Þjóðviljinn - 29.10.1988, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 29.10.1988, Blaðsíða 16
—SPURNINGIM— Leggurðu eitthvað af 4 mörkum í fjársöfnunina fyrir íþróttahús fatlaðra? Steinar Karlsson strætisvagnastjóri: Ég hef nú ekki gert það ennþá, nei, en fyndist það vel við hæfi. Þetta er gott málefni. Jóna Kjartansdóttir verslunarmanneskja: Já, það hef ég þegar gert. Frammistaðan hjá hópnum sem fór á leikana í Seoul var frábær, og hann á skilið að fá stuðning. Jónína Gísladóttir nemi: Nei, það hef ég ekki gert og á ekki von á að gera það. ég veit ekkert um þessa söfnun. Guðmundur Pétursson Ijósmyndari: Ég hef nú ekki gert það ennþá, en er alveg tilbúinn til þess. ég er mjög svo sáttur við þetta söfnun- arframtak. Bryndís Kjartansdóttir Vane, býr erlendis: Ég styö málefnið af heilum hug, en að vísu er ég aðeins gestur hér á landi í nokkra daga og veit ekki mikið um þessa söfnun. SÍMI 681333 Á KVÖLDIN 681348 ÁLAUGARDÖGUM 681663 gegn lífríkinu Afturhvarf til náttúrunnar. Ekki bara blikkdósahlátur eins og í Ijóði Stefáns Harðar Grímssonar heldur heill blikkdósahaugur og margt fleira gott. Mynd: Jim Smart. Veggspjöld Hemaðurinn Umhverfisplaköt Klaus Staeck á sýningu hjá Landvernd í dag. Lista- maðurinn flytur erindi og útskýrir verk sín Landvernd gengst fyrir sér- stæðri sýningu í húsakynnum sín- um í dag, en þar hafa nú verið hengd upp um veggi plaköt þýska listamannsins Klaus Staeck, en inntakið í plakatagerð hans er beinskeytt þjóðfélagsádeila, ekki síst á sviði umhverfismála. Svanhildur Skaftadóttir, fram- kvæmdastjóri Landverndar, sagði að sýninguna hefði borið nokkuð brátt að; félagsmenn hefðu haft spurnir af því að lista- maðurinn yrði staddur hér á landi í fáeina daga, og því þótt við hæfi að drífa upp sýningu þó að fyrir- varinn hefði verið skammur. Sýn- ing þessi stendur aðeins yfir í dag og því eins gott fyrir lysthafendur að haska sér, en Landvernd eignast veggspjöldin að sýning- unni lokinni og verður þá hægt í framtíðinni að útbúa smærri sýn- ingar fyrir þá sem þess kunna að óska. Hlífðarlaus þjóðfélagsádeila einkennir plakatakúnst Klaus Staeck, og beinir hann sjónum sínum einkum að umhverfismál- unum og þeim hættum sem nátt- úru og umhverfi stafar af umsvif- um og framferði mannskepnunn- ar á jörðinni með tilheyrandi forpestandi neysluæði. Enda hafa verk hans vakið mikla at- hygli heimafyrir, og þá allt eins úlfúð og hrifningu. Listamaður- inn hefur meira að segja verið dreginn fyrir lög og dóm fyrir þessar afurðir sínar. Það vill nú reyndar þannig til að meðfram plakatagerðinni er hann lögfræð- ingur að mennt, og því ljóst að hann hefur einatt haft not fyrir þá tilteknu tegund af bókviti sem í náminu fólst. Sýningin er haldinn á skrifstofu Landverndar, en félagsskapurinn er til húsa að Skólavörðustíg 25. Þá skal áréttað, áhugafólki um umhverfisvernd og meðvitaða plakatagerð til glöggvunar, að listamaðurinn verður sjálfur á sýningunni milli klukkan tvö og fjögur í dag. HS

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.