Þjóðviljinn - 22.09.1988, Síða 12
FLÓAMARKAÐURINN
Fallegur bill. Og flott föt.
Til sölu er Chevrolett Nova árg.
1970, ný upptekin vél 350. Ekkert
tyð er í bílnum. Læst drif, sjálf-
skiptur 350 turbo, brettaútvíkkanir
og skóp, breið dekk, krómfelgur.
Litur grænsanseraöur. Mjög fal-
legur bíll, sjón er sögu ríkari. Uppl. í
síma 43385, Hafliði.
Einnig eru til sölu tvenn kjólföt.
Svört terelynföt ca. nr. 44-46. Hvít
satinföt ca. nr. 40-42. Hvortveggja
eru með rauðu fóðri, linda og slaufu
í rauðu. Mjög falleg, hefur verið far-
ið einu sinni í þau. Upplýs. gefur
Danfríður í s. 685842 eða Inga í s.
43385.
Barnapía - Melar
Óska eftir barnapíu fyrir 6 ára strák
eitt kvöld í viku. Upplýsingar í síma
13374.
Hjónarúm og útidyrahurð
fæst gefins. Upplýsingar í síma
33675 og 33354.
Vilt þú læra spænsku eða
á katalónsku?
Kenni spænsku og katalónsku í
einkatímum eða hópum. Hef til
leigu íbúð í Barcelona. Upplýsingar
í síma 24634, Jordi.
Dagmamma Hlíðar - kerruvagn
Óska eftir dagmömmu í Hlíðunum
frá og með 1. nóvember frá kl.
12.30-17.30. Á sama stað er kerru-
vagn til sölu. Selst á 7000 kr. Upp-
lýsingar í síma 13227 í dag og
næstu daga.
Farmiði til Kaupmannahafnar
29. september aðra leiðina, til sölu.
Upplýsingar í síma 15719 á kvöldin
og 13183 á daginn.
íbúð óskast
Rúmlega tvitug systkini óska eftir
3-4ra herbergja íbúð sem fyrst.
Upplýsingar í síma 688776 og
35454.
Til sölu
Citroén braggi 2CV 6 árg. ‘86. Upp-
Iýsingarísíma53410eftirkl. 19.00.
Tll sölu
sófaborð og hljómtækjaskápur.
Upplýsingar í síma 16328.
Hjónarúm tll sölu
(5 ára) með náttborðum og útvarpi.
Upplýsingar í síma 79737 eftir kl.
18.00.
Selst allt mjög ódýrt
Sófasett til sölu, 4ra sæta sófi og
tveir stólar, einnig 2 stakir stólar,
fótanuddtæki og gömul eldavél.
Upplýsingar í síma 77295.
Kettlingar
Tveir svartir kettlingar af góðu kyni
fást gefins. Upplýsingar í síma
53964.
Teiknikennsla
Bjóðum uppá teiknikennslu fyrir
byrjendur í fámennum hóp. Upplýs-
inqar kl. 16-19 í símum 46010 og
681654.
Atvinna - íbúð
Ég er einstæð móðir með 3 börn og
mig vantar framtíðaratvinnu. Margt
kemur til greina. Einnig vantar mig
3ja herbergja íbúð. Get ekki borgað
fyrirfram en skilvísar mánaðar-
greiðslur. Upplýsingar í síma 74910
eftir kl. 19.00.
Húsnæði óskast
Ung og reglusöm snyrtileg og reyk-
laus hjón með 2 börn 8 og 11 ára
óska eftir að taka á leigu 4-5 her-
bergja íbúð frá 1. okt. n.k. Upplýs-
ingar ( síma 16249 á kvöldin og
11540 á daginn.
Við erum námsfólk
með eitt lítið barn og leitum að íbúð
sem allra fyrst. Eigum bæði að
byrja í skóla í haust og viljum helst
ekki þurfa að sofa í bílnum. Vinsam-
legast hringið í síma 681331 eða í
síma 681310 á daginn.
íbúð óskast
Ungt, reglusamt par utan af landi
óskar eftir 2-3 herbergja íbúð sem
fyrst. Einhver fyrirframgreiðsla
möguleg. Uppl. ísíma25661 eftirkl.
17.00.
Til sölu
Eldhúsinnrétting með vaski. Upp-
lýsingar í síma 76046 eftir kl. 18.00.
Felgur
Vil kaupa4felgurundirToyota Cor-
olla. Sími 37287.
Til sölu Peugeot 205
árgerð ’87, ekinn 15 þús. km. Góð-
ur bíll í toppstandi. Vetrardekk
fylgja. Upplýsingar í síma 29819.
Flóamarkaður
Opið mánudag, þriðjudag og mið-
vikudag frá kl. 14-18. Endalaust úr-
val af góðum og umfram allt ódýr-
um vörum. Gjöfum veitt móttaka á
sama stað og tíma. Flóamarkaður
SDI, Hafnarstræti 17, kjallara.
Ferðafólk - hestaleiga
Kiðafelli i Kjós
Góð og ódýr gisting í íbúð í nágrenni
Reykjavíkur. Hestaleiga á staðn-
um. Riðið út á góðum hestum í fall-
egu umhverfi. Uppl. í síma 666096.
Opinn fundur í Rein
Opinn fundur um dagvistarmál mánudaginn 26.
september kl. 20.30.
Framsaga Sólveig Reynisdóttirfélagsmálastjóri,
Ásta Eyjólfsdóttir fóstra. Fyrirspurnir og um-
ræður.
Bæjarmálaráð Alþýðubandalagsins á Akra-
nesi
Greiðið
ASKRIFEND UR!
áskriftargjaldið
með
greiðslukorti
Léttið
blaðberum störGn
Hafið samband við afgreiðslu
Þjóðviljans
ERLENDAR FRÉTTIR
Ein svokallaðra „kirkjuborga" Transsylvaníu-Þjóðverja. Byggingar þessar, sem eru meðal merkustu
menningarverðmæta landsins, eru í senn guðshús og virki, þar sem menn leituðu hælis gegn óvinaherjum
fyrr á tíð. n ' '
Rumema
Perestrojka Conducators
Nicolae Ceausescu, leiðtogi
flokks og ríkis í Rúmeníu og
aðalvaldhafí landsins síðan 1965,
er einn þeirra kommúnísku vald-
hafa sem minnst er hrifínn af
glasnosti félaga Gorbatsjovs.
Hinsvegar er hann með sína eigin
perestrojku á prjónunum, en hún
stefnir í öfuga átt miðað við per-
estrojku Sovétmanna. Ceausescu
hyggst fyrir næstu aldamót leggja
niður um helming sveitaþorpa
landsins, sem alls eru um 15.000
talsins, og þjappa íbúunum sam-
an í um 560 framleiðslueiningar,
þar sem bæði sé stundaður land-
búnaður og iðnaður og íbúar búi ■
steinsteyptum blokkaborgum.
Ceausescu hefur orðið sér úti
um talsverða virðingu víða um
heim vegna þess að undir hans
stjórn hafa Rúmenar í stórum
dráttum farið sínu fram í sam-
skiptum við Sovétríkin. Að
sumra áliti lét Brezhnev honum
haldast þetta uppi einkum vegna
þess, að engin hætta var á að Ce-
ausescu færi að koma á lýðræði í
ríki sínu, líkt og var á döfinni í
Tékkóslóvakíu. Innanlands varð
sjálfstæð afstaða gagnvart Sovét-
mönnum Ceausescu einnig til
virðingarauka. Rúmenar eru
rómönsk þjóð, gagnstætt ná-
grönnunum, og hafa í samræmi
við það, frá því að þjóðernishyg-
gja í nútíma skilningi orðsins
vaknaði með þeim á 19. öld,
mjög leitað eftir menningar-
legum tengslum við önnur róm-
önsk ríki, einkum Frakkland.
Þessu hefur fylgt viss menningar-
legur rembingur gagnvart nág-
rönnunum og þar að auki hafa
Rúmenar ekki fyrirgefið Sovét-
mönnum að þeir tóku af þeim
Bessarabíu (nú Sovét-Moldavíu)
í heimsstyrjöldinni síðari, en það
svæði er eða var að mestu rúm-
enskt að þjóðerni.
Léleg lífskjör
Sjálfstæðistilhneigingum Ce-
ausescus hefur fylgt eindregin
viðleitni til að gera Rúmeníu sem
sjálfstæðasta í efnahagsmálum,
þannig að hún verði sem óháðust
viðskiptum við útlönd og skuld-
laus við þau. Til að koma þessu í
kring framfylgir ríkið strangri
sparnaðaráætlun, sem hefur
komið illa niður á lífskjörum al-
mennings. Þunglamaleg miðstýr-
ing efnahagsmála er annað atriði,
sem valdið hefur vandræðum á
þeim vettvangi, með þeim afleið-
ingum að lífskjör Rúmena eru nú
líklega þau lélegustu í Austur-
Evrópu.
Rafmagn er t.d. svo kappsam-
lega sparað í ríki Conducators
(sem útleggst leiðtogi eða for-
ingi), eins og Ceausescu er
gjarnan titlaður, að innanhúss
má hitinn ekki fara yfir tólf stig.
Þetta veldur því að ekki er fátítt
að gamalt og lasburða fólk
beinlínis deyi úr kulda. Gamalt
fólk virðist yfirleitt verða einkar
hart úti þarlendis. Þar sem það er
ekki lengur nýtilegur vinnukraft-
ur þykir ekki upp á það púkk-
andi, þannig að þó að það veikist
taka sjúkrahúsin ekki á móti því.
Tilgangur Ceausescus með því
að umhverfa sveitum landsins í
smáborgir, sem jafnframt séu
nsafyrirtæki er stundi landbúnað
og iðnað jöfnum höndum, er
væntanlega sá að auka fram-
leiðslu og jafnframt að gera hvert
þessara fyrirhuguðu samfélaga
fyrir sig, og þar af leiðandi landið
í heild, sem óháðast efnahags-
lega. En einnig liggur á bak við
þetta fyrirætlun um að útrýma
sérkennum landshluta og héraða
og gera landsmenn að einni sam-
anþjappaðri einingu, þar sem
einstaklingshyggju gæti sem
minnst og að hollusta þegnanna
tengist ríkinu og Conducator ein-
um.
Miðað við það sem vitað er um
hugarfar sveitamanna yfirleitt er
ólíklegt að rúmenskt bændafólk
hlakki mikið til þessarar nýskip-
anar Ceausescus og má vera að
hún mæti harðri mótspyrnu með
ófyrirsjáanlegum afleiðingum.
Óánægjan innanlands er þegar
áberandi og kemur fram í því að
fjöldi fólks gerir allt sem það get-
ur til að komast úr landi. Margir
flýja austur yfir Prut til Sovétríkj-
anna. Þeir eiga von á sæmilegum
viðtökum í Sovét-Moldavíu, þar
sem einnig búa Rúmenar, og
glasnost og perestrojka Gorbat-
sjovs hafa vakið með mönnum,
utan Sovétríkjanna sem innan,
von um betri tíð með blóm í haga
þarlendis.
Þjóðernisminni-
hlutar í hættu
Téð fyrirhuguð bylting Ce-
ausescus hefur til þessa einkum
vakið athygli erlendis vegna
deilna, sem af henni hafa sprottið
milli Rúmena og Ungverja. Milli
þeirra hafa lengi verið litlir kær-
leikar, og er þá vægt að orði kom-
ist, ekki síst út af Transsyivaníu,
landshluta sem í aldaraðir heyrði
til Ungverjalandi en var lagður
undir Rúmeníu eftir heimsstyrj-
öldina fyrri. Þar er fjölmennur
ungverskur þjóðernisminnihluti,
um tvær miljónir talsins, og hafa
ungverskir ráðamenn haldið því
fram, að með nýskipan sinni
hyggist Ceausescu gera að engu
möguleika ungverska minnihlut-
ans til að viðhalda tungu sinni og
menningu. Líklegt er að svo fari,
ef Ceausescu kemur fram vilja
sínum í þessu efni, því að höfuð-
vígi menningar ungverska þjóð-
ernisminnihlutans eru einmitt
sveitaþorpin, sem nú á að jafna
við jörðu.
í Transsylvaníu býr einnig
þýskur þjóðernisminnihluti, sem
og í Banat, landshluta vestur af
Transsylvaníu. Forfeður flestra
þessara Rúmeníu-Þjóðverja
tluttu þangað frá héruðum við
Rín og Mosel fyrir um 800 árum.
Þessi þjóðernisminnihluti skrapp
þegar mjög saman í lok
heimsstyrjaldarinnar síðari, en
mikill hluti hans neyddist til að
flýja land til Þýskalands og
Austurríkis. Einnig þetta fólk, nú
um 230.000 talsins, viðheldur
tungu sinni og menningu einkum
í sveitaþorpum og því er sams-
konar hætta búin af fyrirhugaðri
nýskipan Ceausescus og ung-
verska minnihlutanum. Þetta
hefur hinsvegar ekki valdið il-
lindum milli Rúmeníu og þýsku
ríkjanna. Fjöldi Rúmeníu-
Þjóðverja vill feginn komast í
betri lífskjör erlendis, og síðustu
tíu árin hafa um 120.000 þeirra
flust til Vestur-Þýskalands.
Fólksflutningar þessir halda
áfram og greiða Vestur-
Þjóðverjar fyrir þeim með því að
borga Rúmenum um 8000 vestur-
mörk á hvern mann, sem fær veg-
abréfsáritun til að flytja úr landi
hjá yfirvöldum. Transsylvaníu-
Þjóðverjar eru velkomnir til
Vestur-Þýskalands, þar sem þeir
eru iðnir og starfssamir eins og
best gerist um Þjóðverja og þar
að auki að jafnaði barnmargir.
Það er ekki lítið atriði í Vestur-
Þýskalandi, þar sem lág fæðing-
artala og lækkandi fjöldi ungs
fólks í hlutfalli við aðra þegna er
orðið mikið vandamál.
Að Ceausescu hætti að ein-
hverju leyti við téðar fyrirætlanir
af tillitssemi við menningarverð-
mæti er ólíklegt. Hann hefur þeg-
ar látið ryðja að miklu leyti á
brott miðborg Búkarest, þar á
meðal mörgum gömlum og fal-
legum byggingum, til að fá þar
rúm fyrir tröllaukna forsetahöll
og fleiri stórbyggingar sér til
dýrðar. Til þess að styrkja að-
stöðu sína hefur hann komið í
gang slíkri persónudýrkun á sjálf-
um sér, að í því efni slagar hann
hátt upp í Kim II Sung í Norður-
Kóreu. í fjölmiðlum landsins,
sem auðvitað lúta vilja hans í einu
og öllu, er hann hafinn til skýj-
anna sem „fremsti hugsuður ver-
aldar“, „snillingur allra snillinga"
og leiðtogi sem að mikilleik sé
ekki minni en Júlíus Sesar, Alex-
ander mikli, Períkles, Cromwell,
Napóleon niikli og Abraham
Lincoln samanlagðir.
Utan Rúmeníu hefur ýmislegt
komið til álita um það, sem hægt
sé að gera til að stöðva fýrirhug-
aða nýskipan Ceausescus eða
draga eitthvað úr henni. Efna-
hagslegar þvinganir myndu duga
skammt til þess, sökum þess hve
óháð Rúmenía er orðin á þeim
vettvangi. Það er þá helst að So-
vétmenn gætu eitthvað gert í því
efni, því að Rúmenar eru nokkuð
upp á olíu frá þeim komnir. í
vestrænum blöðum hafa meira að
segja sést hvatningar í garð Gor-
batsjovs að beita olíuvopninu
gegn Ceausescu. Hefði það ein-
hverntíma þótt saga til næsta
bæjar, að af vestrænni hálfu
kæmu fram hvatningar til Sovét-
manna um íhlutanir í Austur-
Evrópuríki. En ólíklegt er að
Gorbatsjov vilji blanda sér í
þetta; hann hefur nóg af vanda-
málum á sinni könnu fyrir. Ein-
dregin og fjölrödduð mótmæli er-
lendis frá gætu hugsanlega ein-
hverju áorkað í þessu efni; hé-
gómagjarn valdhafi eins og Ce-
ausescu, sem vill vera í miklu áliti
utan lands sem innan, gæti verið
viðkvæmur fyrir þeim. dþ.
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 22. september 1988