Þjóðviljinn - 10.09.1988, Blaðsíða 9
Ekkert á að lítast
Upplausn á stjórnarheimilinu ogyfirvofandi kjaraskerðing.
Uggur og ótti meðal almennings. Þjóðviljinn tekurfólk tali um þjóðlífsklandrið
Marta L. Friðriksdóttir afgreiðslustúlka:
Stjómin þorir ekki að fara frá
Mér líst ekkert á þetta, sagði
Marta L. Friðriksdóttir, af-
greiðslustúlka í „Byggt og búið“
er við spurðum hvað henni fynd-
ist um þjóðlífsklandrið þessa dag-
ana; allavega ekki ef það á að fara
að lækka kaupið. Eg vona nú
samt að til þess komi ekki, enda
hefur maður engin efni á því frek—
aejguað-ú iSrnifn'og alls annars
sem er verðtryggt, sagði hún.
Mér sýnist líka vera sama hver
situr í ríkisstjórn, sagði hún; það
er búið að klúðra efna-
hagsmálunum svo rækilega að
það þarf langan tíma til að rétta
þau af, en það er eins og sá tími
gefist aldrei.
En ég hugsa að stjórnin Iafi. Ég
held hreinlega að þeir þori ekki
gdíara. /.c^aúnnnYacncofnasf þa
ekki að aftur. Þess vegna býst ég
við að forustumenn stjórnar-
flokkanna reyni að halda stjórn-
inni saman.
Magnús Reynir Jónsson Ijósmyndari:
Kreppuhljóð í fólki
Mér finnst nú eiginlega ekkert
erfiðara að lifa nú en áður, sagði
Magnús Reynir Jónsson, Ijós-
myndari á Pressunni, en ég hef að
vísu ekki fyrir fjölskyldu að sjá og
það er nú kannski skýringin.
En ég finn það mjög greinilega
að það er afskaplega neikvætt
hljóð í fólki, eitthvert kreppu-
hljóð. Eins og allir séu sannfærðir
um að allt sé að fara til and-
skotans. Ef þessi svartsýnistónn
verður jafn ráðandi á næstunni og
hann hefur verið að undanförnu
þá endar þetta með svartsýnis-
kasti hjá allri þjóðinni, sagði
Magnús Reynir.
Hann sagðist fylgjast spenntur
með framvindunni þessa dagana,
en fyrir sér væri þetta eins og hver
önnur fótboltakeppni, þó þannig
að hann héldi ekki með neinum;
ég er ekki trúaður á það að allt
myndi bjargast bara ef „réttur"
flokkur kæmist að. Ég held að
það sé enginn einn flokkur til sem
gæti komið aðvífandi og reddað
málunum, sagði hann.
Ólöf Sigurðardóttir
húsmóðir:
Hiyllingur að
kaupa í matinn
Afkoman hefur versnað mikið,
það er ekki nokkur vafi á því, og
mér finnst hækkanirnar undan-
farið hafa komið ansi mikið við
pyngjuna, sérstaklega er orðinn
hrvllingur að kaupa í matinn,
sagði Olöf Sigurðardóttir húsmóð-
ir, er hún var að koma úr
innkaupaleiðangri í Hagkaupum
um miðjan dag í gær.
En þetta eru allt aðrir tímar
núna miðað við það sem áður
tíðkaðist. Til dæmis gátum við
byggt okkar hús á sínum tíma
fyrst og fremst með vinnu manns-
ins míns: tómt mál að tala um Mér líst sem sagt ekkert á stjórnin fari frá. Hún verður við
slíkt nú, sagði Ólöf. þetta, en ekki hef ég trú á því að lýði eitthvað áfram, sagði hún.
Baldvin Guðjónsson smiður:
Alltaf sama ráðleysið
Ég held nú að þessi upphlaup í
stjórnmálunum núna sé til að
hafa eitthvað til að fjasa yfir og
hver eigi að fá hvað af þjóðar-
kökunni, sagði Baldvin Guðjóns-
son trésmiður, er við gengum
fram á hann í nýbyggingu Isafold-
ar í nýja miðbænum.
Ég veit satt að segja ekki hvað
maður á að halda um það hvort
það verður kosið á næstunni.
sagði Baldvin. Sumir halda að
þeir græði á því og einblína þá á
skoðanakannanir, en mér sýnist
að vel megi skipta um stjórn þótt
ekki komi til kosninga.
Dýrtíðina verður maður svo
sannarlega var við, sérstaklega
munar miklu hvað maturinn er
orðinn miklu dýrari en hann var,
sagði Baldvin, og bætti við að það
virtist alveg vera sama hver væri í
ríkisstjórn; það er alltaf sama
ráðleysið, sagði hann. Mér sýnist
líka allir flokkar hjakka í sama
farinu, sjáðu bara landbúnaðinn:
Nú eru bændur síst ofsælir af
sínu, en allir vita að landbúnað-
urinn er illa rekinn, en þessu þora
menn ekki að taka á eins og
menn. Eins er þetta til dæmis
með Sambandið. Einu sinni var
SÍS ágætt, en núna er það nokkuð
sem við þurfum að losna við.
DUIMDUR UTSALA
í Gardínubúðinni, Skipholti 35
Gluggatjaidaefni, stórisefni og nú ifka fataefni
í miklu úrvali.
Opið
Mánudaga - föstudaga frá kl. 9-18
Laugardaga frá kl. 10-16
Gardínubúðin,
Skipholti 35,
sími 35677.