Þjóðviljinn - 06.04.1988, Síða 13
ÖRFRÉTTTIR
ERLENDAR FRETTIR
Hermdarverkamenn
rændu farþegaþotu frá Kuwaít í
gær og neyddu flugstjórann til
þess að lenda henni í borginni
Mashhad í norðaustur íran. Um
borð eru 110 farþegar, þar af 22
Bretar og þrír fjarskyldir ættingjar
emírsins í Kúwaít. Flugræningj-
arnir eru sítar og eldheitir stuðn-
ingsmenn ajatollahs Komeinís.
Krefjast þeir þess að 17 félagar
þeirra verði látnir lausir úr dýfl-
issum valdhafa í Kuwaítborg. Að
öðrum kosti verði farþegunum
gert mein, fyrst ættmennum em-
írsins.
Ráðamenn
í Nikaragva og leiðtogar Kontra-
liða áttu að hefja nýja lotu samn-
ingaviðræðna í gær. í fyrrakvöld
veittist Daníel Ortega forseti
harkalega að Bandaríkjaþingi
fyrir að samþykkja að veita upp-
reisnarmönnum 47,9 miljónir
dala („mannúðaraðstoð." Sagði
Ortega hverskyns fjáraustur
bandarískra ráðamanna í Kont-
rahítina brjóta í bága við úrskurði
Alþjóðadómstólsins í Haag og
því ólöglegan. Forsetinn kvaðst
hafa grun um að fjendur sfnir
hefðu aðeins samið við fulltrúa
sandinista til þess að slá ryki í
augu bandarískra þingmanna og
fá aukið fé. Að minnsta kosti væri
ekki einleikið hve tregir Kontraf-
oringjar væru til framhaldsvið-
ræðna eftir að fjárgjöfin var sam-
þykkt.
Fjórar verksmiðjur
hafa orðið gjaldþrota í sovéthér-
aðinu Nagorno-Karabakh vegna
verkfalls verkamanna sem halda
fast við þá kröfu sína að héraðið
verði sameinað Armeníulýðveld-
inu. Vinnustöðvunin hófst þegar
ráðamenn í Moskvu gáfu út yfir-
lýsingu um að ekki kæmi til
greina að draga landamæri Kák-
asuslýðveldanna að nýju þótt
þorri íbúa Nagorno-Karabaks
væru ermskir. Héraðið liggur
sem kunnugt er í Azerbaidsjan.
Að sögn Tass fréttastofunnar
bera „andófsmenn" ábyrgð á
vinnutruflunum þessum og stað-
hæfir hún að þeir greiði verka-
fallsmönnum þrjár rúblur á dag
fyrir að sitja heima! Dugi það ekki
sé gripið til „lýðskrums og hót-
ana.“
Randaríski
þingmaðurinn
Jósef Kennedy, sonur Róberts
heitins og bróöursonur Johns F.,
er á ferðalagi um írland um þess-
ar mundir. I gær var bifreið hans
stöðvuð við vegartálma í Belfast
og skipaði breskur hermaður
honum valdsmannslega að stíga
út. „Síðan hvenær fórst þú að
skipa fólki fyrir verkum," spurði
Jósef með þjósti. Reiddist dátinn
þingmanni og mælti: „Snáfaðu
heim til ættlands þíns!“ Jósef lét
kauða ekki reka sig á gat og svar-
aði: „Og þú til ættlands þíns." Al-
kunna er að Kennedy slektið er af
írsku bergi brotið og kaþólskara
en páfinn.
Móðir Teresa
hyggst sækja Suður-Afríku heim í
næsta mánuði til þess að undir-
búa landnám reglu sinnar, „Boð-
bera kærleikans“, þar. Hin 78 ára
gamla trúkona greindi frétta-
manni Reuters frá því að
stjórnvöld í Pretóríu hefðu góð-
fúslega veitt sér ferðaleyfi. Hún
var innt eftir viðhorfi sínu til á-
standsins í ríki aðskilnaðarstefn-
unnar og kvaðst hún verða að
kynna sér það af eigin raun áður
en hún mótaði sér skoðun. En
hún bætti við: „Allir menn eru
jafnir fyrir augliti Guðs. Mig varð-
ar engu hvort menn eru hvítir,
svartir eða grænir. Ég reyni að
sinna þeim öllum eftir bestu
getu."
Bandaríkin
Tvítugt hryðjuverk
Víðsvegar um Bandaríkin minntust menn þess ífyrradag að
tuttugu ár eru liðin frá því blökkumannaleiðtoginn Martin
Luther Kingféllfyrir morðingjahendi
„Ég á mér draum." Tuttugu ár eru liðin frá því mannréttindafrömuðurinn Martin Luther King var myrtur.
ann fjórða aprfl árið 1968,
eða fyrir réttum tuttugu
árum, var
mannréttindafrömuðurinn Mart-
in Luther King veginn úr laun-
sátri í Memfisborg í Bandaríkjun-
um. Þúsundir manna minntust
þessa sorglega atburðar í fyrra-
dag.
f Memfis gengu rúmlega fimm
þúsund manns um götur og tóku
þátt í minningarathöfn um King í
miðbænum. Hún var á vegum
borgaryfirvalda og kvað þetta
vera fyrsta sinni að þau votta
blökkumannaleiðtoganum virð-
ingu sína með þessum hætti.
Göngumenn gengu sem Ieið lá
frá aðalstöðvum verkalýðsfélaga
að Lorraine gistihúsinu þar sem
King var myrtur. Þar hlýddu þeir
á ýmsa fyrirmenn þeldökkra í
Memfis flytja ræður um arfleifð
leiðtogans og stöðu blakkra í
Bandaríkjunum um þessar
mundir. Víða gaf að líta borða og
kröfuspjöld þar sem á var ritað að
því færi fjarri að draumar Kings
um jafnrétti hvítra og svartra
hefðu ræst, þótt ýmislegt hefði
vissulega áunnist væri baráttan
enn rétt að hefjast.
í Atlanta var blómsveigur
lagður að leiði Kings. Ættingjar
hans, gamlir vinir og baráttufé-
lagar komu saman utan Ebenezer
babtistakirkjunnar þar sem King
og faðir hans predikuðu.
Það er kunnara en frá þurfi að
segja að á öndverðum sjöunda
áratugnum varð almenn vakning
meðal bandarískra blökku-
manna, loks hristu þeir klafann
og sáu að þeir voru voldugir og
sterkir í samstöðu sinni.
Það var gæfa þessarar hreyf-
ingar að til forystu hennar völd-
ust menn á borð við Martin Lut-
her King. Hann skipulagði frið-
samleg mótmæli í anda Mahat-
mas Gandhis og gerði hvítum
nautsskrokkum í lögreglu suður-
ríkjanna gramt í geði með því að
virða allar ögranir þeirra að vett-
ugi.
Barátta hans náði hámarki
með „orrustunni unt Birming-
ham“ árið 1963. Blökkuntenn
mótmæltu fautaskap lögreglunn-
ar með því að safnast saman við
fangelsi borgarinnar. Þá beittu
hvítir „laganna verðir“ slíkum
hrottaskap að almenningi í
norðurríkjunum blöskraði og
John F. Kennedy forseti sendi
hersveitir til að hindra hryðju-
verk þeirra. Skömmu síðar
sprakk sprengja í einni af kirkj-
um þeldökkra. Fjögur börn fór-
ust.
Hvítir og svartir mannréttinda-
sinnar mótmæltu hástöfum við
Lincolnminnismerkið í Washing-
ton. Kennedy lýsti yfir stuðningi
sínum við leiðtoga blökkumanna
og átti fund með King. Áfanga-
sigur var í höfn. Árið 1964 fékk
Martin Luther King friöarverð-
laun Nóbels.
Reuter og
Mannkynssaga AB/-ks.
Sovétríkin
Staiínistum
veitt
ofanígjöf
Ýms teikn eru á lofti um að afturhaldsöfl og
framfarasinnar heyi hugmyndaorrustu í
kommúnistaflokknum
Málgagn sovéska kommúnista-
flokksins, Pravda, réðst í
gær harkalega að öðru dagblaði
flokksins og sakaði ritstjóra þess
um að hafa birt „stcfnuskrá and-
stæðinga perestrojku.“
Sovetskaja Rossija er málgagn
Rússlandsdeildar kommúnista-
flokksins. Þann 13da mars síðasl-
iðinn birtist grein í dagblaði þessu
sem er einkar hliðholl Jósef Stal-
ín. Svargrein birtist svo í Prövdu í
gær og vakti athygli að hún var
ekki merkt upphafsstöfum neins
ritstjóranna. Það þykir ótvírætt
merki þess að hún túlki viðhorf
„æðstu manna.“
Höfundur Prövdugreinarinnar
sagði viðhorf pistilritara Sovet-
skaja Rossija furðulegt og
jafngilda óskum um afturhvarf til
tíma þegar örfáir menn settu lög
en fjöldinn hlýddi. „Það er
skiljanlegt að sumir einstaklingar
sakni liðins tíma en það er ósæmi-
legt af málgagni að kynda undir
slíkum viðhorfum.
Nú er ekki lengur bannað að
ræða nokkurn skapaðan hlut,
tímarit og forlög ákveða sjálf
hvað skuli birt og gefið út og hvað
ekki. En birting greinarinnar „Ég
get ekki lagt grundvallarreglur
fyrir róða“ virðist eiga að vera lóð
á vogarskálar þeirra afla sem vilja
taka nýlegar flokkssamþykktir til
endurskoðunar."
Raunar mun greinin í Sovet-
skaja Rossija hafa verið „birt
sem“ lesendabréf. Þar er því
haldið fram að menn geri úlfalda
úr mýflugu með því að stórýkja
kúgunaraðgerðir Stalíns. Allur
„óhróðurinn“ unt gamla mann-
inn hafi slæm áhrif á æskulýðinn.
Pass, pass, pass. Eða hvað? Hefur Stalín enn öflug tromp á hendi?
efli gengi allskyns „tortímingar-
hyggju“ og auki ringulreið.
I Prövdugreininni segir að
vandi sovéskra ungmenna eigi sér
djúpar rætur og hann verði
trauðla leystur með því að menn
þegi um misgjörðir Stalíns. Það
sé bersýnilegt að margur eigi bágt
með að átta sig á þeim vanda sem
hafi safnast saman á árunum fyrir
kjör Gorbatsjovs í embætti aðal-
ritara kommúnistaflokksins.
Óvinir perestrojkunnar ríg-
haldi í skrifborðin sín og möpp-
urnar og eigi enga ósk heitari en
þá að geta gætt þröngra eigin-
hagsmuna sinna með valdníðslu
einsog „í gamla daga.“ Öndvert
afturhvarfsþrá þessarar klíku
standi draumar sovéskrar alþýðu
um virkt og lifandi þjóðskipulag í
þágu vinnandi stétta.
„Með því að slá skjaldborg um
Stalín er þetta fólk í raun að halda
fram ágæti þess „að leysa“ með
vaidboði í eitt skipti fyrir öll þau
vandamál sem þurfa mikillar um-
ræðu við...og það sem verra er,
þetta fólk ver hið óverjanlega;
einræðið.“
Sovetskaja Rossija studdi um-
bótastefnu Gorbatsjovs með
ráðum og dáð í upphafi en að
undanförnu hafa ritstjórar þess
söðlað um og tekið að boða
dyggðir á borð við „varkárni” og
„hófsemi“.Telja fréttaritarar Re-
uters í Moskvu næsta augljóst að
nú geisi „hugmyndafræðilegt
borgarastríð" í flokknum og
Kreml milli íhaldsafla og félaga
aðalritarans.
Höfundur Prövdugreinarinnar
sér enda ástæðu til þess að brýna
fyrir lesendum að það hefði mjög
alvarlegar afleiðingar í för með
sér, jafnt innanlandsog utan, biði
umbótastefnan skipbrot. Hann
klykkir út með því að vitna í fræg
orð Gorbatsjovs: „Perestrojkan
er eini valkosturinn."
Reuter/-ks.
Miðvikudagur 6. apríl 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13