Þjóðviljinn - 28.09.1988, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 28.09.1988, Blaðsíða 13
ERLENDAR FRETTIR Shevardnadze á AUsherjarþingi Feigðarfé til umhverfisvemdar Sovéski utanríkisráðherrann kveður mannkyni stafa jafn mikilhœtta af umhverfisspjöllum og kjarnorkuvopnum sáttmálinn um borgarastríðið í Afganistan hefði verið þverbrot- inn, æskilegt væri að fastafulltrú- ar í Öryggisráði Sameinuðu þjóð- anna funduðu urn það mál. Utanríkisráðherrann sagði æskilegt að vegur Sameinuðu þjóðanna og Öryggisráðsins yk- ist, einkum væri brýnt að ráðs- menn hittust reglulega til þess að ræða um ólgu- og átakasvæði í heiminum. Ennfremurættu utan- ríkisráðherrar aðildarríkja Ör- yggisráðsins að funda sem oftast og einnig væri hugsanlegt að fundir fastafulltrúa færu víðar fram en í aðalstöðvum Samein- uðu þjóðanna í New York, t.a.m. í höfuðborgunum, Washington, Moskvu, Peking, París og Lund- únum. Sovéskir ráðamenn eru þeirrar skoðunar að mcngun og um- hverfisspjöll ógni mannkyni í sem næst sama mæli og kjarnorku- vopn. Því heita þeir á bandaríska kollega sína að Ieggja ýms vígbún- aðaráform sín fyrir róða og verja fénu sem aflögu verður í allavega verkefni á sviði umhverfisvernd- ar. Eduard Shevardnadze, utan- ríkisráðherra Sovétríkjanna, ávarpaði Allsherjarþing Samein- uðu þjóðanna í gær og vakti ræða hans óskipta athygli, einkum og sérílagi það sem að ofan var rak- ið. „Við þörfnumst fjár til þess að bjarga jörðinni en ekki til þess að eyða henni,“ sagði Shevardna- dze. „Hið hefðbundna viðhorf að öryggi sé best tryggt með her- vörnum hefur gengið sér til húðar og verður að taka til endurskoð- unar tafarlaust. Þegar við horfumst í augu við tortímingu lífríkisins hljóta hug- myndafræðileg skilrúm að hrynja. Lífhvolfið skiptist ekki í hernaðarblakkir, ríkjabandalög ellegar hugmyndakerfi. Hér sitja allir við sama borð, hyggist ein- hverjir fara eigin leiðir í barátt- unni gegn þessari vá þá veður hann í villu og svíma.“ Shevardnadze kvað óraunhæft að krefjast gjörbreytinga á efna- hagskerfi ríkja heims áður en haf- ist yrði handa um öfluga gagn- sókn í umhverfismálum. „Það er Rányrkja og umhverfisspjöll stefna lífi á jarðríki í tvísýnu. Allir sitja við sama borð. miklu skynsamlegra að fara leið sem við viljum fara í samvinnu við Bandaríkjamenn og fleiri þjóðir. Hún er sú að leggja fjöl- margar rándýrar hernaðarfram- kvæmdir fyrir róða og láta féð sem aflögu verður renna í sjóð sem alþjóðleg umhverfisverndar- stofnun fengi til umráða í því augnamiði að tryggja öryggi líf- ríkisins." Shevardnadze dró upp afar svarta mynd af ástandi umhverf- ismála heims um ból og kvað mannkyni stafa slík hætta af mengun, rányrkju og alls kyns náttúruspjöllum að aðeins kjarn- orkuváin væri sambærileg. Ljóst væri orðið að skortur á öllu skipu- lagi og eftirliti með svonefndu „friðsamlegu athæfi" mannanna hefði leitt til „allsherjar stórsókn- ar á hendur grundavallar lífsskil- yrðum um allan heim.“ Shevardnadze kom víðar við í ræðu sinni. Hann kvaðst hafa áhyggjur af því að Genfar- ísrael Slösum þá til hlýðni! Yitzhak Rabín hyggstslasa semflesta mótmœlendur á herteknu svœð- unum þar eð það sé eina ráðið til að kveða niður uppreisnina Yitzhak Rabín, varnarmála- ráðherra ísraels, sagði að það væri yfirlýst stefna hernámsyfir- valda að skjóta og slasa sem flesta palestínska uppreisnarmenn á herteknu svæðunum. Það væri eina ráðið sem dugað gæti til þess að kveða þá í kútinn og eyða andófi. Tveir Palestínumenn létust í gær af völdum áverka sem þeir hlutu þegar ísraelskir hermenn skutu þá með plastkúlum. Að minnsta kosti 30 særðust illa. í fyrradag féllu þrír Palestínumenn og urðu plastkúlur þeim einnig að fjörtjóni. Einsog greint var frá í fréttum í gær hafa starfsmenn Sameinuðu þjóðanna á herteknu svæðunum gagnrýnt ísraelsstjórn harðlega fyrir aukna notkun skotvopna í skiptum við mótmælendur, eink- um sé sláandi hve mörg fórnar- lamba séu á barnsaldri. Fyrir nokkru skiptu ísraels- menn um byssukúlur, hættu að nota kúlur sem steyptar eru úr blýi en fóru þess í stað að nota plastkúlur. Þær eru banvænar sé þeim skotið á menn af 70 metra færi eða skemmri vegalengd. Auk þessa heimilaði ofannefndur Rabín dátum sínum að skjóta oft- ar en fyrr. Varnarmálaráðherrann varði hendur sínar á fréttamannafundi í gær: „í sérhverri átakahrinu særast fleiri en áður. Markmið okkar er að slasa sem flesta þátt- takendur í ofbeldisaðgerðum en ekki að drepa þá.“ Rabín vísaði gagnrýni starfs- manna Sameinuðu þjóðanna á bug. „Því fer fjarri að ég hafi áhyggjur af því að æ fleiri menn slasist, svo fremi þeir hafi sann- anlega tekið þátt í ofbeldisað- gerðum.“ Reuter/-ks. Rabín: Því fleiri sem særast þeim mun betra. Júgóslavía Króatar skamma Serba Ráðamönnum í Króatíu blöskrar ábyrgðarleysi serbneskra félaga sinna Ráðamcnn í Króatíu, öðru stærsta sambandslýðveldi Júgó- slavíu, veittust í gær harkalega að kollegum sínum í Serbíu og báru þeim ábyrgðarleysi á brýn, þeir hvettu til ofbeldisfullra mótmæla og ykju togstreitu á milli þjóð- erna. Ásakanir þessar gerðu helstu fjölmiðlar Króatíu heyrinkunnar í gærmorgun. Þær sigla í kjölfar mikillar ólgu sem verið hefur að undanförnu í Serbíu og Kosovo en Serbar og Svartfellingar kvarta sáran undan ofríki Albana í síðartalda lýðveldinu, sbr. frétt- askýringu. í fyrradag sagði Franc nokkur Setinc sig úr stjórnmála- ráði kommúnistaflokksins eftir að hafa hundskammað forystu- menn í Serbíu fyrir að hella olíu á eld þjóðadeilna og grafa undan sambandsríkinu. „Það er ljóst að lýðræðið hefur í vissum tilfellum leitt til stjórn- leysis," hermdi leiðarahöfundur fréttaritsins Danas. „Fjöldinn rís upp og sér hann er voldugur og sterkur en býsna margir virðast óska eftir blóðsúthellingum og aftökum án dóms og laga.“ Hundruð þúsunda manna gengu um götur og stræti serb- neskra borga um helgina. Kröfðust þeir þess að herinn skakkaði leikinn í Kosovo og að þeir forystumanna albanska þjóðarbrotsins sem gerst hefðu sekir um þjóðrembu yrðu látnir sæta ábyrgð gjörða sinna, reknir úr embætti, handteknir og, sumir hverjir, skotnir. Leiðtogar Serba hafa leikið tveim skj öldum í þessu deilumáli, hvatt fólk til þess að hafa í frammi mótmæli með lýðræðislegum hætti en latt það til annarra stór- ræða, svo sem þeirra að grípa til vopna. Það kann hinsvegar að vera hægara sagt en gjört að hemja öfgamenn úr röðum Serba þegar einu sinni er búið að espa þá upp. Danas: „Það er ekki til of mikils mælst að ráðamenn bindi endi á þetta brjálæði, þessa hol- skeflu þjóðrembu og stjórnleysis sem kölluð er lýðræði." Reuter/-ks. Miðvikudagur 28. september 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13 Reuter/-ks. simi 686511, 656400 HAKK Á ÚTSÖLU Nautahakk á 399 kr. kg ef keypt eru 5 kíló eöa meira Kindahakk á 199 kr. kg ef keypt eru 5 kíló eða meira TIL HAGSÝNNA Naut í heilu og hálfu 395,- kr. kg - frágengið Svín í hálfu og heilu 383,- kr. kg - frágengið mv Laugalæk 2, simi 686511, 656400

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.