Þjóðviljinn - 25.03.1988, Síða 10
FERMDUR HJA AlfUM
íþjóðsagnasafniJónsArnasonarasegirfráFljótapilti sem varfermdurhjáhuldufólki
Á Móafelli í Fljótum bjó eitt
sinn ekkja ein; ég ætla hún héti
Anna. Hún átti dætur tvær og
son einn sem Jón hét. Hann
var fremur gáfutregur og at-
gjörvislítill til sálar og líkama.
Þegar þær stúlkur eru á 17. og
18. ári en Jón á 14. var það
einn dag í þoku um haustið að
þær Móafellssystur fóru til
grasa fram á Móafellsdal.
Voru þær þar um miðjan dag-
inn á einum mó fyrir austan
ána. Sáu þær þá hvar tvær
stúlkur voru við grös á öðrum
mó. Innan skamms bar fund-
um þeirra saman og þekktu
Móafellssystur ekki stúlkurn-
ar. Spurðu þær þær hvar þær
ættu heima og sögðust þær
eiga heima ekki langt í burtu,
en ekki vildu þær greinilega
segja nafn sitt né heimili. Nú
talast þær ýmislegt við; meðal
annars spyrja aðkomustúlk-
urnar Móafellssystur hvort
þau séu ekki fleiri systkinin,
og segjast þær þá eiga bróður
á 14. ári. „Því fór hann ekki
með ykkur til grasanna?44 „Æ,
hann er þetta si sona ofur
bjálfalegur,“ segja Móafells-
systur og tjá nú hið ljósasta frá
atgjörvisleysi hans til líkama
og sálar. „Æi, lofiði honum nú
með ykkur þegar þið farið
næst til grasa; okkur þækti
ósköp gaman að sjá hann,“
segja hinar.
Nokkru eftir þetta fara Móa-
fellssystur aftur til grasa og hafa
nú Jón bróður sinn með sér. Fara
þær nú hér um á sömu stöðvar;
var þá sótþoka. Finna þær þar þá
stúlkurnar ókunnugu. Biðja þær
að lofa Jóni heim með sér, það
skuli ekki verða að honum - „en
ekki skulu þið undrast um hann
þó hann komi ekki strax aftur.“
Þetta eftirlétu þær systur, enda
var Jóni viljugt að fara.
Nú líða tímar svo að Jón kemur
ekki heim að Móafelli, en ekki
var samt hvarf hans alkunnugt,
allt þar til á sunnudagsmorguninn
í föstuinngangi að drengur kemur
sparibúinn að Móafelli og fer til
kirkju að Hnappsstöðum; er
messað þar um daginn. Þegar
prestur fer að spyrja börn gengur
drengur fram á kirkjugólfið og
lætur spyrja sig. Furðar þá marga
á hvað drengnum gengur vel að
svara. Nú hverfur drengur aftur
frá Móafelli og kemur ekki fyrri
en á skírdagsmorgun, sparibúinn
Fermingarskór
Leðurskór frá PETER KAISER
teg. Katy
Kr. 4.600.00
litir: hvítt, blátt
St. 21/2 - 7
Teg. Gitte
Kr. 4.600.00
litir: hvítt
St. 4 - 81/2
Eigum einnig mikil úrval
af hvítum skóm
í mismunandi hælahæðum
Domus Medica
Sími 18519
Stífla í Fljótum í Skagafirði. Myndin ertekin áður en uppistöðulónið við Skeiðsfossvirkjun færði hana í kaf. i
Stíflu var kirkjustaðurinn Knappstaðir eða Hnappstaðir sem segir frá í þjóðsögunni um fermingu hjá álfum.
Um Stíflu var þetta kveðið og þarf að gæta að framburði í þriðja vísuorði svo að innrímið kafni ekki: Yxu fíflar
foldu á / fengju hníflar heyið. / Ó, hve líflegt yrði að sjá / o’ní Stíflugreyið. •
og fer til kirkjunnar. Er hann nú
spurður og gengur vel. Eftir
messuna nefndi drengur við séra
Ólaf að ferma sig, en séra Ólafur
var fremur tregur til, þókti dreng-
ur hafa sjaldan komið til kirkju,
vildi vita hver hefði kennt honum
og fleira, og lauk svo að drengur
fékk ekkert loforð um ferming-
una. Fer nú drengur enn á stað og
kemur ekki við á Móafelli. A
laugardaginn fyrir páska er barið
að dyrum á Móafelli. Kemur þar
út önnur systirin. Er þá önnur ó-
kunnuga stúlkan komin og biður
þær systur að koma snemma í
fyrramálið fram á móinn þann í
haust á dalnum og vera þá spari-
búnar. Á páskadagsmorguninn
snemma búa þær systur sig í beztu
fötin sín og ganga fram á móinn,
en hann var rétt á móti klettum
sem kallaðir eru Valshamar.
Kemur þá sama stúlkan til þeirra
og biður þær að koma með sér
yfrum ána. Fara þær nú yfrum
ána og koma þar að stórum og
glæsilegum kirkjustað. Er þeim
þar boðið inn og tekið mjög ást-
úðlega. Segjast nú stúlkurnar
vera dætur prestsins hérna og eigi
nú að ferma Jón litla í dag. Nú
fara þær Móafellssystur í kirkju;
er þar haldin guðsþjónusta og
börn fermd um daginn. Er Jón
bróðir þeirra innstur af ferming-
arbörnunum; var margt fólk í
kirkjunni. Ekki skildu þær systur
það sem yfir var haft í kirkjunni,
því það var þeim ókunnugt tung-
umál, en það sáu þær á öllu að
það voru kristnir siðir enda
heyrðu þær oft Jesús nefndan.
Eftir messuna sagði Jón þeim
systrum sínum að sín væri ekki
von heim að Móafelli aftur. Og
liðu nú nokkur ár; þá kom Jón
eitt sinn að Móafelli og bauð
þeim systrum og móður sinni í
brúðkaup sitt; kvaðst hann nú
Fermingargjafirnar í ár
Hárblásari
System 1-2-3
Vasarakvélin
Skeggsnyrtir
Áður 1.980 Aður 8.980 Aður 2.200 Aður 5.480
l\iú 1.140 HNú 4.980 HNú 1.280 HlMú 3.680
LOKSINS! Lægraverðen áöðrum
Norðurlöndum og Hollandi, svo
dæmi sé tekið
PFAFF
Kringlunni og Borgartúni 20
Áður 1.240
Nú 720
ætla að eiga aðra prestdótturina.
Fóru þær nú mæðgur í brúð-
kaupið. Gekk það allt af með
unun og viðhöfn. Eftir þetta kom
Jón aldrei meir til mannabyggð-
ar, og lýkur svo þessari sögu.
Annars er almenh trú að mikið
huldufólk sé bæði á Móafellsdal
og Tungudal sem eru óbyggðir
dalir í Stíflu.
Guðlaug
Valdimarsdóttir
Ekki
mikið
umsfáng
Guðlaug Valdimarsdóttir,
nemandi í 7. bekk L í Álftamýrar-
skóla, sagði við Þjóðviljann að
það hefði aldrei hvarflað að sér
annað en að láta ferma sig og
staðfesta þar með barnaskírnina
og komast í kristinna manna tölu.
Hún sagði að umstangið í
kringum ferminguna hjá sinni
fjölskyldu ekki vera neitt sérstak-
lega mikið. Efst á óskalistanum
hjá sér yfir tilvonandi ferming-
argjafir sagði hún vera hljóm-
flutningstæki, peningar og utan-
landsferð. Hvort hún fengi allt
þetta vildi hún engu spá um, en
þó væri víst að eitthvað af þessu
myndi skila sér nk. sunnudag.
Guðlaug verður ekki ein um að
fermast í fjölskyldunni að þessu
sinni því tveir nákomnir ættingjar
myndu einnig fermast sama dag.
Það yrði því um sameiginlega
veislu sem hún hlakkar mikið til,
enda væru slíkar veislur oft á tíð-
um mannfleiri en þegar aðeins
einn fermist og meira um að vera.
Hún sagðist hafa haft mjög
gaman af fermingarundirbúning-
inum og hafa fræðst geysimikið
um kristna trú sem hún sagðist
10 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN