Þjóðviljinn - 01.06.1988, Page 13
ERLENDAR FRETTIR
Moskva
Sovétríkin
Aimenar
mótmæla
á ný
Tugir þúsunda manna hafa
gengið um götur Jerevan, höfuð-
borgar sovésku Armeníu, dag
hvern að undanförnu og krafist
þess að nýju að mörk Armeníu og
Azerbaijan verði dregin á ný.
Það er alkunna að Armenar vilja
að héraðið Nagorno-Karabakh
verði ermskt enda mun það vera
nær eingöngu byggt Armenum.
Það var embættismaður í utan-
ríkisráðuneyti Armeníu sem
skýrði fréttamanni Reuters í
Moskvu frá þessu í gær. Hafði
slegið á þráðinn til hans.
„Það eru nú fjöldafundir á degi
hverjum í miðbænum. Það komu
ekki færri en 15 þúsund manns
þar saman í gær.“ Hann bætti því
við að námsmenn hefðu slegið
upp tjöldum á grasbölum og í
görðum um miðbik borgarinnar
og dveldu þar að næturþeli.
Reuter/-ks.
Samning fyrir forsetaskipti
Gorbatsjov og Sakharov, Lígatsjov
og Kasparov skemmta sérsaman
eir félagar Ronald Reagan og
Míkhael Gorbatsjov lýstu því
yfir í gær, á þriðja degi heimsókn-
ar hins fyrrnefnda til höfuðborg-
ar Sovétríkjanna, að þeir myndu
kost kapps um að Ijúka gerð
samnings um langdræg
kjarnvopn áður en forsetaskipti
verða í Bandaríkjunum.
„Ég er handviss um að forset-
inn gernýtir þann tíma sem hann
á enn fyrir höndum í embætti og
er sannfærður um að við náum
samkomulagi áður en hann kveð-
ur,“ sagði Gorbatsjov.
í gær bar leiðtogafundurinn
sína fyrstu ávexti þegar utanríkis-
ráðherrar stórveldanna, vildar-
vinirnir Shultz og Shevardnadze,
undirrituðu tvo minniháttar
samninga. Hvor tveggju er um
hömlur á prófun vopna, annar
bannar tilraunir með langdrægar
eldflaugar en hinn reisir skorður
við tilraunum með kjarnodda.
Ekki bárust neinar fréttir af því
síðdegis í gær að leiðtogarnir
hefðu nálgast samkomulag um
mál málanna, samninginn um
helmingsfækkun langdrægra
kjarnvopna sinna á láði og í legi.
Hér er átt við langdrægar kjarn-
flaugar á skotpöllum á landi og í
kafbátum, ennfremur um kjarn-
sprengjur um borð í langfleygum
flugvélum.
I gærkveldi hélt Reagan
rokkna partí og kenndi þar ým-
issa grasa á gestalista. Þar voru
stjórnmálamenn, andófsmenn,
listamenn og skákmenn svo
eitthvað sé nefnt. Gorbatsjov og
Lígatsjov voru þarna, ennfremur
Andrei Sakharov og Garrí Kasp-
arov. Ballerínan Natalía
Bessnertnova tiplaði á tánum í
kringum skáldið Voznesensky og
forsætisráðherrann Ryzhkov.
Komi fréttin um mannsöfnuð
þenna einhverjum á óvart þá
verður sá þrumu iostinn þegar
„Nei komdu nú sæll og blessaður."
honum berst til eyrna hvað
Nancy Reagan lét hafa eftir sér í
gær. Hún kvaðst vera farin að
skilja hvers vegna Rússar byltu
þjóðfélaginu!
Reuter/-ks.
Palestína
207 Palestínumenn fallnir
r
Israelsk heryfirvöid lýstu því
yfir í gær að 207 Palestínumenn
hefðu látið lífið frá því uppreisn
þeirra hófst á herteknu svæðun-
um fyrir tæpu hálfu ári. Þetta eru
fleiri mannslíf en fréttamenn og
heimildamenn þeirra höfðu talið.
Málsvari hersins greindi frá því
að hermenn hefðu skotið 157 til
bana. Aðrir hefðu ýmist verið
„drepnir af aröbum" eða að óvíst
eða ósannað væri hvað orðið
hefði þeim að aldurtila.
Eftir því sem fréttamenn Reut-
ers komast næst hafa 190 Palest-
ínumenn fallið í uppreisninni.
Flesta þeirra skutu ísraelsmenn,
annaðhvort hermenn eða „land-
nemar“. Sumir köfnuðu í ísra-
elsku táragasi, aðra börðu ísra-
elskar hendur til bana með ísra-
elskum kylfum. Nokkrir voru
drepnir af löndum sínum.
Fyrr í gær komu þær upplýsing-
ar fram í máli ísraelska þing-
mannsins Yossi Sarid að her-
menn hefðu slasað 5.130 menn á
þessu hálfa ári.
Háttsettur embættismaður hjá
Sameinuðu þjóðunum sakaði
ísraelska hermenn í gær um að
misþyrma Palestínumönnum af
handahófi og án tilefnis.
William Lee er yfirmaður í’
Hjálparstofnun Sameinuðu þjóð-
anna. Hann ræddi við fréttamann
Reuters í gær. „Þeir berja menn
af handahófi og það virðist alger-
lega tilviljun háð hverjir verða
fyrir barðinu á þeim. Misþyrm-
ingarnar eiga sér stað á öllum
tímum, jafnt og þétt, og iðulega
án nokkurs tilefnis. Tilgangurinn
er sá að hræða menn til hlýðni."
Lee segir að svo virðist sem
engu máli skipti hvort Palestínu-
menn hafi mótmæli í frammi eður
ei, ísraelsmenn berji þá engu að
síður. Hann nefnir sem dæmi að
kyrrt hafi verið á herteknu svæð-
unum um síðustu helgi en engu
að síður hafi 19 Palestínumenn
verið barðir til óbóta. Þeirra á
meðal voru fjögurra ára gamall
drengur og sextugur maður.
„Þetta virðist bara vera orðið að
daglegri venju. Það er það
óhugnanlega við það.“
Reuter/-ks.
Frakkland
Hvað gerðist í Nýju-Kaledóníu?
Mitterrand forseti villfá að vita hvortfótur sé fyrir fregnum um aðfranskir
hermenn hafiframið hryðjuverk eftirfrelsun gísla
Francois Mitterrand Frakk-
landsforseti vill fá að vita allt
af létta um forsendur þeirra ásak-
ana á hendur félögum öryggis-
sveita að þeir hafi myrt þrjá að-
skilnaðarsinna á Nýju-Kaledón-
íu.
Það var málsvari forseta, Hu-
bert Vedrine, sem greindi frá
Eftir óformlegar viðræður
danskra stjórnmálamanna
um þriggja vikna skeið var einum
þeirra falið formlega að mynda
ríkisstjórn í gær.
Það kemur fæstum á óvart að
Paul Schlúter varð fyrir drottn-
þessu í gær. „Það skiptir náttúr-
lega mestu, og á það leggur for-
seti höfuðáherslu, að öll kurl
komi til grafar í þessu máli.“
í fyrradag mæltu frönsk
dómsmálayfirvöld fyrir um ítar-
lega rannsókn á því hvernig
dauða þriggja skæruliða úr
röðum aðskilnaðarsinnaðra Kan-
aka bar að höndum. Þeir voru í
ingarvali því hvort tveggja er að
hann er fráfarandi forsætisráð-
herra og hefur að auki stýrt við-
ræðum oddvita danskra
stjórnmálaflokka upp á síðkast-
ið.
Schlúter sagði að sér hefði ver-
hópi mannanna sem sérþjálfaðir
hermenn sögðust hafa fellt er þeir
frelsuðu 23 franska gísla úr hönd-
um herskárra aðskilnaðarsinna.
Einsog menn rekur minni til var
árásin gerð að undirlagi þáver-
andi forsætisráðherra, Jacques
Chiracs, sem átti undir högg að
sækja í kosningabaráttu og
freistaði því þess að vinna hylli
ið falið að mynda stjórn er stydd-
ist við meirihluta þingmanna.
Það þyrfti þó ekki að vera
„meirihlutastjórn" enda búast
allir við enn einni minnihluta-
stjórn.
Reuter/-ks.
almennings með ýmsum ráðum.
Skömmu eftir frelsun gíslanna
komu nokkrir Kanakar að máli
við fréttamenn á Nýju-Kaledóníu
og kváðust hafa séð hermenn
myrða þrjá skæruliða sem gefist
höfðu upp í árásinni. Þeir sögðu
að hermennirnir hefðu leitt tvo
Kanaka afsíðis og skotið þá.
Skömmu síðar hefðu þeir limlest
fyrirliða mannræningjanna, Alp-
honse Dianou, skotið hann í hné,
og skilið hann síðan eftir á afvikn-
um stað til þess að deyja drottni
sínum.
Málsvarar franska setuliðsins á
Nýju-Kaledóníu þvertóku fyrir
að svo mikið sem flugufótur væri
fyrir þessum ásökunum. En í gær
skýrði franskur dómsmálaráð-
herra, Jean-Pierre Chevene-
ment, frá því að hermenn hefðu
„farið út fyrir verksvið sitt“ þegar
frelsun gíslanna var lokið.
Reuter/-ks.
Danmörk
Schliiter fær umboð
Ítalía
Sósíalistar
draga á
kommún-
ista
Craxi og de Mita ánœgðir
með úrslit bœjastjórna-
kosninga
Bettino Craxi var í sjöunda
himni í gær. Allessandro Natta
var hinsvegar daufur í dálkinn.
Gleði Craxis stafaði af því að Só-
síalistaflokkurinn fékk miklu
fleiri atkvæði í borga- og bæja-
stjórnakosningum sem fram fóru
á Italíu í fyrradag en í þingkjör-
inu sem fram fór fyrir réttu ári.
Því var Natta óglaður að þessu
var þveröfugt farið um Kommún-
istaflokkinn.
Sósíalistar fengu 18,3 af hundr-
aði atkvæða í fyrradag, juku fylgi
sitt um rúm fjögur prósent.
Kommúnistar töpuðu hvorki
meira né minna en tæpum fimm
af hundraði. Fengu tæp 22 pró-
sent.
Þótt kommúnistar séu enn vin-
sælli en Craxi og félagar munar
mjóu. Fyrir örfáum árum var Só-
síalistaflokkurinn peð í saman-
burði Kommúnistaflokkinn en
síðan hefur jafnt og þétt hallað
undan fæti fyrir þeim síðarnefnda
en hinum fyrrnefnda að sama
skapi vaxið ásmegin.
Ljóst er að kommúnistar verða
að grípa til róttækra ráðstafana
eigi sósíalistar ekki að vaxa þeim
yfir höfuð. Fréttaskýrendur full-
yrða að ekki sé seinna vænna að
skipt verði um formann. Natta sé
bæði roskinn maður og sjúkur og
því tímabært að hann þoki úr
sessi. Enda eigi flokkurinn ungan
og sprækan „erfðaprins" í sínum
röðum, 52 ára gamlan mann, Ac-
hille Occhetto að nafni.
Forsætisráðherra Ítalíu, Ciri-
aco de Mita, er ennfremur for-
maður langvinsælasta flokks
landsins. Kristilegir demókratar
juku fylgi sitt um tvo af hundraði í
gær. Fengu 36,8 prósent.
Reuter/-ks.
Miðvikudagur 1. júní 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17