Þjóðviljinn - 29.12.1988, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 29.12.1988, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 29. desember 1988 278. tölublað 53. órgangur Hagvaxtarspár Kerfisbundnar villur BHMR:Erum hœttað taka mark á samdráttarspám Þjóðhagsstofnunar semgjarnan birtast þegar dregur að kjarasamningum. Stjórnmálamenn segjastofnuninnifyrirverkum.ÞórðurFriðjónsson.'Leggjumfagleganmetnað í að gera spárnar eins vel úr garði og við getum -Þegar dregur að kjarasamn- ingum versna spár Þjóðhags- stofnunar, en birtir yflr þegar samningar hafa tekist. Núna hef- ur enn ein samdráttarspáin birst - fyrir árið 1989 - og lagt er að okk- ur að miða kjarakröfur við það, en við erum hætt að taka þetta alvarlega; spár Þjóðhagsstofnun- ar geta ekki orðið okkur til leiðbeiningar þegar við undirbú- um okkar kröfugerð, sagði Páll Halldórsson, formaður Banda- lags háskólamenntaðra ríkis- starfsmanna, á fundi með frétta- mönnum í gær. Að áliti BHMR vanmetur Þjóðhagsstofnun kerf- isbundið likurnar á hagvexti á ís- landi. Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar, mótmælti þessu áliti er það var borið undir hann: Spár okkar eru alveg óháð- ar því hvenær samningagerð stendur yfir. Við leitumst við að gera þær eins vel úr garði og okk- ur er unnt, og ég tel að Þjóð- hagsstofnun geri mest gagn með því að spárnar séu heiðarlega unnar, sagði hann. Samkvæmt spá Þjóðhagsstofn- unar frá í nóvember verður lands- framleiðslan á næsta ári um 1,6% minni en í ár, en í desemberhefti Kjarafrétta BHMR segir að hana beri ekki að taka alvarlega: „Reynslan frá fyrri árum sýnir okkur að óþarft er að taka nokk- urt mark á slíkri spá. Miðað við að skekkjutilhneigingin sé sú sama og á fyrri árum má reikna með að landsframleiðslan vaxi um rúmlega 3%!“ Mikið hefur borið á milli fyrstu og síðustu spáa Þjóðhagsstofiiun- ar um landsframleiðsluna gegn- um árin. Tafla sem BHMR-arar hafa unnið upp úr hagtíðindum stofnunarinnar og birta í desemb- erhefti sínu leiðir þetta berlega í ljós. Þannig gerði spá frá því í janúar 1984 ráð fyrir 3,6% sam- drætti það ár, en í júlí 1987 lá fyrir að þarna hafði orðið vöxtur upp á 3,6%. Og sé tekið dæmi af árinu í hittifyrra, 1986, hljóðaði spá Þjóðhagsstofnunar frá því í des- ember 1985 upp á 2% vöxt, en samkvæmt júlítölum stofnunar- innar frá þvi í fyrra hafði hann orðið 6,3% BHMR-arar leita skýringa á því kerfisbundna vanmati hag- vaxtar landsframleiðslunnar sem þeim virðist innbyggt í spár Þjóð- hagsstofnunar, og benda á að þrjár hugsanlegar: léleg spálík- ön; forsendur þjóðarhags breytist með snöggum og tilvilj- anakenndum hætti; og í þriðja lagi að stjórnmálamenn segi stofnuninni fyrir verkum. Birgir Björn Sigurjónsson, fram- kvæmdastjóri BHMR, taldi að síðasttalda skýringin væri nær- tækust og formaður samtakanna, Páll Halldórsson, sagði að fram hjá því yrði ekki litið að Þjóð- hagsstofnun mætti heita deild í forsætisráðuneytinu. „Sú spurn- ing hlýtur að vakna hvort stofn- unin er tæki einhverra sem eru að senda blekkingaskilaboð. Það er stórmál ef svo er,“ sagði hann. HS Kvikmyndasjóður Sótt um sex langar Það hafa borist 64 umsóknir um styrk úr Kvikmyndasjóði. Flestir hafa sótt um styrk til hand- ritagerðar, sagði Guðbrandur Gíslason forstöðumaður Kvik- myndasjóðs, aðspurður um hve sjóðnum hefði borist margar um- sóknir að þessu sinni. Sótt hefur verið um styrk til að framleiða sex leiknar kvikmyndir í fullri lengd, 18 hafa sótt um vegna gerðar heimildamynda. Þrír ætla að ráðast í gerð teikni- mynda, fimm hyggjast gera svo- kallaðar stuttmyndir. Langflestir hafa sótt um styrk til handrita- gerðar eða 23. Tveir óska eftir undirbúningstyrk, og fimm eftir framhaldsstyrk. Samkvæmt fjárlagafrumvarp- inu er gert ráð fyrir að sjóðurinn fái 71 miljón kr. til ráðstöfunar, en það er nokkur hækkun að raungildi frá því í ár. - Það hefur enginn sótt um styrk til að framleiða bamamynd, en kvikmyndasjóður stendur nú fyrir samkeppni um handrit eða tillögu að bamamynd. Það hafa verið nokkuð góðar viðtökur en skilafrestur rennur út 15 janúar svo við vitum ekki enn hvað á eftir að koma, sagði Guðbrandur en hann vonast til að sem flestir taki þátt í þessu því mikið skorti á að þessari grein kvikmyndalistar sé nægilega mikill sómi sýndur hér á landi. Guðbrandur fagnaði því að margir sóttu nú um styrk til hand- ritagerðar en hann sagði að ástæður þess mæti rekja til nám- skeiðs sem kvikmyndasjóður og endurmenntunardeild Háskólans stóðu fyrir um handritagerð. Aðalstjóm Borgaraflokksins á fundi sínum í gærkvöldi. Yfir gnæfir skilirí af leiðtoganum. Mynd: ÞÓM. Borgaraflokkurinn Mánuður í varaformanninn Stórauknar skattaálögur áþjóðina harmaðar íályktun fundar aðalstjórnarflokksins ígœrkvöldi - Umsögn laganefndar flokks- ins varðandi ráðstöfun eða til- nefningu í varaformannsembætti og önnur trúnaðarstörf var kynnt á fundinum, og ég á von á því að frá þeim málum verði gengið á næsta fundi aðalstjórnar sem væntanlega verður haldinn á Sel- fossi í lok janúar, sagði Július Sólnes, en á fundi aðalstjórnar Borgaraflokksins í gærkvöldi tók hann við formennsku af Albert Guðmundssyni. Júlíus sagðist reikna með að landsfundur yrði haldinn með hefðbundnum hætti næsta haust. í ályktun fundarins er sú stefna flokksins ítrekuð að grundvöllur heilbrigðs efnahagslífs sé að ein- staklingar haldi eftir sem mestu af sjálfsaflafé sínu, og að ríkis- sjóður verði að sýna gott fordæmi með því að stilla kröfum sínum umtekjuöfluníhóf. „Aðalstjórn- in harmar því þær stórauknu skattaálögur á þjóðina sem sam- þykktar voru á Alþingi fyrir jól,“ segir í ályktuninni. I lj ósi þessa var Júlíus spurður um líkindi á því að Borgaraflokkurinn væri á leið inn í skattaglaða ríkisstjóm Steingríms Hermannssonar. Hann sagði að slíkri spurningu væri ómögulegt að svara á þessari stundu. Flokkurinn væri reiðubú- inn til viðræðna, en að ljóst væri að alla áherslu yrði að leggja á að stokka upp ríkisfjármálin og draga úr skattaálögum. Aðalheiður Bjamfreðsdóttir, sá þingmaður flokksins sem studdi tekjuöflunarfmmvörp ríkisstjórnarinnar fyrir jól, var forfölluð frá fundarsetu aðalst- jórnarinnar í gærkvöldi. Slíkt hið sama fráfarandi formaður flokks- ins, Albert Guðmundsson. HS -«g '____ \

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.