Þjóðviljinn - 29.12.1988, Blaðsíða 4
Stöðupróf í Menntaskól-
anum við Hamrahlíð
Sööupróf veröa haldin dagana 4.-6. janúar.
Prófaö er í eftirtöldum greinum: Ensku, frönsku,
dönsku, þýsku, spænsku, tölvufræði og stærð-
fræði.
Prófdagar:
Enska og franska ....miðvikud. 4. jan. kl. 18.00
Danska og þýska....fimmtud. 5. jan. kl. 18.00
Spænska, tölvufræði og
stærðfræði ..........föstud. 6. jan. kl. 18.00
Stöðuprófin eru einungis ætluð þeim sem hyggj-
ast stunda nám í skólanum á vorönn 1989 og
hafa aflað sér kunnáttu umfram grunnskólapróf.
Þátttöku í prófunum ber að tilkynna til skólans 3.
janúar á skrifstofutíma.
Rektor
Sjómannafélag
Reykjavíkur
Fiskimenn
Fundur verður haldinn í A-sal Hótel Sögu
fimmtudaginn 29. desember kl. 14. Á fundinn
koma HalldórÁsgrímsson, sjávarútvegsráðherra
og dr. Jakob Magnússon, aðstoðarforstjóri Haf-
rannsóknastofnunarinnar.
Farmenn
Fundur verður haldinn í A-sal Hótel Sögu
fimmtudaginn 29. desember kl. 17. Fundarefni:
kjara- og atvinnumál.
Sjómenn fjölmennið
Stjórn Sjómannafélags Reykjavíkur
Laus staða
Staða skattstjóra Austurlandsumdæmis er laus
til umsóknar. Umsækjendurskulu hafa lokið prófi
í lögfræði, hagfræði, viðskiptafræði eða hlotið
löggildingu í endurskoðun.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf, sendist fjármálaráðuneyt-
inu fyrir 29. desember 1988.
Fjármálaráðuneytið,
21. nóvember 1988
Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri
Starf aðstoðarmanns á Röntgendeild er laust
til umsóknar.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitir yfirröntgentæknir.
Umsóknir sendist skrifstofustjóra FSA fyrir 6. jan-
úar 1989.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri,
sími22100
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát
og útför
Kristjáns Elíassonar
stjórnarráðsfulltrúa
frá Elliða, Staðarsveit
Kleppsvegi 6, Reykjavík
Guðný Jónsdóttir
Edda Sigurðardóttir Guðný Einarsdóttir
Elías Kristjánsson Bára Bjarnadóttir
Hörður Kristjánsson Ester Valtýsdóttir
barnabörn og barnabarnabarn
FRÉTTIR
Kvóti
Skerðing miðist við veið
Landssamband smábátaeigenda: Varar við að lögmál eftirspurnar
verði látið hafa áhrifá veiðar. Hættulegt vistkerfinu ísjónum. Allur
afli verður nýttur en ekki hluta hans kastaðfyrir borð eins og nú ergert
Skerðing á kvóta vegna sölu á
erlendum mörkuðum skal miðast
við söluverð þannig að því hærra
sem söluverðið er því minni
skerðing á kvóta. Verði verðfall
við sölu á erlendum markaði skuli
skerðing á kvóta aukast því meir
sem verðfall er meira.
Þessi tillaga kom fram á
stjórnarfundi Landssambands
smábátaeigenda sem haldinn var
17. desember sl. þegar rætt var
um ferskfisksölu á erlendum
mörkuðum og hvað hægt væri að
gera til þess að hindra offramboð
á fiski. Hlaut hún góðar undir-
tektir annarra stjórnarmanna.
Á fundinum kom fram sú
skoðun að ef lögmál eftirspurnar
yrði látið hafa áhrif á veiðar gæti
það orðið vistkerfinu í sjónum
hættulegt. Með öðrum orðum að
þegar verð væri hátt væri meira
veitt en æskilegt væri vegna hins
háa verðs. Stjórn Landssam-
bands smábátaeigenda bendir á
að ef sú staða kemur upp að
skortur verður á einni ákveðinni
fisktegund og í kjölfar þess aukist
eftirspurn og hækki verð þá sé
viðkomandi tegund í enn meiri
hættu en ella.
Þá var rætt um hvort takmarka
eigi fjölgun á frystiskipum og að
auka fullvinnslu um borð í fiski-
skipum. Smábátaeigendum þykir
ljóst að miklum hlu'ta af veiddum
fiski er kastað fyrir borð, lifur,
slóg, hausar og önnur bein og er
hér um mikil verðmæti að ræða.
Miðað við þurran fisk er verð á
hausum og beinagarði um 70-93
krónur hvert kíló.
Á stjórnarfundinum var því
samþykkt tillaga þess efnis að
stjórn LS gerir þá kröfu til
stjórnvalda að eftirleiðis verði
hart gengið eftir því að allur fisk-
ur sem veiddur er verði nýttur og
færður í land. Þetta á við um allar
nýtilegar tegundir, einnig þar
sem vinnsla á sér stað um borð,
að allur fiskurinn sé hirtur en
ekki hluta hans kastað. - grh
Tónlist
Samleikur í kirkjunni
Bryndís Halla og Roglit Ishay halda tónleika í Bústaðakirkju í kvöld
Bryndís Halla Gylfadóttir
sellóleikari og Roglit Ishay píanó-
leikari halda tónleika í Bústaða-
kirkju í kvöld kl.20.30. Á efnis-
skránni eru sónata fyrir selló og
píano eftir Debussy, Suite Popu-
laire Espagnole eftir Manuel de-
Falla, Sónata í A-dúr eftir Cesar
Franck og Sónata fyrir ein-
leiksselló eftir Kodály.
Bryndís Halla hefur komið
fram sem einleikari hér á landi, í
Kanada og í Bandaríkjunum og
tekið þátt í tónleikahaldi, meðal
annars með kammersveitum af
ýmsum stærðum. Hún er fædd
1964 og hóf sellónám sjö ára
gömul. Árið 1976 fluttist hún til
Kanada og nam þá sellóleik hjá
Adam Mueller í Halifax í Nova
Scotia, en sneri aftur til íslands
1981, stundaði nám við Tónlistar-
skólann í Reykjavík og lauk það-
an einleikaraprófi vorið 1984.
Sama haust hóf hún framhalds-
nám við New England Conser-
vatory í Bandaríkjunum og
væntir þess að ljúka þaðan
meistaragráðu næsta vor.
Rogit Ishay hefur víða komið
fram sem einleikari, auk þess sem
hún hefur víðtæka reynslu af
kammertónlist. Hún er fædd í ís-
rael 1965, stundaði tónlistarnám í
Tel Aviv til ársins 1985 og hóf þá
nám við New England Conser-
vatory. Eins og Bryndís mun Is-
hay ljúka meistaragráðu frá
skólanum næsta vor.
LG
Bryndís Halla Gylfadóttir
Menntaskólinn við Hamrahlíð
Öldungadeild
Öldungadeild Menntaskólans við Hamrahlíð er fyrsta öldungadeild
við framhaldsskóla hérlendis, stofnuð 1972. Við höfum því langa reynslu
og þjálfað kennaralið.
Nútímaþjóðfélag gerir kröfur um menntun og nú um áramótin er rétti
tíminn til að hefja nám hjá okkur - hvort sem þú vilt rifja upp, bæta við
eldri menntun eða hefja nýtt nám.
Öldungadeild Menntaskólans við Hamrahlíð býður framhaldsskólanám
á 6 brautum: eðlisfræðibraut, náttúrufræðibraut, nýmálabraut, forn-
málabraut, félagsfræðabraut (hún skiptist í fjölmiðlalínu, sálfræðilínu og
félagsfræðalínu) og tónlistarbraut.
Hægt er að stunda nám í mörgum eða fáum námsgreinum. Á vorönn
1989 býður skólinn eftirtaldar greinar:
Tungumál:
Danska
Enska
Franska
ítalska
Kínverska
Latína
Spænska
Þýska
Raungreinar:
Stærðfræði
Eðlisfræði
Efnafræði
Jarðfræði
Líffræði
Samfélagsgreinar:
Félagsfræði
Þjóðhagfræði
Bókfærsla
Listasaga
Lögfræði
Stjórnmálafræði
Fieimspeki
Saga
Mannfræði
Auk þessa er boðið upp á nám í tölvufræðum, bæði grunn-
nám og forritun. Notaðar eru tölvur af PC og BBC-gerðum.
Boðið er fjölbreytt nám í íslensku, bæði ritþjálfun og
munnleg tjáning, bokmenntir og málfræði. Einnig eru
myndlist og leiklist kenndar við öldungadeildina.
Innritun og val í öldungadeild MH fer fram á skrifstofu
skóians frá 9.00-18.00 dagana 3.-6. janúar. Skólagjald er
aðeins 7.400 krónur óháð fjölda námsgreina sem þið
leggið stund á.