Þjóðviljinn - 25.03.1988, Síða 6
Einar P. Pálsson
Hlakkar til
femingarinnar
Einar P. Pálsson, nemandi í 7.
bekk L í Alftamýrarskóla verður
fermdur nk. sunnudag 27. mars í
Grensáskirkju, en í ár er það
þjóðhátíðarárgangurinn frá
1974, sem fermist og staðfestir
þar með barnaskírnina og játar
kristna trú.
Einar sagöist vera fullur til-
hlökkunar vegna fermingarinnar
og sagöi að það hefði aldrei verið
spurning um að gera það ekki í
sínum huga. Aðspurður hvort
svo væri almennt meðal jafnaldra
hans sagði hann svo vera.
Hann sagði að eflaust yrðu
gjafirnar vænlegar sem hann
fengi en hvort þær verða dýrar og
margar kæmi ekki í ljós fyrr en á
sjálfan fermingardaginn.
„Eflaust kostar svona ferming
eitthvað fyrir foreldrana, en ég
held að það verði ekki meira en
gengur og gerist í mínu tilfelli.
Fyrir mig er aðalatriðið með
fermingunni að kynnast Guði
betur en nú er, enda er ég trúað-
ur. Tilstandið og allt sem fylgir
fermingunni er ekki aðalatriðið
þó það sé kærkomin tilbreyting
frá hversdagsleikanum," sagði
Einar P. Pálsson við Þjóðviljann.
-grh
Erla Magnúsdóttir
„Auðvitað
lætég
ferma
mig“
„Ég er fyrsta barnið í minni
fjölskyldu sem fermist og vafa-
laust mun því fylgja einhver
kostnaður fyrir fjölskylduna. En
ég hef alltaf verið hörð á því að
láta ferma mig enda er ég trúuð
og gekk í sunnudagsskóla hér
áður fyrr,“ sagði Erla Magnús-
dóttir, nemandi í 7. bekk M í
Alftamýrarskóla við Þjóðviljann.
Erla sagði að efst á óskalistan-
um yfir fermingargjafir væru
hljómflutningstæki með geisla-
spilara, en hún væri búin að fá
það staðfest að meðal fermingar-
gjafanna væri nýtt rúm sem hún
fengi frá fjölskyldunni.
Aðspurð um hvort allir jafn-
aldrar hennar láti ferma sig, sagði
hún svo vera en þó vissi hún um
einn sem ætlaði ekki að láta
ferma sig en ástæðuna fyrir því
vissi hún ekki.
Fermingarundirbúninginn
sagði hún hafa verið skemmti-
Iegan en fátt í honum hefði komið
sér á óvart. Hún sagðist hlakka
mikið til fermingardagsins en
vera jafnframt kvíðinn eins og
jafnan þegar eitthvað mikilvægt
væri framundan.
-grh
FERMINGARFÖT piloi
HAFNARSTWETN6.101 R. sími 12180
TIL
FERMINGARGJAFA
5 MANNA TJÖLD
3 MANNA TJÖLD
Tjaldhimnar á flestar gerðir tjalda.
Tjalddýnur, bakpokar og allt annað
í útileguna. Þýskir svefnpokar,
mjög góðir og vandaðir.
PÓSTSENDUM
SEGLAGERÐIN ÆGIR
Eyjagötu 7 — Örf/rísey — Reykjavik
Sími 621780