Þjóðviljinn - 29.12.1988, Side 14

Þjóðviljinn - 29.12.1988, Side 14
—7* DAGr— Gamla laugin Ég var aö lesa það í jólablaði Feykis að í haust hefðu 20 bæir norðan Varmahlíðar í Skagafirði verið tengdir Hitaveitu Seylu- hrepps. Þetta eru góð tíðindi og þessvegna hefur kannski minna farið fyrir þeim í blöðum en ef um ótíðindi hefði verið að ræða. En þau rifja upp fyrir mér minningar frá því er ég kom fyrst á þær slóðir þarsem þau hjón, Pálmi Þor- steinsson og Sigrún Guðmunds- dóttir, reistu síðar nýbýlið Varma- hlíð í landi Reykjahóls, en út f rá því hefur svo vaxið myndarlegt þorp, þar sem margháttuð starf- semiferfram. Ekki man ég nú fyrir víst hvaða ár þetta var en þó allnokkru áður en sr. Guðbrandi í Viðvík tókst að koma mér í kristinna manna tölu. Neðan við Reykjarhólinn austan- verðan varsundlaug. Hún var gerð úrtorfiog maðuróð aurinn í miðjan legg þar sem botninn var gljúpastur. Þarna hafði sund- kennsla farið fram í fjöldamörg ár. Um þetta leyti var Pálmi Þor- steinsson sundkennari. Hann bjó þá enn á Reykjarhóli með tengdaforeldrum sínum. Ég var alinn upp á bökkum Héraðsvatn- anna. Ut af túninu varð ekki kom- ist nema fara yfir einhverja kvís- lina úr þeim. Það þótti því sjálf- sagt mál að við bræður lærðum sem allra fyrst að synda ef út af bæri í viðskiptunum við Vötnin. Pabbi fylgdi mér á hestum fram í Reykjahól seinni part dags en þartóku þau við mér Pálmi og Sigrún. Morguninn eftir byrjaði sund- kennslan, í norðan kalsa veðri. Aðeins einn nemandi mætti þennan fyrsta dag auk mín. Skýli höfðum við ekkert nema striga- tjald, sem hvorki hélt vatni né vindi. Nokkru seinna fengum við stærra og betra tjald en þá voru væntanlegir sundkappar líka orðnir 16. Pálmi var mikill félagi okkar strákanna og ágætur sundkennari. Ég var þarna í viku og að henni lokinni var ég orðinn vel fleytingsfær. Nú sér gömlu sundlaugarinnar lítinn sem engan stað. Steinsteypt sundlaug var vígð í Varmahlíð 1939. Það voru mikil oggóð umskipti. Allstórt þorp hefur nú myndast í Varmahlíð. Þar er félagsheimili, skóli, verslanir, ýmsar þjónust- ustofnanirog einhverjirtugir íbúðarhúsa. Allareru þessar byggingar hitaðar upp með jarð- varmanum í Reykjarhólnum. Og nú hafa 20 sveitabýli bæst við. Það heita vatn sem öldum saman bullaði upp úr hveraaugunum í Reykjarhólnum, engum til nota, hefur nú verið tekið í þjónustu mannlífsins þarna í Seyluhreppn- um. Enalltafséégeftirgömlu torflauginni, með sínum mjúka og voðfellda botni, - þar sem ég tók fyrstu sundtökin. . ÍDAG er 29. desember, f immtudagur í tíundu viku vetrar, níundi dagur mörsugs, 364. dagurársins. Sól kemur upp í Reykjavík kl. 11.21 en sest kl. 15.39. Tungl minnkandi á þriðja kvartili. ÞJÓÐVILJINN FYRIR50ÁRUM ítalir ráðast inn í franska Sómalíland. Frakkarsenda mikið herlið á móts við þá. Þýzka stjórnin styður landránapólitík Mússolinis. Landssíminn segir upp nauðsynlegu starfsfólki. Á sama tíma kaupir landsímastjóri jarð- streng, sem engin þörf er fyrir í bráð. Lesendur! Skiptið við þá sem auglýsa í Þjóðviljanum. UM UTVARP & SJONVARP Sálmar frá Qumran Sjónvarp kl. 23.55 A síðasta ári hélt norskur mótettukór í tónleikaferð til ísra- el. Hélt þar marga tónleika ásamt Kibbutz-hljómsveit ísraela. Há- punktur ferðarinnar voru tón- leikar í Dormition Abbey dóm- kirkju á Síonsfjalli í Jerúsalem, þar sem María mey á að hafa fengið hvfldina eilífu. Tónleik- arnir þóttu takast mjög vel hjá kór og hljómsveit og ekki hlaut stjórnandinn, Bjarne Slögedal, minnst lof. Norska Sjónvarpið tók upp þátt frá tónleikunum og sögustöðum í ísrael. -mhg Guðmundur Kamban Sjónvarp kl. 21.30 Þetta er heimildarmynd eftir Viðar Víkingsson, sem Sjónvarp- ið lét gera í tilefni aldarafmælis skáldsins. Myndin lýsir æviferli Kambans sem um margt var óvenjulegur og atburðaríkur. Kamban hóf rithöfundarferil sinn ungur að árum og fluttist utan í því augnamiði að gerast rithöf- undur erlendis. Eftir hann liggur fjöldi verka: leikrit, skáldsögur og auk þess var hann ágætt ljóð- skáld. JJann fékkst við leikstjórn og gerði fyrstu leiknar kvikmynd- ir Islendings. - Hallgrímur H. Helgason samdi þulartexta. -mhg Tónlistarkvöld Guðmundur Kamban Rás 1 kl. 20.15 Á Tónlistarkvöldinu verður að þessu sinni eingöngu flutt íslensk tónlist, hljóðritanir, sem Útvarp- ið hefur látið gera á þessu ári. Fyrst eru það upptökur með Jón- asi Ingimundarsyni píanóleikara frá því í maí í vor. Jónas hljóðrit- aði þá tvö verk eftir Þorkel Sigur- bjömsson: Tónleikaferðir frá 1971 og Chaconette frá 1985. Auk þess lék hann nýtt verk eftir Gunnar Reyni Sveinsson, Dagur vonar, samið 1987. Síðan verðá leikin sex stutt kammerverk eftir Atla Heimi Sveinsson, sem hljóðrituð voru nú í sept. og nóv.: Donna nobis pacem við ljóð eftir Pablo Neruda, í íslenskri þýðingu Jóns Óskars og Sigfúsar Daða- sonar, flutt af Sigurði I. Snorras- yni, Gunnari Eyjólfssyni og fjór- um ungum söngkonum. - Eidola, fyrir klarinettu, kontrabassa og slagverk, leikið af Sigurði I. Snorrasyni. Jóni Sigurðssyni og Pétri Grétarssyni. - Klif fyrir flautu, klarinettu og selló, leikið af Kolbeini Bjamasyni, Guðna Franzsyni og Sigurði Hall- dórssyni. - Together with you, frá árinu 1970, tileinkað Þorkeli Sigurbjömssyni og konu hans, Barböru, leikið af þeim sömu, auk Þorsteins Gauta Sigurðs- sonar píanóleikara. - Mysterium Jónas Ingimundarson tremendum við ljóð eftir Hó Sung, í þýðingu Helga Hálfdan- arsonar, en Gunnar Guðbjörns- son syngur tenórhlutverk verks- ins. - Ljómur, verk fyrir streng- jakvartett og klarinettu, samið 1978 en frumflutt á tónleikum í Gerðubergi 18. nóv. sl., af Sig- urði I. Snorrasyni, Gerði Gunn- arsdóttur, Sean Bradley, Helgu Þórarinsdóttur og Nora Kronb- lueh. -mhg GARPURINN KALLI OG KOBBI Því ekki? Viö vorum hræddir viö, ^ hann Já en viö eru venjulegir Jarðarbúar, el viðundur frá annarri plánel eins og hann ■9-27 FOLDA 14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 29. desember 1988

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.