Þjóðviljinn - 25.03.1988, Side 8

Þjóðviljinn - 25.03.1988, Side 8
Magnús S. Kristinsson: Noto gjafimar ennþá Bíðum nú við, jú það eru sex- tán ár síðan, sagði Magnús S. Kristinsson, starfsmaður hjá Ra- dióbæ í Ármúlanum, er við for- vitnuðumst um hve langt væri um liðið frá fermingunni. Ég fékk heilmikið af gjöfum, sagði Magnús; og sumt af þeim nota ég enn, til dæmis skrifborð, skrifborðsstól og úr. Pá fékk ég þrettán þúsund krónur í pening- um, en upphæðina man ég enn vegna þess að ég byFjaði á sjón- um stuttu seinna, og þá var þetta hálf trygging hjá háseta. Athöfnin sjálf segir Magnús að sé sér minnisstæð, en hann fermdist í Fríkirkjunni í Hafnar- firði. Fermingarsystkinin voru milli fimmtán og tuttugu talsins, en veislugestirnir helmingi fleiri og vel það, eða milli fjörutíu og fimmtíu manns, mest fjölskyldan eins og gengur. Á hinn bóginn treysti Magnús sér ekki til að fullyrða hvað hefði verið borið á borð í fermingar- veislunni. Minnti þó að það hefði verið kaffi og bakkelsi, en sagði að það væri vænlegra til árangurs að spyrja foreldra sína um þá hluti. Magnús S. Kristinsson: Pening- agjafirnar jafngiltu hálfri trygg- ingu háseta. Mynd: Sig. Þóra Runólfsdóttir: Ekkertað „mjúku“ pökkunum - Það var dansað í fermingar- veislunni minni og spilað undir á píanó og harmóniku, en ekkert áfengi var veitt; hér áður var brennivínsdrykkja alvanaleg í fermingar- og brúðkaupsveisl- um, en þegar ég var að fermast í stríðslokin var þessi ósiður mikið að leggjast af sem betur fer, sagði Þóra Runólfsdóttir, verslunar- maður í Síðumúlanum. - Ég var fermd í Dómkirkj- unni hjá séra Bjarna, sagði Þóra. sem samanstendur af; Kransaköku, rjómatertu, Sachertertu, Allt fyrir konuna", Mokkatertu, brauðtertu, skúffuköku og snittum Losnið við áhyggjurog fyrirhöfn ^s\ Heimsendingarþjónusta erðhugmyndir 20 manna veisla 13.500.- 30 manna veisla 18.900.- 40 manna veisla 24.400.- Þóra Runólfsdóttir: Einhveija peninga fékk ég í fermingargjöf. Þeir voru lagðir á bankabók þar sem þeir urðu að engu. Mynd: Sig. Þetta var ósköp venjuleg ferm- ingarathöfn og ekkert sérstakt um hana að segja. Þó vildi svo einkennilega til að pabbi gat ekki verið í kirkjunni vegna þess að hann fór að taka á móti systur minni sem var að koma frá Dan- mörku. Þennan dag hitti ég þessa systur mína í fyrsta sinn, og því má segja að fermingarveislan mín hafi jafnframt verið fagnaðar- veisla fyrir hana, sagði Þóra. - Gjafirnar voru mest skart- gripir og fatnaður, en á þessum árum þótti ekki margt að þvt að fá „mjúka“ pakka, það var nefni- lega erfitt að fá fatnað, sérstak- lega skófatnað. Ég man ég fékk hvít rússastígvél sem svo voru kölluð. Þetta voru upphá leður- stígvél, eins og, kósakkastígvél, og keypt hjá Hvannbergs- bræðrum sem þá voru með búð niðri í Hafnarstræti. Kommóðu fékk ég líka, en þá var til siðs að gefa slíkt. - Einhverja peninga fékk ég í fermingargjöf eins og gengur. Þeir voru lagðir í banka þar sem þeir urðu að engu, sagði Þóra. HS Buxur........... Skyrtur......... Rúskinnsjakkar Leðurjakkar..... Kr. 7.500.|| Kr. 2.890.fn fe Kr. 1.780.- Kr. 8.900.- Kr. 13.900.- FYRIR ALLA SNORRABRAUT Kjörbók Landsbankans-Góð bók fyrir bjarta framtíð L

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.