Þjóðviljinn - 29.10.1988, Page 12
REYKJKMIKURBORG
St&diVl
Baðvörður
Óskast við piltaböð í íþróttahúsi Álftamýrarskóia
frá 1. desember n.k.
Nánari upplýsingar í síma 686588 milli kl. 8.00-
11.00 fyrir hádegi.
Leiklistarskóli íslands
óskar að ráða fulltrúa. Vinnutími 8:45 til 14:45.
Starfið felst í símavörslu, vélritun, skjalavistun,
stundaskrárgerð, reikningshaldi o.fl.
Upplýsingar í síma 19338 og 25020.
DAGVIST BARIMA
Forstöðumaður
Staða forstöðumanns á skóladagheimilinu Völv-
ukoti er laus til umsóknar. Fóstrumenntun áskilin.
Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri Dagvistar
barna í síma 27277.
að sjá tíl l?ess
y
UMFERÐAR
RÁÐ
ÆSKULÝÐSF YLKIN GIN
Æskulýðsfylkingin 50 ára
Hver man ekki eftir gömiu skálastemmningunni, Tjamargöturómantíkinni,
Landnemanum, Heimsmótunum og öllu hinu? Nú er allavega tímabært að
rifja upp 50 ára sögu (góðum félagsskap.
Laugardaginn 5. nóvember nk. verður afmælið haldið hátíðlegt með borð-
haldi, upplestri, fjöldasöng og dansi að Hverfisgötu 105.
Borðhaidið hefst kl. 20.30. Húsið verður opnað kl. 19.30.
Taktu strax frá kvöldið. (Vinsamlega skráið ykkur sem fyrst v/matar í síma
17500). Afmwllsnefndln.
Salvador:
Manndráp
aukast á ný
Morð á óbreyttum borgurum
hafa undanfarna mánuði sífellt
færst í aukana í Salvador og er
sumra hald að ógnaröldin í
landinu komist innan skamms á
það stig sem var á fyrstu árum
áratugarins. Að sögn Americas
Watch, bandarísks félags sem
beitir sér fyrir því að
mannréttindi séu í heiðri höfð,
voru 118 óbreyttir borgarar
drepnir í Salvador fyrstu sex
mánuði ársins, og eru þá morð af
öðrum ástæðum en pólitískum
ekki talin með.
Að sögn Americas Watch drap
stjórnarherinn 52 menn af þess-
um 118, svokallaðar dauða-
sveitir, sem munu vera á vegum
hers og lögreglu stjórnarinnar 39
og skæruliðar sem berjast gegn
stjórninni 27. Þegar stjórnarher-
inn segist hafa fellt skæruliða í
bardögum, kemur stundum í ljós
við nánari athugun að þar hefur
verið um að ræða óbreytta borg-
ara. Svo virðist sem borgarar þeir
óbreyttir, sem skæruliðar drepa,
séu einkum menn sem þeir gruna
um að vera njósnara eða flugu-
menn fyrir stjórnarherinn.
Borgarastríðið í Salvador, sem
háð er milli vinstrisinnaðra
skæruliða og stjórnar studdrar af
Bandaríkjunum, hefur nú staðið í
níu ár. Talið er að um 65.000
manns hafi verið drepnir í þeim
ófriði og að minnsta kosti helm-
ingur þess fólks var óbreyttir
borgarar.
Reuter/-dþ.
Vestur-Pýskaland:
rn öld fiá
Kristalsnótt
Nóttina 9.-10. nóv. 1938 æddi
óður nasistaskríll um götur borga
Þýskalands, brenndi og eyðilagði
yfir þúsund samkunduhús og
verslanir í eigu Gyðinga og myrti
tugi af þeim. Um 20.000 Gyðing-
ar voru handteknir í ofsókn þess-
ari, sem stjórnarvöld Hitlers-
Þýskalands hleyptu af stað og var
sú mesta, sem gerð var á hendur
Gyðingum þarlendis á stjórnar-
árum Hitlers þangað til nasistar
hófust handa um að útrýma þeim
í heimsstyrjöldinni síðari.
Um 550.000 Gyðingar voru í
Þýskalandi þegar Hitler kom þar
til valda. Nú eru um 30.000 Gyð-
ingar í Vestur-Þýskalandi, flestir
í Vestur-Berlín, Frankfurt og
nokkrum öðrum stórborgum.
Ofsóknin á hendur þeim í nóv.
1938 hefur í sögunni verið nefnd
„nótt brotins glers“ eða „Krist-
alsnótt“. Vesturþýsk stjórnar-
völd og aðrir þarlendir aðilar
munu minna landsmenn á þessa
ógnaratburði með hundruðum
minningarathafna, fræðslunám-
skeiða og sýninga. Meðal annars
verður fórnarlamba nasista á
Kristalsnótt minnst á hálfrar
aldar afmæli atburða þessara í
samkunduhúsinu í Frankfurt,
sem eyðilagt var í ofsókninni en
hefur nú verið endurbyggt. Þar
verða meðal annarra viðstaddir
Helmut Kohl, sambandskanslari,
Richard von Weizscker, forseti
Vestur-Þýskalands og margir
þekktir vesturþýskir Gyðingar.
Reuter/-dþ.
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
AB Norðurland eystra
Aðalfundur kjördæmaráðs
Aðalfundur kjördæmaráðs
AB í Norðurlandi eystra, verð-
ur haldinn á Akureyri í Lár-
usarhúsi, sunnudaginn 30.
október kl. 10.00.
Dagskrá: 1) Venjuleg aðal-
fundarstörf. 2) Flokksstarf og
fjármál. 3) Útgáfumál. 4) Ný
viðhorf í íslenskum stjórnmál-
um: Svavar Gestsson
menntamálaráðherra. 5)
Önnur mál.
Gestir fundarins: Svavar Gestsson menntamálaráðherra og Steingrímur J.
Sigfússon landbúnaðar- og samgöngumálaráðherra.
Nánar auglýst síðar. - Stjórnin.
Alþýðubandalagið Húsavík
Ný ríkisstjórn og staðan
í íslenskum stjórnmálum
Svavar Gestsson menntamálaráðherra og Steingrímur J. Sigfússon
landbúnaðar- og samgöngumálaráðherra hafa framsögu á almennum
stjórnmálafundi í Félagsheimilinu á Húsavík, laugardaqinn 29. október kl
16.00.
Allir velkomnir.
Alþýðubandalagiö á ísafirði
Aðalfundur verður haldinn laugardaginn
29. okt. á Hótel ísafirði og hefst kl. 13.30
Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Gestir fundarins verða Guð- rún Helgadóttir alþingismaður og Kristinn H. Gunnarsson bæjarfulltrúi Bolungarvík. Félagar eru hvattir til að fjöl- menna. - Stjórnin. L : s KZ • ' W
Alþýðubandalagið í Kópavogi Skrifstofan opin Skrifstofa Alþýðubandalagsins í Kópavogi, í Þinghól Hamraborg 11,3. hæð verður opin frá og með 31. október á mánudögum og fimmtudögum kl. 16-18 e.h. Alþýðubandalagið í Kópavogi
Alþýðubandalagið í Kópavogi Aðalfundur bæjarmálaráðs Aðalfundur bæjarmálaráðs verður haldinn mánudaginn 31. október nk. kl. 20.30 í Þinghól Hamraborg. Dagskrá: 1) Hefðbundin aðalfundarstörf. 2) Bæjarmálin. 3) önnur mál. Félagar hvattir til að mæta. Stjórn bæjarmálaráðs
Blönduós Almennur fundur Alþýðubandalagið boðartil al- menns fundar á Blönduósi, sunnudaginn 6. nóvember kl. 16.00 á hótelinu (Snorrabúð). Frummælendur verða: Steingrímur J. Sigfússon landbúnaðar- og samgöngu- ráðherra og Ragnar Arnalds
t .. vjí Bfcf \ wm |
alþm. Allir velkomnir. Ragnar C >teingrímur
Norðurland vestra
Aðalfundur kjördæmaráðs
Aðalfundur kjördæmaráðs Alþýðubandalagsins í Norðurlandskjördæmi
vestra verður haldinn á Hótel Dagsbrún á Skagasströnd, sunnudaginn 6.
nóvember. Fundurinn hefst kl. 10.00 og stendur til 15.00.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður rætt um flokksstarfið og
hagsmunamál kjördæmisins.
Steingrímur J. Sigfússon landbúnaðar- og samgöngumálaráðherra verður
gestur fundarins. Fundarstjóri verður Eðvarð Hallgrímsson.
I tengslum við aðalfundinn verður haldinn almennur fundur á Blönduósi kl.
16.00 sama dag.
Stjórnin
Auglýsið í Þjóðviljanum
Sími: 681333“
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi
Ágúst B. Björnsson
sem lést 24. okt. sl. verður jarðsunginn frá Háteigskirkju,
þriðjudaginn 1. nóv. kl. 15.00.
Unnur Kjartansdóttir
Hreinn V. Agústsson Dóra Jónsdóttir
Björn A. Agústsson Þuríður Magnúsdóttir
Einar Agústsson Unnur H. Pétursdóttir
Kjartan Agústsson Þóra S. Ingimundardóttir
og barnabörn