Þjóðviljinn - 06.12.1988, Page 8

Þjóðviljinn - 06.12.1988, Page 8
ÍÞRÓTTIR Karfa Grindavík stefnir í úrslit Valur steinláfyrir Grindavík að Hlíðarenda. Keflavík marði KR. Haukar unnu nauman sigur á ÍR. Njarðvíkingar tóku því létt gegn Þór Síðasta umferðin í íslandsmót- inu í körfuknattleik fyrir jólafrí var háð um helgina en næstu leikir verða ekki fyrr en 15. janú- ar. Mikilvægasti leikur umferð- arinnar var tvímælalaust viður- eign Vals og Grindavíkur í íþrótt- ahúsi Vals að Hlíðarenda, en liðin voru jöfn að stigum fyrir þennan leik. Grindavík vann furðu auðveldan sigur í leiknum og er í öðru sæti riðilsins og stefnir því í úrslitakeppnina. A-riðill Valur-Grindavík.......75-89 Grindvíkingar eru í miklum ham um þessar mundir og eru t.a.m. eina lið deildarinnar sem tekist hefur að vinna Njarðvík- inga. Þessi lið berjast af harðfylgi um sæti í úrslitunum og gæti þessi leikur hafa skipt sköpum um hvort liðanna hreppir úrslitasæt- ið. Leikurinn var jafn fyrstu mín- úturnar en síðan tóku Suður- nesjamenn öll völd. Þegar fyrri hálfleik var lokið höfðu þeir náð tólf stiga forystu, 35-47, og staða Valsmanna ekki góð. í síðari hálfleik breikkaði bilið enn frek- ar en Grindvíkingar þurftu að sjá á eftir Guðmundi Bragasyni af Ieikvelli og Valsmenn minnkuðu muninn fyrir vikið. Þeir náðu þó ekki að koma í veg fyrir 14 stiga sigur Grindvíkinga, 75-89. Guðmundur Bragason var að vanda bestur Grindvíkinga með- an hans naut við og skoraði hann r . MTJK pu laugabpögum? Vinningstölumar 3. desember 1988 Heildarvinningsupphæð: Kr. 5.604.166.- Fimm tölur réttar kr. 2.580.206,- skiptast á 2 vinn- ingshafa, kr. 1.290.103,- á mann. Bónustala + fjórar tölur réttar kr. 448,162,- skipt- ast á 13 vinningshafa, kr. 34.474,- á mann. Fjórar tölur réttar kr. 772.920,- skiptast á 180 vinn- ingshafa, kr. 4.294,- á mann. Þrjár tölur réttar kr. 1.802.878,- skiptast á 5.599 vinningshafa, kr. 322 á mann. Sölustaðirnir eru opnir frá mánudegi til laugardags og loka ekki fyrr en 15 mínútum fyrir útdrátt. Leikandi og létt! Upplýsingasími: 685111 24 stig. Steinþór Helgason var einnig seigur og skoraði hann 21 stig, Jón Páll Haraldsson skoraði 16 stig, Hjálmar Hallgrímsson 13, Rúnar Árnason 11, Ólafur Jóhannsson 3 og Guðlaugur Jónssson 1. Valsmenn léku ekki nógu vel í þessum leik og stóð enginn þeirra upp úr. Tómas Holton og Einar Ólafsson voru atkvæðamestir með 15 stig hvor en Matthías Mattíasson skoraði 14. Hreinn Þorkelsson skoraði 12 stig, Arnar Guðmundsson 10, Bárður Eyþórsson 4, Ragnar Jónsson 3 og Hannes Haraldsson 2. Þór-Njarðvík..........88-99 Njarðvíkingar tóku þennan leik ekki sérlega alvarlega enda var hann nánast unninn fyrir- fram. Þeir náðu fljótlega 10 stiga forystu og héldu henni nánast til leiksloka. Friðrik Rúnarsson skoraði mest Njarðvíkinga, eða 19 stig, Hreiðar Hreiðarsson 18 og fsak Tómasson 17. í liði Þórs var Björn Sveinsson stigahæstur með 25 stig en Guðmundur Björnsson gerði 16, Jóhann Sigurðsson 15 og Konráð Óskarsson 14 stig. B-riðill Haukar-ÍR.............82-80 Haukarnir unnu þarna mjög nauman sigur á ÍR-ingum en bæði lið eiga enn fræðilegan möguleika á að komast í úrslitin. Liðin skiptu með sér forystunni í leiknum fyrir leikhlé en þegar fyrri hálfleikur var allur höfðu Haukar fjögurra stiga forystu, 49-45. ÍR komst síðan yfir í síðari hálfleik og hafði leiddi leikinn lengst af. Haukar voru þó ekki af baki dottnir og sigu framúr á lok- akaflanum. fvar Ásgrímsson og Jón Arnar Ingvarsson voru bestir í liði ís- landsmeistaranna en sá fyrr- nefndi skoraði 22 stig en Jón skoraði þremur stigum færra. Pálmar Sigurðsson skoraði að- eins 10 stig að þessu sinni og það sama gerði Henning Hennings- son. Eyþór Árnason skoraði 7 stig, Reynir Kristjánsson 6, Tryggvi Jónsson 4, og þeir Ingim- ar Jónsson og Ólafur Rafnsson 2 stig hvor. Sturla Örlygsson var sem fyrr stigahæstur fR-inga, með 28 stig, en Karl Guðlaugsson skoraði 20 stig. Björn Steffensen skoraði 10 stig, Jóhannes Sveinsson 8, Jón Örn Guðmundsson og Ragnar Torfason 6 hvor og Bragi Reynis- son 2 stig. Keflavík-KR...........74-73 Keflvíkingar tróna á toppi rið- ilsins eftir þennan sigur á KR sem gat ekki tæpari verið. Leikurinn var mjög jafn en KR-ingar leiddu í hálfleik með sjö stigum, 37-44. Keflvíkingar komust yfir fljót- lega í síðari hálfleik en ávallt var mjög mjótt á mununum. Heima- menn voru þó sterkari á loka- sprettinum og sigurinn varð þeirra, 74-73. Stig ÍBK: Guðjón Skúlason 18, Jón Kr. Gíslason 17, Sigurður Ingimundarson 16, Axel Nikulás- son 13, Nökkvi Jónsson 8 og Ein- ar Einarsson 2. Stig KR: Ólafur Guðmunds- son 17, Matthías Einarsson 13, Jóhannes Kristbjörnsson 11, Lár- us Valgarðsson 8, Gauti Gunn- arsson 7, ívar Webster 7, Birgir Mikaelsson 6 og Lárus Árnason 4. -þóm 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Guðmundur Bragason og félagar hans í liði Grindavíkur hafa leikið mjög vel að undanförnu og stefna nú í úrslitakeppnina. Handbolti Jafnt í Höllinni Fram og ÍBV skildu jöfn ífrestuðum fallbaráttuslag Einn leikur var í 1. deild hand- boltans um helgina en það var leikur Fram og ÍBV sem frestað var á sínum tíma vegna veðurs. Liðin eru bæði í fallbaráttu deildarinnar og fór svo að lokum að 40 mörk voru skoruð í leiknum, sem skiptust bróðurlega milli beggja liðanna. Enda þótt Sigurður Gunnars- son sæti á varamannabekk Eyja- Staðan A-riðill Njarðvík 16 15 1 1428-1173 30 Grlndavík 17 10 7 1384-1275 20 Valur . 16 9 7 1346-1222 18 Þór . 16 2 14 1210-1497 4 ÍS . 16 1 15 1016-1510 2 B-riðill Keflavík 16 13 3 1392-1152 26 KR . 17 12 5 1356-1263 24 Haukar.. . 15 7 8 1420-1340 16 ÍR . 16 8 7 1213-1212 16 Tindastóll 16 3 13 1278-1421 6 manna í fyrri hálfleik höfðu þeir lengst af forystuna en skömmu fyrir leikhlé náðu Framarar að jafna, 11-11. í síðari hálfleik snerist dæmið síðan við og Fram- arar höfðu leikinn í sínum hönd- um í lokin. Þeir höfðu tveggja marka forystu, 19-17 og 20-18, en Vestmannaeyingar jöfnuðu af miklu harðfylgi 20-20. Birgir Sigurðsson var bestur Framara og þeirra markahæstur með 6 mörk. Tryggvi Tryggvason skoraði 5, Hermann Björnsson 3/ 1, Júlíus Gunnarsson 3, Agnar Sigurðsson 2 og Ragnar Hilmars- son 1. í liði Eyjamanna var Sigur- björn Óskarsson atkvæðamestur með 6/2 mörk en Tómas Ingi Tómasson skoraði 4, Sigurður Vignir Friðriksson 3, Sigurður Friðriksson 2/1, Sigurður Gunn- arsson 2, Þorsteinn Viktorsson 2 og Óskar Brynjólfsson 1. -þóm

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.