Þjóðviljinn - 07.07.1988, Síða 2
Kvikmyndasjóður
Umbi
fær 10
miljónir
Ágúst Guðmundsson
notar ekki styrkinn í ár.
Fénu veitt til töku
Kristnihalds undir Jökli
Kvikmyndasjóður Islands hef-
ur úthiutað kvikmyndafélaginu
Umba 10 miljónum, til fram-
leiðslu á myndinni Kristnihald
undir Jökli.
Að sögn framkvæmdastjóra
sjóðsins, er um að ræða endur-
úthlutun á styrki, sem Ágúst
Guðmundsson fékk til að gera
myndina Hamarinn og Krossinn,
en Ágúst er hættur við að fram-
leiða hana á þessu ári.
Áætlaður kostnaður við gerð
Kristnihalds undir Jökli er um 40
miljónir og var þýsk sjónvarps-
stöð búin að leggja fram fjórðung
af því, sem fyrirfram kaup á
myndinni. - Við erum alveg alsæl
yfir að fá þetta fé frá Kvikmynda-
sjóði, sem þýðir að ekki þarf að
taka eins mikil bankalán og til
stóð, sagði Guðný Halldórsdóttir
leikstjóri myndarinnar.
Áætlað er að hefja tökur í Búð-
ahrauni á Snæfellsnesi um 17.
þessa mánaðar og hefur þar verið
reist stór sviðsmynd. Innitökur
verða síðan aðalega teknar í Mos-
fellsbæ.
mj
Póstur og sími
Gjaldskrár
hækka
um 15%
Samþykkt hefur verið 15%
hækkun á gjaldskrá Pósts og síma
sem taka á gildi um miðjan mán-
uðinn.
Ríkisstjórnin veitti heimild
sína á síðasta ríkisstjórnarfundi
um 15% meðalhækkun en for-
ráðamenn Pósts og síma fóru
fram á um 24% meðalhækkun.
Nú er unnið að nánari útfærslu
á hækkuninni sjálfri, það er hvað
hækkar og hve mikið í krónum
talið, hjá hagdeild Pósts og síma
og er að vænta að því verki verði
lokið seinnipartinn í dag.
-tt
FRETTIR
Erlendir ferðamenn
Umtalsverð fækkun
Finnst maturinn óheyrilega dýr. Um 500fœrri erlendirferðamenn
samanborið við júní 1987. Mest fækkun Bandaríkjamanna
í júní komu 18.431 útlendingar
til landsins og er það um 500 færri
en á sama tíma í fyrra. Fækkun er
frá flestum þjóðum og mest fækk-
ar komu Bandaríkjamanna, sem
eru rúmlega 1.300 færri í ár.
Fólk sem talað var við í ferð-
amannaþjónustunni taldi miklar
verðhækkanir innanlands að
undanförnu eiga stóran þátt í
þessari fækkun. Sérstaklega þætti
útlendingum verð á mat óheyri-
lega hátt á íslandi.
í þeim löndum sem við fáum
flesta ferðamenn frá er ekki
nema 3-5% verðbólga, en hér
gera spár ráð fyrir að verðbólgan
hækki um 28% milli áranna 1987
og 1988. Gengisfellingar á vor-
mánuðum vega þarna eitthvað á
móti, en dugir ekki til að mati
þeirra er talað var við.
Kjartan Lárusson, hjá Ferða-
skrifstofu ríkisins taldi full-
snemmt að örvænta um sumarið.
Samkvæmt bókunum hjá þeim
væri von um gott meðalár hvað
varðaði fjölda ferðamanna. Hins
vegar hefði hann áhyggjur af
stöðu gengismála, sem gæti þýtt
tap hjá ferðaskrifstofum jafnvel í
toppári.
Ferðaskrifstofurnar eru
bundnar af því verði sem gefið er
upp í erlendri mynt að hausti og
verða því að taka á sig tap, ef
hækkun gjaldeyris verður minni
en innlends kostnaðar.
Njáll Símonarson hjá Úlfari
Jakobsen sagði að ekki væri laust
við að stefndi í fækkun ferða-
manna í sumar og virtist það eiga
við hjá flestum ferðaskrifstofum.
- Dýrtíðin er að drepa okkur,
sagði Njáll og tók sem dæmi að
mun dýrara væri fyrir Evrópubúa
að koma til íslands, en fara í lang-
ferð til landa Asíu. mj
Handleggsbrotsdómur
Hver er réttur
borgaranna?
Lögreglumaður dœmdur til að greiða 20.000 kr.
sektfyrir handleggsbrot af gáleysi. Handtaka og
fangelsun ekki talin að nauðsynjalausu. Lögmað-
urSveins: Fráleitt annað en málið verði rekið
lengra. Spurning um réttindi borgaranna
Listaverk Ásmundar Sveinssonar eru fyrir alla aldurshópa. í það
minnsta kunnu börnin úr Arseli í Árbæjarhverfi vel að meta tröllkerl-
ingar og karla Ásmundar þegar þau komu í heimsókn í listasafnið í
gær. Mynd - Sig.
- Fljótt á litið virðist mér ekki
lagður mikill þungi á ábyrgð lög-
reglumanna í starfi og þau rétt-
indi sem hver borgari á. Það er
dálítið sérkennilegt, að á það sé
fallist að taka mann, sem ekkert
hefur til saka unnið og loka hann
inni, sagði Jón Magnússon lög-
maður Sveins Jónassonar, frá
Eskifirði, um dóm Sakadóms
Reykjavíkur í svonefndu hand-
leggsbrotsmáli.
Lögreglumaðurinn sem hand-
leggsbraut Svein í fangageymsl-
um lögreglunnar, var dæmdur til
að greiða 20.000 kr. fyrir h'k-
amsmeiðingar af gáleysi, auk
hluta málskostnaðar. Hann var
sýknaður af þeirri ákæru, að hafa
að nauðsynjalausu handtekið
Svein á dvalarstað hans, eftir að
sonur umrædds lögreglumanns
kærði Svein fyrir meintar skemm-
dir á bíl sínum.
Varðstjóri á vakt var einnig
sýknaður, en hann var ákærður
fyrir að hafa að nauðsynjalausu
vistað Svein í fangaklefum lög-
reglunnar.
- Ég tel fráleitt annað en þetta
mál verði rekið lengra, því hér er
um prinsipmál að ræða. Þó menn
vilji ekki endilega hefndarað-
gerðir gagnvart þessum lögreglu-
mönnum, þá er þetta spurning
um hvaða réttindi borgararnir
hafa, sagði Jón Magnússon.
Hann tók fram að hann væri ekki
búinn að lesa dóminn, en áliti
þetta út frá fréttum fjölmiðla af
úrskurði Sakadóms.
_______________________mj
Lögreglufélag
Reykjavíkur
Akranes
Launalaus í 3 mánuði
Akraprjónfær ekki ábyrgðir hjá Landsbanka. Á10 milljónir útistandandi.
Starfsfólk í sjálfheldu. Sumarfrí án launa og orlofs
Saumastofan Akraprjón á
Akranesi hefur ekki getað
greitt starfsfólki laun frá því í
mars og skuldar fólkinu um 3
milljónir. Starfsfólkið hefur hins
vegar fengið greiddar atvinnu-
leysisbætur fyrir þá daga sem það
er heima vegna verkefnaskorts.
Allt bendir til að starfsfólk verði
sent í sumarfrí án þess að fá gert
Herinn
Útivist takmörkuð
Yfirmaður bandaríska hersins
á Keflavíkurflugvclli hefur
ákveðið að banna ungum ógiftum
hermönnum að fara út af her-
svæðinu eftir miðnætti.
Pessi tilskipun kemur í kjölfar
viðræðna lögregluyfirvalda á
Suðurnesjum og hersins vegna
fjölda kærumála síðustu vikur og
mánuði á hendur hermönnum
vegna nauðgana og slagsmála.
Útivistarbannið stöðvar að-
sókn hermanna á skemmtistaði
en hingað til hafa þeir átt útgang
af hersvæðinu í næturlífið á
Suðurnesjum og í Reykjavík.
upp laun eða orlof. Frá þessu er
skýrt í nýjasta tölublaði Skaga-
blaðsins.
Starfsfólkið er í mjög erfiðri
stöðu en meirihluti þess eru kon-
ur. Tugir kvenna hafa verið
atvinnulausar á Akranesi og út-
litið því ekki bjart fyrir starfskon-
ur Akraprjóns missi þær vinn-
una. Skagablaðið hefur eftir Sig-
rúnu Sigmundsdóttur trúnaðar-
manni að mikil óánægja og óvissa
ríki á meðal starfsfólks en „flestar
okkar eiga ekki völ á annarri
vinnu,“ sagði Sigrún.
Frá aprfllokum hefur einungis
verið unnið tvo daga í viku en
fyrir þá hafa ekki verið greidd
nein laun. Starfsfólkið hefur því
þurft að láta sér nægja atvinnu-
leysisbætur fyrir þrjá daga í viku.
Skagablaðið hefur eftir Rúnari
Péturssyni framkvæmdastjóra
Akraprjóns að fyrirtækið eigi úti-
standandi 10 milljónir hjá út-
flutningsaðilum. Um sé að ræða
víxla sem að hluta til hafi verið
seldir en lent í vanskilum. Lands-
bankinn væri því ekki tilbúinn til
að kaupa fleiri víxla af fyrirtæk-
inu nema það útvegi betri
ábyrgðir.
Akraprjón hefur lagt inn
beiðni hjá atvinnuþróunarsjóði
Akraness þess efnis að sjóðurinn
útvegi ábyrgðir. Atvinnuþróun-
arsjóður hélt fund í gærkvöldi en
ekki var vitað hvort beiðni Akr-
aprjóns fékk þar afgreiðslu þegar
Þjóðviljinn fór í prentun í gær.
-hmp
Fjölmiðlar
ýkt og
logið
Staðreyndir um atburð-
arás í handleggsbrots-
málinu að lesa í dóms-
skjölum
í kjölfar dóms í máli tveggja
lögreglumanna, sem ákærðir
voru vegna handtöku og hand-
leggsbrots Sveins Jónassonar,
sendi Lögreglufélag Reykjavíkur
harða ádrepu til fjölmiðla. Sagt
er, að það sem haft hafi verið
fyrir almenningi í landinu sem
heilagur sannleikur í þessu máli,
sé ekki annað en runa af rang-
færslum, ýkjum og lygum.
- Þessi þvættingur hefur síðan
verið brúkaður sem tilefni til að
úthrópa þá menn sem átt hafa
hlut að máli og síðan til að rakka
niður lögreglustéttina og stimpla
hana sem safn hrottamenna sem
ljúgi til að vernda hver annan.
I bréfi lögreglufélagsins segir
að niðurstaða dómsins segi það
eitt að skilgreina þurfi að nýju
ábyrgðarþátt lögreglu. Hins veg-
ar bendi ekkert til óeðlilegs harð-
ræðis.
Lögreglumanninum sem
dæmdur var fyrir líkamsmeiðing-
ar af gáleysi var vikið úr starfi
vegna ákærunnar og einnig syni
hans, sem fyrir engum sökum var
hafður.
Er þess vænst að menn skyggn-
ist eftir staðreyndum málsins í
dómsskjölum og að í íslenskri
blaðamannastétt finnist menn er
fáist til að gera almenningi grein
fyrir því er sannara reynist.
mj
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 7. júlí 1988