Þjóðviljinn - 10.06.1988, Side 14

Þjóðviljinn - 10.06.1988, Side 14
ALÞÝÐUBANPALAGIÐ Vorráðstefna á Hallormsstað Kjördæmisráö Alþýðubandalagsins á Austurlandi efnir til árlegrar vorráð- stefnu á Hallormsstað dagana 18. og 19. júní næstkomandi. Dagskrá: Laugardagur 18. júní kl. 13.30: Ráðstefna um byggðamál, fram- söguerindi og umræður. Kvöldvaka við varðeld. Sunnudagur 19. júní: Gönguferð um Hallormsstaðaskóg undir leiðsögn fróðra manna. Kl. 13: Ávarp í tilefni dagsins. Ráðstefna um jafnréttismál. Framsaga og umræður. Ráðstefnuslit kl. 18. Alþýðubandalagsfélagar og stuðningsfólk, fjölmennið og tilkynnið þátttöku til formanna félaganna eða stjórnar kjördæmisráðs: Hermann sími 21397, Sveinborg sími 71418, Sigurjón sími 11375. Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins á Austurlandi Alþýðubandalagið í Reykjavík Sumarferðin 1988 Hin árlega sumarferð Alþýðubandalagsins í Reykjavík verður farin laugar- daginn 2. júlí Merktu við á almanakinu núna: 2. júlí. Óvenjuleg ferð um Mýrarnar, landnám Egils og í Hnappadalssýslu á sögu- slóðir séra Árna Þórarinssonar. Áningastaðir verða margir og hver öðrum áhugaverðari. Hver hefur t.d. komið í Straumfjörðinn? Eins og venjulega verður lögð áhersla á einvala leiðsögumenn og ódýra og skemmtilega ferð. Allar upplýsingar í síma 17500 - að Hverfisgötu 105. Alþýðubandalagið í Reykjavik Opnir fundur á Austurlandi Hjörleifur Guttormsson alþingismaður verður á opnum fundum á Austur- landi sem hér greinir: Á Bakkafíröi í félagsheimilinu sunnudagin 12. júní kl. 20.30. Á Vopnafirði í Austurborg mánudaginn 13. júní kl. 20.30. Á Egilsstöðum í Samkvæmispáfanum Fellabæ þriðjudaginn 14. júní kl. 20.30. Á Fáskrúðsfirði í Verkalýðshúsinu, miðvikudaginn 15. júní kl. 20.30. Á Borgarfirði eystra í Fjarðarborg fimmtudaginn 16. júní kl. 20.30. Á Eskifirði í Valhöll þriðjudaginn 21. júní kl. 20.30. Á fundunum verður rætt um heimamál, stöðu þjóðmálanna og störf Alþing- is. Allir velkomnir - Alþýðubandalagið Ertu með á Laugarvatn í sumar? Eins og undanfarin sumur efnir Alþýðubandalagið til orlofsdvalar á Laugar- vatni vikuna 18.-24. júlí. Mikil þátttaka hefur verið í þessari sumardvöl á Laugarvatni enda er þar gott að dvelja i glöðum hópi og margt um að vera. Rúm er fyrir um 80 manns. Umsjónarmenn í sumar, eins og síðastliðið sumar, verða þær Margrét Frímannsdóttir og Sigriður Þorsteinsdóttir. Rúnar matsveinn ásamt sam- starfsfólki sér um matseld að alkunnri snilld. Kostnaður fyrir vikuna er sem hér segir: Fyrir börn að 6 ára aldri kr. 2000,- Fyrir börn 6-11 ára kr. 8000,- Fyrir 12 ára og eldri kr. 12.000,- Innifalið í verðinu er fúllt fæði alla dagana; morgunverður, hádegisverður, síðdegiskaffi og kvöldverður, gisting í 2ja og 3ja manna herbergjum, barna- gæsla fyrir yngstu börnin, tvær ferðir í sund og gufubað, þátttaka í fræðslu- og skemmtistarfi og skipulögðum göngu- og útivistarferðum. iþróttasvæði, bátaleiga, hestaleiga, silungsveiði og fleira er við höndina í næsta nágrenni Héraðsskólans á Laugarvatni. Sumardvölin á Laugarvatni hefur reynst góð afslöppun fyrir alla fjölskyld- una, unga sem aldna, í áhyggjulausu og öruggu umhverfi, þar sem fólk hvílir sig á öllum húsverkum, en leggur alla áherslu á að skemmta sér saman í sumarfríi og samveru. Dragið ekki að festa ykkur vikudvöl á Laugarvatni í sumar. Komið eða hringið á skrifstofu Alþýðubandalagsins að Hverfisgötu 105. Síminn er 91-17500. Panta þarf fyrir 15. júní og greiða kr. 5000,- í staðfestingargjald fyrir 1. júlí. - Alþýðubandalagið. Ráðstefna um byggðamál Dalvík 10.-12. júní 1988 Alþýðubandalagið boðar til ráðstefnu um byggðamál á Dalvík 10. -12. júní n.k. Ráðstefnan hefst kl. 14.30 föstudaginn 10. júní og er áætlað að henni Ijúki síðdegis sunnudaginn 12. júní. Dagskrá: Föstudagur 10. júní Kl. 14.30 Framsöguerindi Umræður Kl. 19.00 Farið til Hríseyjar. Eyjan skoðuð og snæddur kvöldverður. Laugardagur 11. júní Kl. 09.00 Framsöguerindi Umræður Kl. 16.00 Skoðunarferð um Dalvík - söfn og fyrirtæki. Snætt á Grund í Svarfaðardal. Þátttakendum kenndur svarf- dælskur mars. Sunnudagur 12. júní Kl. 09.00 Sundskálaferð Kl. 10.30 Hópavinna - skil og umræður Eftirtaldir hópar starfa: I Stjórnkerfið og þjónusta II Atvinnumál og þjónusta III Menning og viðhorf IV SÍS og kaupfélögin. Ráðstefnunni lýkur síðdegis. Gisting verður í heimavist Dalvíkurskóla (Sumarhótel). Allar nánari upplýsingar veita Svanfríður Jónasdóttir í síma 96-61460 og Þóra Rósa Geirsdóttir í síma 96-61411. Þær taka einnig við þátttökutilkynn- ingum. Nánar auglýst sfðar Alþýðubandalagið Sumarferð ABR Merktu við á almanakinu núna strax! - 2. júlí Laugardaginn 2. júlí verður farin hin árlega sumarferð Alþýðubandalagsins Aðalviðkomustaðir: Borg á Mýrum/Brákarsund (sögusvið Egilssögu), Straumfjörður á Mýrum þar sem Pour-quoi-pas? fórst, Hítardalur. Félagar athugið, ferðin verður ódýr, það verður farið á staði sem þú hefur sjaldan eða aldrei séð og leiðsögumenn verða að sjálfsögðu með þeim •betri. Nánar auglýst síðar. Auglýsið í Þjóðviljanum ÖRFRÉTTTIR Kvennarannsóknir tuömnuiNN Tíminn 9 68 13 33 4? 68 18 66 ' 68 63 00 Nýverið hlutu sjö einstaklingar styrki til kvennarannsókna. Áhugahópur um kvennarann- sóknir tók að sér að úthluta fyrir hönd Háskóla íslands 1.250.000 kr. fjárveingu á fjárlögum til rannsókna í kvennafræðum. Styrk hlutu: Auður Eir Vil- hjálmsdóttir til rannsókna á kvennaguðfræði, Guðrún Jóns- dóttir til rannsókna á reynslu kvenna af sifjaspellum, Helga Sigurjónsdóttir tir rannsókna á Ftauðsokkum, Margrét Jónsdóttir til útgáfu á dagbókum verka- konu, Már Jónsson til rannsókna á faðerniseiðum á seinni öldum, Ragnhildur Vigfúsdóttir til rannsókna á íslenskum konum erlendis og Sigrún Stefánsdóttir til athugana á konum í fjölmiðl- um. Mannsins enn saknað Enn hefur víðtæk leit að mann- inum sem féll útbyrðis af gúmm- bát sl. laugardagskvöld á mílli Djúpavogs og Þvottáreyja engan árangur borið. Fjörur hafa verið gengnar, leitað hefurverið úrlofti og Hamarsfjörðurinn hefur verið slæddur. Maðurinn heitir Eysteinn Guð- jónsson, 39 ára, skólastjóri grunnskólans á Djúpavogi. Blaóburóur er ál BESTA TRIMMIÐ og borgar sigL £\\ BLAÐBERAR ÓSKAST Vantar blaðbera víðs vegar um bæinn Hafdu samband við okkur þJÓÐVIUINN Síðumúla 6 0 68 13 33 Styrkur til Hallgríms- rannsókna Margrét Eggertsdóttir hlaut ný- lega styrk úr Minningarsjóði dr. phil. Jóns Jóhannessonar próf- essors, til rannsókna á viðhorf um séra Hallgríms Péturssonar til dauðans eins og það birtist í sálmakveðskap hans. Þetta er athugunarefni í kandídatsritgerð Margrétar sem hún vinnur að um þessar mundir. Minningarsjóðurinn er í eign Háskóla Islands. Vaxtatekjum hans er varið til að veita stúdent- um eða kandídötum í íslensku og sagnfræði styrki til rannsóknaverkefna er tengjast námi þeirra. Afmælisrit Laugarnesskóla Út er komið rit í tilefni 50 ára afmælis Laugarnesskóla 1985. Fjölbreytt efni er í ritinu um sögu skólastarfsins og fjöldi mynda glæðir frásögnina lífi. Ritið kostar 300 krónur og er hægt að nálgast það á skrifstofu skólans. Prófessor í íslenskum fræðum í París Dr. Franqois-Xavier Dillmann hefur verið skipaður prófessor í fornnorrænum fræðum við Ecole des Hautes Etudes (Sciences Historiques et Philologiques) í París, en þetta er í fyrsta sinn sem staðan er veitt. Dillmann hefur fengist allnokkuð við rannsóknir í forn- norrænum fræðum og fjallaði doktorsritgerð hans um rúnir í forníslenskum bókmenntum. Sjúkrasamlag Reykjavíkur verðurlokaðfrá kl. 13.00e.h. föstudaginn 10. júní 1988 vegna útfarar fyrrverandi framkvæmda- stjóra Gunnars J. Möllers, hrl. Sjúkrasamlag Reykjavíkur Staða deildarbókavarðar í Listasafni íslands er laus til umsóknar. Um er að ræða 70% stöðugildi. Umsækjendur hafi háskólapróf í bókasafns- og upplýsingafræði og er áhugi á myndlist æskilegur. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og starfsferil skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu fyrir 6. júlí næstkomandi. Menntamálaráðuneytið, 6. júní 1988 Auglýsing um lög- tök fyrir fasteigna- og brunabóta- gjöldum í Reykjavík Að kröfu gjaldheimtustjórans f.h. Gjaldheimtunn- ar í Reykjavík og samkvæmt fógetaúrskurði, uppkveðnum 6. þ.m. verða lögtök látin fara fram til tryggingar ógreiddum fasteignasköttum og brunabótaiðgjöldum 1988. Lögtök til tryggingar framangreindum gjöldum, ásamt dráttarvöxtum og kostnaði, hefjast að 8 dögum liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar, verði þau eigi að fullu greidd innan þess tíma. Borgarfógetaembættið í Reykjavík, 6. júní 1988 Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og útför eigin- manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa Gunnars Vilhjálmssonar Álfheimum 42 Guð blessi ykkur öll. Guðveig Hinriksdóttir Gunnlaugur Gunnarsson Erna Gunnarsdóttir Guðný Gunnarsdóttir Vigdís Gunnarsdóttir Agnar Logi Axelsson Þorbjörg Einarsdóttir Kristinn Sigurðsson Jón Pálsson Ágústa Hallsdóttir

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.