Þjóðviljinn - 29.04.1988, Qupperneq 3
SS-Nýibœr
Tapið 50 milljónir
Aaðalfundi Sláturfélags Suður-
lands kom fram að stórtap
varð á verslunarrekstri félagsins
á síðasta ári og munar þar mestu
um tapið á Nýja bæ á Seltjarnar-
nesi sem varð 50 milljónir króna.
Hefur allt hlutafé SS í þessari
verslun, 47 milljónir króna, verið
afskrifað.
Á aðalfundinum voru kynntar
þær stefnubreytingar sem gera á á
rekstri félagsins. Þær fela í sér, í
stórum dráttum, að verslunar-
rekstrinum eða smásöluverslun-
inni verði hætt en í staðinn verði
meiri áhersla lögð á kjötvinnsl-
una og heildsöluna. Ljóst er að
framundan eru talsverðar upp-
sagnir starfsfólks en um fjöldann
er ekki vitað enn.
Sökum tapsins í fyrra sem nam
66 milljónum króna er lausafjár-
staða félagsins nú slæm en félagið
er traust eftir sem áður með eigið
fé upp á 427 milljónir króna og
tæplega 3ja milljarða króna
veltu.
- FRI
Á hafnarbakkanum. Verslunarmannaverkfall, ríkisstjórnarvantraust, erlend skuldasöfnun, afleit staða
grundvallaratvinnuveganna og ferð íslenskra stormskera til írlands, - ekkert af þessu breytir þeirri náttúru
sem laðar stráka að höfninni. Sig. var á ferð við Reykjavíkurhöfn í gær og smellti af.
FRETTIR
Ráðhúsið
Kæninni hafnað,
kært aftur
Meirihluti í byggingarnefnd vill að ráðherra sinni ekki kæru íbúa við Tjarnargötu
Meirihluti í byggingarnefnd
ákvað að beina þeim tilmæl-
um til félagsmálaráðherra að
sinna hvorki kæru ibúanna við
Tjarnargötuna né hrófla við
graftarleyfinu svokallaða sem
sami meirihluti í byggingarnefnd-
arinnar samþykkti að veita 30.
mars.
Framkvæmdir við Tjörnina
hefjast því á ný og búast verktak-
arnir við að ljúka við bráðabyrgð-
arfyllinguna um helgina.
Það voru þrír nefndarmeðlimir
samþykkir þessari afgreiðslu en
tveir andvígir og lögðu þeir fram
sérstaka bókun þar sem þeir tí-
unda ólögmæti leyfisveitingar-
innar. Hluta af bókuninni sendu
þeir félagsmálaráðherra fyrir
fundinn og kemur þar fram
að...„í byggingarlögum og reglu-
gerð er ekki gert ráð fyrir sérstök-
um leyfum til að grafa grunn,
reisa hús eða rífa hús. Sameigin-
legt heiti fyrir þessi leyfi er bygg-
ingarleyfi. Af þessu leiðir að
óheimilt er að grafa grunn nema
skriflegt byggingarleyfi sé fyrir
hendi. Byrjunarframkvæmdir við
byggingu ráðhúss Reykjavíkur
eru þvf óheimilar“.
íbúarnir við Tjarnargötuna
senda í dag til félagsmálaráð-
herra kæru vegna byggingarleyfi-
sveitingarinnar í krafti bygging-
arlaga þar sem fram kemur að
framkvæmdir þær sem bygging-
arnefnd heimilaði skuli vera í
samræmi við staðfest aðalskipu-
lag og samþykkt deildarskipulag.
íbúarnir vekja athygli á að svo sé
ekki og þrýsta því á ráðherra að
ógilda graftarleyfið þar eð um-
fang ráðhússins hafi vaxið gífur-
lega. 5 þúsund rúmmetrar hafi
bæst við og jafngildi það um 28%
stækkun. Slíkt skuli að sjálfsögðu
tafarlaust koma til umfjöllunar í
Skipulagsstjórn og fara aftur fyrir
nefndirnar og ráðin, hvert fyrir
sig.
Eftir að niðurstaða fundarins
varð ljós var búist við að félags-
málaráðherra tæki sér að minnsta
kosti tvo daga til að íhuga og
skoða málavexti en að þeirri
ígrundun lokinni ætti niðurstaða
hennar um lögmæti graftarleyfis-
ins að liggja fyrir. -tt
Verðlagsráð
Leðurlúx
er ekki
lúxusleður
Verðlagsráð hefur bannað
notkun nafngiftarinnar leðurlúx
um polyúrethanáklæði á sófasett
á þeim forsendum að nafngiftin
geti villt um fyrir neytendum sem
sumir halda að um sérstakt gæð-
aleður eða „leðurblöndu" sé að
ræða.
Ráðið telur nafngiftina í þessu
samhengi ranga og villandi og
brot á lögum um verðlag, sam-
keppnishömlur og óréttmæta við-
skiptahætti frá 1978.
Leðurlúx er semsé ekki lúxus-
leður. -tt
Vantraust:
Hörð gagnrýni, Framsókn aum
Harðsvíruð láglaunastefna. Gífurlegur viðskiptahalli. Tillits-
leysi gagnvart lífskjörum. Vita verslunarmenn að 3.2
milljörðum var eytt í verslunar-og skrifstofuhúsnœði?
Íumræðum um vantrauststil-
lögu Alþýðubandalagsins á
ríkisstjórnina koma fram hörð
gagnrýni á stefnuleysi hennar,
einkum í efnahagsmálum.
Steingrímur J. Sigfússon var
fyrsti flutningsmaður tillögunnar
og sagði hann m.a. í upphafi máls
síns: „Harðsvíruð láglaunastefna
ríkisstjórnarinnar, þar sem mán-
aðarlaun niður undir 30.000
krónum eru sáluhjálparatriði
hefur leitt til harðvítugra vinnu-
deilna þar sem hópar launafólks
reyna að brjóta þessa stefnu á
bak aftur.“
Síðar í máli sínu ræddi
Steingrímur um gífurlegan við-
skiptahalla sem engin dæmi fynd-
ust um áður, gríðarlega skulda-
söfnun og verðbólgu sem er átt-
föld á við helstu viðskiptalönd
okkar. Á meðan þetta ástand færi
versnandi viðgengist glórulaus
fjárfesting í eyðslugreinum þjóð-
félagsins. Sagði Steingrímur að
góðæri undanfarinna ára hefði
brunnið upp sem eldsneyti í þeirri
hraðkapitölsku tilraun sem hér
hefur verið í gangi undir merkj-
um frjálshyggjunnar.
„Segja má að efnahagsstefna
ríkisstjórnarinnar með hágengi
krónunnar og okurvöxtum sé
seigdrepandi ef ekki bráðdrep-
andi fyrir atvinnulíf landsbyggð-
arinnar," sagði Steingrímur.
í seinni umferð umræðunnar
talaði Guðrún Helgadóttir fyrir
hönd Alþýðubandalagsins. Hún
spurði í ræðu sinni hvort versl-
unarmenn sem nú standa í verk-
falli, eða það fólk sem hvergi fær
húsnæði, að 3.2 milljörðum
króna var eytt á síðasta ári í
verslunar- og skrifstofuhúsn-
æði... „finnst því þetta eðlileg
meðferð á fjármunum þjóðarinn-
ar? Treystir það þessari ríkis-
stjórn eða vill það skrifa undir
vantraust á hana? Svari hver fyrir
sig,“ sagði Guðrún.
Síðar í máli sínu sagði Guðrún
m.a.: „Þið sem liggið andvaka út
af næstu afborgun á íbúðinni ykk-
ar eigið að vita að 321 milljón fór
til greiðslu lokaáfanga húss Seðl-
abankans. Innnansleikjurnar
urðu 321 milljón, andvirði eitt
hundrað íbúða af þeirri stærð sem
sárast vantar handa unga fólkinu
sem er að hefja heimilisrekstur.
Og hér í Reykjavík ætla þau öfl
sem þjóðmálunum ráða að nota 2
milljarða i' ráðhús og veitingahöll
á hitaveitugeymunum. Treysta
menn þessum stjórnmálaflokk-
um eða vantreysta þeir þeim?“
Þorsteinn Pálsson forsætisráð-
herra tók til máls á eftir
Steingrími. Hann sagði m.a. að
nú þyrftum við að stilla saman
kraftana, gera okkur grein fyrir
þeim áföllum sem þjóðarbúið
hefur orðið fyrir og finna viðun-
andi lausnir. Þorsteinn sagði að í
rótleysi góðærisins hefði launa-
mismunurinn í landinu vaxið en
því hefði verið mætt með ýmsum
ráðstöfunum. Nú væri aðal-
vandamálið að útflutningsfram-
leiðsla okkar byggi við rekstrar-
skilyrði sem ekki væri unnt að
búa við til lengdar en í bígerð
væru aðgerðir til úrbóta.
Júlíus Sólnes Borgaraflokki
sagði að sundurlyndi og sundrung
hefði einkennt ríkisstjórnina og
nú tíu mánuðum eftir að hún var
mynduð væri hún rúin öllu
trausti. Ráðherrar eyddu mestu
af tíma sínum í að munnhöggvast
í fjölmiðlum og einstaka stjórnar-
þingmenn væru í stjórnarands-
töðu. Hann sagði að svo virtist
sem stjórnin héldi að menn gætu
lifað á því hér að höndla með
pappíra og stunda innflutning.
Hann sagði Borgaraflokkinn
harma þetta ástand enda væri
launafólk nú fjær því en nokkru
sinni að geta lifað mannsæmandi
lífi af launum sínum.
Jóhann Einvarðsson Fram-
sóknarflokki varði stjórnina og
benti á að margt gott hefði
áunnist þótt margt mætti betur
fara. Rakti hann í því sambandi
tillögur miðstjórnarfundar
flokksins nýlega. Af einstökum
málaflokkum vakti Jóhann at-
hygli á því að vantrauststillögu-
nni væri ekki beint gegn
Steingrími Hermannssyni utan-
ríkisráðherra og þeirri utanríkis-
málastefnu sem hann hefur fylgt.
Guðni Ágústsson Framsóknar-
flokki sagði að það væri
skammsýni að rjúfa stjórnarsam-
starfið nú og vildi hann láta reyna
á það hvort ekki næðist samstaða
innan ríkisstjórnarinnar um þær
aðgerðir sem nauðsynlegar eru. í
máli Guðna kom ennfremur fram
að Framsóknarmenn væru ekki
alsælir með stjórnarsamstarfið en
stjórnin væri ung og rétt að gefa
henni tækifæri.
Umræðurnar einkenndust af
hraðri gagnrýni á stjórnina ann-
arsvegar og þá einkum efnahags-
stefnu hennar og hinsvegar vörn
stjórnarliða, sem þó viðurkenn-
du að vandinn væri mikill en ekki
óbrúanlegur. Vantraustið var
fellt með atkvæðum stjórnarliða
gegn atkvæðum stjórnarandstöð-
unnar.
-FRI
Föstudagur 29. apríl 1988 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 3