Þjóðviljinn - 22.07.1988, Blaðsíða 13
HEIMURINN
Bandaríkin
Dukakis skautJackson reffyrir rass ogþing-
heimur sté villtan fagnaðardans
Bandarískir demókratar eru
allir undir einum hatti, hinum
mjúka hatti Dukakisar, og hvergi
hræddir hjörs í þrá. I fyrradag
var „hertoginn“ kjörinn fram-
bjóðandi flokksins í forsetakosn-
ingum þann 8. nóvember
næstkomandi. Og kom það eng-
um á óvart. Alkunna er að öld-
ungadeildarþingmaðurinn Lloyd
Bentsen frá Texas verður með-
reiðararsveinn frambjóðandans.
Þeir hafa ugglaust snoðlík viðhorf
til einhverra mála þótt það komi
ekki fram á bls.12 hér í Þjóðvilj-
anum í dag.
Greidd voru atkvæði á milli
Dukakisar og Jesse Jacksons á
flokksþinginu í Atlanta. Féllu
þau þannig að fylkisstjórinn fékk
2.876 í sinn hlut, þurfti aðeins á
2.082 að halda, en prédikarinn
hreppti 1.218.
Rétt áður en tölvan birti sigur-
töluna 2.082 á skjánum gullu
lúðrar og þingheimur sté trylltan
dans. Menn fórnuðu höndum í
fögnuði og hrópuðu í síbylju
„Duke, Duke, Duke“ í tíu mínút-
ur hið minnsta. Gasblöðrur í
fánalitum Bandaríkjamanna
svifu um salinn og utan dyra sam-
glöddust litskrúðugir flugeldar.
Sjálfur hinn ofurhyllti fram-
bjóðandi var þó fjarri góðu
gamni. Þó ekki víðsfjarri. Á sóf-
akorni í hótelsvítu, steinsnar frá
ráðstefnusalnum, handan sjón-
varpsskerma landsmanna, sat
Michael Dukakis með sælubros á
vör. Hann kreppti hnefann og
kyssti Kitty (eiginkonu sína).
Móðir hans sat í bakgrunni.
Henni höfðu auglýsingastjórarn-
ir fengið það hlutverk að teygja
1.218gegn
2.876 og Duke,
Duke, Duke
stakkJesse af.
sig öðru hverju fram og strjúka
sigursælum syni um vangann.
Ástúðlega. Einhver rétti fram-
bjóðandanum kampavínsglas. hálsinn, og fremur hvunndags-
Hann klæddist látlausri skyrtu legum síðbuxum.
við þetta tækifæri, fráhnepptri í Reuter/-ks.
0g þá var kátt
í höllinni
Víetnamskir hermenn kveðja félaga og granna í Kampútseu.
Víetnam
Víetnamskir valdhafar, með
flokksformanninn Nguyen
Van Linh í broddi fylkingar, eru
staðráðnir í þvi að rjúfa einangr-
un landsins. Fyrir skömmu kvis-
aðist að þeir biðu „bátafólk“
velkomið heim og í gær bættu þeir
um betur. Þá kváðust þeir ætla að
kveðja allar hersveitir sínar heim
frá Kampútseu fyrir ársbyrjun
1990. Ennfremur hygðust þeir
liðsinna bandarískum stjórnvöld-
um i því að hafa uppi á líkams-
leifum hermanna er féllu í Víet-
nam.
Linh er nú staddur í Moskvu og
greindi hann Míkhael Gorbat-
sjov kollega sínum fyrstum
manna frá fréttinni um
heimkvaðningu dátanna. „Gor-
batsjov lýsti yfir ánægju sinni
með þessa ákvörðun og sagðist
vona að allar friðelskandi þjóðir
og ríkisstjórnir mætu þær að
verðleikum," sagði víetnamski
leiðtoginn í gær.
Ekki hafði hann fyrr lokið máli
sínu í Moskvu en að Heng
Samrin, forseti Kampútseu,
kvaddi sér hljóðs í Havana á
Kúbu en þar er hann nú í „vinátt-
uheimsókn". Hann sagði að Ví-
etnamar yrðu á brott frá landi
sínu fyrir ársbyrjun 1990 og gilti
einu þótt ekki hefðu náðst samn-
ingar við uppreisnarmenn fyrir
þann tíma. Stjórn sín væri traust í
sessi, efnahagsástandið með á-
gætum og mesta hættan á hernað-
arósigri liðin hjá. Því væri Víetn-
ömum ekkert að vanbúnaði að
halda heimleiðis.
Ríkisútvarpið í Hanoi, höfuð-
borg Víetnams, tilkynnti í gær að
yfirvöld landsins hefðu boðið
Bandaríkjastjórn að taka þátt í
að hafa uppi á líkamsleifum her-
Israelskir hermenn ganga yask-
lega fram þessa daganna. I gær
skutu þeir þrjá unga Palestínu-
menn til bana og særðu a.m.k. 20
skotsárum. Það er alkunna að í
fyrradag drápu þeir einnig þrjá,
þar af einn sem var aðeins 13 ára
gamall.
Átök hafa aukist að undan-
förnu á herteknu svæðunum.
Ennfremur hefur ítrekað skorist í
odda með barsmíðalögreglu og
Palestínumönnum í austurhverf-
um Jerúsalemborgar en þau hafa
lotið ísraelskri herstjórn frá því í
sex daga stríðinu fyrir rúmum
áratug.
manna sinna í Víetnam. Haft var
eftir Nguyen Co Thach utanríkis-
ráðherra að Bandaríkjamönnum
væri „hjartanlega velkomið að
taka þátt í leit að og uppgreftri
fallinna Bandaríkjamanna svo
hægt væri að bera kennsl á líkin.“
Bandaríkjastjórn fagnaði
þessu boði. Málsvari utanríkis-
Starfsmenn Al-Ittihad sjúkra-
hússins í bænum Nablus, vestan
Jórdanar, skýrðu fréttamönnum
frá því í gær að þangað hefði verið
komið með lík tveggja Palestínu-
manna. fsraelsmenn hefðu skotið
þá eftir róstur í gamla bæjarhlut-
anum. Þeir hétu Sair Ghazaleh,
hann var 23 ára gamall, og Huss-
am Aziz, 18 ára. Þriðja fórnar-
lambið féll í bænum Tulakarem
að sögn hemámsyfirvalda. Ekki
báru þau kennsl á hinn fallna en
að sjálfsögðu var tekið fram að
hann hefði verið „arabi“. Sem
fyrr segir særðust 20.
í Austur-Jerúsalem beittu
ráðuneytisins í Washington kom
að máli við fréttamenn síðdegis í
gær og skýrði frá því að nefnd á
vegum ráðuneytisins héldi til
Hanoi í næstu viku til skrafs og
ráðagerða. „Tilboð Víetnama
lofar góðu og við hlökkum til þess
að eiga gott samstarf við þá á
næstu mánuðum." Reuter/-ks.
„þjónar réttvísinnar" táragas-
sprengjum, gúmmíkúlum og
kylfum til þess að dreifa mann-
fjölda. Yfirvöld staðhæfa að um
150 manns hefðu komið saman
og látið ófriðlega mjög, grýtt lög-
reglumenn og kastað flöskum í
þá. Orsakir óeirðanna í sjálfri
höfuðborg fsraelsríkis eru þær að
um helgina var ungur Palestínu-
maður skotinn til bana í næsta
nágrenni hennar. Hann var að-
eins 16 ára gamall. Óvíst er hvort
hermaður eða einhver framtaks-
samur borgari af gyðingaættum
drap hann.
Reuter/ks.
Iran/Irak
Enn láta þeir
vopnin tala
Barist af hörkuí
norðri. Þrístjóraveldi
íranshers villfrið en
stríðsmenn Iraks eru
tortryggnir og
heiftúðugir
Helstu stríðsherrar Persa vi|ja
friðmælast við erkifjandann
vestan landamæranna og hvetja
írönsku þjóðina til þess að taka
sama pólinn í hæðina. Hussein
valdsherra í Bagdað sagði í sím-
tali við vin sinn Gaddafí í Lýbíu
að ekki væri nóg að kveðja vopn-
in til þess að friður kæmist á, það
væri aðeins fyrsta skrefið í áttina.
Enn bárust herir ríkjanna á
banaspjót í gær. Frá írak spurð-
ust þau tíðindi að her landsins
hefði lagt til atlögu við íranska
setuliðið í norðurhéruðum lands-
ins. Hefðu írösku dátarnir frelsað
35 hóla og hæðir ættjarðarinnar
„eftir hetjulega framgöngu gegn
írönsku hernámsliði“. Það þarf
ekki að taka það fram að fyrir-
menn í Teheran kváðust hafa
hrundið atlögunni og sigrað
glæsilega með snoturri gagnárás.
Friðflytjendur Sameinuðu
þjóðanna eru nú staddir í Vín og
búa sig af kostgæfni undir sendi-
förina til Persaflóa. Oddviti
nefndarinnar, norski herforing-
inn Martin Vadset, sagði að ætl-
unin væri að leggja í hann á morg-
un. „Ég er mjög bjartsýnn. Ég er
fullviss um að Sameinuðu þjóð-
irnar geta komið miklu til leiðar
og ég vona að þeim verði veitt
heimild til þess.“
Þrír hæst settu stríðsherrar
Persa kvöddu sér hljóðs í útvarpi
Teheran í gær. Þetta voru þeir
félagarnir Áli Akbar Hashemi
Rafsanjani, æðsti yfirmaður ír-
anshers, Ali Shahbazi hershöfð-
ingi, forseti herráðsins, og yfir-
maður byltingarvarðanna svon-
efndu, Mohsen Rezaei að nafni.
Þeir virðast bera kvíðboga fyrir
því að íransþjóð taki það óstinnt
upp að bundinn sé endi á mara-
þonstríðið við íraka. Og báðu
fólk að dæma ekki gjörðir sínar af
vægðarleysi. Rezaei sagðist fall-
ast á ákvörðun yfirvalda um að
slíðra sverðin enda væri hún
runnin undan rifjum ajatollahs
Komeinís sjálfs.
Reuter/-ks.
Palestína
Manndráp á manndráp ofan
ísraelskir hermenn drápu þrjá Palestínumenn ífyrradag ogþrjá ígœrí
nýrri átakaöldu á herteknu svœðunum og í austurhverfum Jerúsalems
Föstudagur 22. júlf 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13