Þjóðviljinn - 06.12.1988, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 6. desember 1988 262. tölublað 53. árgangur
Útvarpsnefnd
Jafnréttisráð
Kæmr aldrei
fleiri
Á þessu ári hefur Jafnréttisráð
fjallað um 15 kærur vegna brota á
jafnréttislögum, og hafa kærur
aldrei áður verið jafn margar á
einu ári.
Flestar kærurnar eða 9 talsins
eru vegna mismununar atvinnu-
rekenda á starfsfólki eftir kyn-
ferði. Eru þetta þrisvar sinnum
fleiri kærur af þessu tagi en ráð-
inu barst á sl. ári.
Búið er að afgreiða 6 af þessum
9 kærum og telur ráðið að um
brot á jafnréttislögum sé að ræða
í tveimur tilvikum.
Happdrœtti
Þjóðviljans
Númerin
á morgun
Nú hafa skil borist frá umboðs-
mönnum Happdrættis Pjóðvilj-
ans, víðs vegar um landið.
Vinningsnúmerin sem dregin
voru út 10. nóv. sl. verða birt á
morgun, í miðvikudagsblaðinu.
Ríkisútvaipið á
barnii gjaldþrots
Skuldar hálfan miljarð og á í erfiðleikum með að standa við skuldbindingar sínar.
Útvarpsnefndmenntamálaráðherraskilartillögumtil lausnar bráðavandanum í dag
„Ríkisútvarpið skuldar um
hálfan miljarð og það er alvarlega
farið að nálgast að það geti ekki
staðið við skuldbindingar sínar,“
sagði Ögmundur Jónasson, for-
maður Útvarpsnefndar þeirrar
sem menntamálaráðherra skip-
aði til að leita lausna á hinum
bráða fjárhagslega vanda ríkisút-
varpsins. Mun nefndin skila til-
lögum sínum til menntamálaráð-
herra um fjárhagsvandann í dag
en Ögmundur vildi ekki tjá sig
um efni þeirra tillagna fyrr en þær
hefðu verið afhentar ráðherra.
Sagði Ögmundur að núverandi
tekjustofnar ríkisútvarpsins,
auglýsingatekjur og áskriftagjöld
hrykkju ekki til. „Þaö hefur verið
mikill hallarekstur á stofnuninni
síðustu árin vegna þess að
stjórnvöld hafa ekki staðið við
skuldbindingar sínar, auk þess
sem áskriftagjöld hafa ekki feng-
ist hækkuð. Stofnunin er að kom-
ast í þrot og því skipaði ráðherra
þessa nefnd til að leita ráða á
þessu vandamáli. Auk þess á
nefndin að líta til lengri tíma og
skoða mál varðandi fjármögnun
ríkisútvarpsins og þá reksturinn í varpsins," sagði Ögmundur Jón-
ljósi breyttra aðstæðna í fjölmiðl- asson.
un almennt á íslandi. Nefndin í nefndinni sitja auk Ögmund-
þarf að leita svara við spurning- ar sem er formaður, Eiður
unni hvert sé hlutverk ríkisút- Guðnason, Arnþrúður Karls-
dóttir, Erna Indriðadóttir, Þór-
hallur Arasaon frá fjármálaráðu-
neytinu og Hörður Vilhjálmsson,
fjármálastjóri ríkisútvarpsins.
- phh
Utvarpsnefndin skilar fyrstu til-
lögum sínum í dag. Staðan er
svo slæm að RÚV getur nú vart
staðið við skuldbindingar sínar.
Eru auóir stólar bað sem blasir
viö?
Ráðherranefnd ríkisstjórnarinnar fundar um tekjuöflun ríkissjóðs við forystukonur Kvennalistans ífjármála ráðuneytinu í gærkvöldi. Mynd - Jim
Fjáröflunarfrumvörp
Samstarf við stjomarandstöðu
Fjármálaráðherra lagðifram þrjúfjáróflunarfrumvörp ígœr. Fulltrúar
stjórnarflokkanna rœða við fulltrúa stjórnarandstöðunnar
Ólafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra Halldór Ásgríms-
son sjávarútvegsráðherra og Jón
Baldvin Hannibalsson utanríkis-
ráðherra, kölluðu stjórnarand-
stöðuna á sinn fund í fjármála-
ráðuneytinu í gærkvöldi, þar sem
þeir kynntu fyrir þeim þau fjár-
öflunarfrumvörp sem ríkisstjórn-
in hefur þegar lagt fram á Al-
þingi, og þau frumvörp sem lögð
verða fram á næstu dögum. Ólfur
segir þetta vera tilraun til að þróa
ný vinnubrögð á milli stjórnar og
stjórnarandstöðu, í ætt við það
sem þekkist í nágranjialöndunum
þar sem minnihlutástjórnir eða
stjórnir með tæpan meirihluta,
hafa náið samstarf við stjórnar-
andstöðu.
Þessi vinnubrögð eru nýlunda
hér á landi. Fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins gengu fyrst á fund ráð-
herranna, sfðan fulltrúar
Kvennalista og loks fulltrúar
Borgaraflokks. Með þessu er tal-
ið að ráðherrarnir vilji reyna að
afla fjáröflunarfrumvörpum
stjórnarinnar fylgis hjá stjórnar-
andstöðunni og jafnvel semja við
hana um einstaka liði þeirra. í
gær lagði fjármálaráðherra fram
þrjú fjáröflunarfrumvörp á Al-
þingi. Fimm af fjáröflunarfrum-
vörpun stjórnarinnar eru þá
komin fram en tvö eru ókomin.
Það eru frumvörp um tekjuskatt
og sérstakan skatt á happdrætti.
Frumvörpin þrjú eiga að tryggja
ríkissjóði tæpa 2 miljarða í tekjur
á næsta ári. Frumvarp um vöru-
gjald vegur þyngst af þessum
frumvörpum. Er áætlað að vöru-
gjaldið skili ríkissjóði 2,7 milj-
örðum í tekjur á næsta ári. Vöru-
gjald verði í þremur flokkum,
25% á sælgæti,öli oggosdrykkj-
um, 20% af heimilistækjum og
byggingarvörum, sem áður báru
14% vörugjald, og 10% af timbri
og sementi, ýmsum byggingar-
vörum, húsgögnum og
innréttingum.
Hin tvö frumvörpin sem lögð
voru fram í gær eiga að tryggja
ríkissjóði um 350 miljónir í tekj-
ur. Frumvarp um skattskyldu
innlánsstofnana felur í sér að
fjáröflunarsjóðir og veðdeildir
verða skattskyldar að sama skapi
og bankar. En fjármálaráðherra
segir tekjur þessara aðila hafa
verið 1 miljarð í fyrra. Þriðja
frumvarpið framlengir skatt á
lántökum erlendis með þeirri
undantekningu, að lán sem tekin
eru til björgunaraðgerða útflutn-
ingsgreinanna verða ekki skatt-
skyld: Þetta sagði Ólafur að ætti
ekki bara að tryggja ríkissjóði
tekjur, heldur draga úr erlendum
lántökum og minnka um leið
þenslu.
-hmp