Þjóðviljinn - 29.12.1988, Síða 3
Lœknar
Á Hkis-
spenanum
Ríkisendurskoðun:
50 læknarfengu yfir 5
miljónir. Dœmi um
lœknalaunfrá 6- 8
miljónum króna.
Allt að 50 læknar fengu f fyrra
yfir 5 miljónir króna í laun frá
rfkinu og dæmi eru um að rfkið
hafí greitt læknum allt að 8 milj-
ónir króna f árslaun. Sumir lækn-
ar hafa þá haft frá 400 - 660 þús-
und krónur í mánaðarlaun á síð-
asta ári hjá hinu opinbera.
Þessar upplýsingar koma fram
í nýlegri skýrslu Ríkisendurskoð-
unar um launakostnað ríkisins til
lækna í þjónustu þess í fyrra og
var skýrslan tekin saman að
frumkvæði heilbrigðisráðherra.
En um þessar mundir standa yfir
samningaviðræður á milli ríkisins
og Læknafélagsins um kaup og
kjör sem sagðar eru á afar við-
kvæmu stigi.
Ríkisendurskoðun segir í
skýrslu sinni að þessi launakostn-
aður sé með ólíkindum og þurfi
sérstaka rannsókn við. Skýringar
á þessum mikla launakostnaði til
lækna hjá hinu opinbera eru
skýrðar á þann veg að margir
þeirra vinni hlutastörf á mörgum
stöðum og eða reki eigin stofu
samhliða því að vera í fullu starfi
hjá ríkinu.
Guðmundur Bjarnason heil-
brigðisráðherra sagði í Ríkisút-
varpinu í gærkvöld að þessi hái
launakostnaður lækna vekti upp
spurningar hvað væru eðlileg
laun og hvað ekki en vildi ekki
halda því fram að læknarnir
hefðu misnotað ríkissjóð. Það
kom fram hjá ráðherra að launa-
kostnaður yfir heilt ár í heilbrigð-
iskerfinu væri frá 2 - 2,5 miljón
króna og ráðherra varpaði fram
þeirri spurningu hvort laun á bil-
inu 6- 8 miljónir á sama tíma væru
eðlileg laun hjá hinu opinbera?
Formaður Læknafélagsins
vildi ekkert láta hafa eftir sér um
málið þar sem samningar á milli
félagsins og ríkisins væru á afar
viðkvæmu stigi.
-grh
FRÉTTIR
Það eru ýmis efnasambönd
sem eyða ósonlaginu að áliti sér-
fræðinga, sérstaklega er þó talið
að svokölluð klórflúorkolefni
eigi þar stóran hlut að máli. Þau
efni eru einkum notuð í úðabrús-
um, kæli- frystikerfum, einangr-
un og til framleiðslu á ýmsum
iðnaðarvarningi úr plasti ss. fiski-
kössum. Efnasamböndin eru
einnig notuð til að hreinsa föt í
fatahreinsunum og í rafeindaiðn-
aði. Einnig koma við sögu svo-
kallaðir halonar sem innihalda
efnið bróm sem einkum er notað í
slökkvitækjum og brunavarnar-
kerfum. Halonar eru taldir mun
skaðlegri fyrir óson en klórflúor-
kolefni en notkun þeirra er hins
vegar tiltölulega lítil.
- Ríkisstjórinn ákvað á fundi
sínum fyrir jól að grípa til að-
gerða til að draga úr notkun þess-
ara efna hér á landi. í fyrsta lagi
hefur verið ákveðið að allir úða-
brúsar sem innihalda skaðleg efni
verið merktir og gildir það frá 1
júní á næsta ári, og að sala á þeim
verið óheimil eftir 1. júní 1990,
og með því er gert ráð fyrir að
draga megi úr notkun um 25%,
sagði Jón. og bætti við að allt yrði
gert til að leita leiða til að draga
úr notkun ósoneyðandi efna í
kæli- og frystibúnaði, til iðnað-
arframleiðslu, einangrunarefn-
um, efnalaugum og slökkvitækj-
um.
Jón upplýsti að skipuð yrði
þriggja manna nefnd til að annast
eftirlit með að áætluninni verði
fylgt eftir, einnig mun nefndin
veita ráðgjöf hvernig draga megi
úr notkun þeirra.
- Markmiðið er að við íslend-
ingar drögum úr notkun þessara
skaðlegu efna um 50% fyrir árið
1994 sagði Jón og ef við gerðum
það, gerum við gott betur en
kveðið er á um í fyrrnefndum al-
þjóðasáttmálum.
-sg
Snjór á snjó ofan. Það snjóaði duglega á suðvesturhominu í gær, og ekkert því til fyrirstöðu að sleðar,
skíði, snjóþotur og þoturassar séu tekin fram. En þeirfyrir norðan og austan láta sérfátt um finnast. (Mynd:
Jim).
Ósonlagið
Freonúðinn blásinn burt
Jón Sigurðsson: Stefnum að því að minnka notkun á ósoneyðandiefnum um helmingfyrir árið
1994. Allirúðabrúsarseminnihalda ósoneyðandi efna á að merkja þegar á nœsta ári
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að
gerast aðili að tveim alþjóða-
sáttmálum sem koma eiga i veg
fyrir eyðingu ósonlagsins. Til þess
að fullnægja þessum samningum
hafa verið ákveðnar sérstakar að-
gerðir til að draga úr notkun ós-
oneyðandi efna hér á landi, sagði
Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra
er hann kynnti skýrslu nefndar
sem kannað hefur notkun á óson-
eyðandi efnum hér á landi.
í skýrslu nefndarinnar kemur
fram að árið 1986 notuðu íslend-
ingar 200 tonn af þessum efnum,
eða 0,8 kg. á mann. 70 tonn af
þessum efnum hafa verið flutt inn
til landsins sem hráefni til iðnað-
arframleiðslu en 130 tonn hafa
komið inn í landið í formi full-
unninna vara.
Heilbrigði
Tólf þúsund sjúklega fælnir
Fœlni virðist vera nœst algengasti geðrœni kvillinn hérlendis. Aðeins ofdrykkjuvandamál er
algengara. Mestur er óttinn við krabbamein en því nœst við eyðni. Meðal niðurstaðna úrfyrstu
könnun áfœlni hérlendis
Talið er allt að 12 þúsund Is-
lendingar séu haldnir alvar-
legri fælni þe. yfirþyrmandi ótta
og það að hliðra hjá sér fremur
meinlausum hlutum, atferli og
aðstæðum. Fælni er því næst al-
gengasti geðræni kvillinn, aðeins
ofdrykkjuvandamál er algengari.
Þetta eru ma. niðurstöður úr
fyrstu könnun sinnar tegundar
hér á landi á fælni og algengi
hennar sem birt er í 4 tbl.
Heilbrigðismála. Þau Eiríkur
Örn Amarsson yfirsálfræðingur á
Geðdeild Landsspítalans og Ása
Guðmundsdóttir deildarsálfræð-
ingur stóðu að könnuninni á síð-
asta ári á vegum Geðrannsókna-
stofnunar Háskóla íslands. Send-
ir voru út ýtarlegir spurningalist-
ar til þúsund manna úrtaks úr
þjóðskrá og bámst svör frá 776
körlum og konum á aldrinum frá
16 til 75 ára.
Fælni eða fóbía er til í ýmsum
myndum og má sem dæmi nefna
myrkfælni, innlokunarkennd,
sjúkdómsótta og flughræðslu.
7% þátttakenda, hlutfallslega
fleiri konur en karlar sögðu að
fælni háði þeim verulega í lífi og
starfi sem gæti bent til að um 12
þúsund íslendingar séu haldnir
alvarlegri fælni samkvæmt þess-
um mælikvarða. Þess má geta að
margir hinna fælnu gátu rakið
ótta sinn til ákveðins atburðar.
Samkvæmt könnuninni virðist
fólk fælast mest dýr þe. flugur,
kóngulær, rottur, mýs, fugla eða
ketti. Næst kom ótti við að tala
við ókunnuga eða hitta fólk í
fyrsta sinn. Síðan kom ótti við að
tala fyrir framan lítinn hóp af
fólki sem maður þekkti. Þá var
lofthræðsla oft nefnd og loks má
geta ótta fólks við að vera í mann-
fjölda, til dæmis í stórmörkuðum
eða á veitingahúsum.
Sérstaklega var í könnuninni
spurt um flughræðslu og virðist
sem fjórða hver kona sé flug-
hrædd og tíundi hver karl. Sumir
finna fyrir ótta þegar við skrán-
ingu til brottfarar. Af einstökum
sjúkdómum óttast menn krabba-
mein mest, þá eyðni, hjarta- og
æðasjúkdóma, gigtsjúkdóma,
geðsjúkdóma og sykursýki.
Af krabbameini óttast karl-
menn mest lungnakrabbamein,
þá heilaæxli, hvítblæði, maga-
krabbamein og loks blöðruháls-
kirtilskrabbamein. Konur hins
vegar óttast mest krabbamein í
brjósti, þá leghálskrabbamein,
heilaæxli, hvítblæði en sístur var
ótti þeirra við lungnakrabbam-
ein.
-grh
Sovétríkin
Þakkir fyrir
sýnda samúð
Sendiráð Sovétríkjanna á ís-
landi hefur sent frá sér yfirlýs-
ingu þar sem látið er í ljós innilegt
þakklæti til allra þeirra sem lýst
hafa yfir samúð vegna hinna
hörmulegu náttúruhamfara í
Armeníu.
Einnig til allra þeirra stofnana
og einstaklinga sem hafa á ýmsan
hátt hjálpað nauðstöddum íbúum
Armeníu.
Fimmtudagur 29. desember 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Kristskirkja
Hljómeyki á
Nýárstónleik-
um
Tónlistarfélag Kristskirkju
mun fagna nýju ári með tón-
leikum á Nýjársdag, 1. janúar,
kl. 16.30. Þar mun sönghópurinn
Hljómeyki ásamt Úlrik Olasyni
organleikara og Moniku Abend-
roth hörpuleikara flytja verk eftir
Þorkel Sigurbjömsson.
Þetta er í þriðja sinn sem Tón-
listarfélag Kristskirkju helgar
heila tónleika verkum eins ís-
lensks tónskálds, í fyrra voru
sungin í kirkjunni verk eftir
Hjálmar Ragnarsson og fyrir
rúmum tveim ámm léku Snorri S.
Birgisson og Anna Guðný Guð-
mundsdóttir verk eftir Snorra. Er
það ætlun félagsins að halda á
hverju ári kynningartónleika eins
íslensks tónskálds og þá á Nýjárs-
dag, helsta Maríudegi ársins.
Oll þau verk Þorkels Sigur-
bjömssonar sem flutt verða á
þessum tónleikum em kirkjulegs
eðlis. Þeirra á meðal em Maríu-
ljóð og bænir, Te Deum og Da-
víðssálmar og hafa sum þeirra
heyrst áður á tónleikum, önnur
ekki. í hléi verða kaffiveitingar í
Safnaðarheimili kaþólskra.