Þjóðviljinn - 22.07.1988, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 22.07.1988, Blaðsíða 14
4*tt*tit**t*****» VI.*,# #,##.#.## #.# # # * # # # „Þaö er alveg Ijóst og er að koma í Ijós núna eftir þetta langa samstarf Framsóknarf lokks og Sjálfstæðisflokks, að flokkarnir eru mjög ólíkir að eðli og upp- byggingu." Þessi orð lét Jóhann- es Geir Sigurgeirsson varaþing- maður Framsóknarflokksins í Norðurlandskjördæmi eystra, falla í Degi fyrir nokkru. Það er engu líkara en Jóhannes sé steinhissa á þessari uppgötvun. Það þurfti langtsamstarf til þess að hann áttaði sig á muninum, sem á þessum flokkum er eða- e.t.v. myndieinhverótuktsegja: var. Ekki er mér alveg Ijóst hvað Jóhannes á við með orðinu „upp- bygging". Ef hann á við skipu- lagið þá hygg ég að það sé ekki óáþekkt hjá íslenskum stjórnmálaflokkum yfirleitt. Ég held að Framsóknarflokkurinn sé í litlu eða engu frábrugðinn öðr- um flokkum hvað það snertir. Það út af fyrir sig, greinir stjórnmálaflokkana naumast aö. En hvað þá um þetta ólíka eðli sem Jóhannes telur sig hafa komist á snoðir um, eftir langa mæðu? Til þess að átta sig á því getur verið gott að líta ofurlítið um öxl. Fram um miðjan annan ára- tug þessarar aldar var flokka- skipan hérlendis nokkuð á reiki. Sjálfstæðisbaráttan var mál mál- anna eins og jafnan hjá þeim þjóðum, sem ekki njóta óskoraðs stjórnfrelsis. Menn deildu ekki um lokamarkið en skiptust í flokka eftir því hversu harðar kröfurþeirvildu gera á hendur Dönum og hversu hratt þeir vildu sækja að endanlegu marki. En þegar hilla tók undir lok frelsisbaráttunnarvarekki lengur grundvöllurfyrirflokkaskipan af þessu tagi. Nú reið á að taka til hendinni inn á við og menn hlutu að skipa sér í flokka eftir afstöðu- nni til innanlandsmála. Sú þróun hlaut hinsvegar að taka sinn tíma. Fyrst komst Framsóknarf- lokkurinn á laggirnar, raunarsem þingflokkurtil að byrja með. Síð- an Alþýðuflokkurinn og átti Jónas frá Hriflu drýgstan þátt í stofnun þessaraflokkabeggja. Þannig höfðu þeir sem oft hafa verið nefndir „vinstri“menn, öðlast pólitískt athvarf. Auðvitað hlutu önnurstjórnmálasamtök að myndast andspænis þessum flokkum. Eftirnokkrartilraunir með Sparnaðarbandalag og Borgaraflokk (það heiti var nefni- lega til fyrir daga Alberts og co.), var íhaldsflokkurinn myndaður. Innan um þetta voru svo á sveimi stjórnmálasamtök, sem nefndu sig Frjálslyndaflokkinn, einskon- areftirhreyturfrá sjálfstæðisbar- áttunni. Þessi og frekari upprifjun geturverið nauðsynleg fyrirokk- ur Jóhannes Geirtil þess að átta okkur á eðli stjórnmálaflokka. - mhg. ídag er 22. júlí, föstudagur í fjórtándu viku sumars. Aukanætur, þriðja af fjórum milli sólmánaðarog heyanna. 204. dagur ársins. Sól kemur upp í Reykjavík kl. 4.03 en sest kl. 23.03. T ungl hálft og vax- andi. Þjóðviljinn fyrir 50 árum Svíkur ríkisstjórnin loforðin um Síbiríuvinnuna? Vinna hefst um helgina við byggingu skíða- brautar. Engirpeningartil þess að hefja vinnu í Síbiríu? Hvarætl- ar bærinn og ríkið að taka 50- 100 þúsund kr. til að greiða fyrir hið konunglega svall sem nú stendurfyrirdyrum? Flogið á 1 kl. 45 mín. milli R.vík- ur og Akureyrar. Agnar Kofoed- Hansen f laug í gær á flugvélinni T.F. ÖRN frá Akureyri til Reykja- víkurá 1 klst. 45 mínútum- UM ÚTVARP & SJONVARP l Skrúður Óperu- tónlist Rás 1 kl. 17.03. Þrjú af frægustu óperutón- skáldum allra tíma, Rossini, Puccini og Verdi, gera hlustend- um Ríkisútvarpsins heimsókn kl. 17.03 í dag. Það sem við fáum að heyra er: a) Forleikur óperunnar „Þjóf- ótti skjórinn“ eftir Rossini. b) „Nacqui all affanno" eftir Ross- ini. Frederica von Stade syngur með Fílharmoníuhljómsveitinni í Rotterdam. c) „Un bel di ved- remo“ úr óperunni Madame Butterfly eftir Puccini. Montserrat Caballé syngur með Sinfóníuhljómsveit Lundúna. d) „Coro a bocca chiusa“ úr óper- unni Madame Butterfly, eftir. Puccini. Kór og hljómsveit Ríkis- leikhússins í Stuttgart syngja og leika. e) Nomakór og dans and- anna úr ópemnni Macbeth eftir Verdi. Ambrosian ópemkórinn syngur með hljómsveitinni Fíl- harmóníu. f) „Quale d’armi... Ah! si, ben mio... Di quella pira“, úr óperunni II trovatore eftir Verdi. Placido Domingo, Rosalind Plowright og Walther Gullina syngja með kór og hljóm- sveit „Accademia Nazionale di Santa Cecilia“. g) Forleikur úr óperunni „Rakarinn í Sevilla“ eftir Rossini. -mhg. Rás 1 kl. 15.03. Það er býsna fjölskrúðugt fuglalífið í eyjunni Skrúð ef marka má þessa gömlu vísu: „Þar er hafsúla og már, haftyrðill smár/ hrafnar, lundar og skarfar./ Þar er æður og örn, þar sín ótal- mörg börn/ metta svartfugl og skeglurnar þarfar.“ Ekki rengj- um við þetta. Skrúðurinn er að þessu sinni viðfangsefni Ingibjargar Hall- grímsdóttur í þætti hennar „Af drekaslóðum“, sem er á dagskrá Rásar 1 kl. 15.03. í upphafi þátt- arins er vitnað í orð séra Sigurðar Gunnarssonar, prófasts .á Hall- ormsstað, sem gaf þessa lýsingu á eyjunni: „Skrúðey eða Skrúður er fjall- ey út af suðurfjöllum Reyðar- fjarðar, hamrafjall með mörgum stöllum beint upp úr sjó, skammt frá landi. Hann er iðgrænn vetur og sumar af skarfakáli og öðru lagarmiklu grasi, sem vex í kletta- hillunum og uppi á honum. Hvergi eru fjörur kringum Skrúð en sjávardýpi að hömrum. Það mun hafa verið Vémundur landnámsmaður Fáskrúðsfjarðar sem skírði Skrúðinn vegna feg- urðar hans tilsýndar.“ í þættinum ræðir Ingibjörg við þá Birgi Krist- mundsson og Sigurð Úlfarsson á Fáskrúðsfirði og Baldur Rafns- son, bónda á Vattarnesi, en hann má heita heimagangur á eyjunni og hefur í hyggju að byggja sér þar skýli. Getur komið sér vel að hafa við hendina þegar verið er frammi við að nlyta hlunnindi eyjarinnar. - mhg. Sumarvaka Rás 1 kl. 21.00. Á Sumarvöku í kvöld flytur Guðmundur Gunnarsson fulltrúi minningar sínar frá árdögum út- varpsins. Þá syngur Hreinn Páls- son tvö lög við undirleik Columb- ia hljómsveitarinnar. Hreinn var mjög vinsæll söngvari hér á árum áður en í honum heyrist nú sjald- an. Líklega ekki í tísku lengur. Edda V. Guðmundsdóttir heldur áfram lestri sínum úr Minningum Önnu Borg og loks syngur gamli, góði MA-kvartettinn 3 lög. Kynnir er Helga Þ. Stephensen. -mhg. Stjörnu- sumar Stjaman, hefur verið á ferð og flugi um hlustunarsvæði sitt frá því í júlí sl. Fyrst var hún á Lækj- artorgi og síðan í Keflavík. Á morgun, 23. júlí, verður hún svo stödd á Akranesi, daginn eftir, 24. júlí, í Borgarnesi, laugardag- inn 6. ágúst á Selfossi, laugardag- inn 13. ágúst á Hvolsvelli, laugar- daginn 20. ágúst á Akureyri og laugardaginn 27. ágúst í Hafnar- firði. - mhg. GARPURINN KALLI OG KOBBI Manstu í fyrra þegar rigndi allan tímann. Úrhellið var þvílíkt að við gátum ekki kveikt eld. ----- Án alls vafa ógurlegasta hörmungartímabil allrar minnar ævi. FOLDA Já, en það eru ekki vængir á öllum dýrum sem koma úr eggi. Fiskar og slöngur og krókódílar koma líka úr eggjum Engin regla í eggjaheiminum 1 í 14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 22. júlí 1988

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.