Þjóðviljinn - 12.03.1988, Page 3
Bylgjan
FRETTÍR
Vopnaflutningar
Án allra heimilda
Fallbyssa íflugfarmi. Ákvörðunarstaður sagður Ekvador. Utanríkisráðuneytið
berfram kvörtun við bandarísk stjórnvöld
Nýr
útvarpsstjóri
Einar Sigurðsson útvarpsstjóri
Bylgjunnar hefur látið af störfum
og við starfi hans tekur Páll Þor-
steinsson, sem gengt hefur starfi
dagsskrárstjóra frá því Bylgjan
tók til starfa fyrir tveimur árum.
Að sögn Einars mun hann
vinna áfram hjá íslenska út-
varpsfélaginu, sem rekur Bylgj-
una og Ljósvakann og taka að sér
athugun og könnun á ákveðnum
verkefnum fyrir fyrirtækið. Einar
sagðist eiga í sarpinum fullt af ný-
jum hugmyndum sem að gagni
gætu komið í útvarpsrekstri og að
þeim málum myndi hann vinna á
næstunni, en hvað það væri nák-
væmlega vildi hann ekki tjá sig
um að svo stöddu. -grh
Skákmót IBM
Gífurlegur
skákáhugi
Um 500 skákmenn á aldrinum
6-16 ára taka um helgina þátt í
fjölmennasta skákmóti sem hald-
ið hefur verið hérlendis og kom-
ast færri að en vildu. IBM stend-
ur að mótinu í samstarfi við
Taflfélag Reykjavíkur og
Skáksamband íslands.
Þáttakendum er skipt í þrjá
aldursflokka og verða tefldar 9
umferðir eftir Monrad-kerfi, á
þrem dögum. Þrír efstu keppend-
ur í flokki 13-16 ára hljóta í verð-
laun fararstyrk á mót erlendis en í
yngri flokkunum hreppa efstu
menn tafl og taflborð. -mj
Yngstu keppendurnir, 6-9 ára, hófu
mótið í Breiðagerðisskóla í gær. Af
um 180 þáttakendum í þeim flokki
voru aðeins 11 stúlkur. Hrund Þór-
hallsdóttir, 12 ára, er ein af fáum
stelpum á mótinu. Hún sagðist hafa
lært að tefla 7 ára, af bróður sínum og
síðan hefði hún oft tekið þátt í mótum.
Mynd: Sig.
UUtanríkisráðuneytið hefur
borið upp formlega kvörtun
við bandarísk stjórnvöld, vegna
millilendingar bandarískrar flug-
vélar á Keflavíkurflugvelli í janú-
ar sl., sem reyndist hafa innan-
borðs stríðstól. Samkvæmt loft-
ferðalögum ber að tilkynna vopn-
aflutninga og um þá gilda sérstak-
ar reglur.
Þorsteinn Ingólfsson, hjá
„varnarmálaskrifstofunni" sagði
í samtali við Þjóðviljann að
kvörtuninni hefði verið komið á
framfæri við bandaríska sendi-
ráðið, en svar hefði ekki enn bor-
ist frá bandarískum stjórnvöld-
um.
Tildrög þess að upp komst um
strákinn Tuma, voru þau að vél-
in, sem var á leið frá Shannon á
írlandi til Gæsaflóa á Labrador í
Kanada, millilenti á Keflavíkur-
flugvelli og kom þá í ljós smá-
vægileg bilun í hjólabúnaði.
Reyndist ekki unnt að lappa uppá
vélina nema að afferma hana.
Reyndist þá fallbyssa á beltum
vera í farminum.
Þorsteinn Ingólfsson, sagði að
íslensk stjórnvöld hefðu ekki við
að styðjast neinar upplýsingar
um ferðir vélarinnar, nema upp-
lýsingar flugstjórans um ákvörð-
unarstað.
- Eftir samtölum sem höfð eru
eftir einum áhafnarmeðlima var
fallbyssan frá Júgóslavíu og átti
að afhendast í Ekvador. Við höf-
um ekki frekari staðfestingu á
því, sagði Þorsteinn, er hann var
inntur eftir ferðum drápstólsins.
-rk
Samningaviðræður
Samræmdar viðræður
Svæðasambönd ASÍrœða um samflot ísamningaviðrœðum. Jón
Agnar Eggertsson Borgarnesi: Samstarfvið Sunnlendinga
III REYKJKJÍKURBORG IHM
ÞN +*> __ k* ^
r%A »«*« A *•*
HEILSUVERNDARSTÖÐ REYKJAVÍKUR ósk-
ar eftir að ráða RÆSTINGAFÓLK til starfa. Um
er að ræða bæði fast starf og sumarafleysingar.
Upplýsingar eru gefnar á skrifstofu fram-
kvæmdastjóra heilsugæslustöðva, sími 22400.
Umsóknir sendist Starfsmannahaldi Reykjavík-
urborgar, Pósthússtræti 9, fyrir kl. 16.00 föstu-
daginn 18. mars 1988
REYKJAVÍKURBORG
RH
s sssf a
'V Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd
Hitaveitu Reykjavíkur óskar eftir tilboðum í ryð-
varnarmálningu fyrir Nesjavallaæð. Útboðsgögn
eru afhent á skrifstofu vorri að Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavík. Tilboðin verða opnuð á sama stað
miðvikudaginn 13. apríl kl. 11.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Sími 25800
IP Útboð
Innkaupastofnun Reykajvíkurborgar fyrir hönd
Byggingadeildar óskar eftir tilboðum í stálsmíði
og uppsetningu á hringsviði framsviðslyftu í
Borgarleikhúsið í Reykjavík. Heildarþungi á stáli
er um 22000 kg. Útboðsgögn eru afhent á skrif-
stofu vorri að Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr.
15.000.- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á
sama stað þriðjudaginn 12. apríl. kl. 11.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
Idag halda formenn vcrka-
lýðsfélaga á Suðurlandi, Borg-
arnesi og Snæfellsnesi sem felldu
samninga Verkamannasam-
bandsins á dögunum, sameigin-
legan fund á Selfossi, þar sem far-
ið verður yfir stöðuna í samn-
ingamálunum ogt rætt um sam-
starf í komandi samningavið-
ræðum. Á vegum Alþýðusam-
bands Norðurlands var haldinn
formanna fundur í gær, þar sem
rætt var um sömu hluti. Alþýðu-
samband Austurlands og at-
vinnurekendur á Austurlandi
ræddu í gær við ríkissáttasemja á
Egilsstöðum og skýrðu honum frá
þeirra meiningum í kjaramálum.
Ríkissáttasemjari mun ræða við
formenn félaganna á Norðurlandi
í dag.
- Eg á von á því að féiögin
kosti kapps um að hafa sem rík-
asta samvinnu í samningaviðræð-
unum, sagði Jón Agnar Eggerts-
son, formaður Verkalýðsfélags
Borgarness í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær.
Hann sagði að sín skoðun væri
sú að æskilegast væri að félögin
sameinuðust um eina kröfugerð.
- Ég geri mér þó grein fyrir því að
menn kann að greina á um vissa
hluti eftir því hvort þeir eru í for-
svari fyrir fiskverkafólk eða ann-
að landverkafólk, sagði Jón.-rk
Páskastopp
Króka- og netaveiðar
Ollum bátum sem eru undir 10
tonnum að stærð og sem
stunda eingöngu línu-og færa-
veiðar er óheimilt að stunda
veiðar frá og með 26. mars til og
með 4. apríl nk. Þá eru allar
veiðar í þorskanet bannaðar frá
kl. 20 þann 29. mars til kl. 10
árdegis þriðjudaginn 5. aprfl nk.
samkvæmt reglugerð frá sjávar-
út vegsráðuney tinu.
Að sögn Jóns B. Jónassonar,
skrifstofustjóra í ráðuneytinu, er
smábátastoppið samkvæmt nýju
fiskveiðilögunum til að takmarka
sókn smábáta í fiskistofnana.
Þorskveiðar í net er ákveðin
friðunaraðgerð þorsksins vegna
og til að koma í veg fyrir að menn
komi með þorsk að landi á lög-
skipuðum frídögum, þegar fólk á
að eiga frí. _grh
DAGVIST BARNA
Ægisborg sérstuðningur
Sérmenntaður starfsmaður óskast til stuðn-
ings barni á Ægisborg. Um er að ræða heila
eða hálfa stöðu.
Upplýsingar veitir sálfræðingur á skrifstofu
Dagvist barna í síma 27277.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3