Þjóðviljinn - 06.04.1988, Blaðsíða 16
P—SPURNINGIN-^
Ert þú búin(n) að gera
upp bifreiðatryggingarn-
ar þínar?
Einar Ólafsson
nemi:
Nei, ég hef ekki gert þaö af
tómum trassaskap.
Guðmundur Karlsson
vélstjóri:
Já, ég er búinn aö því. Mér
finnst þær hafa hækkaö fjári
mikið frá því í fyrra.
Asmundur Valdimarsson
bóndi:
Já, ég er það. Ég held að þetta
sé ekki ósanngjörn hækkun. Það
fylgir þessu aukin trygginga-
vernd.
Kara Jóhannesdóttir
blómaskreytingamaður:
Nei, ég er ekki búin að því,
þetta gjaldfellur ekki fyrr en 8.
apríl. Maður er ekkert að borga
fyrr en þá.
þJÓÐVIUINN
Mlðvikudaour 6. apríl 1988 77.tölublað 53. órgangur
Sparisjóösvextir
á téKKaraKninga
hávaxtaKjörum
SAMVINNUBANKI
ISLANDS HF.
.
'
Á Ijóðakvöldinu á Borginni í kvöld gefst mönnum kostur á að heyra
nokkur verka þeirra Sigurðar Pálssonar, Þórarins Eldjárns, Vilmundar
Gylfasonar og Péturs Gunnarssonar sem stigu sín fyrstu spor útá
þyrnum stráða skáldabrautina fyrir tuttuguogþremur árum, þegar Ijóð
þeirra voru gefin út á bók ásamt Ijóðum annarra skólaskálda MR.
Ljóðakvöld á Borginni
Skáld tveggja kynslóða
Besti vinur Ijóðsins og Menntaskólinn í Reykjavík kynna Ijóð eftir
fyrrverandi og núverandi nemendur skólans
Besti vinur ljóðsins skipu-
leggur Ijóðakvöld undir hcitinu
Skáld tveggja kynslóða á Hótel
Borg í kvöld, og er Ijóðakvöldið
að þessu sinni haldið í samvinnu
við Menntaskólann í Rcykjavík.
Tilefni samkomunnar er út-
koma Ijóðabókar með skáldskap
nemenda Menntaskólans í
Reykjavík, og lesa sex skóla-
skáldanna úr ljóðum sínum, en
það eru þau Melkorka Ólafsdótt-
ir, Kristján Hrafnsson, Ari Gísli
Bragason, Sindri Freysson, Bald-
ur A. Kristinsson og Elsa Vals-
dóttir.
Jafnframt er þess minnst að
fyrir tuttugu og þremur árum var
gefin út bók með ljóðurn þáver-
andi skólaskálda MR og munu
þrjú þeirra skálda sem áttu ljóð í
bókinni lesa úr verkum sínum,
þeir Sigurður Pálsson, Þórarinn
Eldjárn og Pétur Gunnarsson.
Auk þess verður lesið úr verkum
Vilmundar Gylfasonar sem einn-
ig átti ljóð í bókinni.
Ljóðakvöldið hefst kl. 21:00og
er miðaverð 300 krónur.
LG
Nútíminn
Af ítölskum skírlífisbeltum
Rómverski listamaðurinn
Camerino da Greccio hefur smíð-
að sjö skírlífisbelti fyrir jafn-
marga ofurafbrýðisama eigin-
menn undanfarin fimm ár.
Camerino er fjölhæfur lista-
maður og leggur jöfnum höndum
stund á höggmyndalist og
málaralist, til dæmis hefur hann
getið sér gott orð fyrir viðgerð
freskumynda í guðshúsum Róm-
aborgar.
Fyrir nokkrum árunt héldu ít-
alskar kvenréttindakvinnur yfir-
litssýningu um ávinninga sína og
hreyfingar sinnar. Einsog gefur
auga leið lét Camerino ekki sitt
eftir liggja og smíðaði heljarinnar
mikið skírlífisbelti í miðaldastíl,
skúlptúr til minningar um fornar
þjáningar Evudætra. Sagði Cam-
erino.
Sjálfur stóð listamaðurinn
vörð um þetta sköpunarverk sitt
á sýningunni. Ekki leið á löngu
áður en flóttalegur maður kom
aðmáliviðhann. Hannværi sölu-
maður frá Reggio Calabria (syðst
á Ítalíu) og væri því oft og lengi að
heiman. Hvort listamaðurinn
vildi nú ekki gera svo vel að
smíða svona belti um mitti eigin-
konu sinnar. „Hann trúði mér
fyrir því að hann væri heltekinn
afbrýðisemi,“ sagði Camerino.
Og listamaðurinn framsækni,
hinn sérstaki fylgismaður ítalskra
kvenréttindakvenna, varð við
óskum sölumannsins víðförla.
Gegn hæfilegri þóknun, vita-
skuld. Fiskisagan flaug og ekki
leið á löngu uns fleiri pantanir
bárust að sunnan. Sex viðskipta-
vinir hafa fetað í fótspor frum-
herjans og mætt með spúsur sínar
á vinnustofu Camerinos. Þar hef-
ur hann brugðið málbandi um
mitti þeirra einsog fyrsta flokks
skraddari og boðið þeim að velja
silki eður leðurfóður í tryggðar-
virkið. Prísinn? „Litlar" 64 þús-
und krónur fyrir belti! „Ég lít
vitaskuld á þau sem höggmynd-
ir,“ sagði Camerino að lokum og
glotti við tönn.
Reuter/-ks.