Þjóðviljinn - 29.12.1988, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 29.12.1988, Qupperneq 16
-SPURNINGIN— Ætlar þú að eyða miklum peningum í flugelda í ár? Hilmar Hallvarðsson Nei, ég ætla ekki að eyða krónu. Það er langt síðan ég hætti því. Hrefna Gunnarsdóttir Ég ætla ekki að eyða neinu í flugelda. Ég á afmæli á gamlárs- dag og fékk svo mikið af flugeld- um í afmælisgjöf þegar ég var yngri að ég er búin að fá mig fullsadda af þeim. Magnús Harðarson Ætli ég kaupi ekki fjölskyldu- pakka eins og venjulega, og hann ætla ég að kaupa hjá Iþrótt- afélagi Kópavogs. Inga Huld Slgurgeirsdóttir Við ætlum okkur að kaupa svona meðalstóran fjölskyldu- pakka. Við höfum alltaf keypt flugelda.hjá skátunum og ætlum að gera það núna líka. Jakobína Sígurðardóttlr , Sáralítið., Ég kaupi þá þar sem ég rekst á þá. þJÓÐVILIINN Fimmtudagur 29. desember 1988 278. tölublað 53. órgangur SÍMI 681333 Á KVÖLDIN ÁLAUGARDÖGUM 681663 íþróttamaður ársins Einar vann í þriðja sinn Bjarni Friðriksson og Haukur Gunnarsson voru honum skammtað baki. Þrír handknattleiksmenn ogþrír knattspyrnumenn á topp-10 Einar Vilhjálmsson, spjótkast- ari, var í gær útnefndur íþróttamaður ársins á íslandi 1988. Þetta er í þriðja skipti sem Einar hlýtur þessa nafnbót en hann sigraði einnig í þessu kjöri árin 1983 og 1985. Bjarni Sig- urðsson, júdókappi, varð annar í kjörinu og Haukur Gunnarsson, iþróttum fatlaðra, þriðji. Þessir þrír stóðu uppúr í kjör- inu. Einar hlaut 130 stig af 190 mögulegum, Bjarni aðeins fimm stigum minna og Haukur hlaut 110 stig. Kjörið fór þannig fram að íþróttafréttamenn, 19 að tölu, völdu 10 mestu afreksmenn íþrótta að þeirra mati og fékk sá efsti á listanum 10 stig, og þannig koll af kolli niður í 1 stig. Fjórða í röðinni varð Fjóla Ól- afsdóttir, fimleikastúlka úr Ár- manni, hlaut 85 stig, en hún varð fyrst íslendinga til að hljóta Norðurlandameistartitil. Þeim árangri náði hún á móti unglinga í Finnlandi. í fimmta sæti varð Úlfar Jónsson, golfari, með 80 stig, handknattleiksmaðurinn Kristján Arason varð sjötti með 74 stig og félagi hans í landslið- inu, Alfreð Gíslason, sjöundi með 73 stig. í næstu þremur sæt- um höfnuðu knattspyrnukapp- arnir Arnór Guðjohnsen, 64 stig, Ásgeir Sigurvinsson, 33 stig, og Atli Eðvaldsson, 32 stig, en jafn Atla að stigum varð landsliðs- markvörður okkar í handknatt- leik, Einar Þorvarðarson. Einar Vilhjálmsson er vel að titlinum kominn. Hann vann sigur á 12 mótum á árinu, 6 al- þjóðlegum, 2 landskeppnum, 2 meistaramótum hérlendis og 2 innanlandsmótum. Hann setti tvö íslandsmet á árinu, fyrst 83,36 metra í Texas í maí og síðan 84,66 metra á Meistaramóti ís- lands í júní sem er fjórða lengsta kast í heiminum í ár. Um mán- aðamótin júní-júlí keppti Einar á tveimur stigamótum alþjóða- sambandsins og voru þar mættir til keppni allir fremstu spjótka- starar heims. Einar sigraði í þeim báðum og voru menn farnir að gera sér giæstar vonir um árangur hans á Ólympíuleikunum í Seoul. Þar var gæfan honum hins vegar ekki hliðholl því hann var aðeins átta sentímetrum frá úrslitum keppninnar, kastaði 78,92 metra. Einar hefur sennilega aldrei unn- ið eins glæsilega sigra á sínum ferli eins og í ár og því hljóta von- brigðin í Seoul að vera gífurleg. Júdókappinn Bjarni Friðriks- son státar af hliðstæðum árangri og Einar en hann keppti á sjö stórmótum á árinu og vann til verðlauna á fjórum þeirra. Hann var hins vegar óheppinn með mótherja í Seoul en þar glímdi hann við verðandi gullverðlauna- Einar Vilhjálmsson tók við styttunni glæsilegu í þriðja sinni í gær og hefur hann alla burði til að vinna hana aftur í framtíðinni. Mynd:Þóm. hafa og tapaði naumlega. Síðan glímdi Bjarni við bronsverð- launahafann og tapaði einnig þannig að Ólympíudraumur hans var úti. Árangur Hauks Gunnarssonar er ekki síður glæsilegur en þeirra Einars og Bjarna. Hann er mjög fjölhæfur keppnismaður en hann keppir í boccia og borðtennis auk spretthlaupanna sem hann er frægastur fyrir. Hann vann til verðlauna í öllum keppnisgrein- um sínum í sínum flokki á Ólympíuleikum fatlaðra í Seoul. Hann hlaut gullverðlaun í 100 m hlaupi, hljóp á 12,88 sekúndum og fékk að auki bronsverðlaun í 200 og 400 m hlaupum. Hann sig- raði í öllum þessum greinum á alþjóðlegu móti í V-Þýskalandi í júlí og setti þá heimsmet í sínum flokki í 400 m hlaupi. Þess má geta að Einar Vil- hjálmsson er annar íslendingur- inn til að hljóta þessa nafnbót þrí- vegis en Hreini Halldórssyni tókst hið sama á áttunda áratugn- um. Aðeins einn maður hefur hlotið titilinn oftar en Vilhjálmur Einarsson, faðir Einars, var fimm sinnum útnefndur íþróttamaður ársins á aðeins sex ára tímabili. Þá hafa fjórir íþróttamenn hlotið titilinn tvisvar, þeir Valbjörn Þorláksson, Guðmundur Gísla- son, Ásgeir Sigurvinsson og Skúli Óskarsson. -þóm

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.