Þjóðviljinn - 09.11.1988, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 09.11.1988, Blaðsíða 6
MENNING Kjarvalsstaðir Septem ’88 Sextánda sýning Septem-hópsins til minningar um Valtý Pétursson Sextánda sýning Septem- hópsins stendur nú yfir í Vest- ursal Kjarvalsstaða, en hóp- urinn hefur sýnt einu sinni á ári síðan hann var stofnaður, árið 1974. Sýningin er að þessu sinni haldin til minning- ar um einn af stofnendum hópsins, Valtý Pétursson, sem lést í sumar. - Pað var kjarni September- hópsins sem stofnaði Septem, segja þau Jóhannes Jóhannes- son, Guðmundur Benediktsson og Guðmunda Andrésdóttir sem öll sýna í Vestursalnum. - Við eigum það sameiginlegt að vilja gera góða myndlist eftir megni, og við erum trú málverk- inu og höggmyndinni, þótt eðli-: lega hafi orðið breyting á okkar verkum í gegnum árin. Á sýningunni eru 14 olíumál- verk og 10 guass-myndir eftir Valtý Pétursson, og eru þau verk frá árunum 1947 til 84, og allt myndir sem hann átti í vinnustofu sinni þegar hann lést. Önnur verk á sýningunni eru flest frá þessu ári, olíumálverk og höggmyndir úr tré og bronsi. í Septem-hópnum eru auk Jó- hannesar, Guðmundu og Guð- mundar, þeir Hafsteinn Aust- mann, Kristján Davíðsson, Karl Kvaran og Steinþór Sigurðsson. Septem ‘88 stendur til sunnu- dags, 13. nóvember. LG Jóhannes, Guðmundur og Guðmunda: Markmiðið er að búa til góða myndlist eftir megni. Mynd Þóm. Kristinn: Málverkum á ekki að leggja orð í munn. Mynd Þóm. Kjarvalsstaðir Litur á hreyfingu KristinnJóhannsson: Málverk er litur á hreyfingu, annað skiptir ekki máli Kristinn Jóhannsson sýnir 20 olíumálverk frá síðustu 2 árum í Austursalnum og hefur Lystigarðinn á Akureyri að yrkisefni í öllum verkunum. - Ég er alveg á móti því að vera nokkuð að tala um málverkin, segir hann, - þau tala sjálf. - Þau eru öll úr Lystigarðinum á Akureyri sem sjá má, þótt myndirnar séu reyndar lausar við trén og blómin sem þessum yndi- slega garði fylgja. Við getum gengið út frá því að ég hafi garð- inn að eins konar yfirvarpi, en auðvitað tengjast verk manns því umhverfi sem maður býr við. Ég nota litina úr garðinum, hugh- rifin, þær breytingar sem verða við árstíðaskiptin. - Málverk er litur á hreyfingu, annað skiptir ekki máli, ekki kenningar, ekki hvað manni finnst að aðrir eigi að fá útúr þeim. Það eina sem skiptir máli er að búa til málverk sem stendur undir sér. Og þar með læt ég stað- ar numið, annars stæði ég ekki við mína eigin kenningu að mál- verkum eigi ekki að leggja orð í munn. Sýning Kristins stendur til 13. nóvember. LG Kjarvalsstaðir í frelsinu eru f jötrar Guðmundur Armann: Mynd er nokkurs konar altaristafla í Austursal Kjarvalsstaöa sýnir Guðmundur Ármann 23 olíumálverk, sem öll fjalla um flug, frelsi og fjötra. - Ég hef valið sýningunni ein- kunnarorðin'í frelsinu eru fjötr- ar, segir Guðmundur, - en fugl- arnir fljúga síðan misauðveldlega um himininn. Sumir eru á mörk- unum að hefja sig til flugs, öðrum tekst að fljúga, og enn aðrir syngja svanasöng. f þessum ein- kunnarorðum er skírskotun til lífsins, og þetta getur alveg eins átt við um manneskjuna eins og fugla, en manneskjan hefur verið að þrengja sér fram í mínum myndum í seinni tíð. - í þessum myndum er ég líka að reyna að brjóta upp hefðbund- ið myndform með því að vera með boga innan um ferkantinn. Ég hugsa nokkuð mikið um altar- istöfluformið, og hef meðvitað reynt að líkja eftir því. Það er ekki óalgengt að altaristoflur séu bogaformaðar. Mynd er nokkurs konar altaristafla, og þá ekki endilega fyrir kirkjur, heldur fyrir þann sem málar. Þar kemur fram hvernig hann skynjar hlut- ina, og á hvað hann vill leggja áherslu. Þetta hefur ekkert með trúrækni að gera. - Það að gera altaristöflu er að lofsyngja. Hún er til að upphefja ákveðna tegund af lífsskoðun. í kirkjum er hún til dýrðar trúnni, mínar eru til dýrðar mínum skoð- unum, eins og ég skynja þær. Að mála mynd er að hefja hlutina upp á stall. Að mála er að mínu mati annað hvort til að hefja hlut- ina upp til skýjanna eða til að gagnrýna þá. Ég hef gert mikið að því að gagnrýna, en þessar myndir eru til að upphefja frels- ið; ekki frjálshyggjuna, heldur raunverulegt frelsi. Og í því eru fjötrar. Guðmundur Ármann við Jafnvægi: Mynd - Þóm. Hefur orðið mikil breyting á þínum myndum frá síðustu sýn- ingu? - Ég hef gert allt öðruvísi myndir, myndir með pólitísku ívafi þar sem innihaldið skipti mestu málL Til dæmis sýndi ég Að mála mynd er að hefja hlutina upp á stall. hér á Kjarvalsstöðum með Sig- urði Þóri árið 1981, og þá fjölluðu okkar myndir um vinnandi fólk. Síðan fór að hvarfla að mér að það væri kannski ekki svo fráleitt að huga að myndforminu sem ég hafði haft tilhneigingu til að láta víkja fyrir innihaldinu. En ab- straktið nægir mér ekki, og því fór ég að mála fuglinn, sem ég fer reyndar frjálslega með, því það er meira liturinn og formið sem ræður myndinni. Sýning Guðmundar stendur til 13. nóvember. LG 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 9. nóvember 1988

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.