Þjóðviljinn - 12.03.1988, Síða 15
Eiríkur Sigurðsson gerði afdrifaríka þriggja stiga körfu í framlengingunni fyrir
félaga sína þegar þeir unnu Blikana í gær.
Karfa
Þór vann í
framlengingu
Pað var ansi sveiflukenndur
leikur þegar Þórsarar fengu Blik-
ana í heimsókn í gærkveldi. Ak-
ureyringar áttu síðustu sveifluna
þegar þeir unnu í framlengingu
97-95.
Leikurinn byrjaði með af-
brigðum rólega í gær og eftir 5
mínútur var staðan 6-6. Liðin
voru mjög jöfn framan af þar til
staðan var 14-14 en þá gerðu Ak-
ureyringarnir 7 stig í röð og kom-
Akureyri 11. mars
Úrvalsdeild KKl
Þór-UBK 97-95 (43-44) (87-87)
Stig Þórs: Guðmundur Björnsson 20,
Björn Sveinsson 17, Eiríkur Sigurðsson
16, Bjarni Össurarson 12, Jón Már Héðins-
son 9, Ágúst Guðmundsson 9, Konráð
Óskarsson 6, Jóhann Sigurðsson 6, Einar
Karlsson 2.
Stig UBK: Kristján Rafnsson 21, Krist-
björn Albertsson 19, Guðbrandur Stefáns-
son 17, Sigurður Bjarnason 12, Hannes
Nesley 11, Ólafur Adolfsson 10, Óskar
Baldurson 5.
Dómarar: Gunnar Valgeirsson og Sigurð-
ur Valgeirsson voru sæmilegir.
Maður leiksins: Guðmundur Björnsson
Þór.
-HK/ste
ust yfir í 21-14. Reykvíkingarnir
sigu þó hægt og hægt á forskotið
þar til þeir jöfnuðu 29-29 og kom-
ust síðan yfir rétt fyrir leikhlé 43-
44.
Síðari hálfleikur var mjög
sveiflukenndur, Blikar byrjuðu á
að komast í 60-66 en þórsarar
tóku þá við og komust í 71-70.
Þegar 1 mínúta var til leiksloka
var staðan 84-87 Breiðablik í vil
en Þór náði að gera eina körfu og
fengu kærkomið tækifæri á loka-
sekúndunum til að vinna leikinn
þegar þeir fengu 2 vítaskot en
hittu bara úr öðru skotinu. Það
var því jafnt í leikslok 87-87 og
þurtfi framlengingu.
í framlengingunni fór besti
maður þórsara útaf með 5 villur
en samt sem áður komust þeir í
92-89. Blikar náðu að jafna 93-93
en þá kom til Eiríkur þórsari með
þriggja stiga körfu sem gerði út-
slagið. Leiknum lauk sfðan með
sigri Þórs 97-95.
Þetta var ekki góður leikur,
lítið af vörnum og hittni en nóg af
mistökum og kæruleysi.
IÞROTTIR
Fótbolti
Walsh opnaði
maritareikninginn
Paul Walsh skoraði sitt fyrsta
mark fyrir Tottenham eftir að
hann var seldur frá Liverpool
þegar þeir unnu Everton 2-1 á
miðvikudagskvöldið og gerðu
nærri út um vonir þeirra til að ná
2. sæti í deildinni og Evrópusæti.
Það var Chris Fairclough sem
gerði fyrra mark Tottenham eftir
að Clive Allen, er lék sinn 100.
leik fyrir Tottenham, skallaði
boltann beint fyrir fætur hans.
Graeme Sharp jafnaði fyrir
Everton um miðjan síðari hálf-
leik af stuttu færi eftir fyrirgjöf
frá Neil Pointon. Það var síðan
eftir mistök hjá markverði Evert-
on, Neville Southall, þegar hann
hljóp út úr markinu til að slá
knöttinn en hitti hann ekki að
boltinn barst til Paul Walsh, sem
sneri sér við á punktinum langt út
í teig og skaut boltanum í autt
markið.
Pýskaland
Bayern Miinchen úr leik
Hamborgarar voru heppnir að
sleppa með sigur af heimavelli
sínum þegar Bæjarar sóttu þá
heim á miðvikudagskvöldið. Það
voru Manfred Kastl og Heinz
Gruendel sem gerðu mörk Ham-
burg á 6. og 44. mínútu leiksins en
Jupp Koitka, sem stóð sig frábær-
lega í marki Hamburg, hafði ekki
möguleika á að verja þrumuskot
frá Lothar Matthaeus um miðjan
síðari hálfleik. Bæjarar sóttu síð-
an látlaust út leikinn en höfðu
ekki erindi sem erfíði því vörn
Hamburg var mjög föst fyrir.
Werder Bremen fór og heim-
sótti Viktoria Aschaffenburg,
sem er áhugamannalið. Þeir
reyndust auðveld bráð Bremen
manna og það voru Frank Neu-
barth, Mirko Votava og Thomas
Schaaf sem gerðu mörk Bremen
Evrópubolti
Aðrir leikir
Evrópubikarinn:
Ajax(Hollandi)-Young Boys(Sviss)
Holland:
Feyenoord-Venlo.............0-2
Fortuna Sittard-DS79........4-1
Den Haag-PSV Eindhoven......1-1
Den Bosch-Twente............2-1
Spánn:
Cadiz-Celta.................1-2
Logrones-Real Betis.........2-0
Real Mallorca-Barcelona.....1-0
Sabadell-Real Murcia........0-0
Athletic Bilbao-Real Valladolid.... 1 -0
Valencia-Real Madrid........1-1
Espanol-Sporting............1-3
Sevilla-Real Zaragoza.......1-1
Las Palmas-Osuna............0-2
en Dieter Lindenau hélt andliti
áhugamannana með því að skora
mark tveimur mínútum fyrir lok
leiksins. Þessu áhugamannaliði
tókst þó að slá Köln út úr bikar-
keppninni í fyrri umferðum.
I undanúrslitunum mun Ham-
borg leika við Bochum á sunnu-
daginn en Werder Bremen taka á
móti Eintracht Frankfurth á
laugardaginn.
Sjónvarp
Leiðrétting
Sá leiði misskilningur var í
blaðinu í gær að leikur Manchest-
er Unitcd og Liverpool yrði sýnd-
ur beint á Stöð Tvö í dag, laugar-
dag. Hann verður að sjálfsögðu
sýndur beint á sunnudag.
Karfa
Frestað
Leik Hauka og ÍR sem vera átti
í Hafnarfirði í dag hefur verið
frestað fram á fimmtudag.
0g þetta líka...
Útrás
verður með beina lýsingu á leik HK
og Gróttu úr 2. deildinni í handbolta.
Lýsingin hefst kl.14.00 á FM 88,6 og
verður það hinn þrautreyndi útvarps-
maður Ómar Stefánsson sem mun
sjá um lýsinguna.
Carlos Tapia
landsliðamaður frá Argentínu hefur
verið seldur til franska 1. deildarliðs-
ins Brest. Hann lék með Boca Juniors
í Argentínu, en Brest keypti hann fyrir
rúmar 20 milljónir ísl.kr. Tapia var í liði
Argentínu sem sigraði í Heimsmeist-
arakeppninni 1986.
Starf
framkvæmdastjóra
Starf framkvæmdastjóra Náttúruverndarráös er
laust frá 1. júní nk. Laun eru skv. launakerfi opin-
berra starfsmanna.
Umsóknir meö ítarlegum upplýsingum um
menntun og fyrri störf óskast sendar formanni
Náttúruverndarráös á skrifstofu ráösins, Hverfis-
götu 26, 101 Reykjavík, fyrir 15. apríl nk.
IMa
'I'
Félagsmálastofnun
Reykjavíkurborgar
Vistheimili barna v/Hraunberg vantar nú þegar
starfsmann á næturvakt í 55% starf. Einnig vant-
ar starfsfólk til sumarafleysinga. Vaktavinna.
Upplýsingar gefur forstööukona í síma 75940.
REYKJAVÍKURBORG
Tilkynning til
launaskattsgreiðenda
Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því aö
gjalddagi launaskatts fyrir mánuðina janúar og
febrúar er 15. mars n.k.
Launaskatt ber launagreiöanda að greiöa til inn-
heimtumanns ríkissjóös, í Reykjavík tollstjóra, og
afhenda um leið launaskattsskýrslu í þrítiti.
Fjármálaráðuneytið
Konur í ASÍ
Kynningarfundur um kvennaþingið NORDISK
FORUM sem haldiö verður í Osló 30. júlí til 7.
ágúst n.k. verður í Sóknarsalnum, Skipholti 50a,
Reykjavík, þriðjudaginn 15. mars n.k. kl. 20.30
Undirbúningsnefndin
TÓHAKSVARNANEFNU ÁSKII.UR SÉR RÉTT Tll. AB NOTA Al.I.T PAB KFNl SEM HKRST 1 SAMKEFPNINA.
„Láttu ganga ljóðaskrá
um löstinn þann að reykja!“
Nú gefst þér færi á að leggja þitt af mörkum í
baráttunni gegn tóbaksnotkun, með því að taka þátt í
skemmtilegri samkeppni. Þú sendir inn frumort ljóð eða
vísur um skaðscmi tóbaks og kannski verður þú svo
heppinn að sjá þitt framlag notað á vindlingapakka eða í
auglýsingar.
Síðasti skiladagur er 25. mars nk. og stefnt er að því að
birta úrslitin á reyklausa daginn, 7. apríl. Pátttakendur eru
beðnir að mcrkja ekki kveðskap sinn með nafni heldur láta
nafn og heimilisfang fylgja með í lokuðu umslagi.
Dómnefnd skipa Árni Johnsen, Helgi Sæmundsson og
Kristín Þorkelsdóttir.
1. verðlaun 50 þúsund kr.
Góð verðlaun eru í boði:
2. verðlaun 30 þúsund kr.
Utanáskriftin er:
Vísnasamkeppni Tóbaksvamanefndar
Skógarhlíd 8, 105 Reykjavík
3. verðlaun 20 þúsund kr.
TOBAKSVARNANEFND