Þjóðviljinn - 29.04.1988, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 29.04.1988, Blaðsíða 2
FRETTIR Kaupmenn Skörð í raðimar Samstaðan að bresta meðal kaupmanna. 20 fyrirtœki hafa samið á svæði VR. Á Selfossi hafa 5 samið og27á Akureyri. Framkvæmdastjóri VSI: Þessir samningar hafa ekki áhrifá afstöðu okkar Verulegir brestir eru komnir í samstöðu kaupmanna út um land allt og semja þeir að eigin frumkvaeði við félög verslunar- og skrifstofumanna um 42 þús- und króna lágmarkslaun. í gær- kvöld höfðu 20 verslanir samið við VR, en allar eru þær utan vé- banda VSÍ. Á Akureyri var búið að semja við 27 eigendur verslana og þjónustufyrirtækja, sem eru innan vébanda Kaupmannasam- taka Akureyrar og á Selfossi var búið að semja við 5 fyrirtæki ýmis konar. Samkvæmt upplýsingum hjá verkfallsstjórn VR komst veru- legur skriður á þessa samninga þegar verslunin Sautján samdi við félagið fyrir afgreiðslufólk sitt í gær. Þegar það fréttist fylgdu fljótlega fleiri á eftir og var svo Hjúkrun Mannekla á spítölunum Deildum lokað á spít- ölum ísumar ef ekkifást hjúkrunarfrœðingar og sjúkraliðar Starfsfólk spítalanna í Reykja- vík er nú farið að hafa af því áhyggjur að ekki komi nægilega margt fólk til starfa í sumar. Sumar af hjúkrunardeildum ríkisspítalanna verða starfræktar með venjulegum hætti en ein- hverjar þeirra verða lokaðar að meira eða minna leyti. Davíð Á. Gunnarsson, for- stjóri ríkisspítalanna, segir að samþykkt hafi verið í stjórnar- nefnd ríkisspítalanna að leitast við að hafa til dæmis öldrunar- deildir opnar sem frekast yrði unnt en einhverjar deildir lokist eins og venjulega. - Það er erfitt fyrir okkur að sjá fyrir hvernig deildirnar verða starfræktar fyrr en nær dregur sumarleyfatímanum því það fer allt eftir því hve mörgu starfsfólki við höfum á að skipa hvaða deildum við lokum, segir Davíð. Hann segir ástandið vera svipað því sem verið hefur, kannski du- lítið verra, en að hans sögn vantar nú á ríkisspítalana að minnsta kosti 150 hjúkrunarfræðinga. Theodóra Reynisdóttir, yfir- hjúkrunarkona á öldrunardeild Landakotsspítala, segir ástandið á Landakoti ágætt eins og er en að illa liti út með sumarið. Aug- lýst hefur verið eftir hjúkrunar- fræðingum og sjúkraliðum en fram að þessu hafa nær einvörð- ungu borist umsóknir frá ófag- lærðum. - Við erum farin að hafa áhyggjur ef okkur berst ekki liðs- auki í sumar, segir Theodóra. Spítalarnir í Reykjavík eru nú að íhuga að fara þess á leit við bæði heilbrigðis- og fjármála- ráðuneytið að létt verði undir með þeim yfir sumartímann til að hægt verði að greiða starfsfólkinu einhverskpnar álagsuppbót. -tt komið í gærkvöld að 20 verslunar- og þjónustufyrirtæki höfðu gert samning við VR um að greiða sínu starfsfólki 42 þúsund krónur á mánuði sem lágmarks- laun og má búast við að fleiri samningar fylgi í kjölfarið í dag. Þessi fyrirtæki eru ekki innan vé- banda VSÍ en þau eru í Reykja- vík, Kópavogi, Mosfellssveit og á Seltjarnarnesi. Að sögn Ásu Helgadóttur hjá Félagi verslunar- og skrifstofu- fólks á Akureyri voru um 27 fyrir- tæki búin að semja um 42 þúsund króna lágmarkslaun á mánuði í gærkvöld. Samkvæmt samning- unum nyrðra fær afgreiðslufólk 50.400 krónur í mánaðarlaun eftir 10 ára starf og skrifstofufólk 60.480 krónur. Ása sagði að kaupmennirnir hefðu ávallt haft frumkvæði að samningum. Þeir kaupmenn sem hafa nú þegar samið fyrir starísfólk sitt eiga það sammerkt að reka litlar verslanir og hafa yfirborgað sitt fólk. Ennfremur eru í hópnum ýmis konar þjónustufyrirtæki ss. málflutningsskrifstofur. Ása sagði að þessir samningar bæru þess vitni að verslunarmenn væru að vinna á og auðséð að flótti væri kominn í lið kaup- manna, enda væru kröfur þeirra sanngjarnar sem kaupmenn viðurkenndu með því að skrifa undir að eigin frumkvæði. Sömu sögu var að segja frá Fé- lagi verslunar- og skrifstofu- manna á Selfossi. Þar höfðu 5 verslunar- og þjónustufyrirtæki samið um 42 þúsund króna lág- markslaun fyrir sína starfsmenn. Þar var líka um að ræða lítil fyrir- tæki. Búast má við að fleiri fylgi á eftir í dag. Birkir Skarphéðinsson hjá stórversluninni Amoro og for- maður Kaupmannasamtakanna á Akureyri sagði að það væri ekki um það að villast að hjörðin hjá sér væri farin að riðlast og viður- kenndi að þessir samningar veiktu að mun samstöðu síns fé- lags gagnvart launþegum. Hann sagði að samkomulagið tæki að- eins til 27 fyrirtækja af 70-80 sem eru í Kaupmannasamtökunum nyrðra, en félagssvæði þess nær til Dalvíkur og Olafsfjarðar, auk Akureyrar. Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ sagði að þessir samningar sem gerðir hafa verið á milli launþega og kaup- manna, breyttu engu um afstöðu VSÍ til kröfu verslunarmanna um að lágmarkslaun verði ekki undir 42. þúsundum króna á mánuði. -grh Alverið Verkfall 7. maí Mikið ber á milli. Ragnar Svartsýnn Samþykkt hefur verið í trúnað- arráði tíu verkalýðsfélaga hjá Isal að boða til vinnustöðvunar í ál- verinu frá og með 7. maí, og næði það til um 500 manna. Að sögn Sigurðar T. Sigurðs- sonar, formanns Hlífar í Hafnar- firði ber enn mikið á milli deilu- aðila og var síðasti samninga- fundur árangurslaus. Sigurður vildi engu spá um framhaldið en bjóst þó við að boðað verði til nýs samningafundar mjög fljótlega, jafnvel í dag. Þó svo að vinnustöðvun sé boðuð frá og með 7. maí tekur hálfan mánuð að slökkva í kerj- unum og er það gert með því að minnka smám saman rafstraum- inn til þeirra. Ragnar Halldórsson forstjóri sagði að hann væri frekar svart- sýnn á að deilan leystist í bráð vegna óbilgirni verkalýðsfélag- anna, sem hann segir að fari fram á 10% meiri launahækkanir en samið hefur verið um á vinnu- markaðinum á síðustu misserum. Hann sagði fyrirtækið ekki vera í stakk búið að koma til móts við verkalýðsfélögin þrátt fyrir batn- andi afkomu og vísaði til þess að launin hefðu ekki lækkað þegar illa hefði árað hjá fyrirtækinu. -grh Miðlunartillagan Hvarvetna mikil óánægja Miðlunartillagan var kynnt ífélögunum ígœr. Mœtti allsstað- ar mikilli andstöðu. Fundarmet hjá VR Málamiðlunartillaga ríkissátt- asemjara til lausnar vinnu- deilu verslunarmanna og vinnu- veitenda var kynnt í félögunum sem í verkfalli eru í gær. Tillagan mætti víðast mikilli andstöðu og beindist gagnrýni manna einkum og sér í lagi að launaliðnum, en samkvæmt honum verða lág- markslaun 36.500 krónur á mán- uði, en einnig að lækkun skrif- stofumanna frá fyrri samnings- drögum, sem talin eru hrein mis- tök sáttasemjara. VR kynnti miðlunartillöguna á fjölmennasta fundi sem haldinn hefur verið í sögu félagsins á Hót- el Sögu í gær. Talið er að á 8-900 manns hafi verið á fundinum eða um 10% félagsmanna. Þar mætti miðlunartillaga ríkissáttasemjara mikilli andstöðu og voru, sam- kvæmt heimildum Þjóðviljans langflestir fundarmanna á móti henni og sumir hverjir gengu reiðir út af fundinum. Sömu sögu er að segja af frá öðrum fundum, til dæmis á Akureyri og á Sel- fossi. Á fundunum kom einnig fram megn óánægja skrifstofufólks sem telur sig vera hlunnfarið í miðlunartillögunni en samkvæmt henni lækkar það í launum miðað við fyrri miðlunartillögu ríkissátt- asemjara sem felld var í allsherj- aratkvæðagreiðslu 11.-13. apríl. Atkvæði verða greidd um miðlunartillögu ríkissáttasemj- ara í dag og á morgun og Iiggja úrslit væntanlega fyrir annað kvöld. Hjá VR verður kosið í Verslunarskólanum frá klukkan 9-19 í dag og frá 10-18 á morgun. Tvísýnt er talið um úrslit í at- kvæðagreiðslunni þrátt fyrir óá- nægju með miðlunartillöguna, meðal annars vegna þess að til að Rýnt í miðlunartillögu sáttasemjara á Sögu í gær. Aldrei fyrr í sögu VR hún falli þarf mjög mikla kjör- hefur annar eins fjöldi félagsmanna mætt á fund hjá félaginu og í gær, sókn. -grh 8-900 manns eða um 10% félagsmanna. (Mynd: Sig.) Keflavíkurflugvöllur Atök og hótanir í Leifsstöö Stympingar íflugstöðinni. Þrjár hálftómar vélar í loftið ígœrmorgun. Forstjórinn í afgreiðsluna síðdegis en án árangurs. Flugfélögin hóta verkfallsmönnum með fjárhagsábyrgð Nokkrar stympingar urðu I Flugstöð Leifs Eiríkssonar snemma í gærmorgun og aftur síðdegis þegar verkfallsverðir verslunarmanna komu í veg fyrir skráningu flugfarþega í vélar Arnarflugs og Flugleiða. Þrjár vélar komust í loftið í gærmorgun, tvær frá Flugleiðum og ein frá Arnarflugi en aðeins örfáir farþegar komust í gegnum skráninguna og um borð í vélarn- ar sem voru hlaðnar vörum. Síð- degis fóru tvær aðrar vélar frá Flugleiðum frá flugstöðinni en verkfallsverðir komu í veg fyrir brottför farþega. Að sögn Magnúsar Gíslasonar formanns Verslunarmannafélags Suðurnesja hrópuðu margir far- þegarnir ókvæðisorð að ver- kfallsvörðum í gærmorgun, og kom til stympinga milli manna þegar farþegar vildu komast inn í flugstöðina. Lögreglan var á staðnum en skipti sér ekki af öðr- um en þeim sem gerðu sig líklega til stympinga, sem einkum voru erlendir ferðamenn. Fjölmennt lið verkfallsvarða úr VR aðstoð- aði félaga sína af Suðurnesjum við verkfallsvörsluna í Flugstöð- inni. Síðdegis var mættur Sigurður Helgason forstjóri Flugleiða til að skrá inn farþega en eftir nokkra snúninga fór á sömu lund og um morguninn. Lögfræðingur VSÍ kom þá á vettvang og færði Magnúsi formanni bréf þar sem ábyrgð allri af stöðvun flugsins, þar á meðal fjárhagslegri, er lýst á hendur verslunarmannafé- laginu. Starfsmannafélag Arn- arflugs sendi í gær frá sér yfirlýs- ingu vegna þessara aðgerða, þar sem þeim var harðlega mótmælt. Segir í ályktuninni að starfsfólk Arnarflugs eigi ekki í neinni launadeilu við félögin enda allir starfsmenn með laun yfir 42 þús- und, og hafi VR áður viðurkennt rétt félagsins til að halda uppi á- ætlunarflugi. Von var á flugvélum í morgun snemma og ætluðu verkfallsverð- ir að vera við öllu búnir. ->g 2 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 29. apríl 1988

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.