Þjóðviljinn - 22.09.1988, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 22.09.1988, Blaðsíða 14
„Aumt er aðsjá...“ Ríkisstjórnin okkar blessuð er nú endanlega gengin fyrir ætternisstapa. Varð þaðekki vonumfyrr. Hún var, þráttfyrir föngulegan og fjölmennan ráðherrahóp og yfirgnæfandi þingmeirihluta, vonarpeningur frá upphafi. Því olli einkum tvennt: innbyrðis óheilindi og alger vöntun á ákveðinni stefnumótun. Stjórnin tók á ýmsan hátt við slæmu búi. Ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar var hálfgert ólánsfyrirtæki og klaufvirk í meira lagi. Hún taldi það sitt höfuðhlutverk að ráðast gegn verðbólgunni. Ágætt áform út af fyrir sig en aðferðin afleit. Laun voru bundin með lögum en vextir gefnir frjálsir og allt annað fékk að valsa lausbeislað. Mörgum Framsóknarmönnum leist ekki á blikuna. Ég var á fundi hjá Framsóknarfélagi Reykjavíkur nokkru eftir myndun Steingrímsstjórnarinnar. Þar voru þeirmálshefjendur Steingrímurforsætisráðherraog HaraldurÓlafsson, fyrrv. alþingismaður. Steingrímur leitaðist við að verja gerðir sínar en Haraldur gagnrýndi þær. Einir 15 menn aðrirtóku til málsá fundinum. Allir lýstu þeir yfir andstööu við áminnstar aðgerðir Steingrímsstjórnarinnar utan eitt. En launþegarsýndu þolinmæði. Bændursýndu þolinmæði. Allir þeir, sem aðgerðir Steingríms- stjórnarinnarbitnuðu á, sýndu henni einstakt umburðarlyndi. En það var bæði ranglátt og gagnslaust að fjötra launafólkið en láta peningahákarlana valsa að vind um fjármálaheiminn og spenna alla þenslu til hins ýtrasta. Þess vegna endaði ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar í ógöngum þótt henni tækist furðuvel að fela það íkosningabaráttunni. Þegar ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar tók við hafði hún um tvennt að velja: T aka strax rösklega í taumana eða gera ekki neitt undir mottóinu: Þá koma dagar og þá koma ráð. Stjórnin kaus síðari kostinn. Og nú hefur hún auðvitað siglt upp á skerið þar sem hún liðaðist sundur, með þeim eftirmælum, að aldrei hafi aumari áhöfn verið á nokkurri íslenskri stjórnarfleytu. Og hvað tekur nú við? Það veit guð einn. Auðvitað verður að „efna í annan bát“. Og auðvitað verður honum klambrað saman með einhverjum hætti. En þá er spurt: í hvaða átt verður stefni hinnar væntanlegu stjórnarfleytu beint? Svarið við þeirri spurningu skiptir öllu máli. - mhg ÍDAG er 22. september, fimmtudagur í tuttugustu og þriðju viku sumars, fyrsti dagur haustmánaðar, 266. dagur ársins. Sól kemur upþ í Reykjavíkkl. 7.11 ensestkl. 19.28. Tungl vaxandi á öðru kvartili. VIÐBURÐIR Haustjafndægur. Máritíusm- essa. ÞjóðhátíðardagurMalí. ÞJÓÐVILJINN FYRIR50ÁRUM Sovétríkin verja T ékkóslóvak- íu. Tekst stjórnum Bretlands og Frakklands að kúga Tékkósló- vakíu undir kröfur Hitlers? Hitler, Ungverjarog Pólverjar krefjast upplausnar T ékkóslóvakíu. 20000 krónurtilSpánarhjálp- arinnarfránorskum málmiðnað- armönnum. UM ÚTVARP & SJÓNVARPf Tón- listar- kvöld Grænlandið góða Sjónvarp k. 20.15 an að hálfu. Þeir fara saman í skyldna. Sumir segja að sá einn Þessi þáttur er gerður af hundasleðaferð þar sem ljóslega kynnist Grænlandi og Grænlend- Dönum og Grænlendingum og er sýnt hvernig meðhöndla skuli ingum, sem farið hefur með þeim þykir áhugaverður. Kunnur og stjórna hundunum, þessum í hundasleðaferð. Og drífið ykk- danskur sjónvarpsmaður rekst á dygga og ómissandi fylginaut ur nú bara með. 11 ára gamlan dreng, grænlensk- grænlenskra veiðimannafjöl- - mhg Örlygsstaðabardagi Rás 1 kl. 15.03 Þessi þáttur var fluttur sl. leitast við að gefa nokkra hug- son, við þá Aðalgeir Kristjánsson mánudagskvöld en verður nú mynd um tildrög bardagans og skjalavörð og Indriða G. Þor- endurtekinn. Fjallar hann um m.a. lesið úr íslendingabók steinsson rithöfund, um bardag- Örlygsstaðabardaga, fjölmenn- Sturlu Þórðarsonar, sem sjálfur ann og afleiðingar hans. - Lesari ustu orrustu íslandssögunnar, tók þátt í hinni örlagaríku orr- auk umsjónarmanns er Haukur sem háð var þann 21. ágúst 1238, ustu. - í þáttarlok ræðir umsjón- Þorsteinsson á Sauðárkróki. eðafyrir750árum. í þættinumer armaður hans, Jón Gauti Jóns- - mhg Rás 1, k. 20.15 Á fyrri hluta Tónlistarkvölds Ríkisútvarpsins á Rás 1 í kvöld flytur Oddur Björnsson básúnu- leikari ásamt blásurum úr Sinfón- íuhljómsveit íslands tónverkið „Jubilus 11“, eftir Atla Heimi Sveinsson. Verkið var upphaf- lega samið fyrir Edward J. Fred- riksen og Kammersveit Tónlist- arskólans á Akureyri og frum- flutt þar í bæ árið 1984, undir stjórn Roars Kvam. - Tveimur árum síðar umskrifaði Atli verkið fyrir stærri biásarasveit, bætti við nýjum köflum auk rafhljóða og segulbands, sem m.a. feíur í sér að einleiksbásúnan leikur á móti sjálfri sér. Þannig var verkið hljóðritað fyrr á þessu ári með Oddi Björnssyni og blásarasveit Sinfóníuhljómsveitarinnar, af tónmeistara Ríkisútvarpsins, Bjarna Rúnari Bjarnasyni og undir stjórn Páls P. Pálssonar. Á síðari hluta Tónlistarkvölds- ins syngur austurríska messo- sópransöngkonan Christa Lu- dwig ljóðasöngva eftir Richard Strauss og Hugo Wolf, við píanó- undirleik Charles Spencers á ljóðakvöldi á tónlistarhátíð í Vín- arborg 25. júlí sl. - Kynnir er Anna Ingólfsdóttir. - mhg GARPURINN KALLI OG KOBBI FOLDA 14 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 22. september 1988

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.