Þjóðviljinn - 27.10.1988, Qupperneq 3
FRETTIR
Ferðaskrifstofa íslands
Var farið í kringum lögin?
Forsendaþess að sala á Ferðaskrifstofu ríkisins til starfsmanna var heimiluð, var að starfsmenn œttu meirihluta hluta-
bréfa. Þeir hyggjast nú seljaþriðjung hlutabréfa til Eimskipafélags íslands og eigasjálfir um25%. Samkomulagum
að Eimskip keypti hlutabréfin áðuren starfsmenn ákváðu að taka tilboði ríkisins
Eg vil ekki láta hafa annað eftir
mér um þetta mái en að ég
staðfesti að það hefur verið tii
skoðunar hjá samgönguráðun-
eytinu um hrið. Það þýðir að við
höfum kannski ákveðnar efa-
semdir um að ailt hafi farið fram í
þessu máii með réttum hætti,
sagði Steingrímur J. Sigfússon,
samgönguráðherra þegar Þjóð-
viljinn ieitaði staðfestingar á
hvort kaup starfsmanna á Ferða-
skrifstofu rikisins, sem nú heitir
Ferðaskrifstofa ísiands hafi verið
til rannsóknar hjá ráðuneytinu.
Samkvæmt heimildum Þjóðvilj-
ans snýst málið um það hvort það
geti talist eðlilegt að þeir starfs-
menn Ferðaskrifstofu ríkisins
sem fengu forkaupsrétt á kaupum
á 2/3 hlutum hlutabréfa í fyrir-
Sjónvarpshandrit
Vigdís
afhendir
verðlaun
Forseti íslands, Vigdís Finn-
bogadóttir, mun afhenda verð-
iaun í fyrstu Genfar-Evrópu sam-
keppninni um sjónvarpshandrit
(Geneva-Europe Grand Prizes
for Television Writing), þann 14.
nóvember næstkomandi. Tvenn
verðlaun verða veitt, og eru
fyrstu verðiaun 30.000
svissneskir frankar og önnur
verðlaun 20.000.
Níu manna alþjóðleg dóm-
nefnd sem Vigdís veitir forstöðu
mun velja vinningshandritin tvö
úr tíu handritum dagana 11. og
12. nóvember, en sama dóm-
nefnd verðlaunaði handritshug-
myndir höfundanna tíu í nóvem-
ber á síðasta ári. Voru verðlaunin
25.000 frankar, auk þjálfunar-
tímabils hjá þeirri sjónvarpsstöð
sem sendi hugmyndir þeirra inn
til samkeppninnar.
Þátttakendur í samkeppninni,
siö konur og þrír karlar, eru frá
Ástralíu, Þýskalandi, Finnlandi,
Grikklandi, íslandi, Niður-
löndum, Noregi, Svíþjóð og
Sviss. Fyrstu verðlaunin verða í
ár kennd við Vittori Boni, sem til
dauðadags var aðalritari Evr-
ópska kvikmynda- og sjónvarps-
ársins 1988 (ECTIVY ‘88), en
samkeppnin er haldin innan
ramma þess. Af því tilefni mun
Simone Veil, formaður ECTI-
VY, vera viðstödd verðlauna-
veitinguna. LG
Hallgrímskirkja
Hátíðar-
guðsþjónusta
Að venju verður hátíðarguðs-
þjónusta í Hallgrímskirkju í
kvöld, 27. október sem er dánar-
dægur séra Hallgríms Péturs-
sonar.
Við guðsþjónustuna predikar
séra Sigurður Pálsson, en séra
Ragnar Fjalar Lárusson mun
þjóna fyrir altari. Norski óbó-
leikarinn Brynjar Hoff leikur á
hljóðfæri sitt við undirleik Ann
Toril Lindstad orgelleikara.
tækinu samkvæmnt lögum frá Al-
þingi, standi nú í sölu hluta þeirra
bréfa til Eimskipafélags íslands.
í nefndaráliti samgöngunefnd-
ar Alþingis frá 28. apríl 1988
kemur fram að nefndin hafi ráð-
fært sig við nokkra lykilaðila í
ferðamálum og þeirra á meðal
Kjartan Lárusson, þáverandi for-
stjóra Ferðaskrifstofu ríkisins og
núverandi forstjóra Ferðaskrif-
stofu íslands um það hvaða skiln-
ing beri að leggja í ákvæði 1. gr.
frumvarps um sölu á Ferðaskrif-
stofu ríkisins. Niðurstaða sam-
göngunefndar varð sú að „nefnd-
in lítur svo á að frumvarpið miði
að því að eignarráð meiri hluta í
hinu nýja hlutafélagi, Ferðaskrif-
stofu Islands hf. flytjist til starfs-
manna. Heimildarákvæði frum-
varpsins verði því að eins beitt að
samkomulag náist við starfsmenn
um kaup á hlutafénu." Það var
m.ö.o. forsenda þess að Ferða-
skrifstofa ríkisins yrði á annað
borð seld, að starfsmenn ættu þar
meirihluta hlutabréfa.
Eftir því sem heimildir Þjóð-
viljans herma, er ráðuneytið að
athuga tvo hluti; annars vegar
hvort yfirstandandi kaup
Eimskips á hlutabréfum breyti
meirihlutaeign starfsmanna í
minnihlutaeign og í öðru lagi
hvort það geti hugsast að starfs-
menn eða ákveðnir forsvarsmenn
þeirra og Eimskip hafi gert með
sér samkomulag, með það fyrir
augum að Eimskip kæmi inn sem
eignaraðili, jafnvel áður en
starfsmenn voru orðnir formlegir
eigendur. Kaup starfsmanna hafi
því raun verið til málamynda, en
tryggt hafi verið að Eimskip næði
að eignast hlut í ferðaskrifstof-
unni, sem ekki var ætlunin með
lagasetningunni. Eimskip sem
m.a. er stór eignaraðili í Úrvali
hefur mikla hagsmuni á ferða-
mannamarkaðnum.
„Ég hafði samband við Eim-
skip eftir að það er búið að á-
kveða það að ganga frá kaupun-
um af hendi starfsfólksins og
ráðuneytið ætlar að selja okkur
þennan hlut. Ástæðan er fyrst og
fremst sú, að því miður árar ekki
það vel í rekstri í dag, að við töld-
um það æskilegt að leita mjög
fljótlega eftir stöndugum aðila
sem gæti veitt okkur brautar-
gengi, við gætum haft not af slík-
Svartsengi
Aukin rafoikuframleiðsla
Ingólfur Aðalsteinsson: Hagkvœmtað nýta orkuna til
raforkuframleiðslu. Raforkuframleiðsla í Svartsengi aukin á nœsta ári
um nærri helming
Það hefur verið ákveðið að
nýta þá óbeisluðu gufu sem er
til staðar í Svartsengi til fram-
leiðslu á rafmagni. Við framleið-
um nú þegar 6 MW en ætlum að
auka þessa framleiðslu um 3,6
MW, sagði Ingólfur Aðalsteins-
son forstjóri Hitaveitu Suður-
nesja.
Hitaveitan hefur gengið frá
samningum um kaup á vélum frá
ísrael, en þær munu vera væntan-
legar til landsins í febrúar á næsta
ári. Þegar er hafin bygging stöðv-
arhúss í Svartsengi og er gert ráð
fyrir að framkvæmdum ljúki á
miðju næsta ári.
- Við teljum að það sé mjög
hagkvæmt að ráðast í þessar
framkvæmdir. Þessi gufa er
þarna til staðar og sjálfsagt að
nýta hana. Áætlaður kostnaður
er u.þ.b. 200 miljónir króna,
sagði Ingólfur.
Þegar þessum framkvæmdum
verður lokið mun Svartsengi
sinna um 40-50% af raforkuþörf
á Suðurnesjum. Ekki sagði Ing-
ólfur það raunhæfan kost að auka
enn frekar á raforkuframleiðslu í
Svartsengi.
Samfara aukinni raforkufram-
leiðslu í Svartsengi hefur verið
ákveðið að byggja nýja há-
spennuiínu þaðan að Njarðvík-
um, en það er gert til að styrkja
Staða ríkissjóðs
Óskað skýrslu
ríkisendurskoðunar
gyj atthías Á. Mathiesen þing-
maður Sjálfstæðisflokksins
hefur óskað eftir því að forseti
Alþingis feli Ríkisendurskoðun
að gera skýrslu um stöðu A-hluta
ríkissjóðs þann 30. september. I
skýrslunni verði alþingismönnum
. m.a. gerð grein fyrir hvaða tekju-
stofnar það eru sem valdið hafi
minni tekjum en fjárlög fyrir árið
1988 gerðu ráð fyrir.
Matthías vill einnig að í skýrsl-
unni verði gerð grein fyrir því
um aðila í beinni samvinnu og
hægt væri að nýta þá stjórnunar-
legu og viðskiptareynslu sem til
væri á þeim bæ,“ sagði Kjartan
Lárusson, forstjóri Ferðaskrif-
stofu íslands í samtali við Þjóð-
viljann í gær. Um það hversu
stóran hlut Eimskip ætlaði að
kaupa af þeim, sagði Kjartan að í
þessum töluðum orðum hefðu
engin kaup átt sér stað, svo ekki
væri hægt að ræða það.
Hörður Sigurgestsson, for-
stjóri Eimskips sagði hins vegar í
samtali við Þjóðviljann að það
hefði verði rætt um að Eimskip
eignuðust endanlega einn þriðja
hluta hlutabréfanna í Ferðaskrif-
stofu íslands. „Ef það yrði þá á
ríkið áfram einn þriðja hluta og
starfsmenn kannski 25-27% og
aðrir aðilar afganginn.“ Sagði
Hörður að Eimskipafélagsmenn
hafi sagt starfsmönnum Ferða-
skrifstofu ríkisins áður en þeir á-
kváðu að taka tilboði ríkisins,
„ að Eimskip mundi styðja við
bakið á þeim.“ „Þeir leituðu til
okkar og við tókum þessa
ákvörðun," sagði Hörður. Að-
spurður um hvort hann teldi að
þetta samkomulag um hluta-
bréfasölu starfsmanna til Eimskip
gæti hugsanlega gengið í berhögg
við vilja samgöngunefndar, sagð-
ist Hörður ekki hafa kynnt sér
það álit. „Ef að ég veit rétt, þá
voru hlutabréfin boðin starfsfólk-
inu til kaups án nokkurra skil-
yrða, ég veit ekki annað,“ sagði
Hörður Sigurgestsson. -phh
dreifikerfið sem komið er til ára
sinna, að sögn Ingólfs. Áætlaður
kostnaður við það verk er 40 milj-
ónir króna.
-sg-
hvaða útgjaldaliðir hafi hækkað
hjá ríkissjóði á árinu, yfirlit birt
um samþykktar aukafjárveiting-
ar og yfir starfsmannahald hjá
ráðuneytum og ríkisstofnunum
fram til 30. september samanbor-
ið við síðasta ár. Þingmaðurinn
óskar ennfrentur eftir því að
ríkisendurskoðun meti áhrif
efnahagsaðgerða núverandi
ríkisstjórnar á afkomu ríkissjóðs
á þessu ári.
-hmp
Fimmtudagur 27. október 1988 ÞJÓQVILJINN - SÍÐA 3
Bókaklúbbur
áskrifenda
Þjóðvilþns
Tilboð vikuna 25.10. -1.11
Að lokum
Síöustu Ijóð Ólafs Jóhanns Sig-
urössonar.
Myndir eftir Jón Reykdal.
Útgefandi Mál og menning.
Verft kr. 1.850.-
(Verð út úr búð
kr. 2.175.-)
Þjjóðviljinn
sími: 681333