Þjóðviljinn - 08.03.1988, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 08.03.1988, Blaðsíða 7
Afmælishátíð 30 ára Alþýðubandalag Vel heppnuð afmælishátíð hjá Alþýðubandalaginu í Hafnarfirði, elsta Alþýðubandalagsfélagi í landinu Alþýðubandalagið í Hafnar- firði, elsta Alþýðubandalagsfélag í landinu,, hélt hátíðlega upp á 30 ára afmæli sitt um sl. helgi, en félagið var stofnað þann 3. mars 1958 eða rúmum 10 árum áður en Alþýðubandalagið var formlega stofnað sem stjórnmálaflokkur haustið 1968. Það verður því ann- að stórafmæli hjá hreyfingunni í haust. Stofnun Alþýðubandalagsfé- lags í Hafnarfirði, aðeins tveimur árum eftir að Alþýðubandalagið var myndað sem kosningabanda- lag félaga í Sósíalistaflokknum og annarra róttækra jafnaðar- manna, markaði tímamót í sögu hreyfingarinnar því eftir að ísinn hafði verið brotinn og ákveðið að stofna formlegt félag um starf Al- þýðubandalagsfólks í Firðinum fylgdu aðrir Alþýðubandalags- menn í kjölfarið og flokkfélög voru stofnuð um allt land næstu árin á eftir. Brýn nauðsyn á félagi í hátíðarræðu sem Geir Gunn- arsson alþingismaður flutti á af- mælissamkomunni, sem haldin var á Garðaholti að viðstöddum fjölmenni, rifjaði hann m.a. upp aðdragandann að stofnun félags- ins. Brýna nauðsyn hefði borið til að mynda félagslegan vettvang fyrir alla stuðningsmenn Alþýðu- bandalagsins í bænum, þegar eftir bæjarstjórnarkosningarnar í ársbyrjun 1958, en Alþýðu- bandalagið fékk þá kjörinn einn bæjarfulltrúa og átti þá líkt og í dag 30 árum síðar í meirihlutas- amstarfi með Alþýðuflokks- mönnum. - En sú stefna að stofna Al- þýðubandalagsfélög. félagslegan vettvang stuðningsmanna Al- þýðubandalagsins, átti í raun ekki hljómgrunn hjá forystu- mönnum Málfundafélags jafnað- armanna, hvað svo sem þeir létu í veðri vaka. Persónulegir samn- ingar þeirra við forystumenn Sós- íalistaflokksins um framboðslista Alþýðubandalagsins í þingkosn- ingum gáfu þeim Hannibal Valdi- marssyni og félögum hans sterka aðstöðu til raunverulegrar út- hlutunar á þingsætum og ástæðu- laust að eiga í þeim efnum undir atkvæðagreiðslum í félagssam- tökum, þar sem sósíalistar myndu skipa meirihluta. Andstaðan gegn stofnun Al- þýðubandalagsfélaga kom einnig frá forystumönnum Sósíalista- flokksins sem töldu tilvist hans í hættu, ef fullgild flokksfélög Al- þýðubandalagsins yrðu stofnuð við hliðina á flokksfélögum Sósí- alistaflokksins og félagsstarfið yrði fyrst og fremst innan Al- þýðubandalagsfélaganna. Þrátt fyrir þessa andstöðu úr báðum áttum létu fylgismenn Alþýðu- bandalagsins í Hafnarfirði það ekki aftra sér frá því að stíga það skref sem þeir töldu rétt og óhjá- kvæmilegt svar við eðlilegum kröfum um lýðræðislega þáttöku kjósenda Alþýðubandalagsins í Hafnarfirði í pólitískum umræð- um, stefnumótun og ákvörðun- um samtakanna, sagði Geir m.a. í ræðu sinni. Góðar gjafir og kveðjur Félaginu bárust ýmsar góðar gjafir og kveðjur á þessum tíma- mótum. Ólafur Ragnar Gríms- son og Steingrímur J. Sigfússon fluttu kveðjur flokks og þing- flokks, flokksbræður og systur í nágrannasveitarfélögum sendu gjafir og kveðjur og Æskulýðs- fylkingin í Hafnarfirði gaf fé- laginu veglegan bikar. Guðrún Helgadóttir las upp úr nýjustu bók sinni og Helgi Seljan stýrði hátíðinni af miklum myndarskap. Þá barst félaginu einnig heillaskeyti frá Félagi ungra jafn- aðarmanna í Hafnarfirði, þar sem sagði m.a.: „Samvinna við íhaldið er ekki markmið." Þetta ágæta skeyti var trúlega í leiðinni svar við heillaskeyti Alþýðu- bandalagsins til ungkrata á 60 ára afmælishátíð þeirra í sl. mánuði, þar sem sagði m.a.: „Höfnum allri samvinnu við íhaldið." Fer vel á þessum skeytasendingum og kveðjum enda eiga félögin í góðu og árangursríku samstarfi við að stjórna bæjarfélaginu í anda fé- lagshyggju. Alexander og Gils heiðraðir Heiðursgestir á afmælishátíð- inni voru þeir Alexander Guð- jónsson vélstjóri, fyrsti formaður Alþýðubandalagsins í Hafnar- firði, og Gils Guðmundsson fyrr- verandi alþingismaður Alþýðu- bandalagsmanna á Reykjanesi. Voru þeir sérstaklega heiðraðir fyrir góð og gifturík störf en Al- exander var einnig heiðraður af ungkrötum á þeirra afmælishátíð en hann var einn af stofendum FUJ í Hafnarfirði, en „gekk úr flokknum þegar hann fór að halla til hægri á fjórða áratugnum" eins og hann segir í viðtali við afmælis- blað Vegamóta sem dreift verður í öll hús í Hafnarfirði nú í vik- unni. -Ig. fna lllugadóttir segir Óttari Proppé gamlar sögur frá Siglufirði og Svavar fylgist kíminn með. Veislumaturinn fór vel í menn enda úrvalskokkar í Hafnarfirði sem sáu um þá hlið hátíðarinnar. Bergljót varabæjarfulltrúi þiggur ábót. Þeir muna tímana tvenna í sögu íslenskrar vinstri hreyfingar. Frá v. Alexander Guðjónson, fyrsti formaður ABH, og Gils Guðmundsson fyrrv. þingmaður. Formenn Alþýðubandalagsins í Hafnarfirði og Alþýðubandalagsins á Islandi eins og Gaflarar kalla gjarnan stóra bróður, ásamt veislustjóra, heiðursgestum og öðrum góðum afmælisgestum. Myndir-E.ÓI. Vinir og vandamenn úr Garðabæ létu sig ekki vanta í afmælið, enda veislan haldin innan þeirra bæjarmarka eins og Hilmar Ingólfsson bæjarfulltrúi benti réttilega á í afmælisræðu sinni. Þriðjudagur 8. mars 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.