Þjóðviljinn - 29.10.1988, Qupperneq 1
Laugardagur 29. október 236. tölublað 53. árgangur
Hvaladeilan
Hvalavinir reyna milligöngu
Hvalavitiir leggjafram„málamiðlun“frá Grœnfriðungum áfundi meðforsœtisráðherra
Fulltrúar íslenska hvalavinaf-
élagsins hafa átt tvo fundi með
Steingrími Hermannssyni forsæt-
fsráðherra í vikunni og kynnt
fyrir honum það sem þeir telj
vera málamiðlunarlausn sem
Grænfriðungar geti sæst á í hval-
veiðideilunni,.
Málamiðlunin gengur út á að
íslendingar lýsi yfir framhaldi
hvalarannsókna en jafnframt að
ekki verði veidd nein dýr næsta
sumar, þar sem búið sé að taka
nægilega mikið af sýnum.
„Við hjá Hvalavinafélaginu
erum þeirrar skoðunar að íslend-
ingar geti enn bakkað úr þessu
máli með fullri reisn. Það er eng-
in þörf á því að við látum niður-
lægja okkur,“ sagði Magnús
Skarphéðinsson, einn hvalavina,
við Þjóðviljann í gær.
Hann sagði að hvalavinir hefðu
kynnt fyrir forsætisráðherra drög
að mögulegri málamiðlun, sem
gengur út á það að íslendingar
lýsi því yfir að þeir muni ekki
veiða neina hvali næsta sumar og
eftir að friðunartímanum lyki
myndu íslendingar fara að sam-
þykktum Alþjóða hvalveiðiráðs-
ins. ,
Að sögn Magnúsar eru Græn-
friðungar í Evrópu sáttir við
þessa niðurstöðu en Grænfrið-
ungar í Bandaríkjunum munu ef-
ins um ágæti hennar, enda er
stigsmunur á afstöðu þessara
hópa. Bandaríkjamennirnir eru
alfarið á móti því að hvalir séu
drepnir en Evrópu-
Grænfriðungarnir viija friða þá
hvali sem eru í útrýmingarhættu
og hafa ekki náð eðlilegri stofns-
tærð. Eini hvalurinn sem er yfir
eðlilegri stofnstærð hér við land
er hrefnan, að sögn Magnúsar.
„Steingrímur tók mjög vel í
málflutning okkar. Hann sagðist
ekki geta svarað þessu að svo
stöddu, en þetta væri athyglis-
verð lausn á rnálinu."
Að sögn Magnúsar eru ýmis
fyrirtæki og verslunarkeðjur
beggja vegna Atlantshafsins í
viðbragðsstöðu vegna málsins og
ef ekki verður snúið af þeirri
braut sem við erum nú á ntunu
fleiri samningar fara í vaskinn.
Einn þeirra verslunarhringa sem
hér um ræðir er Burger King, sem
hefur mikil viðskipti við Cold-
water Seafood.
-Sáf
Herínn
Veður um án leyfa
Bœndur kvarta undan ágangi hermanna undir
Eyjafjöllum. 65 hermenn á vappiþar um
síðustu helgi
sonar sýslumanns á Hvolsvelli
voru teknar skýrslur vegna ferða
hermannanna í kjölfar aðfinnslna
frá bændum og hefur kvörtun
þess efnis verið send Varnar-
málaskrifstofu utanríkisráðu-
neytisins. „Þetta er auðvitað ekki
eins og það á að vera og við vilj-
um ekki þessa mengun í umhverf-
ið hér,“ sagði Friðjón Guð-
röðarsson sýslumaður í Rangár-
vallasýslu.
Samkvæmt upplýsingum frá
blaðafulltrúa hersins á Keflavík-
urflugvelli Friðþóri Eydal hefur
hingað til ekki verið þörf á
leyfum fyrir ferðalögum her-
manna í alfaraleið.
Ekki náðist í Þorstein Ingólfs-
son forstöðumann Varnamála-
deildar utanríkisráðuneytisins.
-grh
„Okkur fannst rétt að láta
sýslumann vita af þessum hópi
bandarískra hermanna sem vals-
aði hér um í felubúningum um
síðustu helgi án nokkurs leyfis né
að þeir gerðu grein fyrir ferðum
sínum,“ sagði Ingimundur Vil-
hjálmsson bóndi að Ytri
Skógum.
Svo virðist sem bandarískir
hermenn séu farnir að færa sig
uppá skaftið í samskiptum sínum
við landsmenn hvort sem um er
að ræða æfingar með skotvopn-
um úr þyrlum við Grindavík eða í
fjallaferðum austur undir Eyja-
fjöllum. Um síðustu helgi voru 65
hermenn í felulitum í fjallgöngu
og skíðaferð fyrir ofan Skóga án
nokkurs leyfis né að heima-
mönnum væri gert viðvart hvers
kyns var.
Að sögn Friðjóns Guðröðar-
Vel var tekið á móti íþróttafólkinu þegar það kom til landsins í gærmorgun. Þeim var einnig veittur styrkur
upp á 10 miljónir til byggingar íþróttahúss.
Blótmenn og
dýravinir deila
Með rómansk-ameríska inn-
flytjendastraumnum til Banda-
ríkjanna berast margvíslegir
siðir, sem sumir að minnsta kosti
eru nýstárlegir í augum lands-
manna. Þar á meðal má nefna
trúarbrögð, öðrum þræði afrísk
að uppruna. í grein á síðu 11 er
fjallað um Santeria, sem upphaf-
lega mun hafa verið kúbanskt af-
brigði af Voodoo. Santeriamenn
fórna dýrum sér til heilla en það
líkar bandarískum yfirvöldum og
dýravinum miður.
FatlaÖir
Afreksfólkið komið heim
Tœpar 6 miljónir hafa safnastfyrir íþróttahúsi
íslenski hópurinn sem tók þátt
í heimsleikum fatlaðra í Seoul
kom til landsins í gærmorgun og
var þeim fagnað vel og innilega
við komuna. Jóhanna Sigurðar-
dóttir, félagsmálaráðherra, og
Guðrún Ágústsdóttir, aðstoðar-
maður menntamálaráðherra,
tóku á móti hópnum sem vann
eftirminnilega til glæstra sigra á
leikunum.
íslendingar unnu til ellefu
verðlauna á þessum heimsleikum
fatlaðra, tvenn gull, tvenn silfur
ogsjöbrons. Þar afhlutu Haukur
Gunnarsson og Lilja M. Snorra-
dóttir þrenn verðlaun hvor en
þau skiptu bróðurlega með sér
tveimur gullverðlaunum og fjór-
um bronsverðlaunum. Þetta er
einstaklega glæsilegur árangur
hjá íþróttafólkinu og vekur von-
andi áhuga almennings á íþrótt-
um fatlaðra.
Nú stendur yfir söfnun til
styrktar byggingu íþróttahúss
fyrir fatlaða, en bygging hússins
hefur legið niðri í nokkur ár eins
og Þjóðviljinn greindi frá í vik-
unni. Hægt er að gefa fé til söfn-
unarinnar í gíró 32000-5 ellegar
með þvt að lyfta símtóli og
hringja í 687123 (Rás 2). Á eftir-
miðdegi gærdagsins höfðu þegar
safnast tæpar 6 miljónir króna og
má því búast við að söfnunarféð
verði talsvert hærra en sú tala.
Núverandi ríkisstjórn leggur
einnig sitt af mörkunum til að
íþróttahúsið geti risið en við
komuna í morgun var íþrótta-
fólkinu afhentar 10 miljónir
króna í bygginguna. Það er því
greinilegt að vel er tekið eftir
íþróttafólki fatlaðra eftir frammi-
stöðu þess á heimsleikunum.
-þóm
Ritstjórn
Óttar hættir
Óttar Proppé hefur tilkynnt að
hann óski eftir að láta af störfum
sem ritstjóri Þjóðviljans en því
starfi hefur hann gegnt frá 1. des-
ember í fyrra, en hafði áður verið
ritstjórnarfulltrúi um skeið.
Stjórn Þjóðviljans kemur sam-
an til fundar á mánudag þar sem
meðal annars verður fjallað um
ritstjórnarskipan á Þjóðviljan-
um.