Þjóðviljinn - 10.06.1988, Blaðsíða 17
BYGGINGABLAÐ
Húsgagnaiðnaður
Erfið samkeppni við innfíutning
Viðtal við Kristbjörn Árnason formann Sveinafélags húsgagnasmiða
Húsgagna-og
innréttingaiðnaöur hefur átt
undir högg að sækja mörg
undanfarin ár vegna gífurlegs
innflutnings. Erlend húsgögn
hafa svo að segja f lætt inn í
landið. Frásíðustu áramótum
hafa verið flutt inn milli 700-
800 sófasett svo að dæmi sé
tekið. Þráttfyrirþessarað-
stæður iðngreinarinnar eru
ýmsar bjartar hliðar. í skrif-
stofuhúsgögnum ráða inn-
lendirframleiðenduralger-
legaríkjum, nokkurútflutning-
ur hefur átt sér stað og mikil
eftirspurn er eftir íslenskum
húsgagnasmiðum, bæði inn-
anlands og einnig meðal er-
lendra hönnuða. Til að fá frek-
ari upplýsingar um stöðu
greinarinnar sneri blaðið sér
til KristbjarnarÁrnasonar, en
hann er formaður Sveinafé-
lags húsgagnasmiða.
Hvað viltu segja um stöðu iðn-
greinarinnar í dag?
Það má segja, að undanfarin ár
hefur íslenskur húsgagna- og
innréttingaiðnaður misst stær-
stan hluta sk. heimilishúsgagna
s.s. borð, stóla, sófasett o.s.frv.
Kjarni vandamálsins liggur í því
að innflytjandi hér heima getur
farið á markað úti og keypt fáein
eintök af hverjum hlut, algerlega
áhættulaust, á meðan íslenskur
framleiðandi verður að framleiða
á lager eins og aðrir framleiðend-
ur. Viðskiptavinirnir vilja meira
að velja úr. Þannig standa fram-
leiðendur og innflytjendur ekki
jafnt að vígi. Framleiðandinn
þarf að fjárfesta í húsnæði og
tækjum á meðan innflytjandinn
tekur litla sem enga áhættu.
700-800 innflutt sófa-
sett frá áramótum
Frá áramótum hefur verið flutt
inn gífurlegt magn af sófasettum,
í kringum 700-800 sett. Þar kem-
ur tvennt til. Leðursófasettin eru
komin úr tísku og inn í landið
flæða sófasett frá Asíulöndum á
nánast engum tollum. Þar er
þrældómurinn hvað mestur,
vinnuaflið hvað ódýrast og kon-
um og börnum beitt fyrir vagn-
inn. Við getum aldrei staðið
undir samkeppni við slíkt.
Þess mætti einnig geta, að oft
eru innflytjendur að kaupa hluti á
einskonar útsölumörkuðum þ.e.
hluti á gömlum lagerum sem eru
hættir að seljast. Verð á þessum
hlutum getur oft farið niður fyrir
hráefnisverð.
Hvað með gœði þessara hús-
gagna?
Mikið af hinum innfluttu sófa-
settum er í lélegum gæðaflokki og
gildir þetta raunar um innflutt
húsgögn yfirleitt, þau reynast
dýrari þegar upp er staðið vegna
lélegra gæða. Umtalsverð
aukning hefur orðið á innflutn-
ingi innréttinga. Varðandi
innréttingar höfum við misst stór
verkefni í 439 íbúðir verkamann-
abústaðanna í Kópavogi og hjá
félagi eldri borgara í Reykjavík.
Inn í þetta spilar svo gengisskrán-
ingin í vetur, hvað hún hefur ver-
ið þessum iðnaði óhagstæð.
Niðurgreidd húsgögn
á Norðurlöndum sem
liður í byggðastefnu
stjórnvalda
Hvað viltu segja um niðurgreidd
húsgögn frá Norðurlöndum?
Stjórnmálamenn á Norður-
löndum hafa uppgötvað að hús-
gagnaiðnaður er hentug atvinnu-
grein fyrir hinar dreifðu byggðir.
Fyrir nokkrum árum þreifst hér
um land allt blómlegur húsgagna
og innréttingaiðnaður. Sérstak-
lega var þessi starfsemi blómleg á
Akureyri. Þessar niðurgreiðslur
á innfluttum húsgögnum hafa svo
að segja lagt húsgagnaiðnaðinn á
landsbyggðinni í rúst.
Eru þá engar bjartar hliðar?
Jú, vissulega eru margar bjart-
ar hliðar. Margar breytingar hafa
átt sér stað hvað varðar útlit og
gæði. Gæðakröfur til íslenskrar
húsgagnaframleiðslu eru miklu
hærri en til innflutningsins. Ýmis-
legt er í deiglunni hvað hönnun
varðar og hér veltur allt á al-
menningi. Hér er um að ræða
húsgögn og innréttingar sem byg-
gjast á gæðum og fallegu útliti.
Þessar vörur er byr j að að fly t j a út
úr landinu. í innanlandsmarkaði
erum við allsráðandi í sk. skrif-
stofulínum. Slík húsgögn þýðir
ekkert lengur að flytja inn.
Smekkur fólksins
Gríðarlegar breytingar í skóla-
kerfinu sl. 20 ár, meiri menntun,
víðsýni o.s.frv. hafa auðvitað
haft sín áhrif á smekkvísi almenn-
ings. Húsgögn eru að verða meiri
tískuvara. í húsgagnabransanum
er talað um að líftími tegundar sé
ekki nema 4 ár.
Hver er nýjasta tískulínan?
Engin ein lína er í gangi í dag.
Sk. Memphis-lína var áberandi á
síðasta ári og er afar áberandi í
verslunarinnréttingum frá þeim
tíma. Þetta eru máluð húsgögn,
nærbuxnalitir, pastellitir. Við
vorum óhressir með þessa stefnu,
húsgögnin endast illa og mér
finnst þessi stefna endurspegla
einhverja gerviveröld. Við leg-
gjum áherslu á hluti sem standast
kröfur hvað varðar stflbrögð,
áferðarfegurð, endingu og gæði.
Áhrif tœknibyltingar
á húsgagnaiðnaðinn
Húsgagnaiðnaðurinn er sú
grein sem hefur hvað fyrst ti-
leinkað sér tæknibreytingar, en
það þýðir stöðugt auknar kröfur
til starfsmanna. Þetta þýðir að
tölvubyltingin hlýtur að koma inn
smátt og smátt. Tölvustýring
verður sífellt ódýrari og tekur af
okkur verstu verkin. Tæknin ger-
ir meiri kröfur til fólksins og fólk
þarf meiri kunnáttu til að tileinka
sér hana rétt í þágu fram-
leiðslunnar.
Hvernig lýst þér á framtíð
greinarinnar?
Tiltölulega vel. Greinin hefur
aldrei verið víðfeðmari en nú, allt
frá listgrein yfir í hörðustu fjölda-
framleiðslu. Unga fólkið sækir í
handverkið og þangað sem flest
tækifærin bjóðast til að auka tekj-
urnar. Með aldrinum færa menn
sig inn á önnur svið þar sem
tekjuviðmiðunin er ekki einhlít.
Stærsta vandamálið í dag er
skortur á húsgagnasmiðum, sér-
staklega í stóru fjöldaframl-
eiðslufyritækjunum. Atvinnu-
ástand er mjög gott og framtíðin
björt í greininni. Við eigum mjög
vel menntaða húsgagnasmiði.
Sem dæmi má geta þess að dansk-
ir hönnuðir leita æ meira eftir ís-
lenskum húsgagnasmiðum og
bólstrurum. gjh
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17
Þakrennur
úr stáli oq plasti
PLASTHÚÐ M.LIT
GRUNNUR
GALVANHÚÐ
VALSAÐ STÁL
Er komið að því að setja þakrennur
á húsið eða endurnýja þær gömlu?
Pakrennur eru sænsk gæðavara
og annálaðar fyrir:
endingu (sjá mynd) • hversu auðveldar þær eru í
uppsetningu • fallegt útlit og fjölbreytt litaval
• ótrúlega hagstætt verð • sameina kosti stál- og
plastrenna en sneiða hjá göllum beggja.
BLIKKSMIÐJAN
112 REYKJAVÍK • PÓSTHÓLF 4066 • SÍMl 685699