Þjóðviljinn - 10.06.1988, Qupperneq 16
—iSPURNINGIN—
Hvernig á aö bregðast
við brotum á bráða-
birgðalögunum?
Helgi Jenssen
sérfræðingur:
Ég held að einasta ráðið sé að
koma rfkisstjórninni, sem setur
svo vond lög, frá.
Nils Gústavsson
verkfræðinemi:
Ég hef nú ekki spáð svo mikið í
þessi lög, en það eru eitthvað
skrýtin lög sem hægt er að brjóta
bara si svona, án þess að nokkuð
sé gert.
þJÓÐVILIINN
Föstudagur 10. júní 1988 130. tölublað 53. örgangur
SÍMI681333
Á KVÖLDIN
681348
Á LAUGARDÖGUM
681663
Ég er búinn að drekka hafsjó af kaffi og smakka á öllum mögulegum og ómögulegum kökum og nú vill ég fara aí) komast í loftið, gæti þessi
ábúðarfulli farþegi verið að segja.
Flugtafir
Allt flug úr skorðum
Hákon Guðbjartsson
verkfræðinemi:
Fara bara eftir lögunum og gera
þar af leiðandi ekki neitt, því að í
þeim er ekkert refsiákvæði. Það
þarf að breyta þessum lögum.
Tafir á öllum leiðum ígær. Farþegar taka töfum misvel
ó nokkrar tafir hafa verið á
öllu innanlandsflugi Flugleiða
undanfarna daga. Flugmenn hafa
farið sér hægt við vinnu og sett
allar áætlanir úr skorðum. I gær
voru vélar 10-40 mínútum á eftir
áætlun og voru farþegar mis-
hressir af þeim sökum.
Farþegi frá ísafirði sagði við
blaðamann að verst væri að far-
þegum væri alltaf sagt að töf yrði
á áætlun en ekki tilkynnt ná-
kvæmlega hver seinkunin yrði.
Einn starfsmanna orðaði það
þannig að flugmenn hefðu drukk-
ið of mikið kaffi út af áhyggjum
yfir of lágum launum. Það kæmi
út í ýmsum innri og ytri einkenn-
um.
-hmp
Ómar Magnússon
Það hlýtur að vera dómstólanna
að taka á þessum brotum eins og
þegar önnur lög eru brotin.
Sigurður Gíslason
Það verður að líta svo á held ég
að þessi bráðabrigðalög séu
meira tilmæli en venjuleg lög þar
sem vantar í þau öll refsiákvæði.
Annars finnst mér þessi lög hálf-
gerð ólög.
„Þeir mega fara sér eins hægt og þeim sýnist á jörðu niðri, bara að þeir hægi ekki á sér yfir hálendinu “,
sagði þessi léttlyndi Akureyringur lengst til vinstri á myndinni. „Það er ekki þetta stress á okkur fyrir norðan
eins og á ykkur fyrir sunnan, við höfum nægan tíma.“
V-Pýskaland
Kossastæði
Þær fréttir berast nú frá Munc-
hen að borgaryfirvöld þar ætli að
koma fyrir sérstökum bílastæð-
um við neðanjarðarbrautar-
stöðvar fyrir ökumenn sem sífellt
valda umferðaröngþveiti á anna-
tímum er þeir stöðva bíl sinn og
kyssa sína heitt elskuðu eða el-
skaða í kveðjuskyni.
Bílastæði þessi verða fyrst sett
upp til reynslu við Olympíuþorp-
ið fræga og verða merkt sérstak-
lega „Kysstu og keyrðu“ að sögn
yfirmanns umferðarmála í Munc-
hen.
Reuter/-gsv.