Þjóðviljinn - 29.10.1988, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 29.10.1988, Blaðsíða 13
ERLENDAR FRÉTTIR Valdsherrarnir óttuðust að þetta endurtæki sig. 10 þúsund manns minnast og mótmæla tvítugri innrás herja Varsjárbandalagsins í Tékkóslóvakíu þann 21. ágúst síðastliðinn. Tékkóslóvakía Kyifur og táragas á afmælinu Oeirðalögregla angistarfullra ráðamanna réðist í gær á fjöl- menni sem safnast hafði saman um miðbik Prag til þess að minn- ast sjötugrar Tékkóslóvakíu og krefjast frelsis. Talið er allt að 5.000 manns hafl sótt óheimilan fund á Wenceslas torgi. Hundruðum saman réðust ribbaldarnir inná torgið með kylfur á lofti og gasgrímur á ásjónum, börðu alk hvað fyrir varð, dældu vatni á fundarmenn úr háþrýstidælum og vörpuðu táragasssprengj um. Sumir árásarseggjanna voru í hversdagsklæðum og voru þeir ekki barnanna bestir, að sögn sjónarvotta, spörkuðu í fólkið og sneru uppá handleggi þess. Einu viðbrögð mótmælenda voru þau að segja ofbeldismönnum stjórnvalda að skammast sín. 20 fundarmenn voru teknir höndum og fluttir á brott. Heiftaræði valdhafa orsakast náttúrlega af því að til fundarins var efnt af nokkrum andófs- mannasamtökum, þar á meðal Carta-77, í trássi við bann þeirra. Kylfusveinarnir fóru að hópast saman á götum og strætum sem liggja að torginu í sama mund og fundurinn hófst en þeir lögðu ekki til atlögu fyrr en lýðurinn tók að kyrja þjóðsönginn. Það var kornið sem fyllti mælinn! Fyrr í gærdag höfðu skósveinar Husaks og Jakesar tekið hús á 60 andófsmönnum og tryggt þannig að þeir hefðust ekki að daglangt. Þeirra á meðal voru leikskáldið Vaclav Havel og þrír af forystu- mönnum stjórnarfjenda, þeir Petr Uhl, Vaclav Benda og Jiri Ruml. Árásin á andófsfólkið á Wenc- eslas torgi í gær er langalvarleg- asta ofbeldisatlaga ráðamanna á hendur alþýðu manna um langt árabil. Minnugir afar fjöl- mennrar mótmælagöngu í Prag þann 21. ágúst síðastliðin, þá minntust 10 þúsund manns innrásar Sovétmanna fyrir tveim tugum ára, hugðust valdherrarnir nú hafa vaðið fyrir neðan sig og lögðu blátt bann við hverskyns fundarhöldum og mannfögnúð- um í miðborginni. Dagblöð þeirra, útvarp og sjónvarp höm- ruðu á þessu en allt kom fyrir ekki. Það tók slagsmálaliðið aðeins eina klukkustund að ryðja torgið. En fundarmenn héldu mótmæl- um sínum áfram í nærliggjandi götum og öngstrætum, hrópuðu slagorð á borð við: „Við viljum frelsi“ og „Lengi lifi sannleikurinn." Ennfremur heyrðust tvö nöfn, Tomasar Mas- aryk sem varð fyrsti foTseti Tékk- óslóvakíu við stofnun hennar þann 28. október árið 1918 og Al- exanders Dubceks sem var leið- togi flokks og ríkis á tímum „vor- sins í Prag“. Fjölmargir þeirra sem urðu fyrir barðinu á ofríkismönnunum í gær voru aldnir að árum. Frétta- maður Reuters varð vitni að því að kylfusveinn vék sér að roskn- um manni sem hann taldi trufla umferð og hratt honum til hliðar. Bálreiður öldungurinn hreytti út úr sér: „í hverskonar ríki búum við eiginlega?" Reuter/-ks. Moskva: Mótatkvæði í æðstaráði N okkrir fulltrúa í æðstaráði (það er að segja þingi) Sovét- ríkjanna mörkuðu tímamót í sögu þess í gær með því að greiða at- kvæði gegn tveimur frumvörp- um, er lögð höfðu verið fyrir ráðið eftir að hafa verið sam- þykkt af forsætisnefndinni, helstu valdastofnun Sovétríkjanna. Æðstaráðið kemur saman tvisvar á ári og situr aðeins nokkra daga í senn. Hingað til hefur verið van- inn að það hafi einróma sam- þykkt þau frumvörp, sem forsæt- isnefndin hefur mælt með. Bæði frumvörpin voru að vísu samþykkt með öllum þorra at- kvæða þeirra 1350 þingmanna, sem þennan fund sátu, en engu að síður þykja mótatkvæðin tíð- indum sæta. f öðru frumvarpinu er þeim, sem vilja stofna til mót- mæla á götum úti, gert að sækja um leyfi til þess fyrirfram hjá yfir- völdum og refsingar jafnframt hertar við mótmælum í leyfisleysi yfirvalda. Gegn þessu frumvarpi greiddu 13 ráðsfulltrúar atkvæði ogfjórirsáfúhjá. Meðhinufrum- varpinu er herliði sem heyrir undir innanríkisráðuneytið veitt aukið olnbogarými, meðal ann- ars fær það með samþykkt frum- varpsins leyfi til að fara inn í íbúð- ir og leita í þeim. Gegn þessu greiddi 31 ráðsmaður atkvæði og 26 sátu hjá. Frumvörpin, sem forsætis- nefndin samþykkti þegar 28. júlí s.l., hafa mætt vaxandi gagnrýni, einkum af hálfu lögfræðinga og baráttumanna fyrir mannrétt- indum. í fyrradag birti blaðið So- vétskaja Kúltúra ávarp frá sjö lögfræðingum, sem skoruðu á æðstaráðið að fella frumvörpin, þar eð þau væru ósamrýmanleg mannréttindaákvæðum stjórnar- skrár Sovétríkjanna. Reuter/-dþ. Pólland Engin þjóðarsátt Forystumenn Samstöðu sögðu í fyrradag að þeir hygðust ekki hefja viðræður við fulltrúa stjórnvalda nú um helgina og staðhæfðu að allar þreifingar fyrir sáttmálagjörð hefðu farið út um þúfur. Lech Walesa sagðist fullviss um að ráðamenn í kommúnista- flokknum hefðu misst allan áhuga á því að komast að ein- hvers konar samkomulagi við verkalýðshreyfinguna og bví hefðu engar ákvarðanir verið teknar um það hvenær áætlaðar „hringborðsumræður“ stjórnar- sinna og stjórnarandstæðinga hæfust. Walesa sagði ekki fara á milli mála að stjórnvöld hefðu söðlað um í afstöðu sinni til sáttagjörð- ar. Einsog menn rekur minni til bauð innanríkisráðherra Pól- lands, Czeslav Kiszczak, Walesa til viðræðna um mánaðamótin ágúst, september. Reuter/-ks. Utboð Loftræstikerfi fyrir Nesjavallavirkjun Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd Hitaveitu Reykjavíkur óskar eftir tilboðum í loft- ræstikerfi fyrir stöðvarhús Nesjavallavirkjunar. Verkið felst í smíði og uppsetningu á þremur loftræstikerfum, útvegun efnis og tækja ásamt prófun kerfanna á staðnum. Vettvangsskoðun á Nesjavöllum 15. nóvembr kl. 14. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri að Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík gegn kr. 15000 skila- tryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 29. nóvember kl. 11. INNK'AUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800 ÓTRÚLEGTen satt SKÓLAFÓLK - FYRIRTÆKI - STOFNANIR - EINSTAKLINGAR - HEIMILI I • * m rrassn | s *7jTí DÆMI 2: AMSTRAD PC 1640/20 MB hioasða sldár. Innbyggt EQA, HERCULES hhita og forrita. Stór M. handbók og 30% skaUN hjé Tölvufr»ðalunnl. OKTÓBERTILBOÐ 12^ ‘ ÓDÝRASTA AMSTRAD PC: 1 drif 14' DÆMI 3: AMSTRAD PPC S12 farðatölva/1 drif, iyklaborð, 5,4 kg. 0KTÓBERTILB0Ð: Kynntu þér AMSTRAD - Það er ekki að éstæðu- lausu að AMSTRAD PC-töh/ur eru mest seldu tölvur f Evrópu i ór. GREIÐSLUKJÖR VIÐ ALLRA HÆFI/ OBK) RAÐGRBÐSLUR Laugardagur 29. október 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13 LAUGAVEGI 116 V/HLEMM S.621122

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.