Þjóðviljinn - 01.06.1988, Blaðsíða 14
Auglýsing
um lausar stöður
hjá Hollustuvernd
ríkisins
Með vísun til laga um breyting á lögum nr. 109/
1984, um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, með
síðari breytingum, sem samþykkt voru á Alþingi
2. maí 1988, auglýsir heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytið lausar til umsóknar eftirtaldar
stöður hjá Hollustuvernd ríkisins.
1. Staða framkvæmdastjóra stofnunarinanr.
Staðan veitist frá og með 1. ágúst n.k., til fjögurra
ára. Einungis má skipa mann, sem hefur
menntun og reynslu á stjórnunar- og rekstrar-
sviði. Framkvæmdastjóri annast fjármálalega
stjórnun og stjórn almennrar skrifstofu.
2. Forstöðumaður heilbrigðiseftirlits.
Staðan veitist frá 1. ágúst n.k. til 6 ára. Forstöðu-
maður heilbrigðiseftirlits skal hafa háskóla-
menntun og viðhlítandi sérþekkingu í heilbrigðis-
vernd og starfsreynslu í heilbrigðiseftirliti. Heil-
brigðiseftirlit hefur yfirumsjón með því, að fram-
fylgt sé ákvæðum heilbrigðisreglugerðar og ann-
arra reglugerða, er lúta að heilbrigðiseftirliti. það
annast vöruskráningu og eftirlit með innflutningi
matvæla og annarra neyslu- og nauðsynjavara.
3. Forstöðumaður rannsóknarstofu.
Staðan veitist frá 1. ágúst n.k. til 6 ára. Forstöðu-
maður rannsóknarstofu skal hafa háskóla-
menntun á sviði örveru- og/eða efnafræði og
sérþekkingu og starfsreynslu á sviði rannsókna á
matvælum og neyslu- og nauðsynjavörum. Hlut-
verk rannsóknarstofu er að annast efna- og
gerlafræðilegar rannsóknir, sem lög um hollustu-
hætti og heilbrigðiseftirlit gera ráð fyrir á sviði
matvæla, neyslu- og nauðsynjavara og mengun-
ar. Ennfremur að annast sérstök rannsóknar-
verkefni eftir því sem stjórn stofnunarinnar ák-
veður hverju sinni.
4. Forstöðumaður mengunarvarna.
Staðan veitist frá 1. ágúst n.k. til 6 ára. Forstöðu-
maður mengunarvarna skal hafa háskóla-
menntun á sviði verk- og efnafræði og sérþekk-
ingu og starfsreynslu á sviði mengunarvarna.
Hlutverk mengunarvarna er að hafa yfirumsjón
með því að framfylgt sé ákvæðum mengunar-
varnareglugerðar og annarra hliðstæðra reglug-
erða. Ennfremur að annast mengunarvarnir:
1. Tillögur að starfsleyfum og úrvinnslu gagna
hvað snertir mengunarvarnir.
2. Skipulagningu og umsjón með framkvæmd
mengunarrannsókna í samræmi við lög um
hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit.
5. Forstöðumaður eiturefnaeftirlits.
Staðan veitist frá og með 1. janúar 1989 til 6 ára.
Forstöðumaður eiturefnaeftirlits skal hafa há-
skólamenntun og viðhlítandi sérþekkingu á eitur-
efnafræði og starfsreynslu á því sviði. Hlutverk
eiturefnaeftirlits er að annast yfirumsjón með
vöruskráningu og innflutningi eiturefna og hættu-
legra efna í nauðsynjavörum.
Umsóknir ásamt ítarlegum upplýsingum um
menntun og störf sendist heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytinu, Laugavegi 116, 150
Reyjavík, fyrir 1. júlí 1988.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
30. maí 1988
íslendingar
Kvartmiljón
á árinu?
Fjöldi 1. des: 247.357
Islendingar voru 247.357 tals-
ins 1. desember í fyrra samkvæmt
lokaskýrslu Hagstofunnar, og
hafði fjölgað um 1,37% frá sama
tíma ‘86. Verði fjölgun jafnmikil
þetta ár komast landsmenn yfir
250 þúsund.
Reykjavíkurtalan er nú
93.425, þá kemur Kópavogur
(15.037), Akureyri (13.856) og
þá Hafnarfjörður (13.780) sem
sífellt dregur á norðanmenn.
Keflavík (7.133) er fimmti
mannnflesti kaupstaður landsins,
þá Garðabær (6.549), Akranes
(5.426), Vestmannaeyjar
(4.699), Mosfellsbær (3.897),
Seltjarnarnes (3.859), Selfoss
(3.698) og ísafjörður (3.460).
Fjallahreppur í Norður-
Þingeyjarsýslu er nú fámennast
sveitarfélag á landinu með 14
íbúa.
í 23 kaupstöðum búa 190.948
manns, 77,2% þjóðarinnar. í
sýslum búa 56.409, 9.719 í fimm
bæjum, 25.333 í byggðakjörnum,
21.357 í eiginlegri sveit.
Samkvæmt Hagstofutölunum
hafa karlar vinninginn á konur
yfir landið (1107 karlar umfram).
I Reykjavík eru konur þó um
3000 umfram karla, en í öðrum
kaupstöðum eru karlar um 1073
umfram, og í sýslum eru karlar
2879 umfram konur.
Smáverslanir
Gripa til
sinna raða
Lána viðskiptavinum
með því að geyma
greiðslukortakvittanir í
nokkurn tíma.
Samkeppnin mikil.
Ótlitið svart
„Kaupmenn smærri verslana
eru farnir að geyma greiðslu-
kortakvittanir fyrir viðskiptavini
sina í nokkurn tíma. Ég geri þetta
til að halda í viðskiptavinina úr
hverfinu. Samkeppnin er svo
mikil, sérstaklega eftir tilkomu
allra stórmarkaðanna að þetta
borgar sig þrátt fyrir að svona
lána viðskipti kosti sitt,“ sagði Ág-
úst Guðmundsson kaupmaður í
Vörðufelli í Kópavogi.
Hann geymir greiðslukvittanir
fyrir viðskiptavini sína frá 1. til
18. hvers mánaðar. Þar sem ætl-
ast er til að kaupmenn skili inn
kvittunum vikulega hefur hann
þann háttinn á að dagsetja allar
kvittanir á þeim degi sem hann
skilar þeim inn.
„Þetta fyrirkomulag hefur
mælst vel fyrir og tryggt mér fleiri
viðskiptavini hér úr hverfinu en
það er einmitt til þeirra sem ég vil
ná enda hef ég ekkert auglýst
þetta utan verslunarinnar," sagði
Ágúst að lokum.
Annar kaupmaður sem haft
var samband við, Jóhann Ey-
mundsson í Árbæjarkjöri sagði
þensluna í verslunargeiranum
ekki ná nokkurri átt. Það virðist
vera í tísku að versla í stórmörku-
ðum, fólk hugsar ekki mikið út í
það hvort vörurnar séu eitthvað
ódýrari heldur verslar mikið og
notar svo greiðslukortin ef það
ekki á fyrir hlutunum, sagði Jó-
hann. Hann sagðist ekki hafa
tekið upp á því að geyma
greiðslukortakvittanir fyrir við-
skiptavini sína enda þyrftu kaup-
menn að hafa allrúma lausafjár-
stöðu til að geta staðið í slíku.
Kaupmenn smærri verslana
líta ekki björtum augum á ástand
mála enda gefur fjöldi þeirra
verslana sem hafa farið á hausinn
eða skipt um eigendur ekki tilefni
til mikillar bjartsýni. -iþ
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Austurland J >C~C
Opnir fundir mSm
Hjörleifur Margrét
Alþingismennirnir Hjörleifur Guttormsson og Margrét Frímannsdóttir ræða
þjóðmálin og störf Alþingis:
Á Djúpavogi miðvikudaginn 1. júní í Félagsmiðstöðinni kl. 20.30. Allir
velkomnir. - Alþýðubandalagið.
Skúll
Vesturland
Gunnlaugur
Ólöf
Þjóðmálaspjall
Skúli, Gunnlaugur og Ólöf sþjalla um þjóðmálin í Stykkishólmi (Verkalýðs-
húsinu) miðvikudagskvöld frá kl. 20.30 og í Ólafsvík (Mettubúð) fimmtu-
dagskvöld frá kl. 20.30. - Alþýðubandalagið.
Alþýðubandalagið á Akureyri
Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðubandalagsins á Akureyri verður haldinn fimmtudaginn 2.
júní nk. í Lárusarhúsi að Eiðsvallagötu 18 kl. 20.30.
Dagskrá: 1) Venjuleg aðalfundarstörf. 2) Önnur mál. Kaffiveitingar. Félagar
fjölmennið. - Stjórnin.
Alþýðubandalagið á Akranesi
Fundur í bæjarmálaráði
Fundur verður haldinn í bæjarmálaráði mánudaginn 6. júní nk. í Ftein kl.
20.30.
Dagskrá: 1) Reikningar bæjarsjóðs 1987. Revnslan af fyrstu fjárhagsáætl-
un meirihlutans í bæjarstjórn Akraness. 2) Ónnur mál. - Stjórnin.
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Byggðamál
Opinn umræðufundur um byggðamál verður haldinn
miðvikudaginn 1. júní kl.20.30 að Hverfisgötu 105.
Svanfríður Jónasdóttir varaformaður Alþýðu-
bandalagsins hefur framsögu og borgarfulltrúar
mæta á fundinn.
Alþýðubandalagið Akureyri
Aðalfundur bæjarmálaráðs
Aðalfundur bæjarmálaráðs verður haldinn nk. mánudag 6. júní kl. 20,30 í
Lárusarhúsi.
Dagskrá: 1. Yfirlit yfir störf ráðsins frá sl. ári og umræður um stöðu bæjar-
mála á miðju kjörtímabili. 2. Kosning stjórnar í bæjarmálaráð. 3. Dagskrá
bæjarstjórnarfundar 7. júní nk. 4. Önnur mál.
Allir félagar velkomnir. Þeir félagar sem starfa í nefndum og ráðum eru
sérstaklega hvattir til að mæta. Stjórnin.
Menningarnefnd AB
Fundur miðvikudaginn 1. júní kl. 17 að Hverfis-
götu 105.
Ráðstefna um byggðamál
Dalvík 10.-12. júní 1988
Alþýðubandalagið boðar til ráðstefnu um byggðamál á Dalvík 10. - 12. júní
n.k.
Ráðstefnan hefst kl. 14.30 föstudaginn 10. júní og er áætlað að henni Ijúki
síðdegis sunnudaginn 12. júní.
Dagskrá:
Föstudagur 10. júní
Kl. 14.30 Framsöguerindi
Umræður
Kl. 19.00 Farið til Hríseyjar. Eyjan skoðuð og snæddur kvöldverður.
Laugardagur 11. júní
Kl. 09.00 Framsöguerindi
Umræður
Kl. 16.00 Skoðunarferð um Dalvík- söfn og fyrirtæki.
Snætt á Grund í Svarfaðardal. Þátttakendum kenndur svarf-
dælskur mars.
Sunnudagur 12. júní
Kl. 09.00 Sundskálaferð
Kl. 10.30 Hópavinna - skil og umræður
Eftirtaldir hópar starfa:
I Stjórnkerfið og þjónusta
II Atvinnumál og þjónusta
III Menning og viðhorf
IV SlS og kaupfélögin.
Ráðstefnunni lýkur síðdegis.
Gisting verður í heimavist Dalvíkurskóla (Sumarhótel).
Allar nánari upplýsingar veita Svanfríður Jónasdóttir í síma 96-61460 og
Þóra Rósa Geirsdóttir í síma 96-61411. Þær taka einnig við þátttökutilkynn-
ingum.
Nánar auglýst síðar Alþýðubandalagið
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 1. júní 1988