Þjóðviljinn - 12.06.1988, Qupperneq 9

Þjóðviljinn - 12.06.1988, Qupperneq 9
Túristar í fótspor formannsins Dœmisaga frá Torgi hins himneska friðar um landvinningaferðamannaiðnaðarins Portið fyrir ofan Torg hins himneska friðar í Peking hefur verið opið ferðamönnum síðan í ársbyrjun ef marka má nýlegt hefti af China pictorial. Útsýnis- staðir yfir torgið sem þekkt er undir nafninu Tian Anmen gerast ekki betri, en hætt er við að ót- índum túristum hefði ekki verið sýndur slíkur sómi á velmektar- dögum Menningarbyltingarinnar með öllum sínum fjöldahreyfing- um og risastóru útifundum, en hinir tilkomumestu og fjölmenn- ustu voru gjarnan haldnir á þessu stærsta torgi í heimi. Vitaskuld nær saga þessa hjarta Pekingborgar aftur til gamalla tíma. Að baki byggingar þeirrar sem hér er í umræðu tók við Forboðna borgin sem svo er nefnd, aðsetur keisaraættanna frá gamalli tíð. Þeir sem séð hafa kvikmynd Bertoluccis, Síðasta keisarann, munu minnast staðar- ins sem gullins fangelsis Pu Yis þess sem endaði starfsferilinn sem garðyrkjumaður í þeirri sömu borg og hann hafði áður ríkt yfir sem keisari, en gerðist að vísu playboy, flagari og fyllibytta í Tianjin í millitíðinni. Og jpað var þarna sem Maó for- maður lýsti yfir stofnun Kínver- Nú er hún Snorrabúð stekkur: tæknivæddir túristar spóka sig nú þar sem Maó formaður lýsti yfir stofnun Kínverska alþýðulýð- veldisins haustið 1949. ska alþýðulýðveldisins 1. október árið 1949. Formaðurinn gengni kom líka fram af og til á þessum stað þegar mikið lá við. Þarna gengu Rauðu varðliðarnir hjá í endalausri fylkingu og hylltu Maó kallinn í þessari furðulegu fjöldahreyfingu sem var bæði kennd við menningu og byltingu og hvorttveggja titlatogið jafn- mikið út í hött. Þvert á móti væri nær að tala um vandalisma og borgarastyrjöld. Þarna voru einnig haldnir stórmiklir mót- mælafundir eins og til dæmis sá sem hér hefur verið festur á mynd og beindist gegn árásarstríði Bandaríkjamanna í Vietnam. Ártal 1965. En á Torgi hins himneska friðar hafa fleiri breytingar orðið en einungis sú að fámennara hef- ur verið þar um skeið, eins og ljósmyndin af túristunum ber með sér. Frá útsýnisstaðnum góða blasir drungalegur arkítekt- úr stalínstímans við nú sem áður: Höll alþýðunnar og Sögusafnið. En nýlegasta viðbótin er grafhýsi það sem hýsir líkamsleifar Maós formanns sem hér hefur verið nefndur til sögunnar. Út af fyrir sig áþreifanlegur vottur um að nýjir siðir hafi komið með nýjum herrum þarna fyrir austan. HS Niður með amerísku heimsvaldasinnana í Vietnam. Fjöldafundir á borð við þennan sem átti sér stað árið 1965 hafa ekki átt upp á pallborðið um sinn hjá nýjum valdhöfum í Peking. Ekki bara hundstungan: STEINBÍTURINN GRÆÐIR LÍKA Fiskslím grœðir sár bœði fljótt og vel Steinbíturinn gefur frá sér slím sem græðir sár bæði fljótt og vel, ef marka má niður- stöður vísindamanna frá Kú- væt og Bandaríkjunum sem rannsakað hafa lífríkið í Pers- aflóafrá ýmsum hliðumað undanförnu. Persaflóaogtil- tekta manna þar í kring er oft- lega getið í fréttum þessa dagana og sjaldnast að góðu, og því eru þessi tíðindi úr dýraríkinu á þessum slóðum kærkomin undantekning. Arabíski steinbíturinn lifir í söltu vatni og gefur frá sér kröftugt, þykkt slím. Slímið er þeirrar náttúru að það græðir sár á þremur dögum, en til þess arna útheimtast yfirleitt tíu dagar. Raunar eru þessi sannindi engan veginn ný; sjómenn á þessum slóðum hafa lengi notað slím steinbítsins sem náttúrumeðal. „Okkar“ eigin steinbítur gefur einnig frá sér sams konar slím, en talsverður hluti af því fer undir roðið en er ekki að hafa útvortis - ef nota má það orð um fisk - og fyrir bragðið er erfiðara að ná því. Nákvæm efnafræðigreinjng hefur leitt í ljós að í slíminu séu um 60 prótein sem hafa miklu hlutverki að gegna við að græða sár á mönnum og dýrum. Til dæmis eykur eitt þessara próteina virkni prostaglandína, en það eru Steinbíturinn gefur frá sér slím sem flýtir mjög fyrir því að sár grói, og gildir þetta öðrum steinbítum fremur um ar- abíska saltvatnssteinbítinn. Efna- rannsóknir sýna að um 60 efni sé að finna í slíminu. efni sem bregðast við bólgum. Önnur efni halda aftur af fjölgun baktería. Að auki er í steinbítsslíminu mikið af mólekúlum sem valda storknun í blóði, og ensím sem flýta fyrir frumuskiptingu og þar með myndun nýs vefs. Það er svo fyrir samvirkni efn- anna sextíu að sár gróa bæði fljótt og vel, þar sem þau gríþa inn í þá atburðarás á öllum stigum. Vísindamennirnir eru á því að með steinbítnum hafi þessi eigin- leiki að láta sár gróa hratt þróast sem varnarandsvar gegn óvinum, en þeir eru fljótir að renna í slóð særðs og blóðugs fisks. Þá þekur slímið sárið eins og hvert annað verndandi lag, og því stafar fisk- inum ekki hætta af menguðu vatni. Vísindamennirnir bræða nú með sér hvort ekki megi nýta slím steinbítsins til að flýta fyrir að sár grói, og hafa þá sérstaklega í huga sjúklinga með sár sem gróa seint, s.s. sykursjúka og fólk með legusár. Að vonum eru ýmis lyfjafyrir- tæki í viðbragðsstöðu vegna þess arna, og bíða menn spenntir fregna af því hvort einhvers kon- ar „ofurgræðismyrsl" sé á leiðinni. Samsetning slímsins er þó afar margbrotin, og fyrir bragðið er hreint ekki víst að það sé hægt að vinna undir formerkj- um efnafræðinnar. HS/Illustreret videnskab LADA1200 „ódýrasti fjölskyldubíllinn “ Lada 1200 ersá ódýrastií Lada fjölskyldunni og hann erjafn- framt fyrirrennari allra Lada bíla. Hann hefur sýnt ótvíræða kosti sínahérálandisemsterkur, traustur, ódýr írekstri og ekki síst fyrirsparneytni. Ekki skemmir endursöiuverðið en það hefurfrá upphafi verið það besta. Festiö bílakaup strax, forðist hækkanir Opið virka daga frá kl. 9-18 og laugardaga frá kl. 10-16. Beinn símisöludeildar31236. BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR SUÐURLANDSBRAUT14-SÍMI681200. KR. 193.000

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.