Þjóðviljinn - 12.06.1988, Side 15
Felumynd. í myndinni eru faldar þessar tölur; 5, 8,12,15 og 20.
Reyndu að finna þœr og litaðu þœr t.d. rauðar og svo getur þú
litað alla myndina.
Z.
|V7i
V „ '
y
z' >.
V V
Vindmylla
Á 17. júní gerum við okkur
dagamun, förum út og hittum fólk
og þá kaupum við okkur oft ýmis-
legt dót okkur til skemmtunar t.d.
fána, blöðrur og vindmyllur. En
það er líka hœgt að búa sér til sitt
eigið dót og ég œtla hér að sýna
ykkur hvernig þið getið búið til
vindmyllu.
Það sem til þarf er;
tvílitt blað (litað báðum megin)
spýtu, nagla (með stórum haus),
lím, tölu og hamar.
Ath. pappírinn þarf að vera svolítið
stífur.
1. Brjótið blaðið eins og sýnt er.
2. Klippið í brotin, hálfa leið inn
að miðju.
3. Nú sveigið þið pappírinn (4
horn) eins og sýnt er á mynd-
inni. Gott er að líma hornin
niður á miðjunni.
4. Þá er bara aðfesta vindmylluna
á spýtuna með nagla. Talan er
ekki nauðsynleg heldur fyrst og
fremst til skrauts. Passið að
negla ekki of fast svo að vind-
myllan geti snúist.
Ég er lítill fiskur í sjó
og mér líkar það nú nóg.
Þeir veiddu mömmu mína
og seldu hana til Kína.
Hér sit ég niðurbrotinn fiskur
og á brœður sem segja bara diskur,
og á pabba sem veiðir allan daginn,
og auðvitað stœkkar og stœkkar mag-
Aðalheiður 8 ára
Hvað heitir blómið?
Þekkir þú blómið á myndinni? Ef ekki, þá
getur þú litað það eftir lýsingunni og ef þú
vilt vera viss þá reynir þú eins og áður að
raða stöfunum rétt, þá fcerðu nafnið.
Blómið er körfublóm og karfan ertvílit. í miðj-
unni er hún gul en blöð körfunnar eru hvít.
Laufblöð blómsins eru grœn og mjög lítil og
fíngerð. Blómið vex aðallega í túnum ná-
lcegt mannabyggð og við vegi.
Blómið heitir,
RABLUDÁSRB.
Sunnudagur 12. júnf 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15