Þjóðviljinn - 12.03.1988, Blaðsíða 11
Giovanni Goria og Gary Hart voru báðir álitnir efnilegir menn í fyrra en hafa síðan þurft að bergja á hinum beiska kaleik
vonbrigða og niðurlægingar.
ístöðuleysi
Hart enn í bak
Goria „hœttir“ þriðja sinni
m Tilboð
óskast í eftirtaldar bifreiðar og tæki sem verða til sýnis þriðjudaginn
15. mars 1988 kl. 13-16 í porti bak við skrifstofu vora að Borgartúni
7, Reykjavik og víðar.
Tegundir Arg.
1 stk. Mercedes Bens 280 SEL 1985
1 stk. Mazda 929 station 1982
1 stk. Mazda 626 2000 fólksbifr. 1982
2 stk. Mazda 323 station 1982
1 stk. Mitsubishi Colt fólksbifr. 1983
1 stk. Volkswagen Golf fólksbifr. 1982
1 stk. öhevrolet Malibu fólksbifr. 1980
1 stk. Volvo 244 1981
2 stk. Peugot 505 station (diesel) 1983
1 stk. Daihatsu Charmant 1982
1 stk. Lada station 1984
2 stk. Subaru 1800 station 4x4 1982-83
1 stk. Mitsubishi Pajero Turbo diesel 4x4 1984
1 stk. International Scout bensín 4x4 1980
2 stk. Toyota Hi-Lux pic-up m/húsi 4x4 1980
3 stk. Lada Sport 4x4 1981-84
1 stk. Poncin VP 2000 (snjóbíll) 1982
1 stk. Toyota Hi Ace sendif.bifr. m/gluggum 1986
2 stk. Ford Econoline sendif.bifr. E.150 1979-80
1 stk. Volkswagen sendif.bifr. 1971
1 stk. Mercedes Bens LP 332 upptökubifr. 1962
1 stk. Hino KB 422 Vörubifr. 1980
Til sýnis hjá Rarik Akureyri
1 stk. Toyota Hi-Lux pic-up m/húsi (skemmdur) 1981
Til sýnis hjá birgðastöð Vegagerðar ríkísins Grafarvogi
1 stk. Hjólskófla IHR-540 1977
1 stk. Vélaflutningavagn Hyster 1963
1 stk. Dráttarvél Zetor 6718 m/ámoksturstæki 1979
Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins Reyðarfirði
1 stk. Jarðýta Caterpillar D 7E (180 hö) 1967
Tilboðin verða opnuð sama dag kl. 16.30 að viðstöddum bjóðend-
um. Réttur er áskilinn til að hafna tilboðum sem ekki teljast viðun-
andi. I
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS Borgartúni 7, simi 26844 /
Hvað eiga bandaríski demó-
kratinn Gary Hart og ítalski
forsætisráðherran Giovanni Gor-
ia sameiginlegt? í öllu falli það að
hafa dreymt stóra drauma, verið
nærri því að láta þá rætast, hætt
við og hætt við að hætta við og
hætt við í gær. Sem sagt:
í gær lét Hart það boð út ganga
öðru sinni að hann væri ekki
lengur á höttunum eftir forseta-
embætti í Bandaríkjunum. Hart
var nærri því að verða mótfram-
bjóðandi Ronalds Reagans í fors-
etakjörinu árið 1984 en tapaði
naumlega fyrir Walter Mondaie,
fyrrum varaforseta Jimmy Cart-
ers. En hann gafst ekki upp og í
aprfl í fyrravor lýsti hann því yfir
að hann hygði á framboð. Varla
hafði hann lokið setningunni þeg-
ar slúðursnepill upplýsti lesendur
um að Hart væri kvennabósi og
bévítans saurlífisseggur. Þá hætti
Hart við í hið fyrra sinni.
f desember kom Hart enn á
óvart, nú fyrir þrautseigju. Hann
lýsti því semsagt yfir að hann væri
í framboði í kapphlaupinu um út-
nefningu flokks síns. Fjölmargir
sögðust styðja hann þó þeir væru
fleiri sem sögðu að Kólóradóbú-
inn ætti best heima í skopleik.
Hann hefur lítið sem ekkert feng-
ið af atkvæðum það sem af er
prófkjöri demókrata og nú er
hann hættur, enn og aftur.
Goria sagði af sér embætti for-
sætisráðherra ftalíu í gær, í þriðja
sinn í vetur! Goria varð yngsti
forsætisráðherra lýðveldisins,
„aðeins" 44 ára gamall (þó eldri
en Steini Páls!), þann 29nda júlí í
sumar leið þegar honum tókst að
blása lífsanda í lík fimm flokka
stjórnarinnar sem áður laut sósí-
alistanum Bettino Craxi.
En skjótt kom í ljós að sam-
starfið stóð veikum fótum, hver
höndin var upp á móti annarri og
Goria tókst ekki að bera klæði á
vopnin. Einkum voru ýmsir
flokksbræðra hans, kristilegir
demókratar, honum þungir í
skauti. En þegar hefja átti af-
greiðslu fjárlaga kastaði fyrst
tólfunum. Málsliður var felldur á
málslið ofan. Goria sagði af sér
en Cossiga forseti rak hann til
baka. Goria sagði af sér á nýjan
leik og enn rak Cossiga hann til
baka og skipaði honum að af-
greiða fjárlög. Það gerði Goria í
fyrradag og í gær sagði hann af sér
í þriðja skipti.
Reuter/-ks.
Víetnam
Forsætisráðherra deyr
Fyrrum leiðtogi Víet Kong skœruliða varð bráðkvaddur
manni. Hann hafði að því leyti
sérstöðu að hann var eini sunnan-
maðurinn sem náð hefur miklum
metorðum í Hanoi.
Aðeins þrír menn hafa gegnt
embætti forsætisráðherra frá því
Alþýðulýðveldið Víetnam var
stofnað við uppgjöf Japana árið
1945. Fyrstur í röðinni var sjálfur
Ho Chi Minh en arftaki hans var
Phan Van Dong. Hann gegndi
starfanum til dauðadags eða
þangað til í júní í fyrra að hann
lést 81 árs að aldri. Þá fyrst kom
röðin að Pham Hung.
Sem fyrr segir var Pham Hung
að sunnan. Hann hóf afskipti að
sjálfstæðisbaráttunni á fjórða
áratugnum en þá var Víetnam
frönsk nýlenda einsog kunnugt
er. Hann barðist gegn Japönum,
síðan Frökkum á ný og loks gegn
Bandaríkjamönnum og leppum
þeirra. Pham var yfirmaður Víet
Kong skæruliðanna þegar Suður-
Víetnam var frelsað árið 1975.
Áður en Pham varð forsætis-
ráðherra gegndi hann embætti
innanríkisráðherra sem þykir
voldug staða í Víetnam.
Reuter/-ks.
Laugardagur ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
FForsætisráðherra Víctnams,
Pham Hung, lést í gær í Ho
Chi Minh borg, 75 ára að aldri.
Hjartaslag varð honum að aldur-
tila. Það var ríkisútvarp Víetn-
ams sem flutti fregnina af láti
Phams. „Hann var undir miklu
álagi við störf að lausn margvís-
legra vandamala í þjóðfélaginu er
hann lést skyndilega af völdum
hjartaslags.“
Hung var annar valdamesti
maðurinn í 14 manna stjórnmála-
ráði kommúnistaflokksins, gekk
næstur Nguyen Van Linh for-
Tyrkland
Verkamenn mótmæla
Um ein og hálf miljón tyrkn-
eskra verkamanna efndi til
mótmælaaðgerða um hádegisbil-
ið í gaer til þess að árétta kröfur
sínar um kauphækkanir og af-
nám ýmissa hamla á starfsemi
verkalýðsfélaga frá því á valda-
tíma herforingjanna.
„Ekkert afl fær brotið sam-
stöðu verkamanna á bak aftur.
Markmið okkar er að vara ríkis-
stjórnina við því að láta verð
hækka sleitulaust án þess að bæta
kjör alþýðu manna. Ennfremur
viljum við tryggja mannréttindi
og félagafrelsi verkamanna."
Þetta voru orð Sevkets Yilmaz en
hann er formaður Turk-Is stétta-
sambandsins en það hefur 32
verkalýðsfélög og samtök ríkis-
starfsmanna innan sinna vé-
banda, alls um 2 miljónir manna.
Félagar Turk-Is hyggjast
leggja niður vinnu í maí. Turgut
Ozal forsætisráðherra segir að
verkföll séu ólögleg og að allt
verði gert til þess að koma í veg
fyrir þau. Verkamaður sem
ieggur niður vinnu í Tyrklandi
getur átt allt að sex mánaða fang-
elsi yfir höfði sér.
Reuter/-ks.
Barn sem situr í barnabílstól
getur sloppið við meiðsl
í arekstri!
UUMFERÐAR
RÁÐ
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið Akureyri
Bæjarmálaráðsfundur
Fundur í bæjarmálaráði í Lárusarhúsi, mánudaginn 14. mars kl. 20.30.
Dagskrá: Dagskrá bæjarstjórnarfundar þriðjudaginn 15. mars. Önnur mál.
- Stjórnin.
Alþýðubandalagið Kjósarsýslu
Árshátíð
Árshátíð Alþýðubandalagsins í Kjósarsýslu verður haldinn í Þrúðvangi,
laugardaginn 12. mars.
Gleðin hefst kl. 20.00. Miðasala við innganginn.
Starfsnefnd
Alþýðubandalagið Selfossi og nágrenni
Almennur félagsfundur
Almennur félagsfundur verður haldinn miðvikudaginn 16. mars kl. 20.30 í
sal verkalýðsfélagsins Þórs við Eyrarveg. Efni fundarins eru kjaramálin.
Frummælendur: Margrét Frímannsdóttir alþm., Hafsteinn Stefánsson var-
aform. Þórs og Steini Þorvaldsson form. Verslunarmannafélagsins.
Nýir félagar sérstaklega boðnir velkomnir. Fjölmennið. - Stjórnin.
Morgunkaffi ABK
Valþór Hlöðversson bæjarfulltrúi og Geir Friðbertsson fulltrúi í heilbrigðis-
nefnd verða með heitt á könnunni í Þinghóli, Hamraborg 11, laugardaginn
12. mars frá 10-12.
Allir velkomnir. - Stjórnin.
Alþýðubandalagið í Kóþavogi
Bæjarmálaráð
Fundur í bæjarmálaráði ABK verður mánudaginn 14. mars kl. 20.30.
Fundarefni: Fjármál bæjarsjóðs í Ijósi nýrra aðgerða ríkisstjórnarinnar.
Guðrún Pálsdóttir fjármála- og hagsýslustjóri mætir á fundinn og svarar
fyrirspurnum. Önnur mál.
Stjórnin
ÆSKULÝÐSFYLKINGIN
Æskulýðsfylkingin í Reykjavík
Aðalfundur
Aðalfundur ÆFABR verður haldinn fimmtudaginn 17. mars að Hverfisgötu
105 kl. 20.00.
Venjuleg aðalfundarstörf. Félagar eru hvattir til að mæta. Nýir félagar
velkomnir. - Stjórnin.