Þjóðviljinn - 22.09.1988, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
KvemúistakQHML
„Fjúkandi reiðai"
Segja Óláf Ragnar hafa rangtúlkað ummœliþeirra, en viðurkenna þó að rétt sé eftir haft.
Sögðu ífyrradag að ekki kæmi til greina annað en þjóðstjórn, en Ijá máls áfleiri möguleikum
ídag. Segjaað „konurum allt land“ hafi skipt um skoðun
ingflokkur Samtaka um
kvennalista óskuðu í g*r-
morgun eftir fundi með þing-
flokki Alþýðubandalagsins þar
sem þær „skýrðu þingflokki Al-
þýðubandalagsins frá því hvað
fram fór á sameiginlegum fundi
fulltrúa þeirra og Alþýðubanda-
lags með Steingrími Hermanns-
syni í fyrradag, því okkur þótti
formaður Alþýðubandalagsins
hafa mistúlkað og rangtúlkað það
sem þar fór fram,“ svo vitnað sé
til orða Kristínar Halldórsdóttur
eftir fundinn í gær.
Sagði Kristín að sér væri enn
ekki runnin reiðin, en hún hygði
að þær Kvennalistakonur hefðu
leiðrétt misskilning. Ólafur
Ragnar sagði eftir fundinn að
hann hefði skrifað ummæli Pór-
hildar Þorleifsdóttur, þess efnis
að Kvennalistinn væri ekki tilbú-
inn að styðja fjögurra flokka
stjórn Framsóknar, Alþýðu-
flokks, Alþýðubandalags og
Kvennalista, jafnvel þótt fram
næðist afnám frystingar launa,
niður og það hefði Guðmundur
Bjarnason, heilbrigðisráðherra
Framsóknar, einnig gert. Bæri
þeim og öðrum sem fundinn
hefðu setið saman um að rétt væri
eftir haft. Á fundi þingflokka
Kvennalista og Alþýðubandalags
í gær viðurkenndi Þórhildur Þor-
leifsdóttir að rétt hefði verið eftir
sér haft, en sagði að menn hefðu
misskilið ummæli sín.
Kvartaði Kristín yfir því við
blaðamenn eftir fund þingflokk-
anna, að Ólafur Ragnar hefði
komið því til skila við þjóðina að
Kvennalistinn hefði hafnað allri
samvinnu um það að afnema
frystingu launa. Það væri
Kvennalistanum hins vegar
„mjög kært mál og okkur er mjög
þungt í huga, yfir að þessi afstaða
okkar hafi verið misnotuð gjör-
samlega," sagði Kristín. Virðist
hér óneitanlega vera um mistúlk-
un Kristínar og Kvennalistans á
orðum Ólafs vera að ræða, því
eins og Þjóðviljinn hafði eftir
Ólafi Ragnari í gær, sagði hann
að Kvennalistinn hefði ekki verið
tilbúinn að styðja neinar
stjórnarmyndunartilraunir nema
þjóðstjórn, jafnvel þótt þeim
væri boðið upp á afnám frystingar
launa, - Ólafur sagði ekki að
Kvennalistinn hefði hafnað allri
samvinnu um afnám frystingar
launa undir hvaða kringumstæð-
um sem væri. Reyndar virðist hin
afdráttarlausa afstaða Kvenna-
listans, sem uppi var á teningnum
í fyrradag, hafa breyst, því nú
segja þær að í tillögu þeirra um
samstöðu allra flokka hafi ekki
falist ,;í sjálfu sér“ nein höfnun á
öðrum stjórnarmynstrum. í gær
sagði Kristín reyndar að Kvenna-
listinn hefði ekki hafnað öðrum
hugmyndum en þjóðstjórn, -
nokkuð sem skýrt var haft eftir
þeim í öllum fjölmiðlum - heldur
hefðu þær verið að hafna hug-
myndum um þátttöku í ríkis-
stjórn sem sæti til frambúðar.
Er þessi afstöðubreyting tekin
til marks um klofna afstöðu innan
höfuðstöðva Kvennalistans í
Reykjavík, jafnvel þó talskonur
Kvennalistans hafi borið fyrir sig
„vilja kvenna um land allt,“ þeg-
ar þær réttlættu þjóðstjórnarhug-
mynd sína og nýju hugmyndina
um að aðrir möguleikar væru
opnir. Kristín Halldórsdóttir
upplýsti eftir fundinn í gær, að
Kvennalistinn væri tilbúinn að
styðja bráðaaðgerðir þeirra
flokka sem nú reyna stjórnar-
myndun, jafnvel þótt þær hefðu
ekki í för með sér launahækkanir.
phh
Tölvur á
í gær var opnuð í Laugardals-
höllinni stærsta tölvusýning sem
hér hefur verið haldin. Sýningin
sem ber yfirskriftina Tölvur á
tækniári er ætiuð atvinnu-
mönnum sem leikmönnum.
Á sýningunni er sýnt það nýj-
asta í þróun tölvu og tölvubúnað-
ar. Einnig verða kynnt mörg ný
forrit, þar á meðal ættfræðiforrit,
og að sögn aðstandenda sýning-
arinnar getur þriðjungur núlif-
andi íslendinga skoðað ættartré
sitt margar aldir aftur í tímann
með hjálp forritsins. Þá verður
kynnt svokallað hárgreiðsluforrit
en með hjálp þess getur fólk
fundið sína “eiginlegu" hár-
greiðslu.
Margt fleira verður þarna til
sýnis og skemmtunar. Það eru
tölvunarfræðinemar í Háskóla ís-
lands sem standa að þessari sýn-
ingu. —sg
Stjórnarmyndunin
Huldumaður
Stefáns ófundinn
Matthías Bjarnason volgurað uppfylltum
skilyrðum
Yfirlýsing Stefáns Valgeirs-
sonar um að hann geti tryggt
hugsanlegri ríkisstjórn meiri-
hluta í báðum deildum Alþingis,
hefur vakið óskipta athygli.
í viðtali við Þjóðviljann gaf
Stefán Valgeirsson heilsar uppá
Steingrím Hermannsson í fyrra-
dag. I gær sagðist Stefán geta
tryggt meirihluta hugsanlegrar
ríkisstjórnar þríflokkanna í báð-
um deildum Alþingis. Mynd: Jim.
Bomba eða reykbomba?
Sjálfstæðisflokksmenn til bjargar?
Stefán Valgeirsson segistgeta tryggt Steingrími Hermannssyni meirihlutastuðning íbáðum deildum Alþingis
og gefur sterklega ískyn að um Sjálfstœðismenn sé að rœða. Vill koma inn ístjórnarmyndunarviðrœður sem
fullgildur aðili. Matthías Bjarnason segir að ekki hafi verið við sig rœtt, enþvertekur ekkifyrir stuðning.
Eg get tryggt hugsanlegri ríkis- ur hvort um menn úr Sjálfstæðis- Aðspurður um hvort hin
stjórn Steingríms Hermanns- flokki væri að ræða, svaraði hann óvænta liðssöfnun til fulltingis
Steingrími Hermannssyni væri
ekki leikur sem Steingrímur sjálf-
ur gæti leikið, sagðist Stefán ekk-
g get tryggt hugsanlegri ríkis-
stjórn Steingríms Hermanns-
sonar stuðning í báðum deildum.
Ég gef hins vegar ekki upp um
hverja er þar að ræða né hversu
marga og það verður aldrei gefið
upp, komist ríkisstjórnin ekki á
laggirnar, sagði Stefán Valgeirs-
son, þingmaður Samtaka
jafnréttis og félagshyggju, í sam-
tali við Þjóðviljann í gær. Stefán
sagðist hafa tilkynnt Halldóri Ás-
grímssyni þessi tíðindi, en enn
hefðu engin viðbrögð borist frá
Framsóknarflokki.
Stefán neitaði því að um Borg-
araflokksmenn væri að ræða. Að-
spurður hvort hann hefði rætt við
þau Aðalheiði Biarnfreðsdóttur
eða Guðmund Ágústsson, sem
heimildir Þjóðviljans telja vera
lítt áfjáð í samvinnu við Sjálf-
stæðisflokk, neitaði Stefán því og
sagðist aðeins hafa rætt við Al-
bert, sem hefði tjáð sér að Borg-
araflokkurinn stæði heill og
óskiptur. Þegar Stefán var spurð-
ur hvort um menn úr Sjálfstæðis-
flokki væri að ræða, svaraði hann
drýgindalega: „Já, er það ekki,
það gæti verið. Það var nú mynd-
uð stjórn einu sinni, að vísu af
Sjálfstæðismanni, og þeir tóku
sig þar nokkrir út úr og urðu flest-
ir ráðherrar. Sagan getur endur-
tekið sig,“ sagði Stefán.
Sagði Stefán að hann hefði til-
kynnt þeim Steingrími og Hall-
dóri, í þeim viðræðum sem hann
átti við þá í fyrrakvöld, að hann
væri ekki kominn til að ræða við
þá um þátttöku í myndun ríkis-
stjórnar, fyrr en að hann og hans
menn væru búnir að kanna og
ræða hvert einasta efnisatriði í
hugmyndum þeirra flokka sem í
ríkisstjórnarviðræðum stæðu.
„Við erum tilbúnir að taka þátt í
viðræðunum, en þá sem fullgildir
aðilar eins og hinir flokkarnir. En
ég kalla mitt fólk ekki hingað
suður til viðræðna fyrr en
Steingrímur óskar eftir okkar
þátttöku," sagði Stefán.
ert um það geta sagt, en gaf í skyn
að þetta væri bundið við sig per-
sónulega. Þeir menn sem hér
gætu hugsanlega komið til greina
eru t.d. Friðjón Þórðarson og
Pálmi Jónsson, sem báðir voru
ráðherrar í ríkisstjórn Gunnars
Thoroddsens og hafa fyrir vikið
notið lítilla mannvirðinga innan
Sjálfstæðisflokksins síðan. Matt-
hías Bjarnason, fyrrum sjávarút-
vegsráðherra, hefur við hin ýmsu
tækifæri lýst óánægju sinni með
Sjálfstæðisflokkinn eins og hann
hefur þróast á síðustu misserum.
í viðtali við Þjóðviljann þvertók
hann ekki fyrir að geta stutt slíka
„landbyggðarblokk" með Stefáni
Valgeirssyni, en sagðist auðvitað
þurfa að sjá hvaða hlutum þeir
vildu ná fram, áður en hann segði
til um það. „Stefán Valgeirsspn
hefur ekki rætt við mig um þetta
mál,“ sagði Matthías Bjarnason.
f viðtalinu við Stefán Valgeirs-
son kom hins vegar fram að hann
virtist hafa takmarkaða trú á að
Steingrímur Hermannsson næði
saman stjórn með þátttöku Al-
þýðubandalags og Álþýðuflokks
og því að hjálpar hans væri þörf.
„Þetta kemur ekki upp. Heldur
þú að Allaballar semji, en leggi
ekki bara grunninn að viðreisn?
Það má bera naumum meirihluta
við ef menn vilja, en það hefur
sýnt sig að þær stjórnir eru
jafnvel sterkari sem hafa nauman
meirihluta, þá hlaupa menn síður
út undan sér. En það getur verið
að Alþýðubandalagið sé hrætt
um einhverja sína þingmenn. Ég
man eftir því að Guðrún Helga-
dóttir hefur ekki alltaf verið þjál í
taumi og ef Hjörleifur Guttorms-
son yrði nú ekki í ráðherrastól, þá
gæti taumurinn á honum nú orðið
stríður," sagði Stefán Valgeirs-
son. phh
Stefán sterklega í skyn að við-
komandi væri Sjálfstæðismaður
og vísaði í því sambandi til klofn-
ings Sjálfstæðisflokksins, þegar
ríkisstjórn Gunnars Thoroddsens
var mynduð. Þjóðviljinn hafði
samband við Pálma Jónsson,
fyrrum landbúnaðarráðherra í
ríkisstjórn Gunnars og spurði
hann hvort hann væri huldumað-
ur Stefáns. Pálmi sagði að það
væri fráleitt, Stefán hefði ekki
rætt við sig og þó svo hefði verið,
kæmi ekki til greina af sinni hálfu
að standa að málum á þennan
veg. Eggert Haukdal hefur gefið
samskonar yfirlýsingu, og Guð-
mundur Ágústsson úr Borgara-
flokki, sagði að Stefán hefði ekki
haft samband við sig. Ekki náðist
í Friðjón Þórðarson, þingmann
og fyrrum dómsmálaráðherra í
stjórnartíð Gunnars Thoro-
dssens.
„Það hefur ekkert verið við
mig talað. Hins vegar hef ég orð-
ið fyrir vonbrigðum í sambandi
við skilning á málefnum lands-
byggðarinnar hjá öllum flokk-
um,“ sagði Matthías Bjarnason
alþingismaður þegar Þjóðviljinn
ræddi við hann í gær.
- En ef Stefáni tekst að ná sam-
an einhverri „landsbyggðar-
blokk", ert þú þá tilbúinn að
veita slíkri blokk brautargengi,
jafnvel þótt það gengi á flokks-
hagsmuni Sjálfstæðisflokksins
um tíma?
„Ég svara engu um það á þessu
stigi. Ef til þess kemur að málefni
landsbyggðarinnar koma af al-
vöru til greina, þá verður maður
að líta á það eftir málefnunum og
ef möguleiki er á að rétta af
landsbyggðina þá er það auðvitað
fyrir hendi, þá verður að verða
stefnubreyting hjá mörgum að-
standendum þessarar væntanlegu
stjórnar frá því sem verið hefur,“
sagði Matthías Bjarnason, al-
þingismaður Sjálfstæðisflokks-
ins. phh
2 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 22. september 1988