Þjóðviljinn - 06.12.1988, Blaðsíða 5
FRETTIR
Handbolti
Naflaskoðun
nauðsynleg
Þrírþjálfararfengu að líta rauð spjöld í
leikjum vikunnar. Guðjón Guðmundsson:
Dómgœslan í góðu lagi í viðkomandi leikjum
aráttan í 1. deild íslandsmóts-
ins í handknattleik hefur vafa-
lítið verið meiri að undanförnu en
gengur og gerist í íþróttinni og
hafa dómarar aldrei fengið á sig
aðra eins gagnrýni og það sem af
er vetrar. Fyrir vikið hafa þjálf-
arar og leikmenn liðanna misst
stjórn á sér í hita leiksins og fengu
þrír þjálfarar að líta rauða
spjaldið í vikunni sem er meira en
góðu hófi gegnir.
Leikirnir sem um ræðir eru
leikur Víkings og Vals á miðviku-
dag og leikur KR og FH daginn
eftir. Stanislav Modrowski, þjálf-
ari Vals, var rekinn úr húsi fyrir
slæman munnsöfnuð og þeir Jó-
hann Ingi Gunnarsson, KR, og
Viggó Sigurðsson, FH fengu báð-
ir rautt í seinni leiknum. Eru
menn nú farnir að spyrja sig hvort
það sé ekki eitthvað mikið að,
annað hvort hjá dómurum ell-
egar leikmönnum og þjálfurum,
nema hvorum hjá tveggja sé.
Óvenjumikill
hamagangur
„Þetta er nú óvenju mikill
hamagangur í þessari viku,“
sagði Guðjón Guðmundsson, ein-
hver mesti handboltaspekúlant
hérlendis er Þjóðviljinn bar þetta
undir hann. „Menn hafa alltaf
fengið rauð spjöld öðru hvoru
svo það þarf ekki að vera neitt
alvarlegt en ég legg áherslu á að
báðir þessir leikir voru mjög vel
dæmdir. Ég hef skoðað þá á
myndbandi og er leikur Vals og
Víkings t.a.m. skólabókardæmi
um vel dæmdan leik. Ég er líka
þess fullviss að dómgæsla hér-
lendis er engu lakari en annars
staðar í heiminum. Hins vegar er
handboltaíþróttin einfaldlega
það dramatísk og heillandi að
fyrir vikið geta menn átt erfitt
með að halda stillingu sinni. En
menn verða engu að síður að
kunna orðbragði sínu takmörk og
sumt sem heyrst hefur á ekkert
skylt við íþróttina. Það sem vant-
ar er einfaldlega alsherjar nafla-
skoðun, hjá þjálfurum, leik-
mönnum og dómurum."
Dómgæslan
ekki verri
Modrowski, þjálfari Vals, ku
hafa sagt dómara að stinga gula
spjaldi sínu upp í afturendann á
sér og efast eflaust enginn um
réttmætti þeirrar brottvikningar,
en mikla athygli vakti á
fimmtudagskvöldið er þjálfarar
beggja fengu rautt. „Ég fékk
rauða spjaldið vegna þess að ég
fór yfir miðlínu en ekki vegna
kjaftbrúks," sagði Viggó Sigurðs-
son í gær. „Ég hafði fengið á-
minningu og fór tvívegis yfir mið-
línu og því sætti ég mig fullkom-
lega við þennan dóm. Mér fannst
dómgæslan ekki verri nú en
gengur, dómararnir gerðu fullt af
mistökum en hvorugt liðið hagn-
aðist sérstaklega á því, nema
kannski í lokin þegar við hefðum
átt að fá vítakast“.
Viggó hefur einnig verið sak-
aður um að slá stúlku sem var á
vappi nálægt varamannabekk
FH-inga í leikslok. „Mér finnst
alltof mikið gert úr þessu máli því
hér var um algert óviljaverk að
ræða og stúlkan meiddist ekki
neitt. Mér finnst mjög leiðinlegt
að þetta skuli hafa átt sér stað en
ég var að sveifla bók og í sama
mund hljóp stúlkan fyrir mig,“
sagði Viggó ennfremur.
Erfitt er að alhæfa um atvik
mála í þessum mikla hitaleik en
það hlýtur engu að síður að vera
umhugsunarefni hvort ekki þurfi
strangari gæslu en nú er í Laugar-
dalshöllinni. Þetta er örugglega
eina íþóttahúsið á landinu þar
sem krakkar geta verið á vappi
nálægt varamannabekk leik-
manna. En það er vonandi að.all-
ir leggist eitt með að bæta það
sem afvega fer í núverandi þjóar-
íþrótt landans. Annars gæti farið
svo að ársins 1988 verði minnst
sem svarts árs í handboltasögu ís-
lendinga!
-þóm
Síld
Eyjólfur að braggast
Norsk - íslenski síldarstofninn að rétta úr
kútnum. Veiðanlegur hérlendis eftir 5-10 ár
Q vo gæti farið eftir 5-10 ár að með að hann sé um 1,4 miljón
O veiðar geti hafist á ný úr
norsk-íslenska síldarstofninum
hér við land. I sumar lögðu Sovét-
menn fram gögn sem sýndu að
sfld úr þessum stofni hefði fundist
miklu vestar og norð-vestar við
Noreg en gerst hefur í áraraðir.
Hér er um að ræða þann síldar-
stofn sem veiddur var fyrir Norð-
urlandi hér á árum áður og lagði
grunninn undir síldarævintýri
þess tíma. Þegar hann var hvað
sterkastur var hann um 10 milj-
ónir tonna en í dag er reiknað
tonn og uppistaða hans er árgang-
urinn frá 1983.
Að sögn Jakobs Jakobssonar
forstjóra Hafrannsóknastofnun-
ar benda upplýsingar Sovét-
manna til að miklar líkur séu á að
stofninn sé orðinn það sterkur að
hann leiti vestur yfir Atlantshafs-
ála og hingað til lands eftir 5 -10
ár. Verði það að veruleika má allt
eins búast við að sagan endurtaki
sig í einhverjum mæli norður í
landi og þar verði á nýjan leik
veidd síld og söltuð. -grh
DAGVIST BARIVA
Forstöðumaður
Staöa forstöðumanns á skóladagheimitinu
Völvukoti er laus til umsóknar.
Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri Dagvistar
barna í síma 27277.
Einar Guðmundsson formaður félags eldri íbúa í Garðabæ t.h. á myndinni, tók fyrstu skóflutstunguna að
íbúðunum en séra Bragi Friðriksson flutti bæn. Mynd-þs.
Garðabœr
Ibúðir fyrir eldri borgara
Fyrsta skóflustungan að íbúð-
um fyrir eldri borgara í
Garðabæ var tekin um helgina,
en það er Byggingafélag eldri
íbúa í bænum sem stendur fyrir
framkvæmdunum en félagið var
stofnað fyrr í haust.
Alls verða íbúðirnar 45 talsins
en þær eru staðsettar í Hofsstað-
atúni, norðan Vífilsstaðavegar,
ofan við nýja miðbæinn. Byggt
verður í þremur áföngum og eru
16 íbúðir í fyrsta áfanga sem
framkvæmdir hófust á um helg-
ina. Framkvæmdir við annan
áfanga hefjast í vor og við þriðja
áfanga um önnur áramót.
íbúðirnar sem verða í sjátfs-
eign, verða allar afhentar full-
búnar ásamt sameign og lóð.
Þjónustumiðstöð aldraðra og
fatlaðra í Garðabæ er í Safnaðar-
heimilinu Kirkjuhvoli sem er í
næsta nágrenni við nýbygging-
arnar.
BOKAKLUBBUR
ásknfenda Þjóðviljans
Tilboð vikuna 6.-12. desember
Tilboð okkar að þessu sinni er bókin Sjómenn og sauðabændur eftir Tryggva Emils-
son, sem nýlega er komin út hjá Máli og menningu.
Tryggvi Emilsson er fæddur
árið 1902. Hann er einn þeirra
manna sem hafa með miklum
ágætum sýnt og sannað hve mik-
ils megnugur sá arfur er og hefur
verið sem kenndur er við ís-
lenska alþýðumenningu. Tryggvi
vann um langan aldur að reisn
síns fólks með virkri þátttöku í
verklýðshreyfingu og baráttu ís-
lenskra sósíalista. En hann hafði
jafnframt hugann við þá fýsn til
fróðleiks og skrifta sem hefur
orðið svo mörgum „langra kvelda
jólaeldur". Hann orti kvæði af
góðum hagleik og gaf út á bækur.
En sinn góða sigur sem rithöf-
undur vann hann með æviminn-
ingum sínum, þriggja binda verki
sem hófst með „Fátækt fólk“ og
sameinar eftirminnilega þroska-
sögu merkilegri vitneskju um það
samfélag sem hefur verið í mótun
á okkar öld.
Bókinni „Sjómenn og sauða-
bændur" er lýst á þessa leið í
kynningu forlagsins:
„Bók þessi er í senn ættarskrá
og aldarspegill. Höfundur rekur
þær ættir sem að honum standa
og segir sögu forfeðra sinna allt
að þrjár aldir aftur í tímann. Flestir
voru þeir sjómenn og sauða-
bændur og fær lesandinn hér
merka innsýn í lífshætti alþýðu-
fólks fyrr á tímum....Ættarskráin
er þannig skrifuð að jafnframt
mannanöfnum og ártölum er
sagt frá landsháttum og öðru því
er snertir daglegt líf fólksins, svo
sem ýmsum fyrirbærum af völd-
um náttúrunnar og ráðstöfunum
valdsmanna.“
Bókin er 432 bls
Okkar verö kr. 2.500 —
Venjulegt verö kr. 2.875.