Þjóðviljinn - 22.07.1988, Page 12
Starf
forstöðumanns og safnvarðar við Minjasafnið á
Akureyri er laust.
Háskólapróf í þjóðháttafræðum eða öðrum grein-
um, sem tengjast minjavörslu og safnstörfum er
áskilið. Umsóknir er greini aldur, menntun, fyrri
störf og launakröfu, sendist stjórn Minjasafnsins,
merkt:
Minjasafnið á Akureyri, v/starfsumsókn,
Aðalstræti 58, 600 Akureyri, fyrir 15. ágúst
næstkomandi.
Stjórn
Minjasafnsins á Akureyri
Söluskattur
Viðurlög falla á söluskatt fyrir júní-mánuð 1988,
hafi hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 25. júlí
þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir
hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau
eru orðin 20%, en síðan reiknast dráttarvextir til
viðbótar fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og
með 16. ágúst.
Fjármálaráðuneytið
ALÞÝÐUBANDALAGIB
Styrktarmannakerfi Alþýðubandalagsins
Eyðublöö vegna styrktarmannakerfis Alþýðubandalagsins hafa verið send
út til flokksmanna.
Eru aliir hvattir til að taka þátt í styrktarmannakerfinu og koma útfylltum
eyðublöðum til aðalskrifstofu.
Góð þátttaka er grundvöllur öflugs starfs. Verum minnug hins fornkveðna
að margt smátt gerir eitt stórt. Gjaldkeri
Sumarferð ABR
Ósóttir vinningar
í happdrætti sumarferðar ABR 1988
1. Manuel Scoraza: Rancas þorp á heljarþröm, Ingibjörg Haraldsdóttir
þýddi. Frá Iðunni. Miði nr. 262. 2. Dea Trier Mörch, Miðbærinn, skáldaga
Iðunn. Miðar nr. 504, nr. 5. 3. Samferða um söguna, Bengt Áake Haeger
MM. Miði nr. 83. 4. Faulkner, Griðastaður, Miði nr. 895. 5. Barsett, upp-
takar, hnetubrjótur o.s.frv. Miðinr. 904.6. Grænmetiskvörn frá KRON. Miði
nr. 295. 7. Hljómplata KRON. Miði nr. 18. 8. Hljómplata, Almannarómur
MFA. Miðinr. 780.9. Nafnabókin eftir Hermann Pálsson MM. Miðinr. 850.
10. Útigrill frá Dröfn Hafnarfirði. Miðinr. 223.11. Hrakfallabálkurinn, viðtöl
við Jakob Plum kaupmann í Ólafsvík. Einar Bragi skráði, Iðunn. Miði nr.
691. 12. Heimsmynd á hverfanda hveli 1. og 2. bindi eftir Þorstein Vil-
hjálmsson MM. Miði nr. 554.13. Birgir Engilberts, Andvökuskýrslur Iðunn.
Miði nr. 685.14. Maðurinn sem féll til jarðar eftir Walter Travis Iðunn. Miði
nr. 684.15. Börn eru líka fólk eftir Valdísi Óskarsdóttur MM. Miði nr. 500.16.
Sængurfatasett fyrir tvo frá KRON. Miðinr. 947.17. Hljómplata frá KRON.
Miðinr. 117.18. Hljómplata frá MFA, Maíkórinn. Miðinr. 303.19. Leikvöll-
urinn okkar, bók fyrir börn. Miði nr. 108.20. Tvær náttuglur eða öllu heldur
þrjár, MM. Miði nr. 519. 21. Skáldið á Þröm, MM. Miði nr. 896.
Vinninga er hægt að vitja á skrifstofu ABR til 1. ágúst 1988. Skrifstofan er
opin daglega frá kl. 8.-12.
Alþýðubandalagið Vesturlandi
Sumarferð
um A-Skaftafellssýslu
Sumarferð Alþýðubandalagsins á Vesturlandi verður farin um verslunarm-
annahelgina, 30. júlí-1. ágúst. Farið verður til Hornafjarðar á laugardaginn.
Ferðast um nærsveitir á sunnudag.
Gíst verður 2 nætur I Nesjaskóla og er val um svefnpokapláss eða 2ja
manna herbergi.
Frekari upplýsingar gefa:
Dalir - Sigurjóna s: 41175.
Stykkishólmur - Þórunn s: 81421
Grundarfjörður - Matthildur s: 86715
Ólafsvík - Herbert s: 61331
Hellissandur - Skúli s: 66619
Borgarnes - Sigurður s: 71122
Akranes - Guðbjörg s: 12251
Munið eftir sundfötum, klæðnaði fyrir smágöngur og að hafa með nesti.
Þetta er fjölskylduferð eins og áður. Gerum hana fjölmenna.
Kjördæmlsróð
ÆSKULÝÐSFYLKINGIN
Framkvæmdaráðsfundur
Fundur í framkvæmdarári ÆFAB verður haldinn sunnudaginn 24.
júlí|kl. 17.00 að Hverfisgötu 105, Reykjavík.
Nauðsynlegt að allir mæti.
Kaffi og kökur. Nefndin
ERLENDAR FRÉTTIR
Kinnock að kynnast kjósendum. Aukakosningarnar í Kensington glæða vonir hans um að ná sér næst niðrá
íhaldinu með tilstyrk fyrri kjósenda miðjubandalagsins.
v Bretland
Sigur í ósigrinum
Aukakosningarstyrkja Verkamannaflokkinn eftir daprarstundir.
Forystumenn Verkamanna-
flokksins breska hafa undanfarið
mæðst í mörgu, en tóku hluta
gleði sinnar á ný eftir aukakosn-
ingar í síðustu viku í Kensington í
vesturhluta London. Flokkurinn
tapaði að vísu í aukakosningun-
um, - hinum fyrstu á árinu-, en
miklu naumar en þá.
Það gleður einnig Verka-
mannaflokksmenn að miðjuöfl-
in, sem nú hafa klofnað, fengu
hraklega útreið, og bendir margt
til að Verkamannaflokkurinn
geti átt þar talsvert í atkvæðaseli
þegar næst þarf að taka á honum
stóra sínum. Það væri þá eins gott
fyrir flokkinn, sem nú býr við
Thatcher-stjóm á tíunda árinu,
og má varla við enn einum ósigr-
inum. Raunar getur Margrét að
ýmsu leyti þakkað gengi sitt fyrri
styrk miðjubandalags SDP og
frjálslyndra; vegna klofinnar
andstöðu og einmenningskerfis-
ins hefur hún náð góðum þing-
meirihluta útá minnihluta at-
kvæða.
Kosið var í Kensington vegna
andláts þingmanns úr íhalds-
Miðöflin í rústum
flokknum, sem í fyrrasumar hafði
haft um 4500 atkvæði frammyfir
Verkamannaflokksframbjóð-
andann. Kjördæmið er á vissan
hátt þverskurður af Bretlandi
Thatchers, - stórhýsi ríkismanna
í suðurhlutanum, verkamanna-
hverfi í norðurhlutanum með háu
hlutfalli innflytjenda. Nú fóru
leikar þannig að íhaldsflokks-
maðurinn Fishburn, fyrrverandi
ritstjóri Economist, fékk um
9800 atkvæði, Ann Holmes frá
Verkamannaflokknum um 9000,
frambjóðandi hins nýja „samein-
aða“ miðjuflokks SLD um 2500,
og 1500 fóru á mann þeirra sem
ekki vildu sameinast og urðu eftir
í SPD.
Þetta þykir sumsé mjög í hag
Kinnock og félögum, en til þess
er þó tekið að Anna þessi sé
einkar vænn frambjóðandi, bros-
mild og að alþýðu skapi.
Síðustu mánuðir hafa verið
Verkamannaflokknum erfiðir,
að minnsta kosti í fjölmiðlum,
sem gera sér mikinn mat úr sókn-
artilraun Tonys Benns og hluta
vinstriarmsins í flokknum gegn
Kinnock í formannskjöri í haust,
og ekki hefur umsnúningur og
viðsnúningur Kinnocks í kjarn-
orkuhermálum aukið traust á
staðfestu flokksins.
Kensington-kjörið er flokkn-
um því kærkomið, og ekki þótti
síðra, að um svipað leyti birti Gu-
ardian skoðanakönnun þarsem
forskot íhaldsflokksins á Verka-
mannaflokkinn er komið niðrí
tvö prósent. Reyndar settu illar
tungur þennan árangur flokksins
í beint orsakasamhengi við að
Kinnock var þá víðs fjarri á ferð
um Afríkulönd.
Kreppa Verkamannaflokksins
sést vel á því að tveimur prósent-
um minna en íhaldið þyki þokka-
legt, en teikn um batnandi stöðu
flokksins eftir undanfarna erfið-
leikatíma kunna að merkja að
hann standi betur að vígi en hald-
ið hefur verið við þann kappleik
hrægammanna sem framundan
er talinn í breskri pólitík, - bar-
áttuna um miðjufylgið sem sýnist
ætla að snúa endanlega baki við
ótrúverðugum og þverklofnum
foringjum SPD og frjálslyndra.
- m/infó
Bandaríkin
Skrítnir samherjar
Þeir Dukakis og Bentsen virðasteigafáttsameiginlegt, en kannski veit
það á gott í bandarískum kosningum
eir Michael Dukakis og Lloyd
Bentsen virðast ekki eiga ýkja
margt sameiginlegt ef marka má
nýtt tölublað af tímaritinu Time,
nema kannski það að vera báðir
hvítir kariar í pólitík demókrata-
megin. Á flokksþinginu í Atlanta
er þó vonast tii að þessir skrítnu
samherjar verði flokknum úti um
langþráðan kosningasigur, - og
spillir ekki fyrír að heimaríkin
eru þau sömu, - Massachusetts og
Texas - og þegar þeir Kennedy og
Johnson unnu þáverandi varafor-
seta fyrir 28 árum.
Norðurríkjamaðurinn Dukakis
er 1,73 sm á hæð, en Suðurríkja-
búinn Bentsen 1,88 sm. Dukakis
telst varla bónbjargamaður og er
skrifaður fyrir hálfri milljón dala
(um 23 milljónir fslenskar), en
Bentsen er fjórum sinnum fjáðari
(talinn eiga tvær milljónir dala -
rúmlega 90 millur íslenskar).
Dukakis býr í tiltölulega hófstilltu
tvíbýlishúsi í Massachusetts, en
Bentsen á heilan búgarð í Texas
auk glæsilegrar blokkaríbúðar í
Houston og sjö herbergja einbýl-
ishúss í Washington. Dukakis
keyrir um á Dodge Aries ‘83,
Bentsen á Lincoln Continental
‘88. Dukakis segist slappa af við
lestur og skokk, Bentsen leikur
tennis, veiðir kornhænur og spil-
ar rommí.
Þetta þykir þónokkuð, en bilið
virðist fyrst gleikka verulega milli
þeirra félaga þegar kemur að
málefnum. Dukakis er á móti að-
stoð við kontraliða, Bentsen
með. Dukakis var á móti skatta-
stefnu Reagans ‘81, Bentsen
með. Dukakis var á móti MX-
flaugum og B-1 sprengiflugvél,
Bentsen með. Dukakis er á móti
dauðarefsingum, Bentsen með.
Dukakis er með hertum byssur-
eglum og frjálsum fóstureyðing-
um, Bentsen á móti. Dukakis er á
móti lögskipaðri bæn í skólum,
skatti á innflutta olíu, stjórnust-
ríðsáætlunum Reagans, Bentsen
með.
Þetta virðist þó ekki gera neitt
til í augum demókrata, enda til
þess tekið að áherslur eru enn
síður lagðar á málefni en áður, og
þeir Dukakis og Bentsen geta
vissulega brosað hvor í sína átt-
ina.
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 22. júlí 1988