Þjóðviljinn - 08.03.1988, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 08.03.1988, Qupperneq 16
Aðalsími 681333 Kvöldsími 681348 Helgarsími 681663 Þriðjudagur 1. mars 1988. 55. tölublað 53. örgangur Yfirdráttur á téKKareiKninöa launafóiKs SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF mm Skákin Oruggt hjá Jóni L. Einn efstur Lokaumferðir eru alltaf erfiðar, en skákin sem slík var ekkert sérstaklega erfið, enda hafði ég undirtökin allan tímann, sagði Jón L. Árnason, sigurvegari á 13. Reykjavíkurskákmótinu, um viðureign sína við stigahæsta mann mótsins, sovéska stór- meistarann Gúrevítsj. Með jafn- tefli í þeirri viðureign tryggði Jón L. sér 1. sætið óskipt. Jón bauð jafntefli snemma í skákinni en fékk þvert njet. Jón kvaðst raunar síður hafa átt von á öðru, en ákveðið að bjóða jafn- tefli þar sem skæðasti keppinaut- ur hans, Grikkinn Kotronias, hafði þá þegar samið um skiptan hlut. Kotronias náði sínum fyrsta áfanga að stórmeistaratitli á mót- inu, hlaut 8 vinninga í 11 umferð- um, hálfum vinningi minna en Jón L. Árnason. Lokað, alþjóðlegt mót hefst á Akureyri á morgun og verður Jón L. meðal þátttakenda, sem og aðrir meðlimir „fjórmenninga- klíkunnar“; Helgi, Jóhann og Margeir. Tefldar verða 12 um- ferðir. Að því loknu liggur leið Jóns L. á allsterkt skákmót í Ok- ham á Englandi, og hefst það um næstu mánaðamót. HS Sjá bls. 19 Hafrannsókn Flotinn virkjaður Öllumfiskiskipum yfir 10 tonnum sendar dagbœkur Ef undirtektir útgerðarmanna og skipstjóra verða góðar við þeirri málalcitan okkar að skrá í þartilgerðar dagbækur allt sem viðkemur veiðum og breytingar á aflabrögðum, gerum við okkur von um að rannsóknarskipunum fjölgi úr þremur í sjö hundruð,“ sagði Björn Ævar Steinarsson, líffræðingur hjá Hafrannsókna- stofnun við Þjóðviljann. Að sögn Björns er verið að senda út til allra útgerða báta og skipa stærri en 10 tonna, dagbæk- ur sem skipstjórnarmenn eru hvattir til að fylla út. Markmiðið með skráningunni er að safna saman bestu fáanlegu upplýsing- um um veiðar og aflabrögð og þannig fæst gott yfirlit um afla á sóknareiningu fyrir öll helstu veiðarfæri fyrir öll mið árið um kring. Þessar upplýsingar má síð- an tengja þeim upplýsingum sem nú eru notaðar við að meta stærð fiskistofna og auka þannig ná- kvæmni niðurstaðna. Farið verð- ur með allar upplýsingar sem ber- ast sem algjört trúnaðarmál milli Hafrannsóknar og viðkomandi útgerðar. Björn sagði að næst á dag- skránni væri að taka úrtak úr fjöl- da smábáta undir 10 tonnum og senda útgerðarmönnum þeirra dagbækur með ósk um að skrá í þær það sama og nú er verið að fara fram á að fiskiskipaflotinn geri. Til verkefnisins hefur fengist 7 milljón króna styrkveiting frá Landssambandi íslenskra útvegs- manna, en Alþingi sá sér ekki fært að styðja verkefnið þrátt fyrir beiðni þar um! -grh Leiguíbúðir borgarinnar Leigan stórhækkar Leigan á elstu íbúðunum hœkkar mest. 43% meðalhækkuná leigu. Breytingar á húsaleigugrunni. íbúum bentámögulega húsaleigustyrki hjá Félagsmálastofnun Leigugjöld á leiguíbúðum borg- arinnar hækkuðu allverulega um mánaðamótin vegna breyt- inga á húsaleigugrunni. Þannig hækka gjöld fyrir eldri íbúðir umtalsvert en minna á nýrri íbúð- um. Meðaltalshækkun leigu- gjalda er um 43% og kemur sú hækkun sér mjög illa fyrir íbúana sem að stórum hluta eru ellilífeyr- isþegar. Birgir Óttarsson hjá húsnæðis- deild Félagsmálastofnunar, segir hækkunina vera að meðaltali 43%. Dreifist hún mjög misjafn- lega á íbúðir vegna breytinga á húsaleigugrunni hjá borginni. Engin hækkun varð á leigu í nýj- um íbúðum en því meiri í þeim elstu. Áður miðaðist leigan við byggingarár íbúðanna og var hún lægri eftir því sem húsnæðið var eldra. Nú hafa verið teknir upp 2 leiguflokkar Annars vegar er 1. flokks húsnæði, þar sem greiða þarf 120 kr. fyrir fermetrann og hins vegar 2. flokks húsnæði á helmingi lægra gjaldi. Meðalleiga fyrir tveggja her- bergja íbúð í 1. flokki er nú 6.853 kr., en á reikningunum bætist hiti og sameiginlegt rafmagn við upp- hæðina. I lakari flokknum er ó- samþykkt íbúðarhúsnæði og telj- ast 54 af 882 leiguíbúðum vera í honum. Birgir sagði að gamla kerfið hefði mismunað fólki mikið og erfitt hafi verið orðið að réttlæta svo misháa leigu fyrir íbúðir, sem allar fengju svipað viðhald. Taldi hann verðið eftir hækkun skammlaust með tiliiti til þess að leigan væri hærri í nágranna- sveitarfélögum, auk þess sem margir neyddust til að borga mun hærri leigu á frjálsum leigumark- aði. Ráðlagði Birgir þeim sem ættu í erfiðleikum með að ráða við þessa hækkun að fara í viðtal til félagsráðgjafa og sækja um húsaleigustyrk. 43% meðalhækkun á húsaleigu er mjög há þegar litið er til þess að síðast hækkaði húsaleiguvísi- talan 1. janúar um 9%. Næst verður hún reiknuð 1. apríl og munu þær breytingar hafa áhrif á leigu í bæjaríbúðum. Þeir sem þurfa að lifa á lífeyri og bótum frá Tryggingastofnun fengu 7% hækkun fyrstu 2 mán- uði ársins, en eftir er að ákveða hækkun fyrir mars. Miðað við ný- gerða kjarasamninga vegur hækkun launa og líkleg hækkun lífeyris í kjölfar þeirra, lítið á móti við leiguhækkun borgarinn- ar. mj Heiðursmennirnir Alexander Guðjónsson vélstjórl og Gils Guð- mundsson rithötundur voru heiðraðir á 30 ára afmælishátíð Alþýðubandalags- ins í Hafnarfirði um helgina. Alexander var fyrsti formaður félagsins og þar með fyrsti formaður Alþýðubandalagsfélags í landinu og Gils þingmaður Hafnfirðinga og annarra Reyknesinga um langt árabil. Það var Hafsteinn Eggertsson formaður ABH sem heiðraði þá félagana. Mynd-E.ÓI. Sjá bls. 7 Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar Ekkert tilkall til eigna Breytingatillagan um hlut útgönguhópa kolfelld. Selma Dóra Þorsteinsdóttir, formaður Fóstrufélagsins: Ekkert úrslitaatriði fyrir okkur Eg tel að þessu máli sé lokið í bili. Afgreiðslan var tvímæla- laus, og ég vona að allir hafí skilið sáttir, sagði Sjöfn Ingólfsdóttir, varaformaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, en á aðal- fundi félagsins um helgina var felld breytingatillaga á lögum fé- lagsins þess efnis að hópar sem ganga úr því eigi tiikall til hluta af eignum félagsins. Aðalfundurinn var fjölsóttur, og greiddu 420 manns atkvæði um þetta hitamál. 117 voru með- mælt breytingatillögunni en 299 á móti. í prósentum talið voru 27.9% með en 71.2% á móti, að sögn Gunnars Inga Jónssonar, fulltrúa hjá Starfsmannafélaginu. 4 atkvæði voru ógild eða 0.9%. Tillaga þessi var því kolfelld, en 75% hefðu orðið að greiða henni atkvæði til að hún næði fram að ganga. Fóstrur eru einn þeirra starfs- hópa sem hafa íhugað að stofna eigið stéttarfélag. Selma Dóra Þorsteinsdóttir, formaður Fóstrufélags íslands, sagði að þessi úrslit tengdust að vísu að- eins þeim fóstrum sem ynnu hjá Reykjavíkurborg: Við litum á til- Iöguna sem félagslegt réttlætis- mál, en það er ekkert úrslitaatriði fyrir okkur að hún skyldi vera felld, sagði hún. Fóstrur hafa ákveðið að greiða um það atkvæði hvort þær stofni stéttarfélag, og fer kosning þar að lútandi fram í lok mars, að sögn Selmu Dóru. Á ráðstefnu fyrir skemmstu, sem 200 fóstrur víðs vegar af landinu sóttu, var ákveð- ið að marskosningin verði bind- andi og að meirihlutavilji fóstra verði látinn ráða. HS Ólafsvík Maður varð úti Tíu Ólafsvíkingar látist af slysförum undanfarin þrjúár Prjátfu og fímm ára gamall sjó- maður fannst látinn í útjaðri Ólafsvíkur á sunnudagskvöld. Lögreglunni var tilkynnt um hádegi á sunnudag að hann hefði ekki skilað sér heim að loknum dansleik í félagsheimilinu kvöld- ið áður. Hinn látni, Sigurlaugur Egilsson, var kvæntur og þriggja barna faðir. Að sögn lögregl- unnar í Ólafsvík hafa tíu manns látist af slysförum þar á síðustu þremur árum. í Ólafsvík búa um 1200 manns. -grh

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.