Þjóðviljinn - 20.09.1988, Side 2
FRETTIR
Miðjubandalagið
Tillögur
krata og
Framsóknar
Samkvæmt tiUögum og út-
rcikningum Alþýðuflokks og
Framsóknarflokks mun kaup-
máttur launa minnka um rúm 5%
frá meðaltali þessa árs, fram á
fyrsta árshelming þess næsta.
Viðskiptajöfnuður verður óhag-
stæður um 9,5 miljarða, en ætl-
unin er að fjárlög verði afgreidd
með 1% tekjuafgangi. Til að það
megi takast verða ríkisútgjöld
skorin niður um hálfan annan
miljarð og skattheimta aukin um
2,5 miljarða króna. Afkoma
botnfiskveiða og vinnslu á að
batna úr 6% tapi í að vera rekin á
sléttu, frystingin á að fara úr 8%
tapi í 0,5% gróða, veiðar standi í
stað með 3% halla, en hagnaður
af söltun aukist úr 2% í 5,5%.
Helstu tillögur Miðjubanda-
lags eru að verðstöðvun verði
framlengd til 10. apríl 1989, en að
heimilt verði að hækka verð vöru
og þjónustu sem „nemur sannan-
legri hækkun á erlendu
innkaupsverði og hækkun á verði
á innlendum grænmetis- og fisk-
mörkuðum.“ Hækkun búvöru-
verðs umfram erlendar verð-
hækkanir skal mæta með auknum
niðurgreiðslum. Gjaldskrá opin-
berra fyrirtækja verði fryst til 10.
apríl 1989, sem og húsaleiga, al-
menn laun, launaliður bænda og
almennt fiskverð.
Verðjöfnunarsjóði fiskiðnað-
arins verði heimilt að taka 500
miljóna króna lán, sem nota skal
til greiðslu verðbóta vegna fram-
leiðslu á freðfiski og hörpudiski.
Stofna skal svokallaðan Við-
reisnarsjóð útflutningsgreinanna
og á að setja í hann tvo miljarða
króna og það fé að fara í lán og
skuldbreytingar.
Lækka skal vexti, með samn-
ingum Seðlabanka við lánastofn-
anir eða að öðrum kosti með
beinni íhlutun Seðlabanka.
Nafnvextir eiga að lækka um 5-
10% í næsta mánuði og stefnt er
að 3% lækkun raunvaxta. Sam-
setningu lánskjaravísitölu verði
breytt, þannig að launavísitala
hafi helmingsvægi á móti fram-
færsluvísitölu og byggingarvísi-
tölu. Tekjutrygging og heimilis-
uppbót hækki um 3% þann
l.október og 150 miljóna verði
aflað til að „liðsinna fjölskyldum
í alvarlegum erfiðleikum.“ -phh
Stjórnmál helgarinnar
Allt komið á fullt
Miklar sviptingar eiga sér nú
stað í íslenskum stjórnmál-
um eftir að ríkisstjórn Þorsteins
Pálssonar féll. Þorsteinn fór til
Bessastaða síðastliðinn laugar-
dag og baðst lausnar fyrir sig og
ráðuneyti sitt. Forseti féllst á þá
lausnarbeiðni, en bað Þorstein
jafnframt að sitja áfram til bráð-
abirgða. í framhaldi af þeim ág-
reiningi sem leiddi til falls ríkis-
stjórnarinnar mynduðu síðan
Framsóknarflokkur og Alþýðu-
flokkur með sér pólitískt banda-
lag. Það bandalag byggir á sam-
eiginlegum tillögum um aðgerðir
í efnahagsmálum og eru flokkarn-
ir því sameinaðir í því að reyna að
koma á nýrri ríkisstjórn, hvort
sem það yrði meirihlutastjórn
eða minnihluta.
Á sunnudag áttu þeir Jón Bald-
vin og Steingrímur Hermannsson
fundi með forsvarsmönnum
stjórnarandstöðuflokkanna fyrr-
verandi, Alþýðubandalags,
Kvennalista og Borgaraflokkks
þar sem farið var yfir stöðuna.
Forseti fslands veitti síðan
Steingrími Hermannssyni umboð
til myndunar meirihlutastjórnar
á hádegi í gær og eftir þingflokks-
fundi Framsóknar og Alþýðu-
flokks var gengið til könnunar-
viðræðna við Alþýðubandalagið.
Jafnframt bauð Steingrímur
Kvennulista til viðræðna, en
þingflokkur þeirra ályktaði að
efna skyldi til kosninga sem fyrst
og koma ætti á þjóðstjórn allra
flokka til að leysa bráðavanda í
efnahagsmálum. í samþykkt
þingflokks Alþýðubandalagsins
er tekið fram að þingflokkurinn
telji eðlilegt að í komandi stjórn-
armyndunarviðræðum undir for-
ystu Steingríms Hermannssonar
verði kallað til viðræðna við Al-
þýðuflokk og Samtök um
kvennalista og kannað hvort
koma megi á meirihlutastjórn
þessara fjögurra flokka. Stefán
Valgeirsson sagði í viðtali við
Þjóðviljann að enn hefði ekki
verið rætt við sig um hugsanlegan
stuðning hans við stjórn A-
flokkanna og Framsóknar."
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
ekki setið auðum höndum og
náði að koma með svar við blokk
Alþýðuflokks og Framsóknar. Á
sunnudag var tilkynnt að kær-
leikar með Sjálfstæðisflokki og
Borgaraflokki hefðu verið endur-
nýjaðir og að þessir tveir flokkar
byðu upp á sterkari minnihluta-
stjórn með fleiri þingmönnum,
heldur en blokk krata og Fram-
sóknarmanna geri. Er óhætt að
segja að þessir atburðir hafi kom-
ið mönnum nokkuð á óvart, enda
var Albert Guðmundsson rekinn
úr Sjálfstæðisflokknum á sínum
tíma og höfðu Sjálfstæðismenn á
orði að ekki væri hægt að hafa
ráðherra sem hefði hugsanlega
gerst brotlegur við lög. Eitthvað
virðast Sjálfstæðismenn hafa
slakað á siðgæðiskröfum sínum,
því enn er ekki fengin niðurstaða
úr rannsókn skattrannsókna-
stjóra um skattamál Alberts, auk
þess sem réttarhöld í Haf-
skipsmálinu eru hugsanlega yfir-
vofandi.
-phh
Steingrímur Hermannsson kemur til Bessastaða á hádegi í gær.
Mynd. E. Ól.
Meirihlutastjórn
Vantar ekki möguleikana
Mikið úrval affræðilegum meirihlutastjórnum, en kaupastflestar dýru verðipólitískt
Þegar spáð er í spilin með hjálp
samlagningarinnar fást marg-
ar hugsanlegar ríkisstjórnir með
þingmeirihluta. Með þátttöku
Sjálfstæðisflokks koma til greina
tíu ólíkar þriggja flokka stjórnir í
meirihluta, og fjögurra flokka
stjórnir eru til í miklu úrvali.
Sjálfstæðisflokkur (D) hefur
18 þingmenn, Framsóknarflokk-
ur (B) 13, Alþýðuflokkur (A) 10,
Alþýðubandalag (G) 8, Borgara-
flokkur (S) 7, Kvennalisti (V) 6,
og að auki er Stefán Valgeirsson
fyrir Samtök um jafnrétti og
félagshyggju (J).
Þriggjaflokka meirihluta-
stjórnir eru því þessar hugsan-
legar: ADG (36), ADS (35),
ADV (34), BDG (39 þingmenn
af 63), BDS (38), BDV (37),
DGS (33), - allt stjórnir með
þátttöku Sjálfstæðisflokks.
Gamla stjórnin - ABD - hafði 41
mann. Sjálfstæðisflokkur og
Framsóknarflokkur hefðu að
auki knappan meirihluta með
stuðningi Stefáns Valgeirssonar:
BDJ (32), DGV hefði líka
knappan meirihluta, en mundi
treystast með Stefáni.
Meirihluti uppá 32 menn þýðir
að stjórn verst falli í sameinuðu
þingi, en gæti átt erfitt með mál
gegnum þingið þarsem stæði á
jöfnu í annarri þingdeildinni.
Eina hugsanlega „þriggja
flokka“ stjórnin án þátttöku
Sjálfstæðisflokks er ABG með
Alþýðubandalagið
Forsendur fyrir viðræðum
Samningar gefnir frjálsir, engin kaupskerðing, matarskattur endurskoðaður
stuðningi Stefáns og hefði knapp-
an meirihluta (32).
Þegar kemur að fjögurra
flokka stjórnum eru allir kostir
hugsanlegir, - AGSV gegn D og
B þyrfti þó stuðning Stefáns og
hefði knappan meirihluta.
Ef gert er ráð fyrir að „blokk“
Alþýðu- og Framsóknarflokks
haldist, og þeir flokkar verði
saman í stjórn eða utan, fækkar
meirihlutakostunum með þrem-
ur flokkum og eru þá (fyrir utan
gamla munstrið) ABG plús J
(32), DGS (33) og DGV (32). Ef
„blokk“ Sjálfstæðis- og Borgara-
flokks heldur líka fer kostunum
að fækka: ABG plús J (32),
ABGV (37), DSG (33), DSV
plús J (32).
Kapallinn gengur upp fræði-
lega á ótal vegu, - hitt er svo ann-
að hvaða pólitískir möguleikar
eru í stöðunni. -m
Eftirfarandi samþykkt var
gerð á þingflokksfundi Alþýðu-
bandalagsins í gær sem forsenda
fyrir viðræðum um stjórnar-
myndun undir forystu Steingríms
Hermannssonar.
Þingflokkur Alþýðubanda-
lagsins telur óhjákvæmilegt, mið-
að við þær aðstæður sem nú eru
uppi í íslenskum stjórnmálum, að
kannað verði hvort unnt er að
mynda meirihiutastjórn sem tak-
ist á við þau hrikalegu vandamál
sem ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks,
Framsóknarflokks og Alþýðu-
flokks skilur eftir sig.
Þingflokkurinn samþykkir því
að taka þátt í stjórnarmyndunar-
viðræðum þeim sem nú eru að
hefjast og fara fram undir forystu
Steingrfms Hermannssonar.
Þingflokkurinn telur eðlilegt að
kalla fyrst til þeirra viðræðna Al-
þýðuflokk og Samtök um
kvennalista þannig að kannað
verði til fulls hvort unnt er að ná
málefnalegri samstöðu um mynd-
un ríkisstjórnar þessara fjögurra
flokka.
Forsendur stjórnarmyndunar-
viðræðna Alþýðubandalagsins
eru þær samþykktir sem þing-
flokkurinn hefur gert að undan-
förnu, en flokkurinn leggur við
upphaf viðræðna sérstaka
áherslu á eftirfarandi atriði.
1. Að bráðabirgðalögin sem
banna frjálsa samninga verka-
lýðshreyfingarinnar verði afnum-
in.
2. Að kaupskerðing verði af-
numin og samráð haft við samtök
launafólks um skipan kjaramála.
3. Að matarskatturinn verði
tekinn til endurskoðunar.
4. Að unnið verði að víðtækum
breytingum á rekstrarskilyrðum
útflutningsatvinnuveganna og
kerfisbreytingum á öllum sviðum
atvinnulífs og peningamála.
5. Þá verði lögð sérstök vinna í
stefnumörkun í m.a. eftirfarandi
málaflokkum: byggðamálum,
jafnréttismálum, umhverfismál-
um og utanríkismálum.
Þingflokkur Alþýðubandalags, varaformaður og formaður
framkvæmdastjórnar á fundi í gær.
Stjórnarkreppan
Birgir
verður heima
Birgir Isleifur Gunnarsson
menntamálaráðherra hefur tví-
vegis þurft að hætta við fyrirhug-
aða ferð á Ólymíuleikanna í Seo-
ul. Fyrst ætlaði Birgir að verða
samferða keppnisliðinu, en vegna
stjórnmálaástandsins hér heimaf-
yrir hætti hann við það.
Ekki ætlaði Birgir að láta
deigan síga og ákvað að halda til
Seoul sl. sunnudag. Ekkert varð
heldur úr þeirri för. Kannski
kemst Birgir í gott frí eftir að ný
stjórn tekur við, hver veit nema
hann skreppi þá til Seoul, það er
ennþá langt í lókaathöfn
Ólympíuleikanna.
^sg
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 20. september 1988