraá önnur
verkalýðsfélög að veita þeim stuðning
í verki. Þannig mun vinnastsigur. “
hækkanir ásamt fleiri smáat-
riðum.
Niðurstöður
Miklu púðri var eytt í að hækka
yfirvinnuálag. Það virðist vera
samdóma álit atvinnurekenda og
forystumanna VMSÍ að þegar
fólk hefur lokið 8 stunda vinnu-
degi og orðið örþreytt, auk þess
farið að skila verri afköstum sé
sjálfsagt að borga 80% ofan á
dagvinnulaun. Það er sannfæring
mín að hækkun yfirvinnuálags
hafi orðið til þess að ekki náðist
eins góður árangur í að hækka
dagvinnulaun eins og hægt hefði
verið. Hækkun yfirvinnuálags
eykur einnig launamun karla og
kvenna þvert ofan í fyrirheit um
jöfnun launa kynjanna. Vinnu-
tími verkamanna var á 3. ársf-
jórðungi 1986 til 3. ársfjórðungs
1987 52,3 tímar á viku. Á sama
tíma var vinnutími verkakvenna
45,9 tímar (heimildir Fréttabréf
kjararannsóknarnefndar 3. ársf-
jórðungur 1987).
Ástæðan fyrir þessum tímamis-
mun er sú að yfirvinna stendur
konum ekki til boða í eins ríkum
mæli og körlum. Einnig bitna
heimilisstörf harðar á konum í
flestum tilvikum þrátt fyrir alla
jafnréttishjal. Hækkun da-
gvinnutekna var lítil. Lægstu laun
verða innan við 32.000 kr. Þeir
sem eru með slík laun verða eftir
sem áður að vinna mjög langan
vinnudag til að endar nái saman.
Langur vinnutími bitnar síðan á
börnum og heimilislífi lágtekju-
fólks. Eftir 12 ára starf hjá sama
atvinnurekanda fá menn 8%
hækkun. Sérhæft fiskvinnslufólk
fær 36.918 kr. á mánuði með full-
an starfsaldur. Þá fá byggingaa-
verkamenn talsverða umfram-
hækkun með fastlaunasamningi.
Ýmsir hópar innan Dagsbrúnar
fá sfðan hækkanir umfram
VMSÍ. Ástæðan fyrir þessum
hækkunum Dagsbrúnarmanna er
nær örugglega komin til vegna
aðgerða hafnarverkamanna og
sýna að aðgerðir skila árangri.
Ýmsir forystumenn utan af landi
fettu fingur út í sérhækkanir til
Dagsbrúnar, engum datt hins
vegar í hug að styðja aðgerðir
hafnarverkamanna, heldur skrif-
uðu menn upp á samninga til
handa fiskvinnslufólki og öðru
verkafólki sem ekki nýtur sérs-
amninga um verulega kjararýrn-
un. Vandamálið er ekki hvað
þessir hópar innan Dagsbrúnar
fengu mikla hækkun heldur hvað
hinir fengu lítið. Athygli vekur að
engin krafa virðist hafa verið
gerð um hækkun skattleysis-
marka þrátt fyrir að ráðherrar
hafa gefið í skyn að slíkt væri
mögulegt til að greiða fyrir samn-
ingum.
Andlitslyfting
varaformannsins
Varaformaður Dagsbrúnar
lýsti því yfir í byrjun samninga að
verkalýðshreyfingin þyrfti á and-
litslyftingu að halda eftir langvar-
andi þjóðarsátt. Ekki vantaði
eldmóðinn þegar hann lét þessi
orð frá sér fara. Formaður og
varaformaður VMSÍ óku hring-
veginn og ræddu við fólk á lands-
byggðinni um hugsanlegar að-
gerðir. Við erum að gera sjóklárt
fyrir aðgerðir sagði formaðurinn í
viðtölum við fjölmiðla, aðgerðir
sem aldrei urðu að raunveru-
leika. Formaður Hlífar barði sér
á brjóst og sagði 42.000 kr. lág-
markslaun væri algjört lágmark.
Hann skrifaði hins vegar upp á
32.000 lágmarkslaun eins og aðr-
ir. Hvað skeði eftir allar yfirlýs-
ingarnar. Var allt þetta bara karl-
agrobb?
Tvær kærur
Tvær atkvæðagreiðslur hafa nú
verið kærðar til miðstjórnar ASÍ,
hin fyrri í Dagsbrún, hin síðari í
Hlíf. Ég ætla mér ekki að gerast
dómari í þessum deilum. Ég tel
hins vegar ekki rétt að miðstjórn
ASÍ dæmi í slíkum tilvikum. Stór
hluti miðstjórnarinnar eru for-
ystumenn verkalýðsfélaga, með-
al annars þeirra sem kæran snýr
að, og því hlýtur það að vera
krafa launamanna sem bera fram
kærur sem þessar að óháðir menn
skeri úr.
Lokaorð
Aðalskandallinn er sá að sumir
hópar innan VMSÍ voru skildir
eftir, þar á ég sérstaklega við fisk-
vinnslufólkið. Þessu fólki er vinn-
ur við undirstöðuatvinnuveg
þjóðarinnar var sagt að allar
launahækkanir til þess yrðu tekn-
ar aftur með gengisfellingu. Það
er hins vegar allt í lagi að hækka
laun flestallra annarra, það hefur
ekki áhrif á gengið að því er virð-
ist. Það er einnig í lagi að yfir-
borga stóra hópa í þjóðfélaginu
langt umfram taxta. Taxtarnir
hjá sumum verklýðsfélögum eru
aðeins pappírsgagn sem enginn
fer eftir. Þannig má segja að í
verkalýðshreyfingunni séu nú
tveir hópar, annar er sá sem verð-
ur að láta sér lynda taxtana, hinn
er sá sem nýtur yfirborgana.
Það er einnig niðurlæging fyrir
verkafólk að horfa á forystumenn
sína skrifa upp á samninga um
kjaraskerðingu. Ari Skúlason
hagfræðingur ASÍ telur að
kaupmáttur félaga í VMSÍ verði
98% af kaupmætti sl. árs.
Kaupmáttur fiskvinnslufólks
verði enn minni en heildarinnar.
Verkafólk lifir ekki af yfirlýsing-
um forystumanna VMSÍ. Kon-
urnar í Snót hafa nú þegar gefið
tóninn, þær eru þegar komnar í
verkfall, en þær þurfa á stuðningi
að halda. Ég skora á önnur
verkalýðsfélög að veita þeim
stuðning í verki. Þannig mun
vinnast sigur.
Jóhannes Sigursveinsson er
verkamaður í Dagsbrún.
Guðmundur, stattu með
Nú á dögunum þegar Guð-
mundur J. Guðmundsson og
Karvel Pálmason, formaður og
varaformaður Verkamannasam-
bandsins, fóru hringferð um
landið til þess að hlusta á verka-
fólkið og óskir þess um réttláta
samninga vakti það vonir manna
um allt land. Þeir félagar töldu sig
verða vara við mikla óánægju
með kjörin. Þeir komu mikilúð-
ugir fram fyrir alþjóð og sendu
frá sér stórar yfirlýsingar að nú
þyrfti að blása til stórorustu og
semja um miklu meiri launa-
hækkanir en gert var á Vestfjörð-
um.
Þegar heim var komið settust
þeir félagar að samningaborði og
sömdu um samtals 13%
kauphækkun á samningstíman-
um, sem er eitt ár. Þeir sömdu
eftir formúlunni sem félagi þeirra
formaður Vinnuveitendasam-
bandsins lýsti þannig að með
samningunum yrði kaupmáttar-
skerðingin minni en orðið hefði
án samninganna. Þetta var nú öll
stórorustan - sem sagt engar
kjarabætur, eintóm svik.
Kœri Guðmundur
Hvar er nú hugrekkið og bar-
áttuandinn frá 1955 þar sem þú
stóðst með þínum mönnum og
varst ólatur við að halda mál-
staðnum fram til sigurs? Ertu
kannski líka hættur að taka í nef-
ið? Það er ekki nóg með að þú
gefist upp áður en til bardagans
kemur heldur beitir þú skrif-
þinum
monnum
Áshildur Jónsdóttir skrifar
„Það hefur komið skýrtfram að samn-
ingarnir sem þið Karvel gerðuð voru alls
ekki ísamrœmi við það sem óskað var
eftir og sem þið lofuðuð að berjastfyrir.
Mikið væri nú gaman efþú snerir vörn í
sókn, fengir þér hressilega í nefið og
tœkir mark á þínum mönnum. “
finnskuklækjum á þína menn á
Dagsbrúnarfundinum og leggur
þá á einhverjum formlegheitum
um fundarsköp.
Þú ættir að vita manna best að
þínir menn eru ekki langskóla-
gengnir. Þeir vinna erfiðisvinnu
langan vinnudag og hafa annað
að gera við tíma sinn en að hanga
yfir fræðibókum um fundarsköp.
Þessir menn vita fyrst og fremst
hvernig það er að lifa í þessu landi
og skynja vel muninn á réttu og
röngu. Ég hélt að þú hefðir til-
finningu fyrir þessum hlutum og
skildir þegar Dagsbrúnarmenn
tjá sig á einfaldan og skýran hátt.
Hverjir eru
þínir menn?
Hvernig stendur á þessu og
hverjir eru annars þínir menn
Guðmundur? Eru þínir menn
þeir sem ráða ríkjum í Garða-
strætinu? Vegna hvers segir þú
eitt við verkafólkið á ferð þinni
um landið og annað við þessa háu
herra þegar þú kemur í Garða-
strætið? Ég hélt að þegar þú
hættir á þingi ættir þú auðveldara
með að hella þér heilshugar út í
baráttuna fyrir launafólkið, eins
og þú reyndar sagðir sjálfur. Ég
hélt satt að segja að þú ætlaðir að
segja þessu óréttláta kerfi stríð á
hendur.
Nú hefur meirihluti þeirra fé-
laga sem tekið hafa samningana
fyrir innan Verkamannasam-
bandsins fellt þá. Það hefur kom-
ið skýrt fram að samningarnir
sem þið Karvel gerðuð voru alls
ekki í samræmi við það sem ósk-
að var eftir og sem þið lofuðuð að
berjast fyrir.
Vertu hress
Guðmundur
Mikið væri nú gaman ef þú
snérir vörn í sókn, fengir þér
hressilega í nefið og tækir mark á
þínum mönnum. Þú ættir að
halda annan Dagsbrúnarfund, fá
í lið með þér þessa galvösku ungu
verkamenn sem mótmæltu smán-
arsamningunum og leggja í al-
mennilega orustu eins og þér
sæmir. Eg vil sjá þig hressan og
baráttuglaðan eins og sögurnar
lýsa þér frá fyrri tíð en ekki að þú
lyppist niður og leggir á flótta
undan lögfræðingaliðinu í Garð-
astrætinu. Þú fengir ábyggilega
dyggan stuðning verkafólksins
innan Verkamannasambandsins í
þessari baráttu. Auðvitað veit ég
að með þessu myndir þú ekki
bara skera upp herör gegn hinum
háu herrum í Vinnuveitenda
sambandinu, heldur einnig
gagnvart íhaldsöflunum í Verka-
lýðshreyfingunni. En það er ein-
mitt það sem þú ert þekktur fyrir
og þannig hefur þú fengið tiltrú
fólksins.
Sýndu hugrekki
Þú hefur sagt að það þurfi hug-
rekki til þess að taka erfiðar á-
kvarðanir. Ef þú hefur ekki hug-
rekki til að taka hessa ákvörðun
átt þú að segja af þér og leyfa
nýjúm að taka við.
Áshlldur Jónsdóttlr er
I landsráði Flokks mannsins.
Þriðjudagur 8. mars 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5